Morgunblaðið - 20.01.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR ,20. JANÚAR 1990,
41
HEILRÆÐI
Ferðamenn: Gætið varúðar og fyrirhyggju á ferðum ykk-
ar. Á þessum árstíma er allra veðra von og færð fljót
að spillast.
Dulræn
fyrirbæri
Kæri Velvakandi.
Áhugi fyrir dulrænum fyrirbær-
um er mjög mikill hér á landi, og
fer heldur vaxandi ef dæma má
eftir framboði og eftirspurn bóka
um þessi mál. Dulræn fyrirbæri
hafa í gegnum tíðina oft vakið for-
vitni og jafnvel ótta hjá fólki, þar
sem margir hafa gjarnan gengið
svo langt að afneita með öllu „yfir-
skilvitlegri" skynjun úr reynslu-
heimi sínum.
En „dulræn" fyrirbæri eru, hvort
sem fólki líkar betur eða verr, hluti
af skynjun fólks og ekkert óeðli-
legri en annað fólk upplifir og telur
eðlilegt. Þá á ég ekki eingöngu við
sögur af draugum og afturgöngum,
heldur miklu fremur við hugboð,
drauma, skyggni og næmi, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Allir menn hafa hæfileika til að
rækta með sjálfum sér þessar „gáf-
ur“, og miklu fleiri eru þeir sem
upplifa „dulræna“ reynslu en þora
að viðurkenna. Dulræn reynsla er
ekki svo dulræn, heldur skynjun
sem fólk hefur hræðst vegna þekk-
ingarleysis. Þó má ekki rugla henni
saman við alvarlega geðveiki eða
áhrif illra anda. Því dulræn skynjun
getur komið mörgu góðu til leiðar
manna á meðal, þar sem hún teng-
ir fólk nánari og traustari kærleiks-
böndum.
Einar Ingvi Magnússon
Viðtalstími borgarfulltrua
Sjálfstæðisflokksins » Reykjauik
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum ívetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 20. janúar verða til viðtals Júlíus Hafstein, formaður íþrótta- og tómstunda
ráðs Reykjavíkur, umhverfismálaráðs, ferðamálanefndar og í stjórn Dagvistar barna,
Þórunn Gestsdóttir, formaður jafnréttisnefndar, varaformaður ferðamálanefndar og
umhverfismálaráðs, og Ingólfur Steinar Sveinsson, í stjórn heilbrigðisráðs og Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur.
y sy sy’ vy Sy’ sy y y y
Alúöarþakkir öllum þeim, er glöddu mig á
sjötugs afmœli minu 28. desember og geröu
mér daginn eftirminnilegan.
Sigurður Jónsson,
Engjavegi 22,
ísafirði.
Innilegarþakkir sendi égöllum þeim, erglöddu
mig með heimsóknum og gjöfum á 70 ára
afmœlisdegi mínum þann 5. janúar.
Sérstakar þakkir sendi ég börnum mínum,
tengdabörnum og barnabörnum fyrir allt sem
þau gerðu til að gera mér þennan dag ógleym-
anlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Sveinbjörnsdóttir,
Bolungarvík.
I samræmi við ákvarðanir hluthafa-
fundar 26. júlí 1989 er boðað til aðal-
fundar Alþýðubankans hf. árið 1990.
Verður fundurinn haldinn á Hótel
Sögu, Átthagasal, laugardaginn 27.
janúar nk. og hefst kl. 14.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 32. gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Tillaga um samþykktir fyrir félagið.
Breytingar á fyrri samþykktum felast í þreyt-
ingum á tilgangi og starfsemi félagsins, sem
lúta að því að félagið hætti bankastarfsemi
og verði eignarhaldsfélag, m.a. um hlutabréf
í Islandsbanka hf., sbr. samþykkt hluthafa-
fundar 26. júlí 1989, varðandi kaup á hluta-
bréfum ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf.
og samruna rekstrar Alþýðubankans við
rekstur þriggja annarra viðskiptabanka.
3. Önnur mál löglega upp borin.
4. Tillaga um frestun fundarins. Stjórn félagsins
boði til framhaldsaðalfundar sem haldinn
verði í síðasta lagi fyrir lok aprílmánaðar
1990.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum eða umboðsmönnum þeirra á Laugavegi
31, 3. hæð frá 24. janúar nk.
Tillögur sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn
þurfa að hafa borist stjórn félagsins skriflega í
síðasta lagi 23. janúar nk.
Reykjavík 12.janúar 1990.
Stjórn Alþýðubankans hf.