Morgunblaðið - 04.10.1989, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
$ Múlalundur
5
Viðskiptatækni 128 klst.
Markaðstækni 60 klst.
Fjármálatækni 60 klst.
Sölutækni 36 klst.
Hringdu í síma 62 66 55 og fáðu sendan bækling
Viðskiptaskólinn
Borgartúni 24, sími 6 2 6 6 5 5
- - _ -
Pökkunar-
límbönd
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Þarfir þjónar Bakkusar
Til Velvakanda.
Ekki verður annað sagt en að
Bakkus eigi þarfa þjóna í sölum
alþingis. Þannig tókst honum í bjór-
málinu að fá á sitt band meirihluta
þingmanna og meira að segja sjálf-
an heilbrigðisráðherrann. Og ekki
þarf vínguðinn að vera óánægður
með uppskeruna. Afengisdrykkjan
hefur stóraukist hér á landi upp á
síðkastið eða um 36% á fyrstu sex
mánuðum ársins miðað við sex
. fyrstu mánuði í fyrra. Þannig hefur
bjórliðið á alþingi komið til móts
við tilmæli alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar til aðildarþjóða að
minnka áfengisneyslu um fjórðung
til áramóta.
Og mikið hlýtur gamli Bakkus
að hafa glaðst, þegar það tókst að
brengla svo dómgreind Jóns Bald-
vins Hannibalssonar, að hann lét
ýta sér út í það ótrúlega athæfi að
troða 106 flöskum af áfengi inn á
heimili fertugs flokksgæðings, sem
er bindindismaður og hafði að eigin
sögn „ekki hugsað sér að veita
áfengi í afmælisveislunni", sbr.
Til Velvakanda.
Eru allir búnir að gleyma
hættunni sem stafar af Áburðarverk-
smiðjunni? Eru allir búnir gleyma
að það kviknaði í Áburðarverksmiðj-
unni? Eru allir búnir að gleyma
umræðum ríkisvaldsmanna og yfir-
manna borgarinnar í fjölmiðlum um
að leggja hana niður? Já, það virðist
vera. Alla vega hafa ríkisvaldsmenn
og yfirmenn borgarinnar svo ger-
samlega gleymt þessu að í stað þess
að tala um að leggja verksmiðjuna
niður eru þeir farnir að tala um að
hafa hana þarna sem lengst. Og úr
því að þarna sé þegar verksmiðja sem
ógni lífi borgarbúa sé það alveg tilva-
lið að bæta við annari tegund verk-
smiðju sem geti séð um að veikja
heilsu þeirra meðan þeir eru á lífi.
Ég, sem er borgarbúi í Grafar-
vogi, er ekkert yfir mig hrifinn af
þessari kúvendingu mála. Mig langar
ekki til að fórna minni heilsu eða
Mbl. 27. sept. sl. Hvað rak ráð-
herrann til slíkrar óhæfu?
Af nýjustu fréttum úr áfengis-
heimi ráðherranna má ráða, að
sumir þeirra eru ekki verulegir eft-
irbátar Jóns Baldvins í þjónustunni
við Bakkus. Að minnsta kosti sjá
þeir vel um, að ekki skorti á eitur-
veigarnar í samkvæmum, sem þeir
deyja fyrir málstað sorpmála borgar-
innar og áburðarmála ríkisins. Mér
Iangar ekkert til að lifa í þeirri trú
að það komi aldrei neitt fyrir og
horfa svo á sjónvarpið og sjá um-
merki eftir sprengingar í Þingholtun-
um og hugsa: Nei, nei, svona vitleys-
ingum dettur aldrei í hug að henda
dínamítstúpu undir sýrutanka
Áburðarverksmiðjunnar og þurrka
þar með út allt líf á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Mér finnst að þeir sem
séu svo hrifnir af sorpverksmiðjum
og áburðarverksmiðjum eigi að fá
að njóta þeirra og legg því til að
hvort tveggja verði flutt á Reykjavík-
urflugvöll. Þar geta yfirmenn borg-
arinnar fengið að njóta fegurðar og
hreinleika sorpverk-smiðjunnar frá
nýja ráðhúsinu og ríkisvaldsmenn
fengju að njóta þeirrar góðu öryggis-
tilfinningar að það komi aldrei neitt
fyrir.
íbúi í Grafarvogi
standa fyrir á kostnað ríkisins.
