Morgunblaðið - 10.11.1989, Qupperneq 22
I
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Arvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
A
Gjaldþrot Islandslax
Málþing Sjávarútvegsstoftiunar um fískveiðisljórnun:
Kvótasala besta aðferð til
að rétta við sjávarútveginn
- að mati margra fyrirlesara á málþinginu
Gjaldþrot íslandslax, eins
stærsta fiskeldisfyrir-
tækis landsins, er mikið um-
hugsunarefni. Þetta gjaldþrot
er auðvitað til marks um
gífurlega erfiðleika í fiskeldi
um þessar mundir. Þeir erfið-
leikar eru ekki bundnir við
ísland. Verðfall á afurðum
fiskeldisstöðva hefur leitt til
mikilla vandamála t.d. í Nor-
egi. En íslandslax er um
margt sérstakt fyrirtæki.
Að fyrirtækinu standa
öflugir aðilar á íslandi og í
Noregi. Stofnun íslandslax
var á sínum tíma tákn um
sókn samvinnuhreyfingarinn-
ar inn á ný svið í atvinnulíf-
inu. Þegar fyrirtækið var
stofnað bjó Samband ísl.
samvinnufélaga enn yfir
miklum fjárhagslegum styrk
og fékk til liðs við sig erlend-
an aðila, sem lagði fram
umtalsvert ijármagn til upp-
byggingar þessarar stóru
fiskeldisstöðvar. Þáð er því
ekki hægt að halda því fram,
að eigendur íslandslax hafi
farið af stað af vanefnum,
eins og svo oft tíðkast í at-
vinnurekstri hér.
Þegar íslandslax var stofn-
að vissu menn að hveiju þeir
gengu í sambandi við kostnað
við fjármagn. Verðtrygging
var komin til sögunnar og þar
með jákvæðir raunvextir.
Þess vegna á það ekki við
um íslandslax, að þetta fyrir-
tæki hafi skyndilega staðið
frammi fyrir gjörbreyttum
aðstæðum varðandi fjár-
magnskostnað, eins og svo
mörg dæmi eru um hér.
Það er hins vegar ljóst, að
á undanförnum misserum
hefur mikið verðfall orðið á
afurðum fiskeldisstöðva. Við
íslendingar þekkjum slíkar
verðsveiflur á sjávarafurðum
okkar og þess vegna kemur
tæpast nokkrum manni á
óvart, að slíkar verðsveiflur
verði í fiskeldi. A.m.k. verður
því ekki trúað, að aðilar með
margra áratuga reynslu að
baki í atvinnurekstri hafi lagt
út í mörg hundruð milljóna
króna fjárfestingu án þess að
gera ráð fyrir því, að verð-
breytingar gætu komið til
sögunnar.
Þegar þessi sjónarmið eru
íhuguð verður ljóst, að gjald-
þrot íslandslax er mikið áfall.
Er ekki til staðar nægileg
þekking í- viðskipta- og at-
vinnumálum til þess að setja
slíkt fyrirtæki á fót þannig,
að menn kunni fótum sínum
forráð?
Það er mikið um gjaldþrot
um þessar mundir. Gjaldþrot
eru alvarlegt mál. Fyrirtæki,
einstaklingar og opinberir
aðilar tapa á gjaldþrotum,
stundum miklum fjármunum.
Er það ekki umhugsunarvert,
að stórfyrirtæki á borð við
Samband ísl. samvinnufélaga
telur sig ekki eiga annan
kost en þann að setja Islands-
lax í gjaldþrot? Hafa Sam-
bandið og dótturfyrirtæki
þess efni á því að tapa 250
milljónum á gjaldþroti ís-
landslax? Talað er um, að
Sambandið taki fiskeldisstöð
hins gjaldþrota fyrirtækis á
leigu. Er það sjálfsagt mál,
að aðaleigandi hins gjald-
þrota fyrirtækis taki eignir
þess á leigu af þeim, sem
tapa á gjaldþrotinu eins og
ekkert hafi í skorizt?
