Morgunblaðið - 10.11.1989, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989
HANDBOLTI
Brynjar gaf
ekki kost á sér
Var boðið að fara með lands-
liðinu til Tékkóslóvakíu
Brynjari Harðarsyni, Vals-
manni og markahæsta leik-
manni íslandsmótsins í handbolta,
var boðið að koma inn í landsliðs-
hópinn sem tekur þátt í mótinu í
Tékkóslóvakíu í næstu viku. Hann
gaf þins vegar ekki kost á sér.
„Eg var ekki boðaður fyrr en
í gær og ég hafði þá ráðstaf tíma
mínum í annað. Hins vegar get
ég sagt það að á meðan mér er
ekki ætlað neitt hlutverk í liðinu
sé ég ekki ástæðu til að fara til
Tékkóslóvakíu,“ sagði Brynjar.
Hann fór sem kunnugt er rrieð
íslenska landsliðinu til Sviss í
síðasta mánuði og fékk þá ekkert
að spreyta sig.
Landsliðið heldur utan á sunnu-
dag en Valsmennirnir, Jakob Sig-
urðsson, Valdimar Grímsson og
Einar Þorvarðarson, komast ekki
út fyrr en á mánudag því Vals-
Brynjar Harðarson er lang
markahæsti leikmaður 1. deildar.
Hann hefur gert 49 mörk í 5 leikjum.
menn leika síðari leik sinn í Evr-
ópukeppninni gegn ungverska lið-
inu Raba Eto í Laugardalshöll á
sunnudagskvöld ki. 20.30.
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
Töfaldur fögnuð-
ur hjá leikmönn-
um Stuttgart
„VIÐ vorum betri og unnum
verðskuldað," sagði Arie Haan,
þjálfari Stuttgart, eftir að 68
þúsund áhorfendur höfðu séð
heimamenn slá Bayern
Munchen út úr bikarkeppninni
með3:0sigri.
Elsti leikmaðurinn á veilinum,
Ásgeir Sigurvinsson, fékk á sig
yfirfrakka um leið og dómarinn
flautaði leikinn á. Ronald Gra-
hammer hljóp að
FráJóni Ásgeiri og límdi sig
Halldóri hreiniega á hann.
Garðarssyni Ásgeir fékk þó
/ V-Þyskalandi fyrsta tækifæri
leiksins - þrumufleygur hans af
25 m færi strauk þverslá marks
Bayern á 16. mín.
Bayern fékk fyrsta marktæki-
færi sitt á 38. mín., en það var svo
á 43. mín. sem Fritz Walter kom
Stuttgart yfir með glæsilegu skalla-
marki. Bayern sótti meira í seinni
hálfleik, en skyndisóknir Stuttgart
voru hættulegar. Hartmann skor-
aði, 2:0, eftir samleik hans og Ás-
geirs á 64. mín. og síðan innsiglaði
Walter sigurinn, 3:0, á 77. mín.
Rétt á eftir var hann tekinn af
leikvelli. Áhorfendur fögnuðu hon-
um geysilega. Ástæðan fyrir því að
hann var tekinn af velli var að
Haan vildi gefa Olaf Schmáler tæki-
færi til að leika við hliðina á tvíbura-
bróður sínum, Niels, en þeir eru 20
ára í dag. „Leikmenn Stuttgart eiga
eftir að fagna í kvöld - sigrinum
og afmæli bræðranna,“ sagði sjón-
varpsþulur, sem lýsti leiknum. Það
er til siðs í V-Þýskalandi að menn
fagni inn í afmælisdag sinn. Það
var því tvöfaldur fögnuður hjá leik-
mönnum Stuttgart í gærkvöldi.
Kaiserslauter sló Köln óvænt út
úr bikarkeppninni, 2:0.
GETRAUNIR
Spámaðurvikunnar
Guðni
Bergsson
Guðni Bergsson, knatt-
spyrnumaður hjá Totten-
ham, tók vel í það að spá í
leiki helgarinnar. „Þetta er
lúmskur seðill,“ sagði Guðni
og bætti við að hann ætlaði
sér að gera betur en Sigurður
Jónsson sem hafði aðeins fimm
leiki rétta í þessum getrauna-
leik fyrir skömmu. 1 2
Guðni sagðist reikna með
að verða í byijunarliðinu hjá 1
Tottenham gegn Wimbledon. .....
„Ég er bjartsýnn á að við náum 1x
góðum úrslitum á heimavelli, X2
enda set ég einn á þann leik. 1
Ég geri allt sem í mínu valdi .
stendur til að sá leikur skemmi 2
ekki tólfuna hjá mér,“ sagði 1X
Guðni. 1
Phil Thompson, þjálfari .
varaliðs Liverpool og spámað- X2
ur síðustu viku hjá Morgun- 1
blaðinu, var með átta leiki 1 x
rétta.
f.tÉa.rji.'ui tíllj
Leikir 11. nóv.
Coventry — Southampton
Crystal Palace — Luton
Derby — Man. City
Everton — Chelsea
Millwall — Arsenai
Norwich — Aston Villa
Q.P.R. — Liverpool
Sheff. Wednesday — Charlton
Tottenham — Wimbledon
Boumemouth — Sheff. United
Sunderland — Wolves
West Ham — Newcastle