Morgunblaðið - 04.10.1989, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
STEINUNN ÖGMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarkona,
lést 2. október í Hrafnistu, Reykjavík.
Ólafur Pálsson,
Jóhanna Ólafsdóttir,
Helga Ólafsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
VIKTORÍA S. SIGURGEIRSDÓTTIR,
'K Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis f Heiðargerði 18,
Reykjavík,
lést í Jósefsspítala, Hafnarfirði, 1. október.
Sigmundur Guðmundsson, Unnur S. Thorsteinsson,
Sigrfður Guðmundsdóttir, Snorri Karlsson,
Jón Þ. Guðmundsson, Anna Bjarnarson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Ragnar Gunnarsson.
t
Ástkær fósturfaðir minn,
ARNÓR EINAR HINRiKSSON,
Grjótagötu 14,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum mánudaginn 2. október.
Jón Viðar Gfslason.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavik,
áður Austurbrún 2,
verður jarðsungin föstudaginn 6. október kl. 10.30 frá Fossvogs-
kapellu.
Kári Eifasson, Katrfn Ásmundsdóttir,
Iðunn S. Geirdal,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför
ÁSGEIRS G. INGVARSSONAR,
Vfðihvammi 2,
Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. október kl. 15.00.
Árný Kolbeinsdóttir,
Rósa Björk Ásgeirsdóttir,
IngvarÁsgeirsson, Kristfn Hjartardóttir.
t
Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÖRUNDUR GESTSSON
frá Hellu,
verður jarðsunginn frá Kapellunni á Drangsnesi laugardaginn 7.
október nk. kl. 15.00.
Bílferð frá Umferðarmiðstöðinni á laugardagsmorgun kl. 8.00 og
til baka að athöfn lokinni.
Magnús Jörundsson, Árný Rósmundsdóttir,
Guðmunda Halldórsdóttir,
Ragnar Þ. Jörundsson,
Lárus Ö. Jörundsson, Ragnhildur ísaksdóttir,
Guðfinna E. Jörundsdóttir,
Elenóra Jónsdóttir,
Vfgþór H. Jörundsson, Sjöfn Ásbjörnsdóttir,
Guðlaugur H. Jörundsson, Guðrún Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartkær sonur okkar og bróðir,
STEFÁN MAGNÚSSON,
Skipholti 9,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 27. september verður jarðsunainn frá
Fossvogskirkju, fimmtudaginn 5. október kl. 13:30.
Ragnheiður Þyri Nikulásdóttir, Magnús B. Pálsson,
Ragna Þyri Magnúsdóttir,
Guðný Edda Magnúsdóttir,
Nikulás Friðrik Magnússon,
Anna Stefanfa Magnúsdóttir.
Minning:
Eggert Halldór
Þorbjarnarson
Eggert Halldór Þorbjarnarson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sós-
íalistaflokksins, lést á heimili sínu,
Langholtsvegi 33 í Reykjavík, að
kvöldi 26. september sl. á 78. af-
mælisdegi sínum.
Eggert var fríður sýnum, prúður
í allri framkomu og hjartahlýr mað-
ur. Honum vegnaði vel í öllum störf-
um, sem hann tók að sér vegna
þess að hann var áreiðanlegur og
samviskusamur.
Hann átti hugsjónir um jöfnuð í
þjóðfélaginu og betra mannlíf þeim
til handa, sem báru skarðan hlut
frá borði. Hann naut þeirrar gæfu
að geta stærstan hluta af ævinni
helgað starf sitt þeirri hugsjón, sem
hann heillaðist af í æsku. Til þess
lífsverks átti hann Guðrúnu Rafns-
dóttur að lífsförunaut, sem alla tíð
stóð við hlið hans, skilningsrík og
fórnfús. í þeirra búskap voru tekjur
heimilisins oft óvissar og löngum
vann hún við saumaskap til að
bæta Ijárhag heimilisins.
Hann var frá ísafirði og ’komst
á uppvaxtarárunum þar í kynni við
stjómmálastefnu jafnaðarmanna,
sem á þeim tíma var borin uppi af
Vilmundi Jónssyni, síðar landlækni,
og fleiri brautryðjendum sósíal-
ismans. Þegar Eggert er sendur til
Akureyrar 1929 og settist í 2. bekk
menntaskólans þar, 18 ára gamall,
gekk hann í félag ungra jafnaðar-
manna og sótti leshring um marx-
isk fræði. Þetta gerði líka skóla-
bróðir hans, Ásgeir Blöndal Magn-
ússon, hinn þekkti fræðimaður um
sósíalisma og síðar orðabókarrit-
stjóri. Báðum var þeim Eggerti og
Ásgeiri vikið úr skóia af mennta-
málaráðherra og skólayfirvöldum
þeirra tíma fyrir að „sinna pólit-
ískri starfsemi utan skólans", sem
bannað var með sérstakri reglu-
gerð. Frá þessum tíma tekur við
samfellt stjórnmálastarf og verka-
lýðsbarátta hjá Eggerti, sem nær
yfir meira en fjóra áratugi. Um
skeið var hann á stjórnmálaskóla í
Sovétríkjunum. Hann kvæntist
1934 Guðrúnu sem lifir mann sinn.
1938 vann Eggert manna mest
við sameiningarmál yngri jafnaðar-
manna og ungra kommúnista. Þetta
var hluti af sameiningu vinstri arma
Alþýðuflokksins og kommúnista.
