Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989 25 Þorvaldur Jóns- son — Minning Hinn 23. september síðastliðinn lézt elzti íbúi Reykjavíkur, Þorvald- ur Jónsson, sem iengi var tii heimil- is að Miklubraut 64. Hann var á 105. aldursári þegar kallið kom og hafði borið elliþungann svo vel að aðdáun vakti þeirra sem þekktu til. Þorvaldur Jónsson fæddist á gamlársdag 1884. Foreldrar hans, hjónin Jón Þorvaldsson (1857—1941) og Ingibjörg Jó- hannsdóttir (1858—1887) bjuggu í Stapa í Tungusveit í Skagafirði fram. Þar hafði faðir Jóns áður búið og átt jörðina, Þorvaldur Kristjánsson, hreppstjóra á Gili í Borgarsveit, Ólafssonar, kvæntur Helgu Jónsdóttur, en foreldrar hennar voru Jón bóndi Jónsson á Steiná í Svartárdal, mikill og merk- ur barnakarl, og Ingibjörg Hrólfs- dóttir, Þorsteinssonar frá Álfgeir- svöllum, af ætt Hrólfs sterka Bjarn- asonar lögréttumanns í beinan karl- legg. — Ingibjörg í Stapa, móðir Þorvalds, var dóttir Jóhanns Stef- ánssonar á Ytri-Löngumýri í Svína- vatnshreppi, Sveinssonar, og konu hans, Vigdísar Guðmundsdóttur í Haga í Grímsnesi, Tómassonar. Ingibjörg var fædd í Fagranesi á Reykjaströnd, en síðar bjuggu for- eldrar hennar í Engihlíð í Langadal. Jón og Ingibjörg í Stapa voru vel metin í sveit sinni, en ekíd var þeim skapað að eiga langa samfylgd, því Ingibjörg lézt í janúarmánuði 1887, tæplega þrítug. Þau hjónin höfðu eignazt tvö börn önnur en Þorvald, en bæði dóu komung. Jón bjó áfram í Stapa eftir lát konu sinnar og hafði hjá sér Þor- vald son sinn. Hann kvæntist aftur 1890. Á þeim ámm lá berklaveiki mjög í landi, og greip hún Jón í Stapa heiftarlega, svo að honum var tæpast hugað líf, en náði þó heilsu eftir að tekinn hafði verið af honum annar fóturinn fyrir ofan hné. Það var Guðmundur Hannes- son, síðar prófessor, sem hélt á hnífnum og átti aðgerðin sér stað heima í Stapa sumarið 1891. Jón Þorvaldsson var hið mesta karl- menni og hagur vel; smíðaði hann sér sjálfur gervifót og komst undra- vel af eftir atvikum. Hann bjó fram að aldamótum í Stapa með seinni konu sinni og börnum þeirra; varð þá ekkill öðra sinni og gerðist hús- maður, en var síðar lengi í heimili hjá Þorvaldi syni sínum, svo og vin- afólki hans. Menn vildu létta undir með Jóni bónda í Stapa eftir að hann fatlað- ist. Því var það vorið 1892, að Jó- hann P. Pétursson hreppstjóri á Brúnastöðum, nokkram bæjarleið- um framar í sveit, bauð honum að taka Þorvald son hans á heimili sitt. Það varð að ráðum og fór Þorvaldur þá þegar að Brúnastöð- um, kominn á áttunda árið. Hann var mjög hændur að föður sínum og kvaðst hafa verið heldur svona framlágur er hann kom í hina nýju vist. Er skemmst frá því að segja, að hann óx upp á Brúnastöðum síð- an, fór þaðan ekki fyrr en tvítugur maður. Jóhanni hreppstjóra þótti mikið varið í Þorvald bónda Kristj- ánsson í Stapa og Hélgu konu hans og hugði Þorvaldur Jónsson að það hefði ásamt öðra stuðlað til þess að honum var boðin vist á Brúna- stöðum. Hann mælti í mín eyru: „Einu sinni sagði Jóhann gamli við mig: Þú þyrftir að líkjast honum afa þínum. Hann gat búið alls stað- ar. Það hefði verið sama þó hann hefði verið settur á mel.