Morgunblaðið - 04.10.1989, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTOBER 1989
9
Ég þakka innilega fyrir heillaóskir, gjafir og
margháttaða vinsemd sem mér var sýnd á
sjötíu ogfimm ára afmœli mínu 22. september sl.
Meö bestu kveöjum.
Björgvin Frederiksen.
JOLAKORT
Líknarfélög, söfnuðir, íþróttafélög, skólar
o.fl. sem eru í fjáröflunarhugleiðingum.
Nú er rétti tíminn til að láta prenta jólakortin.
Prentum eftir ljósmyndum eða teikningum.
Höfum fyrirliggjandi fjölmargar gerðir af fallegum
kortum, landslagsmyndir eftir Rafn Hafnfjörð,
klippmyndir eftir Sigrúnu Eldjárn, málverk eftir
Kjarval og mikið úrval af jóla- og helgimyndum.
Leitið tímanlega upplýsinga um verð og gæði.
Offsetprentsmiðjan LITBRÁ
Höfðatúni 12, Reykjavík - Símar 22930 og 22865
• * ;*
pinrfi
| Áskriftarsíminn er 83033
QJLk
UWBIIBIHIIB
STÖÐVA
VERÐUR
AUKNINGU
RÍKISÚTGJALDA
Eigið fé fyrirtækja
Of lítið eigið fé er eitt stærsta vandamál
íslenzkra fyrirtækja. Þessi vandi á rætur
í rekstrarlegum aðstæðum, sem mótast
af stjórnarstefnu á hverri tíð m.a. í skatta-
og gengismálum. Verðbólga, ónógt eigið
fé og viðvarandi taprekstur hafa leitt til
vaxandi skulda atvinnuveganna, m.a. er-
lendis. Staksteinar stinga nefi í þetta
efni i dag.
Innlendur
spamaður
og láns-
fjármarkaður
Innlendur peninga-
spamaður hrundi á verð-
bólguárunum vegna
ónógrar verðtryggingar
og neikvæðra vaxta.
Skattlagning peninga-
spamaðar (raunvaxta),
sem Qármálaráðherra
dreymir um, myndi enn
stuðla að aukinni eyðslu
(eins og verðbólgán) og
draga vemlega úr spam-
aði.
Viðvarandi taprekstur
atvimiuvega og viðvar-
andi hallarekstur í ríkis-
búskapnum hafa kallað á
stóraukna láiLsQáreftir-
spum, sem leitt hefur til
mikillar skuldasöfiiunar
erlendis vegna ónógs inn-
lends peningaspamaðar.
Erlend lán
1988
Jakob Gunnarsson
skrifar um erlend lán
1988 í Fjármálatíðindi.
Þar segir m.a.:
„Erlcndar lántökur á
árinu 1988 námu 16.175
m.kr., en á sama tima
vom afborganir erlendra'
lána 6.583 m.kr. reiknað
á meðalgengi ársins. Er-
lend lán hafa því hækkað
um 9.592 m.kr. á árinu
1988, sem er 10% aukn-
ing miðað við stöðu lána
í ársbyijun.
Vaxtagreiðslur af er-
lendum lánum á árinu
1988 vom 7.582 m.kr.,
og greiðslubyrði aíborg-
ana og vaxta er 16,6%
af útflutningstekjum.
Staða erlendra lána í
árslok 1988 er 112.172
m.kr., en reiknuð á með-
algengi ársins er skulda-
staðan 104.997 m.kr.,
sem em 41,3% af vergri
landsframleiðslu 1988.“
Atvinnulífið
og ríkis-
búskapurinn
Mikilvægt er að draga
úr hvers konar eyðslu,
einkum opinberri eyðslu,
ekki sizt á samdrátt-
artímum, en haUarekstur
ríkissjóðs hefiir larið ört
vaxandi. HaUi á ríkis-
búskapnum er í senn
verðbólguhvetjandi og
skapar óeðlUega spennu
á takmörkuðum lánsQár-
markaði.
