Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBBR 1989
Úr myndinni „Hyldýpið" sem nú er sýnd í Bíóborginni.
„Hyldýpið“ í
BIOBORGIN hefur tekið til sýn-
ingva myndina „Hyldýpið" með
Ed Harris og Mary Elizabeth
Mastrantonio í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er James Cameron
sem er einnig höfundur handrits.
Amerískur kafbátur er við æfing-
ar undan ströndum Florida á tals-
verðu dýpi, þegar vart verður við
torkennilegt ferlíki á ofsaferð í und-
Bíóborginni
irdjúpunum. Kafbáturinn siglir utan
í bergvegg neðansjávar og tekur
samstundis að sökkva í eitt mesta
dýpi í Atlantshafi, um 6.000 metra
niður. Erfitt verður um björgunar-
aðgerðir, en tilraunir hafa staðið
yfir á björgunarbúnaði á miklu dýpi
og er hann notaður nú í fyrsta
skipti. Mönnum tekst að komast inn
í kafbátsflakið en erfiðara reynist
að komast upp á yfirborðið aftur.
Úr myndinni „Það þarf tvo til“ sem sýnd er nú í Bíóhöllinni.
Bíóhöllin:
„Það þarf tvo til“
Bíóhöllin sýnir þessa dagana
myndina „Það þarf tvo til“. í
aðalhlutverkum eru George
Newbern og Leslie Hope. Leik-
stjóri er David Beaird.
Travis Rogers er ungur maður á
uppleið. Hann er heitbundinn Steffu
Lawrence og ákveðið er að hann
gerist starfsmaður hjá föður henn-
ar. Travis hefur löngun til að kaupa
sérstakan bíl sem hann verður að
gera sér ferð til Dallas til að nálg-
ast. Hánn vill síðan aka á nýja
bílnum í Steinolíuklúbbinn þar sem
tengdapabbi vill hitta hann ásamt
öðrum jöfrum. Bílinn góða fær
Travis en ekki er útséð að hann
komist í tæka tíð, því hann lendir
í allskonar vandræðum á leiðinni á
fundinn.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 9. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 79,00 35,00 66,94 8,330 557.598
Þorskur(óst) 71,00 51,00 67,80 2,936 199.026
Þorskur(smár) 52,00 52,00 52,00 0,169 8.791
Ýsa 89,00 55,00 81,70 2,335 190.728
Ýsa(ósl.) 99,00 64,00 77,75 8,162 634.586
Smáýsa(óst) 33,00 33,00 33,00 0,025 825
Karfi 45,00 29,00 33,95 1,105 37.501
Ufsi 34,00 30,00 33,10 1,559 51.610
Samtals 67,14 26,912 1.806.904
í dag verða meðal annars seld 13 tonn af þorski, 18 tonn af
ýsu, 100 tonn af karfa og 15 tonn af ufsa úr Hjalteyrinni EA,
Þorláki ÁR og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 96,00 30,00 71,36 22,162 1.581.429
Ýsa 98,00 23,00 79,81 23,086 1.842.422
Steinbítur 60,00 60,00 60,00 0,682 40.920
Lúða 425,00 200,00 255,12 0,248 63.270
Skarkoli 79,00 39,00 42,42 0,257 10.903
Keila 20,00 20,00 20,00 0,201 4.020
Skötuselur 160,00 160,00 160,00 0,049 7.840
Samtals 75,26 47,609 3.582.830
( dag verða meðal annars seld 20 tonn af ýsu, 45 tonn af karfa
og 80 tonn af ufsa úr Ólafi Bekk ÓF, Ásgeiri RE, Ottó N. Þor-
lákssyni RE, Þorláki ÁR og línubátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 82,50 55,00 71,87 51,262 3.684.042
Ýsa 87,00 40,00 76,62 19,626 1.503.718
Karfi 35,50 15,00 33,12 39,955 1.323.304
Ufsi 29,00 27,00 27,30 2,970 81.084
Steinbítur 61,00 46,00 56,85 1,209 68.730
Hlýri 49,00 49,00 49,00 0,250 12.250
Langa 41,00 27,00 35,66 3,125 111.438
Lúða 446,00 140,00 330,97 0,609 201.559
Samtals 56,70 124,982 7.086.389
Selt var meðal annars úr Hauki GK, Sleipni GK, Sæmundi HF,
Ólafi GK, Jaspisi KE og Reyni KE. ( dag verða meðal annars
seld 35 tonn af þorski, 15 tonn af ýsu, 1 tonn af steinbít, 3 tonn
af löngu og 5 tonn af keilu úr línu- og netabátum.
Kvöld-
skemmtun í
Borgarfirði
Hvannatúni.
