Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NOVEMBER 1989
Minning:
Wenche Fjeld-
stad Ingvarsson
Fædd 4. desember 1953
Dáin 1. nóvember 1989
Hún Wenche er dáin. Já, við
bjuggumst öll við því, en trúðum
alltaf á eitt kraftaverkið enn.
Wenche var búin að há langa og
erfiða baráttu við slæman sjúkdóm
og að lokum sigraði hann. Ég hefi
aldrei kynnst manneskju sem hafði
meiri lífskraft og var dugiegri en
hún. Brosið hennar og öll framkoma
kom öllum til að þykja vænt um
hana. Hún átti því marga vini. Hún
var norsk að ættum og eru foreldr-
ar hennar Synnöve og Harald, bú-
sett í Noregi.
Hún giftist ung manni sínum,
Magnúsi Ingvarssyni, umsjónar-
manni á Tjaldanesheimilinu, Mos-
fellsdal. Kynntust þau er Magnús
var við nám í Noregi. Magnús er
sonur hjónanna Ingvars Jónssonar,
húsasmiðs og Kristínar Magnús-
dóttur. Áttu þau Magnús tvö börn,
Monicu fædda 1972 og Ingvar
fæddan 1974. Byggðu þau sér fal-
legt heimili í Njarðarholtf 4, Mos-
fellsbæ. Á heimili þeirra er alltaf
gott að koma og vildi Wenche alltaf
halda í uppruna sinn og hélt norsk-
ar hefðir á heimili þeirra. Hún hóf
störf á Tjaldanesheimilinu árið 1979
og var þar þrátt fyrir sjúkdóm sinn,
en Wenche veiktist af beinkrabba-
meini rúmlega tvítug að aldri. Það
er því orðin löng og ótrúleg lífssaga
þær þolraunir sem lagðar hafa verið
á eina konu.
Ég veit að Wenche er nú komin
til Guðs og tekst á við önnur verk-
efni, en þótt ævi hennar væri ekki
löng gaf hún mikið af sjálfri sér.
Oft er við komum til þeirra hjóna,
Magnúsar og Wenche, um jól, voru
hjá þeim vistmenn af Tjaldanesi.
Voru þeir fjarri íjölskyldum sínum
um jólin. Tók Wenche þá með sér
heim og hélt þeim jól. Þetta lýsir
henni vel, myndarskapurinn, dugn-
aðurinn og ósérhlífnin var hennar
aðalsmerki.
Það er stórt skarð höggvið í
lífsmunstur fjölskyldu minnar við
fráfall Wenchear og ég veit að svo
er einnig hjá fleiri vihum hennar.
Nú er þjáningum hennar lokið. Góð-
ur Guð, veittu Wenche, svilkonu
minni, fagra heimkomu og blessaðu
börn hennar og eiginmann. Styrktu
þau í þeirra miklu sorg og missi.
„Því að svo elskaði Guð heiminn,
að hann gaf son sinn eingetinn. Til
þess að hver sem á hann trúir glat-
ist ekki heldur hafi eilíft líf.“
Guðmundur Ingi Ingason
Það er ávallt sárt að sjá ungt
fólk kveðja þennan heim. Wenche
var aðeins 35 ára og hafði síðastlið-
in þrettán ár barist við þann sjúk-
dóm, sem að lokum bar hana ofur-
liði.
Hún fæddist í Sande í Noregi,
dóttir hjónanna Haralds og Synnöve
Fjeldstad og var elst sex systkina.
Að lokinni grunnskólagöngu, lærði
hún um tíma til klæðskera við Iðn-
skólann í Holmestrand en það var
síðan í Sande sem Wenche kynntist
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Magnúsi Ingvarssyni búfræðingi.
Þar var hann við framhaldsnám í
loðdýrarækt.
Þau giftu sig þann 31. desember
1971 og eignuðust á næsta ári sitt
ií
fyrra barn, Monicu. Til íslands lá
leiðin og skömmu síðar, eða 1974,
fæddist Ingvar. Þeirra fyrsta heim-
ili var að Laugabóli í Mosfellsdal
og á næstu árum tókst þeim með
dugnaði og útsjónarsemi að reisa
sér fallegt hús við Njarðarholt, hér
í Mosfellsbæ. í dag ber þar allt vott
um listfengi Magnúsar og smekkv-
ísi húsmóðurinnar.
Wenche hóf vinnu hjá Álafossi
1975 en varð fljótlega að hætta,
vegna illkynja sjúkdóms. Hún
gekkst undir mikla aðgerð og í kjöl-
farið fylgdi erfíð iyíjameðferð. Eftir
tvö ár benti allt til að lækningin
hefði tekist.
Á haustmánuðum 1979 hóf
Wenche störf við Tjaldanesheimilið.
Fyrir þremur árum tók sjúkdómur
hennar sig upp að nýju og um tima
leit út fyrir að hún ætti ekki aftur-
kvæmt. Uppgjöf var þó ekki til i
hennar huga og enn einu sinni var
sigurinn hennar, hún var komin til
starfa löngu áður en nokkurn gat
órað fyrir. Andstreymi í lífinu kallar
oft fram og þroskar okkar bestu
eiginleika og svo var um Wenche.