Sósíalistaflokkurinn, sameiningar-
flokkur alþýðu, varð til á þessu ári
o g Æskulýðsfylkingin, samtök
ungra sósíalista. Eggert var fyrsti
forseti Æskulýðsfylkingarinnar.
Nutu þau samtök stjórnvisku hans
og annarrra mannkosta um 2ja ára-
tuga skeið að minnsta kosti.
Við sem urðum sendisveinar á
þessum árum nutum mikils góðs
af öflugri starfsemi Sendisveinafé-
lags Reykjavíkur, sem stofnað var
1933. Málgagn þess hét Blossi.
Stefán Oddur Magnússon, vinur og
félagi Eggerts, var um skeið í for-
ystu félagsins á kreppuárunum.
Hann lýsir því vel í afmælisgrein
um Eggert fimmtugan (1961) hve
hann var þessum yngstu verka-
mönnum Reykjavíkur mikill ráð-
gjafi. Á þessum tímum atvinnuleys-
is voru mánaðarlaun sendisveins
60-70 krónur á mánuði og oft einu
tekjur alþýðuheimila langtímum
saman.
Meðal bestu vina Eggerts var
Hallgrímur Hallgrímsson sem barð-
ist í borgarastyijöldinni á Spáni og
skrifaði bókina Undir fána lýðveld-
isins um þá viðburði. Svo vill til
þessar vikurnar að atburðir frá
þessum tíma hafa verið riijaðir upp
í sjónvarpsþáttum um spænska
skáldið Federico Garcia Lorca.
Reynsla þessara tveggja fóstbræðra
í baráttu verkalýðsins á þessum
árum var bæði óvenjuleg og stór-
merkileg og því ekki nema eðlilegt
að um nöfn þeirra tveggja félaga
léki mikill frægðar- og ævintýra-
ijómi í augum samheija og fleiri
sem fylgdust grannt með stéttabar-
áttu þessara ára.
Á 30 ára tímabili frá 1938-1968
er Eggert jafnan í forystusveit sós-
íalista í Sósíalistaflokknum og verk-
alýðshreyfingunni. Hann á mikinn
og góðan hlut að velgengni hreyf-
ingar sósíalista á þessu tímabili.
Um 1960 fannst fyrir áhuga og
framkvæmdakrafti hans í menning-
armálum, þegar hann hóf að und-
irbúa endurútgáfu á bók Frakkans
Gaimards um ísland, sem kom út
1968. Það er veglegasta öndvegis-
rit um landið okkar sem samið hef-
ur verið af erlendum manni. Jónas
Hallgrímsson orti frægt þakkar-
kvæði „Til herra Páls Gaimard“,
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og
jarðarför elsku litlu dóttur okkar,
ÖNNU KRISTÍNAR.
Ingunn Ástvaldsdóttir,
Ottó Eiríksson
og aðrir ástvinir.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
MARGRÉTAR SÍMONARDÓTTUR,
Skeggjagötu 6,
Reykjavík.
Baldur Steingrfmsson,
Steingrímur Baldursson, Fríða Ásbjörnsdóttir,
Höskuldur Baldursson, Magdalena Búadóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu vð andlát og útför
fósturföður míns, tengdaföður og afa,
ÞORVALDAR JÓHANNESSONAR,
Drápuhlíð 4.
Haukur Gunnarsson, Una Svane,
Guðrún Hauksdóttir, Eirikur Hauksson
og Niels Svani Hauksson.
þar sem standa hin fleygu orð:
„Vísindin efla alla dáð.“ Þau urðu
einkunnarorð Háskóla Islands. Við
getum þakkað Eggerti þetta mikla
afrek í útgáfumálum og samstarfs-
manni hans, Haraldi Sigurðssyni,
bókaverði.
í Eggerti blundaði mikill fræði-
maður. Hann var mönnum oft innan
handar um vinnslu, frágang og vél-
ritun á fræðiritgerðum. Hann gaf
út „Samlokur í sjó“ eftir Ingimar
Óskarsson og lét prenta landakort
Guðbrands biskups.
Hann dró sig að mestu í hlé frá
stjórnmálastarfi um 1970. Hann
stundaði eftir það bankastörf. Hon-
um gafst þá tóm til að sinna ýmsum
áhugamálum. Þau hjónin hafa
stundað bóksölu um árabil og Eg-
gert átti dtjúgan þátt í að byggja
upp fornbókaverslunina Bókina.
Eggert og Guðrún eignuðust tvö
börn: Rafn Þorbjörn, rennismið, og
Rósu Guðrúnu, kennara. Alsystir
Eggerts er GuðbjÖrg Þorbjamar-
dóttir, leikkona. Þau áttu mörg
hálfsystkini frá fyrra hjónabandi
móður þeirra, Rósu Aradóttur. Hún
var af Arnardalsætt.
Tímarnir sem við lifum á eru
breyttir frá því þegar Eggert var
ungur og stóð í baráttu fyrir rétt-
indum vinnandi fólks í lándinu. Nú
þekkja verkamenn samtakamáttinn
og með sameiginlegri baráttu hafa
þeim hlotnast ýmis hlunnindi, sem
áður þekktust ekki. Þar með hafa
Eggért og hans félagar séð marga
sína framtíðardrauma rætast.
Við sendum Guðrúnu, börnum
hennar og fjölskyldum þeirra inni-
legar samúðarkveðjur.
Ólafúr Jensson og
Erla ísleifsdóttir
Kransar, krossar
og kistuskreytingar.
Sendum um allt land.
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álíheimum 74. sími 84200