FÉLAGAR úr fjórum leikflokk-
um bjóða til kvöldskemmtunar í
kvöld á Hlöðum og á morgun í
Logalandi, bæði kvöldin klukkan
21. Þessa helgi er haldinn hinn
svokallaði bandalagsdagur.
Það eru félagar úr leikflokkun-
um Sunnan Skarðsheiðar, leik-
deildum UMF íslendings, UMF
Reykdæla og UMF Stafholts-
tungna sem eru að koma í verk
hugmynd sem varð til í vor.þegar
Borgfirðingar sáu um skipulagn-
ingu og framkvæmd aðalfundar
Bandalags íslenskra leikfélaga.
- D.J.
Kökubasar
Heimaeyjar
Kvenfélagið Heimaey heldur
sinn árlega kökubasar og hluta-
veltu nk. laugardag á Hallveig-
arstöðum kl. 14.
I kvenfélaginu Heimaey, sem er
líknarfélag, eru um þijú hundruð
konur, sem allar eiga það sameigin-
legt að vera fæddar í eða ættaðar
frá Vestmannaeyjum.
Félagið hefur um árabil styrkt
ýmis málefni í sinni heimabyggð
og víðar. Allur ágóði rennur til
líknarmála.
Nuddþjónustan
Á baksíðu viðskiptablaðs Morg-
unblaðsins í gær var fjallað um
nýstofnað fyrirtæki sem bæri heitið
Nuddstofan. Þetta er ekki rétt, eins
og kom fram síðar í greininni, fyrir-
tækið heitið Nuddþjónustan og er
til húsa að Skúlagötu 26. Eru eig-
endur beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
Basar Fríkirkju-
saftiaðarins
KVENFÉLAG Fríkirkjusafnað-
arins í Reykjavík heldur árlegan
basar sinn á morgun í safnaðar-
heimili kirkjunnar á Laufásvegi
13 og hefst hann klukkan 14.
Margt eigulegra muna er á bas-
arnum.
Tekið verður við munum á basar-
inn í dag, föstudag, í safnaðar-
heimilinu frá klukkan 17-21 og í
fyrramálið frá klukkan 9.
Sýning á
fj ar skiptatækni
í söludeild Pósts og síma, Ár-
múla 27 í Reykjavík, verður sýn-
ing og kynning dagana 11., 13.,
14. og 15. nóvember. Á sýning-
unni, sem heitir Fjarskipti 89,
verða Qarskiptatæki, þar á með-
al símtæki, símkerfi, telefaxtæki,
farsímar og gagnaflutningsnet
Pósts og síma verður einnig
kynnt.
Þá fá gestir að kynnast nýjung
hjá Pósti og síma, svokölluðu boð-
kerfi. Þar er um að ræða sendingu
skilaboða með tölum eða texta til
lítils tækis sem' menn bera á sér.
Enn fremur verður kynntur nýr
farsími sem unnt er að tengja við
telefaxtæki og símakerfi.
Erindi í
Neskirkju
DR. HJALTI Hugason, lektor,
flytur erindi um trúarlíf íslend-
inga áður fyrr I safiiaðarheimili
Neskirkju tvo næstu sunnudaga,
12. og 19. nóvember.
Fyrra erindið ber yfirskriftina
„Þá þú gengur í Guðs hús inn“ og
fjallar um guðsþjónustuhald í kirkj-
um. Síðara erindið fjallar um guð-
rækni á heimilum forfeðra okkar.
Dr. Hjalti Hugason lauk embætt-
isprófi í guðfræði frá HÍ árið 1977
og doktorsnámi í kirkjusögu í Upp-
sölum 1983. Hann er nú lektor við
Kennaraháskóla íslands.
Erindin hefjast að lokinni guðs-
þjónustu kl. 15.15.
Sundlaug
Sjálfsbjargar
VIÐGERÐ er lokið við sundlaug
Sjálfsbjargar en í sumar komu í
ljós skemmdir á flísalögn í botn-
inum.
í frétt frá Sjálfsbjörg segir, að
rekstur sundlaugarinnar sé veiga-
mikill þáttur í þjálfun fatlaðra. Auk
íbúa í Hátúni og þeirra er sæki
Dagvist Sjálfsbjargar sækja þang-
að sund Öskjuhlíðarskóli, deild fatl-
aðra í Hlíðarskóla, Seljarás, Geð-
deild Landspítalans Hátúni 10,
íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík
og nágrenni og íþróttafélagið Osp.
Basar í
Casa Nova
BASAR kirkjunefndar kvenna
Dómkirkjunnar verður í Casa
Nova MR á morgun kl. 14.
Á boðstólum verður ýmiskonar
handavinna sem kirkjunefndarkon-
ur hafa unnið í haust og aðrir eigu-
legir gripir.