Raunar er fleira umhugs-
unarvert varðandi gjaldþrot
um þessar mundir. Fyrir
nokkru var annað fiskeld-
isfyrirtæki tekið til gjald-
þrotaskipta, Árlax hf. Meðal
eigenda þess eru fjögur í hópi
^tærstu og öflugustu fyrir-
tækja landsmanna. Hvað
veldur því, að þessi öflugu
fyrirtæki taka ekki sjálf á sig
tapið á þessum rekstri í stað
þess að láta tapið lenda á fjár-
festingarsjóðum og öðrum
viðskiptamönnum? Ef eigend-
ur gjaldþrota fyrirtækis eiga
fyrir skuldum þess hlýtur það
a.m.k. að vera álitamál, hvort
þeim beri ekki siðferðileg
skylda til þess að taka tapið
á sig í stað þess að láta það
lenda á öðrum.
Fiskeldið hér á bersýnilega
í stórfelldum erfiðleikum.
Reynslan af því, að stór og
öflug fyrirtæki, sem hafa náð
góðum tökum á öðrum
rekstri, leggi út í þessa nýju
atvinnugrein virðist ekki vera
góð. Það skyldi þó aldrei vera,
að það verði þau fyrirtæki,
sem stofnuð hafa verið af
mestum vanefnum af félitlum
einstaklingum, sem lifi af?
Á málþingi um fiskveiðistjórn-
un, sem Sjávarútvegsstofiiun
Háskólans stóð fyrir í gær, færðu
margir fyrirlesarar rök fyrir því
að kvótasala væri besta aðferðin
til að auka hagkvæmni i sjávarút-
vegi. Kvótasala myndi stuðla að
fækkun fiskiskipa, hagkvæmari
útgerð, verndun fiskstofna, betri
nýtingu afla og síðar meir aukn-
um afla. Til þess hefði núverandi
kvótakerfi ekki dugað, og raunar
hélt einn fyrirlesara því iiram að
þorskstofnin væri að hruni kom-
inn vegna of mikillar sóknar
siðan kvótakerfið var tekið upp.
Málþingið var fyrsta verkefni
Sjávarútvegsstofnunar Háskóla ís-
lands, sem sett var á stofn í sum-
ar. Á málþinginu fluttu fræðimenn
fyrirlestra um fiskveiðistjórnun og
náiguðust viðfangsefnið frá ýmsum
hliðum.
Þorkell Helgason prófessor flutti
erindi sem hann kallaði Kvótagjald
og efnahagsstjórnun. Hann sagði
að auðlindaskattur hefði áður verið
lagður á sjávanítveg og aðrar út-
flutningsgreinar með því að skrá
gengið of hátt, og sýndi síðan dæmi,
með reiknilíkönum, um hvaða áhrif
gjald, sem lagt væri á kvóta eða
afla, gæti haft á hagkerfið.
Þorkell gaf sér þær forsendur
að raungengi yrði lækkað um
10-20%. Staða sjávarútvegs yrði
óbreytt, þar sem kvótagjaldið vægi
upp áhrif gengisfellingarinnar. Aðr-
ar útflutningsgreinar myndu búa
við eðlilegt gengi og greiddu ekki
lengur auðlindaskatt.
Ríkið gæti til dæmis notað kvóta-
skattinn til að lækka söluskatt og
náð þannig fram kjarastuðningi til
að vinna upp áhrif gengislækkunar
á framfærsluvísitölu.
Þorkell miðaði m.a. útreikninga
sína við að fiskistofnarnir hefðu
verið endurreistir og þyldu 10%
aflaaukningu. Einnig að fiskveiði-
flotinn hefði verið minnkaður um
25%. Ef ekkert kvótagjald væri lagt
á við þær aðstæður, sagði Þorkell
að þyrfti 26% gengishækkun til að
halda hagnaði í sjávarútvegi í skefj-
um. En ef gengið yrði lækkað um
15% við þær aðstæður, gæti sjávar-
útvegur staðið undir 34% kvóta-
gjaldi, sem samsvaraði því að ríkið
gæti lækkað söluskatt um 15 sölu-
skattstig. Það myndi vega upp áhrif
gengisfellingar á framfærsluvísi-
töluna.