Ósérhlífni hennar og viljaþrek gerði
henni kleift að ganga tii vinnu
sinnar sem allheil. Hún var kraft-
mikil, glaðlynd og dugleg og það
var aðdáunarvert að sjá hversu vel
henni tókst að halda léttri lund.
Alltaf var stutt í hlýtt bros hennar
og hlátur sem smitaði út frá sér og
gerði umhverfi hennar bæði þægi-
legra og skemmtilegra. Wenche átti
mjög gott samstarf við allt starfs-
fólk að Tjaldanesi, en það sem mest
er um vert, er hversu góð hún reynd-
ist vistpiltunum sem elskuðu hana
og virtu.
Eiginmaður hennar réðst svo hér
til vinnu sem umsjónarmaður 1980.
Af samviskusemi og alúð hafa þau
hjónin gert Tjaidanesheimilinu mik-
ið gagn.
Síðastliðið haust ágerðist enn
sjúkdómur Wenche og í byrjun des-
ember lagðist hún inn á K-deild
Landspítalans þar sem læknar og
annað starfsfólk reyndist henni afar
vel og á þakkir skilið.
Við starfsfólk og vistmenn að
Tjaldanesi vottum Magnúsi, Monicu,
Ingvari og öðrum ættingjum inni-
lega samúð um leið og við kveðjum
Wenche og óskum henni Guðsfriðar.
Birgir Finnsson,
Tjaldanesi.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Vald. Briem)
Einhvem veginn er það svo að
við hugsum sjaldan um að sam-
verustund manna hér á jörð kann
að vera sú síðasta, en nú er komið
að kveðjustund.
Miðvikudaginn 1. nóvember barst
mér sú sorgarfregn að vinkona mín
væri látin aðeins 35 ára gömul, sú
barátta sem hún háði við skæðan
sjúkdóm væri lokið. Vegir guðs em
óútreiknanlegir. Þegar hann kallar
til sín ungt fólk í blóma lífsins, þá
stendur maður hljóður og spyr af
hveiju hún sem var svo ung, glað-
15
-----------------------------------1
vær og bjartsýn á lífið og átti margt
eftir ógert.
Undirrituð kynntist Wenche þeg-
ar við fluttum með stuttu millibili í
sömu götu fyrir 10 ámm. Þá var
sjúkdómurinn þegar farinn að hrjá
hana, en aldrei kvartaði hún heldur
naut hún hversdags sem hún var
frísk og smitandi hlátur hennar kom
manni alltaf í gott skap. Með þess-
um fátæku orðum vil ég fá að þakka
fyrir að hafa fengið að kynnast
Wenche.
Elsku Maggi, Monika og Ingvar,
ég bið Guð að blessa ykkur og
styrkja á þessari sorgarstund.
Dísa
í dag er til moldar borin frá Lága-
fellskirkju Wenche Fjeldstad Ing-
varsson. Hún fæddist í Sande, Nor-
egi 4. desember 1953 og var elst 6
systkina. — Foreldrar hennar em
Harald Fjeldstad og Synnöve Fjeld-
stad. Hún lauk gmnnskólanámi í
heimabæ sínum og stundaði síðan
nám við klæðskurð í Iðnskólanum í
Holmestrand. Eftir að námi lauk
stundaði hún veitingastörf.
Árið 1970 kynntist Wenche
mannsefni sínu, Magnús Ingvars-
syni, en hann var þá við nám í loð-
dýrarækt í Noregi. Þau giftu sig í
Noregi á gamlársdag 1971 og settu
upp heimili sitt í Holmestrand. Þar
fæddist þeim dóttir 7. júní 1972, á
afmælisdegi hennar Jensínu frá
Hamri við ísafjarðardjúp, en hún
var amma Magnúsar Ingvarssonar.
Litla stúlkan var skírð Monica. Að
námi sínu loknu vann Magnús við
álsteypu hjá Nordisk Aluminium
Industri í Holmestrand. Árið 1973
ákvaðu ungu hjónin að flytja til ís-
lands. Wenche var tilbúin að reyna
nýjar slóðir og fjöiskyldan fékk nýja
samastað fyrir heimili sitt á Lauga-
bóli í Mosfellsdal. Þau bjuggu einn-
ig að Lyngási, en þá fæddist Ingvar
þann 6. nóvember 1974. Eftir þetta
flutti fjölskyldan að Brúnási, en
1981 hafði Magnús byggt yfir fjöl-
skyldu sína og var þá flutt að Njarð-
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
GÓÐAR
PLÖTUR OG
ÓDÝRAR
Rffi - EKKI VILL MB BITNK
í Hagkaup færðu allar helstu plöturnar
(kass., CD) mun ódýrari en annars stað-
ar. Skoðaðu TOPP 20 listann og gerðu
verðsamanburð. Það er þinn hagur.
T-O P P
TUTTUGU LP/KASS. CD
1. RÍÓ - EKKI VILL ÞAÐ BATNA 1.299 VÆNTANL.
2. ÖRVAR KRISTJÁNSS0N - FRJÁLSIR FUGLAR 1.299 VÆNTANL.
