Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989 arholti 4 í Mosfellssveit, á endanleg- an samastað. Wenche hóf störf hjá Álafossi 1975, en varð að hætta þar fljótlega vegna þess • sjúkdóms, sem síðar yfirbugaði hana. Eftir erfiða sjúk- dómslegu og læknismeðferð hóf hún störf að nýju og þá á Tjaldanes- heimilinu í Mosfelisdal. Þar starfar Magnús nú sem umsjónarmaður heimilisins. Forstöðumaður heimilis- ins, Birgir Finnsson, var Wenche hlýr og góður, sýndi hann mikinn skilning gagnvart veikindum þess- arar hygrökku og duglegu stúlku. Hún vann á þessum stað þangað til starfsþrekið var að fullu þorrið. Leiðir mína og Wenche lágu sam- an vorið 1976, er hún leitaði til mín vegna ökunáms. — Mér var Ijóst þá, að hún átti við einhvern sjúkdóm að stríða, en það var ekki fyrr en að ökuprófi loknu upplýst hve alvar- legur hann var. Lyndiseinkunnir þessarar norsku stúlku komu vel fram í kennslubílnum. Hún var skapföst.og viljasterk og vildi skila sínu hlutverki hnökralausu. Þegar illa gekk fór hún í taugarnar á sjálfri sér, skammaði mig og heimt- aði betri gang í þetta. Síðan hlógum við og skemmtum okkur hið besta þegar útkoman skánaði. Hún var mjög létt í skapi og skemmtileg við- ræðu, en á þessum tíma var hin forna tunga forfeðra hennar, íslenskan ekki upp á marga fiska hjá henni. Eitt skipti eftir erfiðan kennslutíma stöðvaði hún við kaffi- hús, skipaði mér að koma inn því hún ætlaði að bjóða mér upp á kaffi. Þar skröfuðum við saman og léttum af okkur umferðarokinu. — Wenche tók ökuprófið í Hafnarfirði 3. maí 1976. Hún var ánægð og þakklát fyrir þennan áfanga í lífi sínu. Þetta sama sumar hóf hún annan áfanga í iífi sínu, sem varð henni bæði langvinnur og kvalafull- ur, sjúkdómurinn sem batt að lokum enda á samvistir hennar og þeirra sem hún unni mest, eiginmanns hennar og barna. Wenche F. Ingvarsson háði hetju- lega og harða baráttu við sjúkdóm sinn nær hálfan annan áratug. Á sinn hátt undirbjó hún sína nánustu undir það sem koma skyldi. Magnús Ingvarsson bar með henni þessa þungu byrði á sinni hljóðláta hátt til enda. Monica litla, sem nú er sautján ára gömul, leggur eftir ára- mótin út í hinn stóra heim. Hún hafði undirbúið för sína til Ástralíu sem skiptinemi. Þar verður hún í tæpt ár og kemur síðan aftur heim í sveitina sína. Ingvar, sem nýlega er orðinn fimmtán ára, heldur áfram við grunnskólanámið og verður föð- ur sínum jafnframt stoð og stytta þangað til Monica kemur heim á ný. Eg og fjölskylda mín sendum Magnúsi Ingvarssyni, börnum hans, öðrum aðstandendum og vinum Wenche F. Ingvarssón samúð og kveðjur vegna andláts hennar. Gylfi Guðjónsson Megi hún hvíla í friði, sú kona sem svo margt þurfti að þola á stutt- um æviferli. Við hin ættum að læra eitthvað af þroska þessarar konu sem af æðruleysi barðist við örlög sín. Ég kynntist Wenche fyrst í gegnum Kvenfélag Lágafellssóknar, þar sem við störfuðum saman. Wenche var ein af þeim konum fé- lagsins sem hægt var skilyrðislaust að treysta á. Ef hún var beðin um eitthvert viðvik í þágu félagsins, þá stóð það eins og stafur á bók. Þess vegna, þegar hún dró sig í hlé, fyr- ir nokkrum árum og sagði sig úr félagsskapnum, var það einvörð- ungu vegna þess, að hún treysti sér ekki lengur til starfa, vegna sjúk- dóms þess sem hún þurfti í svo mörg ár að beijast við. Wenche var engin hálfkæringur. Eg sendi Magnúsi, Monicu og Ingvari mínar innilegustu samúðar- kveðjur. F.h. Kvenfélags Lágafells- sóknar, Helga Thoroddsen. Wenche Fjeldstad Ingvarsson fædd 4. desember 1953 lést 1. nóv- ember sl. á Landspítalanum, eftir mjög harða baráttu við sjúkdóm, sem stóð yfir í 13 Ir, og nú nær samfellda sjúkrahúsvist síðustu 11 mánuði. Wenche og Magnús sonur okkar giftu sig 31. desember 1971, í Nor- egi, hjá foreldrum hennar, Harald Fjeldstad og Synnöve Fjeldstad. Magnús og Wenche eignuðust 2 börn, Monicu f. 7. júní 1972, og Ingvar f. 6. nóvember 1974. En fyrstu kynni okkar af Wenche voru þegar hún kom til okkar aðeins 16 ára gömul sem vinkona Magnús- ar. Hún var hjá okkur í 3 vikur. Wenche var lágvaxin, fríð og svip- hrein og vann hug allra sem henni kynntust. Kvöldið áður en þessari fyrstu heimsókn lauk fór- Wenche að taka upp úr töskum sínum gjafir til okkar allra. Þetta atvik að gefa á þann hátt að ekki var hægt að endurgjalda í sömu mynt.