Með basamum eru kirkjuriefnd-
arkonurnar að afla fjár fyrir safn-
aðarheimilið sem Dómkirkjusöfn-
uðurinn á í vændum. í gamla Iðn-
skólahúsinu við Lækjargötu 14.
Gaulveijabæjarkirkja
Gaulverjabæjar-
kirkja 80 ára
Gaulverjabæ.
Þess verður minnst sunnudag-
inn 12. nóvember næstkomandi
að Gaulverjabæjarkirkja er 80
ára. Kirkjan var vígð þann 21.
nóvember árið 1909. Síðan hefiir
hún hlotið margháttaðar endur-
bætur og jafnan verið sveitar-
prýði.
Gaulveijabær hefur verið kirkju-
stæður svo lengi sem vitað er, en
fyrst er getið kirkju þar í kirkna-
tali Páls biskups Jónssonar frá því
um 1200. Síðasta kirkja á undan
þessari var reist árið 1845 og var
orðin svo lakleg að hún var rifin
og núverandi kirkja reist á einu
sumri. Kirkjan á merka gripi og
má þar telja kaleik frá 1654 og
ljósahjálm frá 1686. í kirkjunni er
fagurlega útskorin altaristafla eftir
Ámunda Jónsson, þann kunna hag-
leiksmann. Á henni stendur ártalið
1775.
Við messuna á sunnudaginn mun
nývígður vígslubiskup Skálholts-
stiftis, séra Jónas Gislason, prédika
og fyrrverandi sóknarprestar sækja
sína gömlu kirkju heim. Eftir mess-
una verður boðið til kaffidrykkju í
Félagslundi.
- Valdim. G.
Ráðsteftia um
þj óðfélagsþróun
Á MORGUN hafa Félagsvísinda-
og Sagnfræðistofnun boðað til
ráðstefiiu um viðfangsefiiið „fs-
lensk þjóðfélagsþróun 1880-
1985“ £ Odda, hugvísindahúsi
Háskóla íslands. Þetta er rann-
sóknarverkefiii sem unnið hefur
verið að undanfarin misseri und-
ir verkstjóm Guðmundar Hálf-
dánarsonar og Svans Kristjáns-
sonar.
Á ráðstefnunni mun Guðmundur
Hálfdánarson fjalla um almenna
þjóðfélagsþróun fram til 1880, Gísli
Ágúst Gunnlaugsson fjallar um
byggða- og fólksfjölgunarþróun,
Magnús S. Magnússon um efna-
hagsþróun, Jón Gunnar Gijetars-
son um upphaf og þróun stétt-
skipts samfélags, Stefán Ólafsson
um gerð stéttaskiptingar, Svanur
Kristjánsson og Gunnar Helgi
Kristinsson um valdakerfí og
pólitíska foiystu og Pétur Péturs-
son og Sigurður G. Magnússon um
menningu.
Basar Jófríðar-
staðasóknar
SAFNAÐARFÉLAG Jófríðar-
staðasóknar i Haftiarfirði heldur
á morgun basar í Góðtemplara-
húsinu við Suðurgötu til ágóða
fyrir kirkjubyggingu á Jófríðar-
stöðum.
Á basarnum verður á boðstólum
hverskyns handavinna og kökur,
hlutavelta fer fram og lukkupokar
handa börnum verða seldir.
Myndlistar-
sýning í SPRON
SUNNUDAGINN 12. nóvember
næstkomandi kl. 14 opnar Spari-
sjóður Reykjavíkur og nágrennis
myndlistasýningu í útibúinu í
Álfabakka 14, Breiðholti. Sýndar
verða myndir eftir Þórunni S.
Þorgrímsdóttur.
Þórunn fæddist í Reykjavík árið
1951. Að (oknu stúdentsprófi
stundaði hún nám í myndlist og
leikmyndateiknun við Hochschule
fur Ángewandte Kunst í Wien
Myndlista- og handíðaskóla íslands
og Hochschule der Kunste í Berlín.
Þóninn hefur starfað við leik-
myndateiknun hjá Þjóðleikhúsinu,
Leikfélagi Reykjavíkur, við kvik-
myndir og víðar.
Árið 1987 hélt Þórunn einkasýn-
ingu í Nýlistasafninu og hefur auk
þess tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum, heima og erlendis.
Sýning Þórunnar stendur yfir til
19. janúar 1990 og verður opin frá
mánudegi til föstudags frá kl.
9.15-16.
Opið hús
í Garðabæ
OPIÐ hús verður í Tónlistar-
skóla Garðabæjar á inorgun frá
klukkan 14-17.
Öllum sem vilja er boðið í húsa-
kynni skólans, sem eru að Smiðs-
búð 4-6 til að fylgjast með því sem
þar fer fram. Unnt verður að fylgj-
ast með kennslu en einnig munu
nemendur efna til tónleika.