“ Þegar Þorvaldur dvaldist á Brún- astöðum bjó Jóhann P. Pétursson með seinni konu sinni, Elínu Guð- mundsdóttur frá Guðlaugsstöðum í Blöndudal, föðursystur Guðmundar prófessors, þess er að framan get- ur. Þau hjón voru barnlaus en ólu upp í langri búskapartíð sinni fleiri böm heldur en Þorvald. Þar var þó aldrei ýkja margt fólk á bæ og allt í nokkuð gamaldags skorðum, en „heimilið var ákaflega traust og reglan alveg framúrskarandi“ sagði Þorvaldur. Hann bjó þar sem aðrir við allstrangan húsaga, þurfti mikið að vinna, en þroskaðist vel að burð- um, því hollan mat fékk hann í svanginn. Helzt saknaði hann þess, hve lítill gleðibragur var á heimilis- lífinu, því ástríki var ekki sem skyldi með hjónunum. Þau voru ólík, en mikilhæf hvort á sinn hátt og raungóð. Taldi Þorvaldur sér happ, þrátt fyrir allt, að hafa alizt upp í skjóli þeirra, lakari vist hefði getað beðið hans annars staðar. Nægur auður var í Brúnastaða- búi, því Jóhann bóndi var einn rík- asti maður héraðsins og gaf sig mjög að fésýslu. Hann var valda- mikill, fór með hreppstjórn nær hálfa öld og fékk dannebrogsorðu. En eigi var hann upp á bókina, eins og sagt er, og kannski þess vegna greiddi hann lítið götu Þorvaldar, sem var námfús unglingur, til skól- alærdóms. Hann nam ekki í upp- vexti annað en lestur og skrift, ofur- lítið í reikningi og kverið utan- bókar. Aðallega var það Elín hús- freyja sem kenndi honum að lesa, því hún var langtum betur læs en bóndi hennar. Skrift lærði Þorvald- ur hins vegar mest af sjálfsdáðum eftir að hann eignaðist forskriftar- bók og rithönd hans varð með tím- anum prýðisgóð. „Ég fór snemma að skrifa“ sagði hann, „og hafði mjög gaman af því, skrifaði oft á svell með broddstaf." Hálfan mánuð undir fermingu naut Þorvaldur kennslu í heimaskóla á bæ einum í sveitinni, „og ég man að mikið langaði mig til að vera þar lengur" sagði hann mér eitthvert sinn. Eft- ir þetta sat hann aldrei nokkurn dag á skólabekk. Þorvaldur Jónsson fluttist frá Brúnastöðum vorið 1904, en oft kom hann þar síðar á ævi, enda þótti honum að þar ætti hann dýpri rætur en annars staðar fyrir norð- an. Hann réðst nú í vinnumennsku og um tíma lausamennsku, var fyrst á Skíðastöðum í Lýtingsstaða- hreppi, en fór 1906 að Vöglum í Blönduhlíð og átti þar heimilisfesti um sinn. Ekki sat Þorvaldur þó um kyrrt á Vöglum, því hann gekk að búnaðarvinnu vestur í Svínavatns- hreppi tvö vor, og 1907-8 var hann vetrarmaður í Holti í Svínadal hjá Guðmundi bónda Þorsteinssyni, föður Magnúsar ráðherra, líkaði sú Fædd 16. september 1904 Dáin 26. september 1989 I dag, miðvikudaginn 4. október, fer fram frá Norðfjarðarkirkju útför Matthildar Guðrúnar Jóönnu Jóns- dóttur. Hún lézt 26. sept. sl. á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Neskaupstað eftir alllanga og í lokin stranga legu. Matthildur fæddist í Sandhúsi í Mjóafirði þann 16. september 1904. Foreldrar hennar voru Jón Jakobs- son útvegsmaður og kona hans Margrét Þórðardóttir. Matthildur átti tvo bræður, Þórarinn tónskáld, sem lézt árið 1974 og Borgþór, sem nú dvelur á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað. Matthildur ólst upp í Mjóafirði hjá foreldrum sínum, en um fermingu fluttist hún til Nes- kaupstaðar og réðst í vist