átti eftir að einkenna allt hennar líf. Hún gaf öllum ekki aðeins gjafir, heldur styrk og þá mestan styrk þegar húp þjáðist mest. Þetta fundu allir sem henni kynntust. Hún var hreinlynd, hispurslaus og sagði sína skoðun í hveiju máli. Fyrir þetta var hún virt af öllum. Hún eignað- ist marga vini og tók virkan þátt í öllu, t.d. kvenféiaginu í Mosfellsbæ. Þar var önnur kona einnig norsk, Sólveig Jónsson, sem lést á fyrra ári. Þær áttu það sameiginlegt að starfa af alhug að öllu því, sem þær tókust á hendur. Þær urðu einlægar vinkonur og lát Sólveigar fékk mik- ið á Wenche. Wenche var einstaklega verklagin við hin ólíkustu störf, það lék allt í höndum hennar, hvort heldur voru heimilisstörf, handavinna, blóma- rækt og skreytingar, sem heimili hennar bar svo glöggt vitni um. Lengst af starfaði Wenche í Tjaldanesi, við umönnun og hjúkrun þroskaheftra pilta, og þar eins og annarstaðar var ósérhlífnin og sam- viskusemin hennar aðaleinkenni, þrátt fyrir skerta starfsorku, því á þessum 13 árum þurfti hún oft að leggjast inn á Landspítalann og heyja erfiða baráttu, en alltaf sigr- aði hún og kom til starfa og tók jafnvel aukavaktir til að safna fyrir fari heim til foreldra og systkina í Noregi. Ekki er hægt að minnast Wenche- ar án þess að þakka læknum henn- ar og hjúkrunarliði Landspítalans fyrir þá hjálp og þá hlýju sem þau öll sýndu henni,\og hún virti svo mikiis. Þá eru það fagrar minningar um þær mörgu vinkonur hennar sem heimsóttu hana og gáfu sér nægan tíma til að sitja hjá henni og tala við hana. Þær eru svo margar að ég get ekki nefnt nöfn þeirra, nema eiga á hættu að gleyma einhverri. En þær standa allar skýrt í minning- unni. Svona mikil og langvarandi veik- indi og óvissa um hvenær þeim lyki, hljóta að marka líf eiginmanns og barnanna. Aliar áætlanir um ferða- lög og annað miðuðust við, ef mamma getur. ^Þetta voru oft orð Ingvars þegar hann var lítill. Monica er komin á 18. ár, vel gerð og hæfi- leikarík, hélt upp á afmæli pabba síns sl. sumar ári fyrr en hann varð 40 ára. Þetta gerði hún vegna uggs um að mamma lifði ekki eitt árið enn. Einnig er hún á förum til Ástr- alíu sem skiptinemi og verður því íjarri heimili sínu á fertugsafmæli pabba síns. Þetta skiidu allir og virtu. Ingvar, sem er 15 ára núna þann 6. nóvember, er enn ekki búinn að móta framtíðarstefnu sem ekki er von. En bæði eru þau reglusöm og.dugleg og því ástæðulaust að kvíða framtíð þeirra. En það er mikill missir fyrir þau að sjá á bak móður sinni. Og fyrir foreldra og systkini Wenchear í öðru landi íjarri erfiðleikum Wenchear. Og þó að móðir hennar hafi komið þrisvar sinnum á sl. ári og verið henni, börnum hennar og Magnúsi mikill styrkur, þá hlýtur það að hafa verið henni þungbært að geta ekki verið hjá dóttur sinni þessar síðustu erfiðu stundir. Ég minntist í upphafi á gjafir Wenchear og sannarlega hefur hún gefið okkur öilum minningar og þá stærstar síðustu stundirnar þegar æðruleysið og hógværðin var yfir henni þrátt fyrir kvalir og þrautir. Og svo þar sem hún lá á banabeði sínu, falleg með sinn hreina svip og allir þjáningardrættir horfnir af andliti hennar. Það var sjón sem mun styrkja okkur öll. Blessuð sé minning hennar. Kristín og Ingvar Vinkona okkar, hún Wenche, er látin eftir langa og stranga baráttu. Wenche hafði frumkvæðið að stofnun norska saumaklúbbsins okkar, sem hefur veitt okkur svo margar ánægjustundir og hjálpað okkur að aðlagast lífi í nýju landi. Þar tölum við alltaf norsku saman, og mikið er þeirri strítt sem þarf að grípa til íslenskunnar! Hljómaði þá smitandi hláturinn hennar Wenche, sem hló hæst allra. Allt til síðustu stundar horfði hún vonglöð fram á við og lét aldrei deigan síga. Fyrir um það bil þrem- ur vikum var hún byijuðu að und- irbúa jólin og hugsa um hvað hún ætlaði að gera í næsta sauma- klúbbi. Meðal annars fann hún myndir sem hún ætlaði að sauma. Eftir hvert áfall stóð Wenche upp, jafnkát og bjartsýn. Lífsviljinn og krafturinn var svo ótrúlega mik- ill að maður bjóst alveg eins við að styrkur hennar mundi duga henni í gegnum þessa lotu líka. Aldrei var kvatað né kveinað, sama hvernig henni leið, heldur hafði hún meiri áhuga á því hvemig okkur vegnaði. Hláturinn hennar, geislandi augnaráð og góða skap — og ekki síst gestrisni hennar — er það sem við minnumst helst þegar við hugs- um um Wenche. Kæri Magnús, Monika og Ingvar, megi allar góðar vættir styðja ykkup og styrkja á þessum raunastundum og um alla framtíð. Saumaklúbburinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.