Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.10.1989, Blaðsíða 14
«3tH íCjflOTUÖ -i- í[UOAaifiIiVð[M f 110AJIIMUOHQM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989 <11 14 Söngleik- ir og rokk- óperur á Hótel íslandi HÓTEL ísland frumsýnir stór- sýningxina „Söngleikir og rokkóperur" fostudaginn 6. október nk. Sýning þessi er saman sett af lögum úr frægum söngleikjum og rokkóperum síðustu tuttugu ára. Má þar nefna West Side Story, Sound of Music, Tommy, Cats og Litlu hryllingsbúðina. Yfir þijátíu manns, söngvarar, dansarar og tæknimenn taka þátt í sýningunni sem undir stjóm Tracey Jackson sem er bandarísk og Jóns Ólafssonar úr hljómsveitinni Bítlavinafélagið. í sýningu þessari er allur hinn fullkomni tækjabúnaður Hótel íslands nýttur í fyrsta sinn til hins ítrasta. Miðasala og borðapantanir eru daglega á Hótel íslandi. (Fréttatilkynning) Atriði úr Söngleikjum og rokkóperum. Ársfundur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Norðurlönd vilja varanlegan stuðning við lágtekjuríki — sagði Jón Sigurðsson í ræðu sem hann flutti fyrir hönd Norðurlandanna ÁRLEGUR fundur Alþjóðabank- ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var haldinn i Washington, D.C. í Bandaríkjunum i siðustu viku. Fundinn sátu fiilltrúar 152 þjóða, sem aðild eiga að þessum stofin- unum, pjármálaráðherrar, við- skiptaráðherrar, seðlabanka- stjórar og aðstoðarmenn þeirra. Aðalfulltrúar íslands á fundinum voru þeir Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra og Jóhannes Nordal seðlabankastjóri. Um- ræðuefhi fundarins var samræm- ing og umbætur í stjórn efna- hagsmála bæði í iðnaðar- og þró- unarlöndum, aukið viðskipta- frelsi, minnkun erlendra skulda, þróunaraðstoð og umhverfismál. Norðurlönd koma fram sameig- inlega á þessum fundum og i stjómum stofnananna. Aðalfull- trúi Norðurlanda i stjóm Al- þjóðabankans er nú Jónas H. Haralz, en Magnús Pétursson forstöðumaður fjárlaga- 0g- hag- sýslustofnunar er varafulltrúi í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Að þessu sinni talaði Jón Sigurðs- son fyrir hönd Norðurlandanna um málefni Alþjóðabankans. í ræðu sinni sagði Jón Sigurðsson að viðleitnin til að laga efnahagslíf- ið að breyttum aðstæðum hefði borið árangur í ýmsum þróunar- löndum. Ennfremur stæðu vonir til að nýlegar aðgerðir til að létta skuldabyrði þessara landa myndu koma að haldi. Engu að síður væri svo ástatt í miklum hluta þriðja heimsins, einkum í ríkjunum sunn- an Sahara og í rómönsku Ameríku, að viðskiptakjör væru óhagstæð, fjármagn til framkvæmda ófull- nægjandi og þjóðartekjur á mann færu enn lækkandi. Við þessar að- stæður væri það sérstaklega mikil- vægt, að sá tiltölulega öflugi hag- vöxtur, sem héldi áfram í iðnríkjun- um, kæmi þróunarlöndunum til góða. Til þess að svo mætti verða skipti skjótur og góður árangur af GATT-viðræðunum, sem nú standa yfir, miklu máli. Ennfremur myndu öflugar aðgerðir iðnríkjanna til þess að ná betra jafnvægi í sínum eigin efnahag stuðla að tryggara efna- hagsástandi um heim allan, lægri vöxtum og auknum hagvexti. Þá taldi Jón Sigurðsson það hafa úrslitaþýðingu fyrir þróunarríkin að tryggja varanlegan árangur af að- lögunarstefnu. I því skyni yrði með sérstökum aðgerðum að komast hjá því að skerða lífskjör þeirra, sem verst væru settir í þessum löndum. Þá þýrfti að létta skuldabyrðir af styrkleika og í tæka tíð. Norður- löndin vildu leggja sérstaka áherslu á varanlegan og aukinn stuðning við lágtekjuríki. Þetta ætti ekki síst við um framlög til Alþjóðaþróunar- stofnunarinnar, IDA. I ræðu sinni tók Jón Sigurðsson fram, að hagvöxtur, barátta gegn fátækt og vemdun umhverfis yrðu að fylgjast að. Án hagvaxtar væru ekki fjárhagslegar forsendur til að ráðast gegn fátækt og umhverfis- spjöllum. Án þess að dregið væri úr fátækt og umhverfið vemdað myndi hagvöxtur hvorki verða til góðs né standa lengi. Kjami stefn- unnar í þróunarmálum væri að sam- tvinna þessa þijá þætti. Ef horft væri til framtíðar, ætti Alþjóða- bankinn að auka stuðning sinn við rannsóknir og tækniþróun, við upp- byggingu stofnana, ekki síst á sviði fjármála, og hann ætti að styrkja aðgerðir til að bæta stjómun í Fyrir skemmstu voru staddir hér á landi fiilltrúar bandaríska útgáfufyrirtækisins Wemer Electra Atlantic á Norðurlönd- um. Tilefni komu þeirra hingað var að halda ráðstefiiu um þær hljómsveitir og