hjá hjón- unum, Sigfríði og Páli Þormar. Jón faðir Matthildar, lézt á miðjum aldri, en Margrét fluttist til dóttur sinnar á efri áram og lézt á heim- ili hennar í hárri elli. Matthildur var glæsileg stúlka. Hún giftist 2. desember 1926, ung- um, harðduglegum manni, Ölveri Guðmundssyni, sem af áræðni og atorkusemi réðst fljótlega í útgerð vist stórvel og kunni frá mörgu að segja þaðan. Vorið 1908 fengu leiguábúð í Hjaltastaðakoti (nú Grænumýri) í Blönduhlíð hjónin Jóhann Hjálms- son frá Kúskerpi og Stefanía Guð- mundsdóttir, ágætt fólk að dugnaði og myndarskap. Þorvaldur Jónsson réðst til þeirra og tók senn við öllum búsforráðum, því Jóhann Hjálmsson var smiður góður og vann löngum stundurn'að heiman fyrir bændur. Árið 1911 gekk.Þorvaldur að eiga einkadóttur þeirra hjóna í Hjalta- staðákoti, Helgu, sem fædd var 1893. Hún bar nafn Helgu Þor- valdsdóttur (skálds Böðvarssonar í Holti), húsfreyju á Flugumýri; stóð svo á því, að Stéfanía móðir hennar dvaldist lengi ung á Flugumýri hjá Helgu, sem þá var ekkja eftir Ara Arason yngri, lærði margt gott og nytsamt af henni og bar til hennar þakkarhug æ síðan. Þorvaldur hélt ekki fjáður út i lífið þegar hann kvaddi Brúnastaði, átti þó fáeinar skepnur. En efna- hagur hans rýmkaðist ögn við það, að þá fékk hann í hendur móður- arf; munaði mest um andvirði fjórðaparts í Stapajörð sem Jóhann hreppstjóri seldi í hans nafni fáum áram fyrr og lét ávaxtast. Upphæð- in, 200 krónur, svaraði nokkurn veginn til 20 ærverða, en einnig má hafa til samanburðar, að árs- kaup Þorvaldar í vinnumennskunni á Skíðastöðum nam 100 krónum. Kom hann nú betur undir sig fótun- um, og í Hjaltastaðakoti kvað hann að sér hefði búnast sæmilega. „Ég hafði mikiu meira en kotið bar raun- verulega“ og þakkaði hann það ábúendum Hjaltastaða, sem höfðu byggingarráðin, einkum þó Jóranni og fiskverkun og gerðist einn af athafnamestu framkvæmdamönn- um Neskaupstaðar allt til dauða- dags. Ölver var fæddur 6. apríl árið 1900, í Vaðlavík, Norðfjarðar- hreppi. Hann var sonur hjónanna Guðmundar Magnússonar, bónda í Vaðlavík og konu hans. Sólveigar Benjamínsdóttur. Ölver lézt árið 1976. Matthildur og Ölver hófu búskap í litlu húsi sem heitir Freyja og enn stendur. Þar hafði Ölver áður búið foreldram sínum heimili. Þau bjuggu hjá syni og tengdadóttur á meðan þau lifðu. I þessu litla húsi smástækkaði fjölskyldan. Varð þar fljótt þröng á þingi, því börnunum fjölgaði. Afkoma heimilisins byggð- ist á gjöf Njarðar, en oft var öðram rétt hjálparhönd og fleiri munnar mettaðir en fjölskyldunnar. Matt- hildur hafði nóg að gera, eins og sjá má, en hún var með afbrigðum dugleg og gekk að og leysti öll sín verk með stakri prýði. Þegar börnin þeirra vora orðin tíu, réðust þau hjónin, af stórhug í að kaupa eitt glæsilegasta hús bæjarins í þá tíð, Þórsmörk. Þar fæddist þeim ellefta og síðasta barn þeirra. Var nú orðið rýmra um hina húsfreyju Andrésdóttur frá Stokk- hólma, sem Þorvaldur bar á mikið lof fyrir mannkosta sakir. Árið 1921 færði Þorvaldur bú sitt vestur fyrir Vötn, að ípishóli. Sú jörð er nú í eyði. Þar bjó langa- langafi hans um tíma, Hrólfur Þor- steinsson. „ípishóll var sérstaklega góð beitaijörð“ mælti