Tengsl þorskstofns; og loðnu-
stofns nefndist erindi Ólafs Karvels
Pálssonar fiskifræðings og Kjartans
G. Magnússonar stærðfræðings.
Var þar sagt frá athugun á inni-
haldi þorskmaga, sem farið hefur
fram skipulega í 10 ár. Þar hefur
komið í ljós að loðna er mikilvæg-
asta fæða þorksins; á veturna er
yfir 50% fæðunnar loðna og sum
árin allt að 80-90%.
Árið 1979-86 át þorskstofninn á
tímabilinu október til mars allt að
1016 tonn af loðnu, svipað og loðnu-
afli íslendinga.
Fram hefur komið í athugunum
að loðnuafli hefur áhrif á þorskafla.
I fyrstu útgáfu af hermilfkani, sem
reiknar vöxt þorska og væntanleg-
an þorskafla fyrir loðnuafla, kemur
í ljós, _að 800 þúsund tonna Ioðnu-
afli á Islandsmiðum hefur iítil áhrif
á þorskaflann. Hann minnkar úr
357 þúsund tonnum í 334 þúsund
tonn. En sé loðnuaflinn aukinn í
1.200 þúsund tonn fellur þorskafl-
ifiii í 312 þúsund tonn. Og ef loðnu-
aflinn er aukinn úr 1200 þúsund
tonnum í 1600 þúsund tonn, fellur
þorskaflinn í 283 þúsund tonn, eða
um nær 30 þúsund tonn sem eru
mun verðmætari en 400 þúsund
tonn af loðnu.
Grímur Valdimarsson forstjóri
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðar-
ins, flutti erindi eftir þá Jónas
Bjarnason efnafræðing, sem nefnd-
ist Hugleiðingar um veiðileyfasölu
á gæði fiskafla.
Grímur fjallaði um afleiðingu
kvótakerfisins á gæði, og sagði að
þótt sú þróun hefði verið hægari
en vonir stóðu til, virtist sem sjó-
menn væru farnir að huga meira
að nýtingu afla en um að ná sem
stærstum hölum. Þó væri enn hent
yfir 60-80 þúsund tonnum af rusl-
fiski og slógi.
Grímur sagði að uppboð á kvóta
ætti að hafa það í för með sér að
kvótinn færðist á hendur þeirra sem
væru hæfastir til að nýta aflann.
Um leið færðist aukin harka í við-
skipti með fisk og það ætti síðan
að stuðla að betri nýtingu og gæð-
um afla.
Einar Júlíusson eðlisfræðingur
kallaði erindi sitt: Er þorsktofninn
að hruni kominn. Hann fullyrti, og
sýndi tölur og línurit því til stuðn-
ings, að því meiri sem sókn væri í
fiskistofnana, þeim mun minni yrði
aflinn vegna áhrifa á klak.
Einar sagði að núverandi sókn
væri langt frá þeirri kjörsókn sem
sameinaði hámarkshagnað útgerð-
ar og endurnýjun þorskstofnsins.
Síðan 1980 hefði sóknin tvöfaldast
og fiskiskipaflotinn stækkað um
17% en aflinn minnkað að sama
skapi. Ef stunduð hefði verið kjör-
sókn síðan 1980 liti dæmið allt öðru
vísi út.
Einar sagði það því ljóst að
kvótakerfið hefði ekki dugað til að
stýra fiskveiðum. Það eina sem
dygði væri að auka sóknarkostnað
útgerðarinnar í stað þess að minnka
hann, og minnka þar með sóknina.
Það gæti náðst fram með skrap-
dagakerfi eða með því að setja á
auðlindaskatt.
