Morgunblaðið - 10.11.1989, Qupperneq 2
2
i 5T3HM3VÖK .01 HDOACnjTRÖH SIÖ^IHMTTOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989
i
Vandi HS vegna laxeldisfyrirtækja:
Tugir milljóna
eru í vanskilum
Keflavík.
HITAVEITA Suðumesja á nú tugi milljóna króna útistandandi sem
komin em í vanskil hjá fiskeldisfyrirtækjum á Suðumesjum og líkur
eru á að vemlegur hluti þessa tjármagns innheimtist ekki. Þetta kom
fram hjá Júlíusi Jónssyni framkvæmdastjóra Qármálasviðs Hitaveitunn-
ar á túndi sveitarstjómarmanna á Suðumesjum og alþingismönnum
Reyknesinga á Hótel Kristínu í Innri-Njarðvík í gærkvöldi.
Á fundinum var til umræðu slæmt
ástand í atvinnumálum á Suðurnesj-
um, en þar eru nú að jafnaði um 200
manns á atvinnuleysisskrá, og einnig
var _ fjallað um samgöngur og þá
slæmt ástand Reykjanesbrautarinn-
ar. Oddur Einarsson bæjarstjóri í
Njarðvík reifaði atvinnumálin og
sagði frá athafnamanni í Njarðvík
sem nú stæði uppi eignalaus eftir
gjaldþrot þar sem bærinn hefði tapað
verulegum fjármunum. Viðkomandi
hefði rekið blómlegt fyrirtæki, en
hefði síðan orðið að fá fjármagn á
hinum svokallaða gráa markaði sem
hefði orðið þess valdandi að fyrirtæk-
ið varð gjaldþrota. „Nú duga svör
ekki lengur, nú viljum við sjá aðgerð-
ir,“ voru lokaorð Odds sem hann
beindi til þingmanna. Kvótakerfið
kom einnig til umræðu og lýstu sveit-
arstjómarmenn áhyggjum sínum yfir
þeim mikla kvóta sem seldur hefði
verið með fiskiskipum af Suðurnesj-
um, en bein afleiðing þess væri at-
vinnuleysið sem nú ríkti á svæðinu.
Ef núverandi kvótakerfi festist í sessi
þá gæti þetta ástand orðið varanlegt.
Niðurstöður fundarins urðu að
Samband sveitarfélaga á Suðurnesj-
um taki að sér að koma á fundi þar
sem alþingsmenn, sveitarstjómar-
menn og fulltrúar atvinnurekenda
og verklýðsfélaga komi saman til að
ræða atvinnumálin. Einnig var því
beint til Sambands sveitafélaga að
gera greinagerð um Reykjanesbraut-
ina, en endurbætur á sjálfum vegin-
um em ekki á vegaáætlun fyrr en
1992. Að sögn Guðjóns Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra SSS verður
allt kapp lagt á að hraða þessum
málum og ekki hvað síst atvinnu-
málafundinum.
BB
íslandsbanki:
Yfirstjórn bankans verð-
ur í Húsi verslunarinnar
LJÓST er að yfirstjórn íslands- banka standa Aiþýðubanki, Iðnað-
banka, sem tekur formlega til arbanki og Útvegsbanki að stofnun
starfa um áramótin, verður ! íslandsbanka.
Húsi verslunarinnar í Kringl- Samkvæmt heimildum Morgun-
unni. blaðsins hefur þegar verið ákveðið
að yfirstjóm bankans verði í Húsi
Verslunarbankinn, einn fjögurra verslunarinnar, það er bankastjóm
banka sem standa að íslandsbanka, og nokkrar stoðdeildir. Til þeirrar
á þriðjung hússins, og nú standa starfsemi dugir eignarhluti Versl-
yfir samningaviðræður við aðra eig- unarbankans, en íslandsbanki hefur
endur þess um að leigja þeirra hlut hug á komast í rýmra húsnæði í
til starfseminnar. Auk Verslunar- Húsi verslunarinnar.
•w • 4» j t
MJ9JM. M IV/ JLV/ VUJLVMJ. UAU JLJV
Morgunblaðið/Júlíus
Jónas Fr. Jónsson, formaður Stúdentaráðs, afhendir Guðrúnu Helga-
dóttur, forseta sameinaðs þings, undirskriftir stúdenta.
Stúdentar mótmæla gárlagafrumvarpi:
FULLTRÚAR stúdenta í Háskóla
Islands afhentu í gær Guðrúnu
Helgadóttur, forseta Sameinaðs
Alþingis, undirskriftalista með
nöfnum 2.648 stúdenta, sem mót-
mæla „freklegri ásælni ríkis-
valdsins í sjálfsaflafé skólans,"
eins og segir í textanum, sem
stúdentarnir skrifúðu undir.
í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta
ár er áformað að ráðstafa um helm-
ingi af tekjum Happdrættis Há-
skóla íslands til byggingar Þjóðar-
bókhiöðu og annarra verkefna, sem
hingað til hafa verið kostuð af al-
mannafé. „Gangi slíkt eftir munu
byggingaframkvæmdir og önnur
uppbygging við skólann stöðvast,
en húsnæðis- og tækjamál skólans
eru langt frá að vera viðunandi.