listamenn sem WEA á Norðurlöndum ætlar að leggja áherslu á á næsta ári. Ráðstefhur sem þessar em haldn- ar árlega, en þetta er í fyrsta sinn sem hún er haldin hér á Iandi. Umboð fyrir WEA á íslandi hefur fyrirtækið Steinar hf. og hafði Steinar veg og vanda af skipulagn- ingu ráðstefnunnar. í samtali við Morgunblaðið sagði Steinar Berg ísleifsson, forstjóri Steina, að fyrir- tæki hans hafi ekki áður tekið þátt í ráðstefnu WEA-fyrirtækja, en í framtíðinni yrði fylgst náið með og reynt að taka þátt í tveimur til þremur ráðstefnum á ári. Hann sagði að þróunin virtist vera sú í útgáfuheiminum að bandarísku stórfyrirtækin yrðu stærri og að undanfarin ár hefði WEA verið að stofna undirfyrirtæki á Norðurlönd- um í stað þess að skipta við umboðs- menn. Hann sagði að ekki hefði verið farið fram á það að slíkt undir- fyrirtæki yrði stofnað hér á landi, enda væri markaðurinn það lítill; en þátttaka Steina í þessari ráð- stefnu hefði opnað ýmsa möguleika einkafyrirtækjum jafnt sem opin- berum stofnunum. Hann ætti einnig að auka stuðning við menntun, heil- brigðisþjónstu, bætt mataræði og takmörkun bameigna. Bankinn þyrfti að marka grundvallarstefnu í þessum efnum, sem fylgt yrði á næsta áratug. Norðurlönd væru reiðubúin að stuðla með virkum hætti að mótun og framgangi slíkrar stefnu. fyrir fyrirtækið á auknu samstarfi með fyrirtækjunum á Norðurlönd- um. Steinar sagði fyrirtækið hafa kynnt fyrir mönnum þijár íslenskar hljómsveitir, Todmobile, Sálina hans Jóns míns og Eirík Hauksson og hafi þær vakið allnokkra at- hygli og menn sótt það fast að fá að fylgjast með því sem þær væru að gera með tilliti til útgáfu á Norð- urlöndum. Til viðbótar við það að hljómsveitimar vom kynntar á ráð- Finnsk, ensk og frönsk tónlist hjá Sinfóníunni AÐRIR áskrifitartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands verða haldnir fimmtudaginn 5. októ- ber og hefjast þeir klukkan 20.30. Á efnisskránni verða þijú verk; Finlandia eftir Jean Sibelius, Píanó- konsert eftir Benjamin Britten og La Mer eftir Claude Debussy. Hljómsveitarstjóri verður Petri Sakari, aðalhljómsveitarstjóri Sin- fóníuhljómsveitar íslands, og ein- leikari finnski píanóleikarinn Ralf Gothoni. Ralf Gothoni hefur búið í Þýska- Iandi í rúman áratug og getið sér gott orð sem píanóleikari, bæði sem einleikari og í stofutónlist. Gothoni er prófessor í stofutónlist við Lista- háskólann í Hamborg og til skamms tíma var hann listrænn framkvæmdastjóri Óperahátíðar- innar í Savonlinna í Finnlandi. Undanfarið hefur Gothoni æ meira snúið sér að tónsmíðum og hljóm- sveitarstjórn. Á tónleikunum á fimmtudaginn mun Gothoni leika einleik í eina píanókonöert Benjamíns Britten. Gothoni hefur komið fram sem ein- leikari víða um Evrópu, Sovétríkin, Bandaríkin, Mexíkó, Kanada og í Austurlöndum fjær. Honum hefur verið boðið að taka þátt í fjölmörgum listahátíðum, s.s. listahátíðunum í Salzburg, Alder- borg og Edinborg, Vestur-Berlín og Prag og leikið með fjölmörgum þekktum hljómsveitum eins og Fílharmoníuhljómsveit Berlínar og Fílharmoníusveit Japans. { Auk þessa alls hefur hann leikið einleiksverk og stofutónlist á meira en 50 hljómplötur. Til dæmis hefur hann hljóðritað öll píanóstofuverk og allar píanósónötur Schuberts. Fyrir um áratug hlaut hann Schu- bert-orðuna í Austurríki og hefur auk þess verið útnefndur af finnska ríkinu sem prófessor í listum. (Úr frcttatilkynningu.) stefnunni hélt Sálin hans Jóns míns tónleika í Tunglinu sem þóttu tak- ast igjög vel. Steinar sagði Norður- landamarkað vera að breytast í eina heild, en áður hefðu menn verið hver í sínu horni. íslenskar hljóm- sveitir ættu að eiga nokkuð greiða leið inn á þann markað og þaðan gætu menn svo tekið stefnuna á markað í Evrópu; þá serstaklega í Þýskalandi sem er annar stærsti plötumarkaður í heimi. Iðnaðar- og/eða verslunarhús við Drangahraun - Hf. Höfum fengið til sölu fokhelt hús sem gæti hentað vel sem iðnaðar-, verslunar- og/eða skrifstofuhusnæði. Húsnæðið skiptist þannig: Jarðhæð 815 fm, 2. hæð 560 fm. Mjög góð aðkeyrsla er að húsnæðinu. Hús- næðið selst í einu lagi eða hlutum. Jfg ÁrniGrétarFinnssonhrl., Stefán Bj. Gunnlaugsson lögfr., Linnetsstfg 3,2. hœö, Hafnarflrftl, sfmar 51500 og 51501. Þrjár hljómsveitir kynntar bandarískum útgefendum Morgunblaðið/Sverrir Ráðsteftiugestir á Hótel Sögu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.