Morgunblaðið - 20.01.1990, Side 4

Morgunblaðið - 20.01.1990, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ IA'UG'ARD'AGUR 20: JANÚAR 1990 Bolungarvík: Lögregla bæjarins sett undir Isafjörð Bolungarvík. PÉTUR Kr. Hafstein, sýslumaður á ísafirði, sem settur hefur verið bæjarfógeti hér í Bolungarvík tímabundið, hefur sameinað Iögregluna í Bolungarvík og á ísafirði. Sameiningin á samkvæmt skipun aðeins að vera til 1. júní nk. en það er sá tími sem Pétur gegnir embætti fógeta hér í Bolungarvík í stað Adolf Adolfssonar sem skipaður hefúr verið héraðsdómari. Mikil óánægja er meðal íbúa bæjarins með þessa skyndilegu ákvörðun. Þá una þeir tveir lög- reglumenn, sem hér starfa, illa þessari skipun og eru þeir ekki til- búnir að sækja vaktir á ísafjörð. Þeir segjast hins vegar hafa boðist til þess að fara í frí meðan þetta ástand varir. Þessari sameiningarhugmynd skaut upp sl. haust en þá var bæjar- yfirvöldum lofað því af dómsmála- ráðherra að við þessum embættum yrði ekki hróflað nema að undan- gengnu samráði við bæjaryfirvöld og með fullri vitneskju þeirra. Ákvörðun Péturs er tekin að fengnu samþykki dómsmálaráðherra en án samráðs við bæjaryfirvöld. Á fundi bæjarstjórnar á fimmtu- dagskvöld var þetta mál á dagskrá og í yfirlýsingu vekur bæjarstjórn athygli á því að breytingar hafi veirð ákveðnar og framkvæmdar án samráðs og vitneskju bæjaryfir- valda þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagnstæða. Þá hyggst bæjar- stjórn efna til fundar með nýsettum bæjarfógeta hið fyrsta og kynna sjónarmið sín svo og heyra hans röksemdir sem hníga að þessari ákvörðun hans. Á föstudag hófst undirskrifta- söfnun meðal bæjarbúa þar sem ákvörðun þessari er mótmælt harð- lega en efast er um að þessi breyt- ing verði tímabundin og talið að hún gæti orðið skref í þá átt að leggja niður fleiri embætti á staðn- um sem þjónustað hafa Bolvíkinga um áratuga skeið. - Gunnar Morgunblaðið/Ámi Sæberg Rætt um öldrunarmál Öldrunarráð íslands efndi til ráðstefnunnar Við- horf til aldraðra í Ársal Hótels Sögu í gær, föstudag- inn 19. janúar, kl. 13-17. Leitast var við að varpa ljósi á viðhorf til elli og öldrunar eins og þau koma fram hjá ýmsum hópum þjóðfélagsins. Ráðstefnu- stjóri var Hrafn Pálsson deildarstjóri en framsögu- menn voru dr. Sigurbjöm Einarsson, Lýður Bjöms- son, Sigurður Líndal, Sigurgeir Jónsson, Valborg Bentsdóttir og Guðrún Jónsdóttir. Ráðstefnan var fjölsótt. VEÐUR #■ * * * * * * / DAG kl. 12.00: Heimild: Veöurstofa islands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gaer) VEÐURHORFUR í DAG, 20. JANÚAR. YFIRLIT í GÆR: Gert er ráð fyrir stormi á I, V, VI, IX, Vestur- djúpi, Norðurdjúpi, Suð-Austurdjúpi, Suðurdjúpi og Suð-Vestur- djúpi. Skammt austur af Austfjörðum er 956 mb. lægö sem grynn- ist og þokast austur. Um 700 km suð-suð-vestur af Hvarfi er vax- andi 970 mb. lægð sem þokast norð-norð-austur. Veður fer kóln- andi í bili en hlýnar aftur síðdegis á morgun. SPÁ: Framan af degi verður hæg norð-austlæg átt og víðast úr- komulaust og talsvert frost einkum Norðanlands en undir kvöld fer að snjóa suð-vestanlands með hvassri austanátt og minnkandi frosti. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Nokkuð hvöss suðlæg átt með rigningu og 2-5 stiga hita suðaustan til á landinu en austanátt og slydda eða snjókoma og hiti nálægt frostmarki norð-vestanlands. HORFUR Á MÁNUDAG: Stíf^suð-vestanátt með éljum um sunnan- og vestanvert landið en bjart veður norð-austanlands. Kólnandi veður. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 1 slydda Reykjavík 0 snjóél Bergen 4 alskýjað Helsinkl •f11 snjókoma Kaupmannah. 