Stúdentar skora á þingmenn að
koma í veg fyrir þessar fyrirætlan-
ir,“ segir í orðsendingu stúdenta til
þingsins.
Jónas Fr. Jónsson, formaður
Stúdentaráðs Háskóla íslands, af-
henti þingforseta undirskriftirnar
fyrir hönd stúdenta og sagði að ef
úr áformum fjármálaráðherra yrði
myndu framkvæmdir Háskólans
stöðvast, ekkert fé yrði afgangs til
tækjakaupa eða til þróunarvinnu.
Varla yrði nóg til að viðhalda hús-
um, en sem dæmi mætti nefna að
í aðalbyggingu skólans væri kola-
kynding, einfalt gler, enginn að-
gangur fyrir fatlaða og engin loft-
ræsting.
Guðrún Helgadóttir sagðist
myndu koma orðsendingu stúdenta
til þingheims. Hún benti á að málið
ætti eftir að fá umfjöllun í fjái-veit-
inganefnd þingsins, þannig að
nokkur tími væri til stefnu.
Sænska tónlistartímaritið Tonfallet:
Jóni Leifs skipað á bekk með
mestu tónskáldum aldarinnar
„VONANDI átta menn sig brátt á því, að verk Jóns Leifs eru
jafii nauðsynleg fyrir skilning okkar á tónlist þessarar aldar og
verk Bela Bartóks, Jeans Sibeliusar, Leos Janaceks eða Charles
Ives. Þau eru jafii frunileg og upprunaleg; jafii kreQandi, jafii
gjöfúl.“ Þannig farast sænska tónlistargagnrýnandanum Cari-
Gunnar Áhlén orð í grein í sænska tónlistarblaðinu Tonfallet en
segja má, að blaðið sé að mestu helgað minningu Jóns Leifs, ævi
hans og störfúm.
Áhlén segir, að þeir, sem einu
sinni hlýði á tónlist Jóns Leifs,
gleymi henni líklega aldrei. I
henni endurspeglist saga og
reynsla íslensku þjóðarinnar; upp-
sprettulindir menningarinnar;
Eddukvæðin og sögumar, gamli
tvísöngurinn og hrynjandi rímna-
kveðskaparins. Segir hann, að Jón
hafi á þeim tíma, sem hann bjó í
Þýskalandi, frá 1916 til 1943,
lagt sig allan fram við að kynna
íslenska menningu og afla henni
virðingar á erlendri grund og
heimkominn gerst brautryðjandi
í réttinda- og kjaramálum tónlist-
armanna.
Áhlén segir, að fyrir það síðast-
nefnda hafi honum verið þakkað
en sem tónskáld hafi Jón Leifs
mætt meira skilningsleysi og jafn-
vel fyrirlitningu en nokkurt annað
norrænt tónskáld á vorum tímum.
Á síðustu æviárunum hafi hann
samið sín bestu verk, afskiptur
en þó á milli tannanna á fólki;
þjakaður af fjölskyiduharmleik og
að ósekju grunaður um samstarf
við nasista.
Carl-Gunnar Áhlén fer síðan
nokkrum orðum um hvemig hátt-
að sé útgáfu á verkum Jóns Leifs
— það mesta og mikilvægasta,
Eddu-óratóríumar, hefur ekki
verið gefið út enn — en segir
síðan, að níunda áratuginn megi
með réttu kalla endurreisnartíma
Jóns Leifs. Sá, sem mtt hafi
brautina, sé íslenska tónskáldið
Hjálmar H. Ragnarsson, sem lagt
hefði fram ritgerð við Cornell-
háskóla í Bandaríkjunum árið
1980 um ævi Jóns Leifs, tónlist
hans og helstu verk. Þá hafi
sænski tónlistarmaðurinn Gunnar
Idenstam unnið mikinn sigur þeg-
ar hann flutti ásamt Stokkhólms-
fílharmóníunni orgelkonsert eftir
Jón Leifs á tvennum tónleikum í
janúar á síðasta ári.
„Tónlist Jóns Leifs_ má ekki
lgngur vera einkaeign íslendinga.
Hún tilheyrir öllum heimi og nú
er sú stund mnnin upp, að verk
Upphaf greinarinnar um Jón
Leifs í Tonfallet en blaðið er
að langmestu leyti helgað hon-
um.
hans verði metin að verðleikum,"
segir Cari-Gunnar Áhlén í eins
konar inngangi að Iangri grein
eða greinum um ævi og störf Jóns
Leifs og samskipti hans við Þriðja
ríkið.