Þorvaldur, „en í Hjaltastaðakoti var meiri og betri útheysskapur. Óttalegar engjaberjur á ípishóli, en heimatún- ið skárra þar en í Hjaltastaðakoti." Þorvaldur brá búskap á ípishóli 1928, því kona hans var ekki heilsu- hraust og fluttust þau til Sauðár- króks. Þar andaðist Helga Jóhanns- dóttir í júnímánuði 1944, fimmtug að aldri. Hún var „gáfuð kona og vel látin“ ritaði merkur maður sem kynntist henni. Helgu og Þorvaldi fæddust þijú börn, sem öll lifa föður sinn. Þau eru: Ingibjörg (f. 1913), átti Ólaf Jónsson vélstjóra á Akureyri, sem nú er látinn; Jón (f. 1915), hús- gagnasmiður í Reykjavík, kvæntur Guðnýju Einarsdóttur frá Þórodds- stöðum í Ölfusi; Oddný (f. 1919), áður búsett á Sauðárkróki, nú í Reykjavík, gift Hólmari Magnús- syni húsasmið frá Sauðárkróki. Barnabörn Þorvaldar urðu fimm og hann eignaðist barnabarnabama- börn. Þorvaldur Jónsson gerðist dag- launamaður þegar hann fluttist á mölina. Kreppan fór í hönd og oft var lítið að starfa á Sauðárkróki. Hann sótti því atvinnu mjög mikið annað, kvaðst hafa unnið heima aðeins þijú sumur alls þá tvo ára- tugi sem hann bjó í kauptúninu. Frá 1940 starfaði Þorvaldur fjórtán ár samfellt í þjónustu vitamála- stjórnar, fyrst við vitabyggingar hér og þar um land, síðar við afgreiðslu í birgðageymslu stofnunarinnar í Reykjavík. Eftir það var hann m.a. um tíma birgðavörður hjá fyrirtæki Kristjáns Kristjánssonar í Reykja- vík. Hann gekk til vinnu sinnar allt fram á haustið 1964, þegar hann skorti fáa mánuði í áttrætt. Þá loks fannst honum mál til komið að hvíla sín sterku bein. Árið 1948 fluttist Þorvaldur bú- ferlum til Reykjavíkur ásamt Oddnýju dóttur sinni og manni hennar. Seldu þeir tengdafeðgar um leið húseign sem þeir áttu á Sauðár- króki og festu í staðinn sameigin- lega kaup í íbúð að Miklubraut 64. Þar var Þorvaldur síðan til húsa meðan ævin entist. Öldungurinn hafði orð á því við mig þakklátum huga, að allir vandamenn væra sér góðir og ræktarsamir og væri ást- stóru og dugmiklu fjölskyldu, en auk þess, sem svo oft áður, var stundum skotið skjólshúsi yfir nána ættingja. Börn Matthildar og Ölvers eru: Sólveig, fædd 11.1. 1927, gift Bjarna Jónssyni; Þau era búsett í Bandaríkjunum; Margrét fædd 14.2. 1929, en hún lézt árið 1976; Jón, f. 20.4. 1930, kvæntur Unni Sigfinnsdóttur, búsett á Neskaup- stað; Guðmundur f. 7.7.1931, hann lézt 1985; Olga f. 3.10. 1933, gift James LaMarche, búsett í Banda- ríkjunum; Þráinn, f. 3.3. 1935, kvæntur Kristrúnu Kristinsdóttur, búsett í Rvík; Magnús, f. 29.7. 1937, búettur í Hafnarfirði; Þóra, f. 3.8. 1939, gift Ólafí Thoraren- Minning: Matthildur Jónsdótt- ir frá Neskaupstað samlega að sér hlúð á heimili dótt- ur og tengdasonar. Alúð þeirra hjóna við hann leyndi sér ekki held- ur þegar maður leit þar inn, til að mynda á afmælisdegi Þorvaldar, sem bar upp á gamlársdag eins og áður getur. Þá var honum haldíif hveiju sinni rausnarleg veizla sem oft hófst fljótlega upp úr hádegi og stóð fram á nótt. Þar komu sam- an skyldmenni og gamlir vinir og kunningjar, og var glatt á hjalla. Ég man Þorvald Jónsson frá því er hann bjó á Sauðárkróki, sá harin þá oft, meðalmann á hæð og svar- aði sér vel, prúðmannlegan og fijálslegan í