Annars er það mjög dapurlegt,
að menn, sem vilja telja sig vel
upplýsta og öðrum hæfari til að (
stjórna málum þjóðarinnar, skuli
láta áfengishugarfárið vera eins
ráðandi og raunin hefur verið. En
aldrei er of seint að taka sinnaskipt-
um og biðjast afsökunar á yfirsjón-
um, eins og utanríkisráðherrann
gerði nýlega.
Þeir þingmenn, sem stutt hafa
málstað Bakkusar á alþingi, ættu
ekki að hika við að endurskoða af-
stöðu sína og láta ábyrg sjónarmið
og mannkærleika ráða ferðinni. Það
er þingmönnum til vansæmdar að
láta nota sig sem verkfæri til auk-
innar áfengisdrykkju í landinu, öðr-
um til ógæfu og ófarnaðar. — Hér
er þörf á hugarfarsbreytingu, sem
sterkast er, að komi fram í afnámi
vínveitinga á vegum ríkisins og
stofnana þess. Gott fordæmi er
öflugasta áfengisvörnin.
Öllum er hollt að muna eftir þess-
um orðum, sem nýlega voru höfð (
eftir þekktum kjamorkufræðingi:
„Áfengi er hættulegra en kjarn-
orka. Áfengisdrykkja er eins og
leikur að eldi eða jafngildi þess að
láta skeika að sköpuðu um heilsu
sína. Engin ákveðin mörk eru til
sem sýna hve mikið áfengi er hætt-
ulaust að drekka“.
Árni Gunnlaugsson, hrl.
Hættulegar verksmiðjur
Skrifstofutækninám TWjí- - |
Betra verð - einn um tölvu \ fTffU'
Tölvuskóli íslands \flpl V’ ®
S: 67 14 66 CL\.n
VETRARSTARFIÐ
HAFIÐ!
Innritun í níln flokkn
SUÐURVER HRAUINIBERG
S. 83730
S. 79988
F.I.D.
ff I&ua.
Þessir hringdu . .
Sameining yrði til góðs
4192-7828 hringdi:
„Mig langar að koma á fram-
færi við ráðamenn þjóðarinnar
nokkrum athugasemdum í sam-
bandi við samræmingu. Nú er
verið að samræma fleiri og fleiri
fyrirtæki og einnig hefur komið
til orða að sameina jafnvel firði
og smáþorp út á landi sem liggja
ekki saman. Þar sem nú er farið
að íhuga að samræma smáþorp
er þá ekki kominn tími til að við
lítum okkur nær og farið verði
að sameina byggðir hér í þétt-
býlinu? T.d. að stækka Reykjavík
með því að bæta við hana Selt-
jamarnesi, Kópavogi og jafnvel
Mosfellsbæ og Garðabæ. Þessi
byggðarlög eru öll nálægt Reykja-
vik og væri rétt að sameina þau
borginni til þess að þegarnir gætu
lifað í sameiningu. Þetta var t.d.
gert í Danmörku fyrir nokkrum
árum. Þannig yrðum við meira
sameinuð og það yrði léttara að
öllu leyti. Sumir þessara sjálf-
stæðu kaupstaða sækja flest til
Reykjavíkur og hafa jafnvel ekki
eigin kirkjugarð. Vonandi láta
fleiri í sér heyra um þessi mál.“
Grillyfirbreiðsla
Stór svört yfirbreiðsla af útigr-
illi fauk af svölum við Snorra-
braut dagana 25. eða 26. septem-
ber. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 23613.
Ljóskastaragrind
Ljóskastaragrind með fjórum
ljóskösturum var tekin af jeppa
sem var á bílasölunni Tún við
Höfðatún aðfaranótt 26. septem-
ber. Allar upplýsingar eru vel
þeganar í síma 92-12953.
Köttur
Hálfstálpaður bröndóttur fress-
köttur, brúnn og svartur með
hvíta bringu og loppur fór að
heiman 26. september. Hann er
ómerktur. Vinsamlegast hringið í
síma 656760 hafi hann einhvers
staðar komið fram.
Veski
Rústrautt peningaveski með gulu
fóðri tapaðist í Stjörnubíói 29.
september. í því voru m.a. pening-
ar og nafnskírteini. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 10578.
Reiðhjól
Svörtu SCO kvenmannsreiðhjóli
var stolið frá Ásvallagötu 27 að-
• faranótt laugardags. Ef einhver
getur gefið upplýsingar, vinsam-
legast hringi í síma 10869.