Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989 41 PT- KARLMANNAFÖT frá kr. 5.500,- til 9.990,- Terylenebuxur kr. 1.395,- til 2.195,- Nýkomnar yfirstaerðir. Mittismál mest 128 cm. Gallabuxur kr. 1.420,- og 1.620,- Flauelsbuxur kr. 1.420,- og 1.900,- Regngallar nýkomnir kr. 2.650,- Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt. ANDRES, Skóiavörðustíg 22, sími 18250. Leggjum rækt við lækningagáfiina Til Velvakanda. Um daginn sat ég fund með ágætu fólki, sem ræddi um sínar innstu þrár og vandamál. Það er stórkostlegt að vita af slíkum fé- lagsskap nú til dags, að eiga þau forréttindi, að geta tekið þátt í slíku. Allt of lítið er höfðað til tilfinninga manna í okkar nútímaþjóðfélagi. Það eina sem kemst að er fram- leiðsla og neysla. Hinn mannlegi þáttur mannsins er stórlega van- ræktur, nema þá hjá slíkum félaga- samtökum, sem að framan getur. Á þessum tiltekna fundi var komið inná trúmál, skyggnigáfu og aðrar gáfur, engla, og það sem í daglegu lífi er „tabu“, eitthvað sem ekki má tala um. En maðurinn er nú einu sinni svo gerður, að hann er leitandi og þráir að fylla upp í tóma- rúmið í lífi sínu. Hann finnur til vanmáttar síns, þegar hann stendur frammi fyrir því reginafli, sem ein- kennir tilveru hans. Þegar alvarleg- ir sjúkdómar knýja dyra, sumir ólæknanlegir á líkama eða sál; þeg- ar upplausn verður í fjölskyldu, eða önnur stórfengleg umbrot sem valda vonbrigðum og örvæntingu, brostnum hjörtum, þá hrópar mað- urinn til Guðs, kannski í fyrsta sinn, og ákallar það mikla afl, sem hann hefur ekki séð eða snert á, og neit- að því að trúa á. En það kemur að því að maðurinn leitar Guðs á erfið- ustu stundum lífsins hér á jörð. Guð er að finna, og hann heyrir bænir og svarar þeim. Maðurinn verður að læra að hlusta eins og barn á ný. Guð er að finna í dýpstu auð- mýkt mannlegs eiginleika. Við finn- um ekki Guð með því að ganga til messu einn sunnudag í lífi okkar. Ekki heldur með því að leita hans í ólíkum söfnuðum og trúarvenjum þeirra. Við finnum Guð í bæninni, þegar við höfum fyrirgefið sér- hverri sál, sem gert hefur á hlut okkar, beygjum okkur í auðmýkt og viðurkennum veikleika okkar og breiskleika og biðjum; Guð vertu mér syndugum líknsamur. Þegar við getum gert þetta og fyrirverðum okkur ekki fyrir Guði eða mönnum; þegar við getum sagt við sérhvern mann, sérhverja sál: Ég elska þig, og mér þykir vænt um þig. Þá höf- um við fundið Guð, þá er Guð í okkur, því að Guð er kærleikur. Höfum orð þessi hugföst, og leit- umst við að vaxa í trú og trú- rækni. Verum þess meðvituð, að á meðal okkar eru verur, góðir andar og englar, sem vilja okkur vel í baráttu okkar við ill öfl, sem verða á vegi okkar þann reynslutíma sem við lifum hér á jörð, sem er svo stuttur þegar við lítum til baka í hinsta sinn. Verum vakandi fyrir þeim ýmsu gáfum sem sumum okk- ar eru gefnar. Leggjum rækt við skyggnigáfuna og lækningagáfuna. Því svo mörgum okkar eru þessar gáfur gefnar, og mörgu góðu hafa þær komið til leiðar. Guð geymi ykkur. Einar Ingvi Magnússon EDI framtíöin: Pappírslaus viðskipti í Evrópu Ráðstefna þriðjudaginn 14. nóvember kl. 9.30-16.30 á Hótel Loftleiðum, í salnum Höfða. Erlendir gestir ráðstefnunnar: Hans B. Thomsen frá Útflutningsráði Noregs og Maurice Walker frá tollaráðuneyti Evrópubandalagsins. Aðrir, sem flytja erindi: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastj. Verslunarráðs íslands, Karl F. Garðarsson, Ríkistollstjóra, Jón H. Magnússon, Vinnuveitendasambandi íslands, Gunnhildur Manfreðsdóttir, bókasafnsfræðingur, Arnþór Þórðarson, Félagi ísl. iðnrekenda, Sigmar Þormar, Verslunarráði íslands, Þór Svendsen Björnsson, Reiknistofu bankanna. Pappírslaus viðskipti eru framtíðin. Islensk fyrirtæki verða að tileinka sér þær nýjungar, sem nú ryðja sér til rúms hvarvetna í helstu viðskiptalöndum okkar. Með notkun EDI, staðlaðra skjalaskipta milli tölva, munu þau njóta verulegs hagræðis. Það er mikilvægt að stjórnendur kynni sér þessi mál, þiví upptaka pappírslausra viðskipta er 80% stjórnunar- mál en 20% tæknilegt viðfangsefni. Opinberir aðilar, t.d. tollurinn, hafa sýnt þessum nýjungum mikinn áhuga og Ijóst er, að í framtíðinni munu upplýsingar vegna inn- og útflutnings berast til tollsins fyrst og fremst í tölvutæku formi. Á ráðstefnu EDI félagsins þann 14. nóvember munu tveir erlendir gestir skýra frá vinnu innan Evrópubanda- lagsins varðandi notkun EDI við tollafgreiðslu og laga- legum atriðum, sem tengjast pappírslausum viðskiptum. Ennfremur verður fjallað um þá frumvinnu, sem farin er af stað hér á landi og framtíðarmarkmið. Ég vil því eindregið hvetja þig til að mæta. ViJhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarróðs (slands og formaöur EDI félagsins. Vinsamlegast tilkynnið þáttöku í sfma 83088. Ráðstefnan eröllum opin. Þátttökugjald kr. 6.000. Ný „TOPP11 - tilboðsverslun hefur tekið til starfa á Eiðistorgi 11,3. hæð. Bjóðum upp á allar mögulegar vörutegundir ábestafáanlegaverði, t.d. allurfatnaður, búsáhöld, gjafavörur, gerviblóm, barnakerrur, matar- og kaffistell, baðvörur, leikföng, ofl., ofl., ofl., ofl. Barnakerrur... .. kr. 9.950.- Herrafrakkar.. .. kr. 3.900.- Glös . kr. 60.- Úlpur .. kr. 1.490.- Alltaf eitthvaó nýtt i hverri viku. w Ttmrimé UmmT TOPPURINH Eiðistorgi 11,3. hæð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.