framgöngu, og þótti mér maðurinn allur sérlega geð- þekkur. Hann var nokkuð stórskor- inn í andliti, bláeygur, hárið ljós- skolleitt, gekk með yfirskegg og var rauðleitt skeggið. En ekki kynntist ég Þorvaldi persónulega fyrr en hann hafði tvo vetur um áttrætt. Þá bar ég mig eftir honum vegna áhuga míns á gömlum dögum í Skagafirði. Hann lét ekki á sér standa. Og er skjótast af því að segja að ég settist að fótskör hans. Árin sem í hönd fóru sagði hann mér frá ótalmörgu sem hann mundi frá fyrri hluta ævi sinnar og skráði ég það mér til skemmtunar jafnóð- um. Fæst af því hefur enn birzt annað en lýsingar á Jóhanni hrepp- stjóra og Elínu konu hans á Brúna- stöðum, sem og heimilisbrag þar; það efni hagnýtti ég óspart í þætti sem prentaður hefur verið, og væri þunnur fiskurinn í honum ella. Þor- valdur hafði yndi af því að rifja upp liðna tíð og var mjög skemmtilegur sögumaður, minnugur, orðheppinn og kíminn, með öllu laus við karla- grobb og önnur merkilegheit. Þótt mér fyndist heldur en ekki gaman að fróðleik Þorvaldar, var mér ekki minni ánægja í að kynn- ast honum sjálfum. Hann var jafn- lyndur maður og glaðsinna, aldrei með útásetningar, agg og nöldur, virtist beinlínis hafa tamið sér forðast það. Biturleiki festi engar rætur í fari hans, þrátt fyrir upp- vöxt sem varð honum ekki að öllu leyti skapfelldur. Hann lifði hið langa ævikvöld sitt óvílsamur og því dettur mér í hug vísa eftir Gísla Ólafsson frá Eiríksstöðum: Aldrei þurfa að óttast kvðld, aldursmörk þó finni, þeir sem hafa hreinan skjöld haft frá æsku sinni. Þorvaldur Jónsson var borinn til grafar við hlið konu sinnar í Sauðár- krókskirkjugarði 30. september síð- astliðinn. Blessuð sé minning hans. Hannes Pétursson --------------------------------- sen, búsett á Seltjamarnesi; Lovísa, f. 13.9.1940, gift Garðari Halldórs- syni, búsett í Rvík; Þórarinn f. 28.10. 1941, kvæntur Sigríði Gunn- arsdóttur, búsett á Neskaupstað, og Sigurður f. 13.2. 1943 búsettur á Neskaupstað. Barnabömin era tuttugu og barnabarnabörnin era orðin tuttugu og eitt. Matthildur varð fyrir þeirri ógæfu að fá lömunarveiki árið 1947, sem háði henni mjög alla tíð síðar. Þrátt fyrir þessi veikindi sín og önnur síðar, kvartaði þessi heið- urskona aldrei nokkurn tímann og sinnti sínum verkum af stakri ró og dugnaði á meðan hún gat. Fýfir tveimur áram var heilsu hennar þannig komið, að sjúkravist var óumflýjanleg og átti hún ekki aftur- kvæmt þaðan. Tíu dögum áður en hún lézt, á áttatíu og fimm ára afmælinu, sagðist hún hafa það ágætt og ekki hafa yfir neinu að kvarta, þó var auðséð að hún var sárþjáð. Þessi ummæli lýsa vel hug- prýði Matthildar, sem veigraði sér við að ónáða starfsfólk sjúkrahúss- ins nema í ítrastu neyð. Skal hér notað tækifærið og færðar þakkir þeim læknum og starfsfólki sjúkra- hússins, sem stunduðu hana. Hún var alla tíð miðpunktur hinn- ar stóra fjölskyldu, og var elskuð og dáð af öllu sínu fólki sem og öðram, er henni kynntust. Ég kveð elskulega tengdamóður mína með þakklæti fyrir vináttu og hlýjar móttökur alla tíð og bið henni blessunar Guðs á nýrri lift,- braut. Blessuð sé minning hennar. Ólafur Thorarensen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.