Snjólfur Ólafsson stærðfræðing-
ur kallaði sitt erindi Stjórnun fisk-
veiða - kjarni málsins. Með svoköll-
uðum tengslaritum sýndi Snjólfur
meðal annars ástæður flotastækk-
unar síðustu ára. Því hefur aðallega
ráðið, að mati.Snjólfs, hagnaðarvon
útgerðar, sem hefur ýmist keypt
stærra skip eða nýtt skip. Einnig
byggðasjónarmið, þar sem þörf hef-
ur verið á auknum afta í tilteknum
byggðum og nýju skipi fylgir von
um aukinn kvóta. Afleiðingin hefur
verið minni afli á hvert skip og
óhagkvæmari útgerð, sem þýðir
minni afli á'tilteknum stöðum sem
aftur kallar á aukinn afla í til-
teknum byggðum o.s.frv.
Snjólfur velti einnig fyrir sér
hvað gerist þegar flotinn minnkar.
Það hefur í för með sér fækkun
skipa og fækkun útgerðarstaða,
kvótinn er framseldur til færri aðilá
og hvert skip fær stærri kvóta sem
þýðir hagkvæmari útgerð. Aukinn
hagnaður útgerðar gæti þá komið
fram í gengishækkun og verri af-
komu annara atvinnuvega, eða ríkið
gæti lagt á kvótagjald og varið því
til lækkunar annara skatta, eins og
Þorkell Helgason hafði áður sýnt
fram á.
Þórólfur Matthíasson lektor flutti
erindi sem hann kallaði Hlutaskipti
og fjallaði um hlutaskiptakerfi í
fiskveiðum sem hafa verið við lýði
hér á landi allt frá söguöld. Rann-
sóknir Þórólfs á hagkvæmni hluta-
skiptakerfa benda til þess, að bæta
megi framleiðsluþáttanýtingu í
fiskveiðum hér á landi með því að
hverfa frá hreinum hlutaskiptum
áhafnar og útgerðar, þ.e. að skipta
brúttótekjunum, og skipta þess í
stað rekstrartekjum eða hreinum
ágóða.
Þórólfur sagði að þótt hluta-
skiptakerfinu hafi ekki verið skákað
til hliðar þýði það ekki endilega að
það sé betra en önnur möguleg
greiðslukerfi. Dómur sögunnar um
það hafi ekki fallið vegna þess að
rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyr-
irtækja hafi breyst svo mikið und-
anfama áratugi.
Þorvaldur Gylfason prófessor
kallaði erindi sitt Umhverfismeng-
un og ofveiði. í erindinu vakti Þor-
valdur athygli á þremur atriðum:
að umhverfismengun væri efna-
hagsvandi; að mengun umhverfis
og ofveiði til sjós væri í raun angar
á sama meiði; og að hagkvæmar
mengunarvarnir væru náskyldar
hagkvæmustu aðferð sem völ væri
á við stjórn fiskveiða, veiðileyfasölu.
Þorvaldur færði síðan rök fyrir
því, að með því að selja eða leggja
gjald á mengunarkvóta og veiði-
leyfi, í stað þess að úthluta þeim
ókeypis, væri hægt að spara mikið
fé, því þá færðust mengunarvarnir
og fiskivernd sjálfkrafa á hendur
þeirra fyrirtækja sem dregið gætu
úr ofveiði og mengun með minnst-
um tilkostnaði.
Þorvaldur sagði að aðalástæðan
fyrir því að kvótasala væri ekki
komin í framkvæmd, væri sú að
sjávarútvegsfyrirtækin væru á móti
því þar sem þau óttuðust fjárhags-
legt tap. En þegar þjóðin sparar
stórfé þarf enginn að tapa, sagði
Þorvaldur.
Markús Möller hagfræðingur
kallaði sitt erindi Afleiðingar einka-
kvóta. Hann sagði að stjórnmála-
menn og hagsmunaðailar hefðu lítið
velt fyrir sér hvaða afleiðingar þær
breytingar hefðu í för með sér sem
-nú er verið að gera á kvótakerfinu.
Markús sýndi dæmi um útreikn-
inga sem sýndu að með því að af-
henda útgerð kvóta, yrði alhliða
33% samdráttur á skipum og
vinnslu ásamt 20% fækkun starfa.
Það myndi duga til að spara 16
milljarða króna á ári.