3. LAMBADA - ÝMSIR 1.399 1.699
4. NÝ D0NSK - EKKI VERÐUR Á ALLT K0SIÐ 1.299 VÆNTANL.
5. HALLBJÖRN HJARTARSON - KÁNTRÝ 5 1.299 —
6. TINA TURNER - F0REIGN AFFAIR 1.099 1.699
7. RÚNAR ÞÓR PÉTURSSON - TRYGGÐ 1.299 —
8. ALICE C00PER - TRASH - 1.099 1.699
9. GUNS'N'ROSES - APPETITE F0R DESTRUCTI0N 1.099 1.699
10. GIPSY KINGS - GIPSY KINGS 1.099 1.699
11. MÖTLEY CRUE - DR. FEELG00D 1.099 1.699
12. TRACY CHAPMAN - CR0SSR0A0S 1.099 1.699
13. BILLY J0EL - STORM FRONT 1.099 1.699
14. MILLI VANILLI - 2X2 1.399 1.699
15. AEROSMITH - PUMP 1.099 1.699
16. SYKURM0LAR - ILLUR ARFUR 1.099 1.699
17. BROS - TIME 1.099 1.699
18. ROLLING ST0NES - STEEL WHEELS 1.099 1.699
19. LIVING C0L0UR - VIVIO 1.099 1.699 ,
20. RANDY CRAWF0RD - RICH & P00R 1.099 1.699
GERÐU VERÐSAMANBURÐ
Nýjar sendingar
Höfum ennfremur tekið upp hundruð nýrra titla í vikunni
með listamönnum í heimsklassa. Komdu og skoðoðu næst
þegar þú gerir helgarinnkaupin í Hagkaup.
□ LP □ KASS. □ CD/væntanl.
Öll lögin eru ný, somin of Gunnari Þórðarsyni, sem
einnig útsetur og stjórnnr upptókum. Flutningur Rió
og túlkun ó jtesscum fróbæm Iðgum gerír þessa plðtu
einc af þeim betri, sem komið hafo út ó íslondi.
HILLBJðRN NJIRTIRSON - KÍNTR? 5
□ LP n KASS.
Enn eru margir sem ekki hafa uppaötvað hve skemmti-
leg þessi plata er. Það er alitaf gamon og gott að
eiga gott og gaman i vændum og Kóntrý 5 mun
ekki volda nokkrum vonbrigðum.
o
PÉTBR i. JfiNSSON - 1KI4-195B
□ ip
Pótur vorð fyrstur íslendinga til oð syngjo Inn ð
plötu. Hér et sú hljóðritun ósomt mörgum öðrum
ómetonlegum sönglögum.
RfiNIR ÞÖR PÉTORSSON - TNYGBB
□ LP □ KASS.
Rúnat hefur fyrir löngu sonnoð sig sem einn bcsto
logosmið londsins. Á þessori plötu sýnir honn sínor
bestu hliðor i gullfollegum, nýjum lögum. Ploto, sem
kemur þór ó ðvort.
Nf DBNSK
- EKKI VERBUR i ILLT KOSIB
□ LP □ KASS. □ CD/væntanl.
Ftumþurður þessoror vel þekktu hljómsveitor er verk
sem kemur öllum unnendum íslenskrar tónlistor ó
óvort. Ploton er svo góð oð oð oð... Hlustið ó plötunc
og flnnið ykkot eigin lýsingotorð.
EIRÍKUR HIUKSSON - SKOT f MYRKRI
□ LP □ KASS. □ CD/væntanl.
Þessi plata hefur nú verið í smíðum í tvö ór. Só tími
hefur verið vel nýttur, því útkoman er eins góð og
þig dreymir að gott rokk er. Stórkostlega vel heppn-
uð plata.
ORVAR KRISTfA NSSON
ÖRVIR KRISTJÍNSSOK
- FRJÍLSIR FUGLIR
□ LP □ KASS.
Allir vita oð þegor Ötvot er onnars vegor er fulfvíst
oð um góðo tónlist er oð ræðo. Færri vita oð Frjóls-
ir fuglor er hons longbesto ploto til þessa. En þeim
fer fjölgondi.
BRJEBORWR - KOSMfSK IUG0
□ LP □ KASS. □ CD
Bræðumir etu sennilega best þekktir fyrir oð hofo
somið og flutt tvö of lögum londslogskeppninnor i
vor. Þessi pioto sýnir vel hversu megnugir þeir eru
oð skopo Ijúfo og seiðondi lónlist sem hittir beint i
hjortostoó.
VOTáMLEGT IESTU USl
MHIMNTM3S - ilTTll LIIGl
Sáli - IVU ER NIHMIHUKII
MTUYMtFftiGll -
MH SBi STELUR M06SANUK
VALGEU NlMlSSU - GftMR llEYREHOUR
T0ÐM6BILE - BETIi EN HOdUB HHIS
SVERRIR STORMSKER - PLAIA
+ FUILT1F ÖHUMITIUU ÍSLEMSKUM T1TLUM
MEl ÝMSWi FLYTJEMÐUM.
HAGKAUP