Morgunblaðið - 10.11.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989
17
Kristján Ulfars-
son-Minning
Fæddur 17. október 1921
Dáinn 3. nóvember 1989
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund. •
í dag verður jarðsunginn afi okk-
ar, Kristján Úlfarsson. Okkur
systkinunum þykir sárt að horfa á
eftir Stjána afa sem hvarf frá okk-
ur svo snögglega. Það er skrítið til
þess að hugsa að við munum aldrei
aftur sjá afa. Við viljum að lokum
þakka elsku afa allar þær stundir
sem hann gaf okkur. Guð blessi
minningu hans.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
'(V. Briem)
Bjarni Kristján,
Erla Margrét.
Hann afi er dáinn. Já við skiljum
þetta ekki alveg ennþá. Það verður
svo skrítið að koma á Bjarnhólastíg-
inn til ömmu þar sem við erum svo
oft og eiga ekki eftir að heyra afa
spila á orgel eða harmonikkuna sína
meir. Hann spilaði svo oft fyrir
okkur, núna síðast í afmælinu hans
17. október. Þá sungum við af-
mælissönginn fyrir hann og afi spil-
aði undir.
Aldrei var kvartað yfir hávaðan-
um sem fylgir okkur svona yfirleitt
og það er sko meira en mamma og
pabbi geta skilið.
Við viljum þakka afa okkar fyrir
alla þolinmæðina við okkur og allar
næturgistingarnar. Þær eru orðnar
æði margar.
Við biðjum Guð að gæta ömmu
okkar núna þegar afi er farinn til
himna.
Margrét Hlín, Einar
Sverrir og Svanhvít
Ég vil með nokkrum orðum
kveðja samstarfsmann og vin,
Kristján Úlfarsson, Bjarnhólastíg
24, Kópavogi.
Hann fæddist 17. október 1921
í Fljótsdal undir Eyjaijöllum. Ungur
að árum missti hann föður sinn og
fluttist með móður sinni og systkin-
um til Reykjavíkur. Hann tók að
nema gullsmíði og gekk í Iðnskól-
ann. Hann var mikill tónlistarunn-
andi og lék á harmoniku og fleiri
hljóðfæri.
Kristján var maður fjölhæfur.
Hagur bæði á tré og járn og marg-
ir leituðu til hans með verkefni.
Hann hóf því störf við trésmíði og
seinna við bílaviðgerðir. Einnig
starfaði hann um tíma við hreinsun
í efnalaugum.
Hann réðst svo til tengdaföður
míns sem þá hafði stofnsett fyrir-
tæki sitt Fjöðrina hf. og hefur það
notið starfskrafta hans óslitið síðan
eða í 27 ár.
Ungur giftist hann ágætri konu,
Margréti Sigurðardóttur og eignuð-
ust þau 4 börn, sem öll eru uppkom-
in og hafa stofnað heimili.
Ég vil þakka honum fyrir öll árin
sem við störfuðum saman og bið
honum og ástvinum hans guðs
blessunar.
Ragnar Leví Jónsson
Himnaföðurnum þóknaðist að
kalla hann Kristján okkar til sín
fyrirvaralaust að kvöldi föstudags-
ins 3. nóvember sl. Ekki grunaði
mig að hann bæri feigðina í fartesk-
inu, er ég rétti honum launaumslag-
ið hans í hádeginu þann sama dag.
Hann var meðal elstu og reynd-
ustu starfsmanna okkar í Fjöðrinni
hf. Kom til starfa hjá fyrirtækinu
fyrir 27 árum og hlaut það verk-
efni að beygja púströr og við
beygjuvélina stóð hann samvisku-
samlega öll árin og þar til örfáum
klukkustundum áður en kallið kom.
Hann lagði það ekki í vana sinn
að verma bólið heima fyrir þó að
einhveijir kveisustingir hlypu í
hann, enda var hann ekki oft frá
vinnu. Aðeins einu sinni man ég
hann veikan um tíma og fylgdi því
sjúkrahúsvist. Eitt kvað hann víst
eftir þá legu. Á spítala ætlaði hann
ekki aftur. Honum varð að þeirri
ósk sinni.