Líklegt væri að sjómönnum
fækkaði en ólíklegt að kjör þeirra
sem héldu vinnunni myndu batna í
samanburði við kjör landfólks. Eng-
inn bati yrði sjáanlegur fyrir fisk-
vinnslu. Vinnslan héldi áfram að
flytjast úr landi ef fiskvinnslulaun
í öðrum löndum hækkuðu ekki.
Ekkert sérstakt vemdaði byggðir
sem nú væru í hættu.
Markús taldi síðan að einungis
þeir sem seldu beint þjónustu eða
verðmæti ættu trygga afkomu,
mælda í erlendri mynt. Með eignar-
haldi á kvóta ylti raungengi á því
hve miklum hlut tekna sinna út-
flytjendur og kvótaeigendum eyddu
í innlenda vöru og þjónustu. Ef sú
eyðsla ykist, muni raungengi senni-
lega og um leið versnaði önnur út-
flutningsframleiðsla en fiskveiðar.
Gísli Pálsson dósent fjallaði um
Fiskveiðistjórnun á Norðurlöndum
og skýrði frá því að í undirbúningi
væri rannsókn á þeim aðferðum
sem notaðar eru við stjórnun fisk-
veiða á Norðurlöndunum. Rann-
sóknin er samstarfsverkefni nokk-
urra félagsfræðinga, mannfræð-
inga og stjórnmálafræðinga við
Háskóla Islands og Tromsöháskóla.
Gísli sagði markmið þessarar
rannsóknar að efla skilning á fé-
lagslegum þáttum stjórnunarvan-
dans og stuðla að faglegri umræðu
um þá. Kannað verði samspil þeirra
sem láti fiskveiðistjórn til sín taka,
að hve miklu leyti ábyrgðinni sé
deilt á milli þeirra, hvernig nauð-
e8SI H3SM3VÖI4 .01
J8
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR JO: NOVEMBER 1989'
23
syniegrar þekkingar sé aflað, og
að hve miklu leyti þolendur stjórn-
valdsaðgerða sætta sig við þær.
Gunnar Helgi Kristinsson lektor
fjallaði um ísland og sjávarútvegs-
stefnu Evrópubandalagsins. Hann
sagði að færa mætti rök fyrir því
að samningsstaða íslands gagnvart
EB væri sterkari í tengslum við
aðildarumsókn heldur en utan
bandalagsins.
Gunnar sagði að sjávarútvegs-
stefna EB, sem samþykkt var 1983,
hefði breytt þeirri stefnu að aðild-
arríkin ættu jafnan aðgang að fisk-
veiðilögsögu hvers annars. Nú væri
leyfilegu aflamagni skipt í kvóta
sem úthlutað væri til einstakra að-
ildarlanda eftir hefðbundnum fisk-
veiðiréttindum, sérþörfum lands-
svæða sem væru verulega háð sjáv-
arútvegi, og því hvort verulega
skertur afli leiddi af viðurkenningu
200 mílna lögsögu.
Gunnar Helgi sagði að tvær
fyrstu reglunar væru ótvírætt Is-
lendingum í hag. Þriðja reglan
myndi hins vegar vinna gegn hags-
munum íslands. Það þyrfti þó ekki
að koma að sök, bví í viðræðum
um aðild Spánar, kaus EB að líta
svo á að reglan um bætur fyrir
skertan afla, skyldi ekki gilda fyrir
inngöngu nýrra ríkja.
Sigurður Guðmundsson forstöðu-
maður þróunarsviðs Byggðastofn-
unar flutti erindi sem hann nefndi
Fiskveiðistjórn og byggðaþróun.