Hjálmar H. Ragnarsson tón-
skáld sagði í viðtali við Morgun-
blaðið, að greinarhöfundur, Carl-
Gunnar Áhlén, væri -doktor í tón-
listarfræðum, tónlistargagnrýn-
andi við Svenska Dagbladet og
kunnur fyrir að gera strangar
kröfur um listrænt innihald. Grein
hans í Tonfallet, sem Svenska
Rikskonserter, opinber stofnun,
sem sér um tónleikahald, gefur
út, væri því ekki síst merkileg
fyrir þær sakir og til marks um
þann áhuga, sem nú væri víða að
vakna á tónlist Jóns Leifs. Þá
sagði hann, að ýmsar upplýsingar
um vem Jóns í Þýskalandi hefðu
ekki áður komið fram opinberlega
en þeirra hefði Áhlén tekist að
afla sér í þýskum og sænskum
handrita- og bréfasöfnum.
Áðurnefndur orgelkonsert Jóns
Leifs í flutningi Gunnars Idenst-
ams og Stokkhólmsfílharmóní-
unnar vakti mikla athygli en
Hjálmar sagði, að hér heima hefðu
orðið mikil tímamót á síðastliðnu
vori þegar Sinfóníuhljómsveitin
efndi til flutnings á verkum Jóns
Leifs.
„Jón Leifs hefur að sínu leyti
sömu þýðingu fyrir íslenska tón-
list og Halldór Laxness fyrir islen-
skar bókmenntir. Hann talar sinni
eigin, sérstöku tungu, sem á ekki
aðeins erindi við íslendinga, held-
ur allan heim,“ sagði Hjálmar H.
Ragnarsson að lokum.
Rjúpna-
skyttnvar (
bjargað [
til byggða ,
Blðiiduósi.
RJÚPNAVEIÐIMAÐUR frá
Blönduósi þurfti á aðstoð að halda
til að komast til byggða eftir að
hann hafði slasast á fæti í veiði-
ferð í gærdag. Það liðu um tvær
klukkustundir firá því slysið átti
sér stað þar til björgunarsveitar-
menn komu veiðimanni á sjúkra-
hús.
Að sögn veiðimannsins sem slas-
aðist þá fór hann ásamt tveimur
félögum sínum til ijúpna í gærmorg-
un í Langadalsfjalí milli Holtastaða
og Fagraness. Um kl. 15 verður
hann fyrir því að fóturinn skorðast
á milli steina og slitnuðu við það lið-
bönd. Hinn slasaði náði strax sam-
bandi við annan veiðifélagann og
skömmu síðar kom hinn félaginn. .
Þeir þremenningamir lögðu af stað
niður fjallið en ferðin sóttist seint
meðal annars vegna þess hversu fjal-
lið var bratt. Um síðir var ákveðið
að sækja hjálp og komu félagar úr
Hjálparsveit skáta og björgunar-
sveitinni Blöndu hinum slasaða til
hjálpar.
Veiðimaðurinn sem slasaðist gat
þess að hefði hann verið einn á ferð
hefði getað farið verr. Þrátt fyrir
að veðrið hafi verið gott þá var hinn
slasaði orðinn töluvert kaldur þegar
til byggða var komið. Hann sagði
að þegar menn væru heitir og sveitt-
ir eftir mikla göngu þá kólni menn
fljótt upp þegar þeir liggja bjargar-
lausir á bersvæði. Veiðimaðurinn
sem slasaðist sagði í samtali við
Morgunblaðið að sú hugsun að al-
drei komi neitt fyrir sig hefði hrunið
til grunna í þessari veiðiferð og ljóst
væri að aldrei væri of varlega farið
þegar haldið er á fjöll í misjöfnu færi.
— Jón Sig.
Evrópukeppni
skákfélaga:
TRí und-
anúrslit
TAFLFÉLAG Reykjavíkur vann
NTK Búdapest með fimm vinn-
ingum gegn einum í seinni um-
ferð í átta liða úrslitum í Evrópu-
keppni skákfélaga sem haldin
var í Búdapest í Ungverjalandi í
gær. TR vann einnig fyrri um-
ferðina og er nú komið í undan-
úrslit.
Jóhann Hjartarson gerði jafntefli
við Portisch, Jón L. Ámason vann
Zsuzsa Polgar, Margeir Pétursson
vann Judit Polgar, Helgi Ólafsson
og Barbero gerðu jafntefli, Hannes
Hlífar vann Forintos og Karl Þor-
steins vann Zsofia Polgar.
Ekki er að fullu ljóst hveijir and-
stæðingar Taflfélagsins verða >
undanúrslitum. Vestur-þýska liðið
Solingen er komin áfram og líkur
eru á að hin tvö liðin verði frá Sov-
étríkjunum. Solingen er með sterkt
lið, þar tefla stórmeistaramir Short,
Spasskíj og Hiibner,
Kartöflu-
uppskera lak-
ari en í fyrra
ENDANLEGAR upplýsingar uffl
kartöfluuppskeru í haust liggja
ekki enn fyrir, en samkvæmt upp-
lýsingum frá Framleiðsluráði
landbúnaðarins er talið að hún sé
ívið lakari en í fyrra.
Uppskeran í fyrra var um 10.200
tonn af nýtanlegum kartöflum, og
dugði það magn fram í miðjan júní-
mánuð.
T