Það er meginmál við
ríkjandi aðstæður að
styrkja rekstrarstöðu
undirstöðugreina. Það
em einu ramihæfii við-
brögðin þegar þjóðar-
framleiðsla dregst saman
og atvinnuleysi gengur í
garð. Rýmun kaupmátt-
ar verður heldur ekki
stöðvuð, hvað þá kaup-
máttur aukinn, nema
með verðmeiri lands-
framlciðslu — auknum
þjóðartekjum = stærri
skiptahlut á þjóðarskú-
tunni. „Kauphækkanir",
sem engin innistæða er
fyrir í þjóðarbúskapnum,
hafa leitt til verðbólgu,
gengislækkunar, minni
krónu að kaupmætti.
„Oráðsía
og sjóðasukk“
Fyrir kemur að stjóm-
armálgögn og stjómar-
þingmenn taka undir
gagnrýni stjómarand-
stöðu á skattaáþján og
ofvöxt í ríkisbúskapnum.
Þannig sagði Alþýðu-
blaðið í forystugrein sl.
laugardag:
„Um leið verður liið
opinbera að átta sig á þvi
að ef íslenzkt atvinnulíf á
að þrífast verða að vera
til peningar í landinu í
eigu einstaklinga og fyr-
irtælga. Atvinnurekstur-
inn getur aldrci þrifist til
lengri tima eingöngu fyr-
ir fé sem ríkið tekur að
láni og lánar fyrirtælgun-
um svo áfram. Það sjá
menn nú glöggt í sjávar-
útveginum. Margni ára
óráðsía og sjóðasukk hef-
ur keyrt sjávarútveginn
í kafsvo hann á sér ekki
lengur viðreisnar von.
Svo ekki sé minnst á
landbúnaðinn en langt er
um liðið síðan bændur
landsins fyUtu flokk opin-
berra starfsmanna, bæði
í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu."
Sýndar-
mennska og
tvískimiungnr?
Leiðari Alþýðublaðs-
ins, sem hér er vitnað
til, er í raun skörp ádeila
á stjómarstefiiuna. Guð-
rnundur G. Þórarinsson,
þingmaður Framsóknar-
flokks, hefiir ítrekað sett
fram hliðstæðar aðfinnsl-
ur, krafizt samdráttar í
ríkisbúskapnum og var-
að við aukinni skatt-
heimtu.
En orð em eitt, efiidir
annað. Það dugar lítt fyr-
ir þessa aðila að hjala um
hættuhliðar stjómar-
stefnunnar ef þeir veita
henni brautargengi eflir
sem áður. Stuðnings-
menn rikisstjómarinnar
bera fulla ábyrgð á
stjómarstefiiunni og af-
leiðingum hennar.
Það lýsir furðulegum
tvískinnungi — og er
raunar móðgun við dóm-
greind almennings — að
tala gegn stjómarstefii-
unni í orðum en styðja
hana alfarið í verkum!
Það góða sem ég vil það
geri ég ekki, stendur ein-
hvers staðar. Nú, þegar
Alþingi kemur saman,
reynir á það, hvort gagn-
rýni stöku stjómarþing-
manna er amiað og meira
en sýndarmennskan og
tvískinnungurinn.
VERÐBRÉFABÓK VIB
Veist þú hvaðan
vindurinn blæs?
Með nokkrum pennastrikum getur ávöxtun spari-
Qáreigenda gjörbreyst. Þess vegna er nauðsynlegt
að hafa alltaf nýjustu upplýsingar við hendina
og góða yfirsýn yfir fjármálin. Með Verðbréfabók
VIB kemurðu skipulagi á hlutina og fjármálunum
í rétt horf.
Komið við í afgreiðslu VIB að Armúla 7 og skoðið
Verðbréfabókina. Henni fylgir áskrift að Mánaðar-
fréttum VIB fram til áramóta.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30