Hann sagði m.a. að mikið bil gæti
skapast milli þess sem væri æski-
legt og mögulegt. Þannig sýndist
hagkvæm nýting auðlinda sjávarins
ekki möguleg nema sjórinn væri
sóttur hringinn í kringum landið. Á
sama hátt væri ekki hægt að vinna
afurðirnar nema það sé gert víða
um landið. Hins vegar væri þetta í
mótsögn við kröfur fólks um að
allir njóti þjónustu og afþreyingar
þéttbýlis. v
Sigurður sagði að á 35 stöðum
á íslandi væri hlutur sjávarútvegs
40% eða meira af atvinnulífi. Ef
sjávarútvegsfyrirtæki stöðvaðist á
þessum stöðum hefði það eðlilega
mikil áhrif á atvinnulífið. Þvi væri
von að stjórnvöld væru tilbúin að
leggja töluvert á sig til að reyna
að koma í veg fyrir að þetta gerðist.
En þar kæmu á móti ýmis at-
riði. Það hlyti að vera brennandi
spurning hvort það ætti rétt á sér
að halda stórum sjávarútvegsfyrir-
tækjum gangandi þótt þau væru
burðarásar atvinnulífs á einstökum
stöðum, því þessi fyrirtæki hefði
oft átt í erfiðleikum með að aðlaga
sig breyttum aðstæðum. Ef til vill
eru þetta risaeðlur, sagði Sigurður.
Ef til vill eiga lítil fiskvinnslufyrir-
tæki auðveldara að laga sig að
breyttum aðstæðum.
Sigurður sagði svo að þáttur
kvótakerfisins væri síðan augljós.
Nú væri ekki lengur hægt að láta
aðalfyrirtækið í sjávarplássi stöðv-
ast og byggja svo upp útgerð og
fiskvinnslu á betri forsendum en
þeim sem fyrir voru, m.a. vegna
minni skulda. Staður án kvóta væri
dauðadæmdur.
Sigurður sagðist ekki geta bent
á skynsamlega leið til að stjórna
fiskveiðum sem jafnframt tryggði
búsetu á öllum útgerðastöðum
landsins. Taka yrði tillit til arð-
semi. Evrópubúar vildu fiskinn okk-
ar og við verðum að sjá til þess að
þeir og aðrir markaðir fái hann með
því móti og á því formi sem gæfi
okkur mestan hagnað til lengri tíma
litið. Svo kann að fara að það tíma-
bil sem afla af íslandsmiðum er að
mestu landað hér á landi verði
stutt, sagði Sigurður.
Erindi Tryggva Gunnarssonar
lögfræðings nefndist Lagaheimildir
til stjórnunar fískveiða. Þar komst
Tryggvi að því að núgildandi laga-
reglur um stjórnun fiskveiða fari
ekki í bága við ákvæði 69. greinar
stjórnarskrárinnar um atvinnu-
frelsi.
Björn S. Stefánsson þjóðfélags-
fræðingur flutti svo að lokum erindi
sem hann kallaði Úthlutun fisk-
veiðiréttinda með markaðsaðhaldi.
Þar kynnti hann hugmyndir sínar
um aðferðir til að úthluta fiskveiði-
réttindum sem væru sveigjanlegar
en veittu þó öryggi, drægju ekki
fé úr sjávarútvegi og byðu almenn-
ingi tækifæri til íhlutunar.
íslandslax úrskurðað gjaldþrota og bústjórar ráðnir:
SIS afskrifaði hlutafé sitt
í fyrirtækinu um áramót
SIS vill taka þátt í áframhaldandi rekstri Islandslax
ÍSLANDSLAX h/f var úrskurðað gjaldþrota í skiptarétti Grindavíkur í
gær. Bústjórar voru skipaðir hæstaréttarlögmennirnir Sigurmar K. Al-
bertsson og Garðar Garðarsson og héldu þeir fyrsta fúnd sinn með kröfú-
höfúm í gærkvöldi. Tap íslensku hluthafanna í fyrirtækinu, SIS, Regins,
Olíufélagsins og Iceland Seafood, nemur á þriðja hundrað milljóna, þar
af tapar SÍS 26,4 milljóna króna hlutafé, sem afskrifað var í síðasta
ársreikningi, og 80-90 milljóna krónum í ábyrgðum og lánum til félags-
ins, að sögn Guðjóns B. Olafssonar forstjóra SÍS. Hann segir að SIS
hafi áhuga á að taka þátt í áframhaldandi rekstri á grundvelli Islands-
lax og hugsanlega að taka rekstur þrotabúsins á leigu.