1 skýjað Narssarssuaq 17 heiðskírt Nuuk +11 skýjað Osló +3 léttskýjað Stokkhólmur +2 lieiðskírt Þórshöfn 4 skúr Algarve 6 heiðskírt Amsterdam 5 þokumóða Barcelona 3 lieiðskírt Berlín 4 rigning Chlcago +3 heiðskírt Feneyjar 2 heiðskfrt Frankfurt 0 þokumóða Glasgow 7 rigning Hamborg 3 þokumóða Las Palmas vantar London 8 skýjað Los Angeles 11 heiðskírt Lúxemborg +1 hrímþoka Madríd +2 heiðskírt Malaga 5 heiðskírt Mallorca 1 þokumóða Montreal +2 snjóél New York 7 skýjað Orlando 17 heiðskírt París 0 léttskýjað Róm 3 þokumóða Vín 2 léttskýjað Washington 8 skýjað Winnlpeg +8 alskýjað Fjölgað í starfsliði EFTA: Hörð samkeppni 527 um- sækjenda um 19 stöður Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. MAGNÚS Thoroddsen, fyrrverandi hæstaréttardómari, er einn af 527 umsækjendum um 19 stöður hjá Fríverslunarbandalagi Evrópu (EFTA) sem hefúr þegar verið boðið starf. Hann var valinn af bandalaginu úr hópi 50 til 60 umsækjenda um 7 störf í lagadeildinni. Hann mun fá starfstitilinn „Senior OfTicer" og starfa með vinnuhópi um lög og stofn- anir í samningaviðræðum EFTA við Evrópubandalagið (EB) sem eiga að hefjast í vor. í sambandi við EB-samningaviðræð- urnar. - Gífurlegur hávaði var í skrifstofu Berglins. Hann sagði að það væri verið að flytja til veggi til að koma nýju starfsliði EFTA fyrir í höfuðstöðvunum í Genf. Alls 54 íslendingar sóttu um stöð- umar 19, 77 Austurríkismenn, 91 Finni, 98 Norðmenn, 142 Svíar, 51 Svisslendingur og 14 aðrir. Menntun, reynsla og hæfni ráða úrslitum og ekkert tillit á að vera tekið til hvað- an umsóknirnar berast. Fram- kvæmdastjóri EFTA tekur endanlega ákvörðun um ráðningu í samráði við deildarstjóra hinna ýmsu deilda. Við- skiptafræðingar, hagfræðingar og lögfræðingar sóttu aðallega um frá íslandi. Það er helst sagt há þeim að þeir hafi enga starfsreynslu í sam- bandi við EFTA eða á alþjóðavett- vangi. Margir umsækjenda eru sér- fræðingar í málefnum EFTA og hafa fengist við þau heimafyrir eða eru með reynslu úr fjölþjóðastofnunum. Magnús Thoroddsen starfaði á sínum tíma að lögfræðilegum málum á veg- um Evrópuráðsins í Strassborg. Aðeins einn íslendingur, Anna Hauksdóttir, ritari, starfar hjá Fríverslunarbandalaginu. Lilja Ólafsdóttir, lögfræðingur, var til skamms tíma fulltrúi (Officer) í laga- deildinni. Ráðið er í nýju stöðurnar til tveggja ára í senn. Launin eru skattfrjáls og sögð góð á íslenskan mælikvarða eða yfir 300 þúsund krónur á mánuði, þá njóta starfs- menn fríðinda eins og tíðkast hjá starfsliði alþjóðastofnana. N óbels verðlaunin: Stungið upp á Salman Rushdie Rithöfúndasamband íslands hefúr stungið upp á við sænsku akade- míuna að Salman Rushdie rithöfundur hljóti Nóbelsverðlaunin í bók- menntum. Ein bóka Rushdies, Söngvar Satans, hefur verið þýdd á íslensku. Einar Kárason formaður Rithöf- undasámbands Islands sagði að sænska akademían sendi á hveiju ári bréf til ýmissa aðila, bæði ein- staklinga og samtaka um allan heim, og bæði viðkomandi að nefna nafn höfundar sem talinn er verður Nób- elsverðlauna. Rithöfundasamband íslands hefur orðið við þessari ósk í áratugi. í þetta sinn nefndi stjóm Rithöfundasambandsins nafn Sal- mans Rushdie. Einar sagði að hún teldi hann verðugan Nóbelsverð- launa þar sem hann hefði skrifað margar ágætar bækur. Rushdie væri einn af frægustu rithöfundum nútímans frá því hann skrifaði bók- ina Midnight Children, sem varð metsölubók víða um heim. Tveir starfsmenn EFTA og Svíi sem hefur starfað hjá Einkaleyfis- stofnun Evrópu í Múnchen og Finni sem hefur starfað hjá Evrópsku efna- hagsnefndinni hjá Sameinuðu þjóð- unum í Genf hafa einnig verið ráðnir í lagadeildina. Ákvörðun hefur enn ekki verið tekin um hin embættin tvö. Hákan Berglin, starfsmaður deildarinnar, sagði í gær að það ætti eftir að koma í ljós hvemig lög- fræðingarnir skiptu með sér verkum en þeir eru allir ráðnir til að starfa Viðskiptaráð- herra til EB JÓN Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, fer í opinbera heimsókn til framkvæmdaráðs EB í Brussel 22.-23. janúar í boði Henning Christophersen varafor- seta framkvæmdaráðsins. Munu þeir ræða um samningaviðræður EFTA-ríkjanna og Evrópubanda- lagsins, sem nú standa yfir, og sérmál íslands í því sambandi. Viðskiptaráðherra mun ræða við fleiri forystumenn bandalagsins. Á sl. sumri kom Henning Christophersen í heimsókn hingað til lands og átti viðræður við Jón Sigurðsson um þær breytingar sem em að verða á viðskipta- og efna- hagssamstarfi í Evrópu og sérstak- lega um samskipti íslands og Evr- ópubandalagsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.