Þó að púströrasmíði væri hans
aðalstarf átti hann mörg handtökin
við ólíklegustu verk innan fyrirtæk-
isins. Hann var þúsundþjalasmiður-
inn okkar og oft kallaður til þegar
eitthvað fór úrskeiðis. Allt var það
sjálfsagt frá hans hendi. Ein
símhringing yfir á verkstæðið og
stuttu seinna kom Kristján gang-
andi og bar í hendl sér .hamar, hef-
il, sög, rörtöng, pensil eða eitthvert
það verkfæri er hæfði verkinu sem
beið hans.
Fyrir allt þetta og svo ótal margt
fleira er mér bæði ljúft og skylt að
þakka nú er leiðir skilja er ég kveð
minn vin og samstarfsmann sem
verður jarðsettur í dag.
Ég bið honum góðrar heimkomu
í guðsríki og sendi eiginkonu hans,
börnum og öðrum þeim er eiga um
sárt að binda við fráfall hans mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Kristjáns
Úlfarssonar.
Sigríður Sigurbergsdóttir
FRAMKVÆMDASJÓÐUR ÍSLANDS
Framkvæmdasjóður íslands óskar eftir
kauptilboðum í eftirgreindar fasteignir:
1) Vesturgötu 2, Reykjavík, með tilheyrandi eignarlóð.
Húsið er tvær hæðir, ris og kjallari, alls um 1280
fm. Gagnger endurnýjun hefur farið fram á húsinu.
Húsið selst í einu lagi eða hver hæð fyrir sig.
2) Laufásveg 7, Reykjavík, öðru nafni Þrúðvangur.
Gagngerar endurbætur hafa farið fram á húsinu að
utan.
Frekari upplýsingar eru veittar hjá Framkvæmdasjóði
íslands, Rauðarárstíg 25, Reykjavík, sími 624070.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
í
Þú átt skilið að fá áheym
og öruggan sess
Sparisjóður vélstjóra er traustur og áreiðanlegur, með mikið eigið fé. Þar er áhersla
lögðápersónulegaþjónustu. Allir fá áheyrn, öruggan sess, leiðsögn og greið svör.
En Sparisjóður vélstjóra er ekki aðeins traustur og óreiðanlegur,
heldur er óhersla lögð þar ó persónulega þjónustu. Sparisjóður
vélstjóra veitir öllum óheyrn, öruggan sess, leiðsögn og greið
svör. Það er enginn stofnanabragur ó Sparisióði
vélstjóra.
Fljót lónafyrirgreiðsla er einn meginkosta þjónustu
Sparisjóðs vélstjóra. Þetta laðar einstaklinga og lítil fyrirtæki í
viðskipti. Lægri lónabeiðnir eru afgreiddar samdægurs eða
með eins dags fyrirvara, beiðnir um stór lón eru einnig afgreidd-
ar ó skömmum tíma.
Símabankinn sparar viðskiptavinum sporin. Með einu sím-
tali fær reikningseigandi upplýsingar um viðskipti sín.
símabankinn svarar hvenær sem er sólarhringsins. Hann
veitir upplýsingar um stöðu reiknings og um sfðustu hreyfingar,
tekur við beiðnum um millifænslu og veitir ýmsar upplýsingar.
Það er rétt að kynna sér símabankann.
Góð bílastæði eru við bóðar afgreiðslur Sparisjóðs vél-
stjóra, við Borgartún og í Síðumúla. Fótt er viðskiptavinum
banka og sparisjóða kærara en greiður aðgangur að viðskipta-
stofnun og næg bílastæði. Það er auðvelt að komast að bóðum
afgreiðslustöðum okkar, sem eru í alfaraleið.
| lll;.-,
Það er enginn stofnanabragur
á Sparisjóði vélstjóra
SPARISJÓDUR VÉLSTJÓRA
BORGARTÚNI 18 SÍMI 28577 - SÍOUMÚLA 1 SÍMI 685244
<