Guðjón sagði að vissulega yrði SÍS
fyrir búsifjum við gjaldþrot íslands-
lax. Hann sagði að menn hefðu að
nokkru leyti séð þetta fyrir og við
síðasta ársuppgjör hefði hlutafé SÍS
í fyrirtækinu verið afskrifað að fullu.
Hann sagðist ekki sjá að gripið yrði
til sérstakra ráðstafana til að mæta
þeim 80-90 milljónum sem tapast í
ábyrgðum og lánum. „Það verður að
taka þessu eins og hverju öðru
hundsbiti,“ sagði Guðjón B. Olafsson.
Hann sagðist telja víst að fyrirtækið
yrði rekið áfram. „Það eru mikil verð-.
mæti syndandi þama í vatninu. Fisk-
inn verður að fóðra og sjá fyrir
orku.“ Um þátttöku SÍS í áfram-
haldandi rekstri sagði Guðjón að
búið væri í höndum skiptaréttar og
bústjóra og ekki lægi fyrir hvaða
hugmyndir stærstu lánardrottnar
hefðu um framhaldið. Engar viðræð-
ur hefðu farið fram um hvort og þá
hvernig SÍS ætti aðild að áfram-
haldandi rekstri en áhugi á því væri
fyrir hendi, til dæmis kæmi leiga á
aðstöðunni til greina.
Guðmundur B. Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Framkvæmdasjóðs
segir að uppreiknuð stofnlán sjóðsins
til íslandslax standi í um 80 milljón-
um króna. Lán Framkvæmdasjóðs
eru tryggð á efstu veðréttum. Guð-
mundur segist leggja höfuðáherslu á
að Islandslax stöðvist ekki en segir
að engar viðræður hafi farið fram
um framtíð fyrirtækisins en þar séu
ýmsir möguleika fyrir hendi en for-
ræðið sé nú í höndum bústjóra.
Már Elísson forstjóri Fiskveiða-
sjóðs vildi ekki að svo stöddu segja
hverjar skuldir íslandslax við sjóðinn
væru, staðfesti að þær væru umtals-
verðar og tryggðar á efstu veðrétt-
um. Hann vildi engu spá um framtíó'*’
rekstrarins en sagði það augljósa
hagsmuni sjóðsins að reksturinn
stöðvaðist ekki heldur yrði fiskurinn
alinn áfram.
Afurðalán Landsbankans til ís-
landslax nema um það bil 120 millj-
ónum króna, að sögn Helga V. Jóns-
sonar sem var tilsjónarmaður ís-
landslax á greiðslustöðvunartíma fé-
lagsins. Ekki náðist í bankastjóra
Landsbankans [ gær til að inna þá
álits á framtíð íslandslax.
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri fóðurverksmiðjunnar
Istess á Akureyri, sem var einn þeirra
aðila sem íslandslax keypti fóður af,
sagði að krafa fyrirtækisins á hendur
íslandslaxi næmu milljónum. Hann-
sagði að um eldri reikningsskuldir
væri að ræða, síðustu mánuði hefði
Istess aðeins selt íslandslaxi fóður
gegn staðgreiðslu.
Virðisaukaskattur:
Þingmenn Alþýðuflokks eru
áhyggjufullir vegna seinagangs
Nægur tími til stefiiu, segir Jón Guðmundsson hjá ríkisskattstjóra
„ÉG NEITA því ekki að þær raddir hafa heyrst að undirbúningur sé
með seinni skipunum og að ýmsu leyti sé heppilegra að virðisaukaskatt-
urinn komi til framkvæmda á miðju ári vegna ýmissa vandamála sem
koma upp,“ segir Eiður Guðnason formaður þingflokks Alþýðuflokksins.
Hann segir þingmenn hafa áhyggjur meðal annars af því hve reglugerð
sé seint á ferðinni.
Eiður segir að þingflokkurinn hafi
ekki tekið þá afstöðu að undirbún-
ingi virðisaukaskatts miði of hægt.
Hins vegar hafi einstakir þingmenn
lýst áhyggjum sínum. Hann segir að
nánast allur fundur þingflokksins á
mánudag hafi farið í þessar umræð-
ur. Eitt af því sem menn hafi hvað
mestar áhyggjur af, auk reglugerð-
arinnar, sé að ýmis vandkvæði verði
fylgjandi endurgreiðslum til hús-
byggjenda og þyki þingmönnunum
að þær þurfi að vera tíðari en hug-
myndir eru um nú.
„Við höfum óskað svara við
ákveðnum spumingum, en ekki feng-
ið enn, sem er kannski eðlilegt, og
við munum halda þessari umræðu
áfram,“ segir Eiður. Hann segir
málið alls ekki á því stigi, að þing-
flokkurinn sé í andstöðu við gildi-
stöku vsk. um áramót, en efasemda-
raddir heyrist á meðan ekki sé sýnt
óyggjandi fram á að áhyggjurnar séu
óþarfar.
Jón Guðmundsson forstöðumaður
gjaldadeildar ríkisskattstjóra segir
að þar sé unnið ötullega að því, að
vsk. geti komið á um áramót. Hann
segir að alltaf þurfi að gera ráð fyr-
ir að taka þurfi á vandamálum sem
upp kunna að koma. Það sé ekkert
nýtt að breyta þurfi lögum við slíka
kerfisbreytingu, það hafi meðal ann-
ars verið gert þegar staðgreiðslan
kom til sögunnar. Þá segir Jón að
enn sé nægur tími til stefnu, ef
ákveðið verður að breyta lögunum
um vsk.
Vilhjálmur Egilsson framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs segir að allir
reikni með að vsk. komi um áramót
og að það sé framkvæmanlegt.
„Menn þurfa að bretta upp ermarnar
og það þarf að klára ákvarðanatök-^,
una,“ segir hann, „ef menn vinna,
þá á að vera hægt að klára málið.
Þar sem ég þekki til í atvinnulífinu
eru menn andlega undir það búnir
að virðisaukaskatturinn komi um
áramót. Það er rétt að setja bara enn
meiri kraft í undirbúninginn ef þess
þarf,“ sagði Vilhjálmur Egilsson.
Sigríður Ella Magnúsdóttir og
Geoflrey Parsons á ljóðatónleikum
SIGRÍÐUR EUa Magnúsdóttir,
mezzosópran, og Geoffrey Par-
sons, píanóleikari, halda ljóða-
tónleika í Islensku óperunni
sunnudaginn 12. nóvember
klukkan 15. Á eftiisskránni eru
íslensk og erlend ljóð, m.a. eftir
Haydn, Schubert, Delius, Sibel-
ius, Sigvalda Kaldalóns og Árna
Thorsteinsson.
Sigríður Ella hefur tekið virkan
þátt í íslensku tónlistarlífi á undan-
förnum árum í óperum, óratoríum
og ljóðasöng. Hún er búsett í Lond-
on og hefur sungið mikið bæði á
Bretlandi og á meginlandi Evrópu
á síðustu misserum.
Undirleikari Sigríðar Ellu að
þgssu sinni er hinn heimsþekkti
píanóleikari Geoffrey Parsons. Á
tónlistarferli sínum hefur hann unn-
ið með mörgum stórsöngvurum svo
sem Victoriu de los Angeles, Elisa-
bethu Schwarzkopf, Birgit Nilsson
og Hans Hotter.
Sigríður Ella
Magnúsdóttir
Parsons hefur leikið inn á fjöl-
margar hljómplötur og nú nýverið
með Jessye Norman og á nokkrar
plötur með Olaf Bar. Hann er heið-
ursfélagi í Royal Academy og Guild-
hall Sehool of Music og aðili að
Geoflrey
Parsons
Royal College of Music. Parsons
hefur hlotið sérstaka viðurkenningu
frá Elísabetu Englandsdrottningu
fyrir framlag sitt til tónlistarmála.
Aðgöngumiðar eru seldir í ís-
lensku óperunni.