Morgunblaðið - 20.01.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1590-
25
Kjarnalundur;
Starfsemi gæti hafist
1991 fáist daggjöld
Náttúrulækningafélag Akureyrar hefur leitað eftir viðbrögðum
Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðisráðherra varðandi það hvort
staðið verið við loforð um greiðslur daggjalda til Kjarnalundar.
Verði svör jákvæð eru góðar líkur á að starfsemi heilsulindarinnar
komist í gang á næsta ári. Um 45 milljónir króna vantar til aðk.
fullbúa húsið en félagið á 70 milljón króna húseign í Kjarnaskógi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bóndadagurinn heilsaði Eyfirðingum með blindbyl og var frekar fátt fólk á ferli í göngugötunni á
Akureyri vegna þess. Umferð gekk þó ágætlega innanbæjar fyrir erfiða færð. Ófært var víða og mokstri
og aðstoð við umferð hætt á vegum vegna óveðurs og flugi var aflýst.
Vilhjálmur Ingi Árnason sem
sæti á í stjórn Náttúrulækningafé-
lags Akureyrar sagði að fyrir lægi
bréf frá árinu 1976 undirritað af
þáverandi heilbrigðisráðherra um
leyfi til byggingar og reksturs
heilsulindarinnar. Forsendur þess
að starfsemi geti hafist í Kjarna-
lundi eru þær að daggjaldagreiðslur
berist frá ríkinu og að tryggt sé
að næg verkefni séu fyrir hendi.
Vilhjálmur Ingi sagði ljóst að
'sjúklingar væru til staðar, þar sem
biðlisti að Heilsuhælinu í Hvera-
gerði væri að jafnaði frá 1.000 til
1.300 manns, en heilsulindin yrði
rekin á sama grunni. „Stóra spum-
ingin er því hvort við fáum trygg-
ingu heilbrigðisyfirvalda á greiðslu
dagagjalda sjúklinga eins og gert
hefur verið ráð fyrir,“ sagði Vil-
hjálmur.
Fyrir liggur tilboð í innréttingar
í húsið og sagði Vilhjálmur að unnt
væri að hefja þar vinnu með litlum
fyrirvara, eða um leið og svar berst
frá ráðherra varðandi daggjalda-
greiðslurnar. Eftir væri um árs
vinna við húsið. Félagið vantar um
45 milljónir króna til að takast
megi að ljúka verkinu. Akureyrar-
bær hefur þegar ákveðið að veita
5 milljónaq króna styrk til bygging-
arinnar. Átvinnumálanefnd hefur
fjallað um nauðsyn þess að hraða
framkvæmdum og er unið á hennar
vegum unnið að arðsemisútreikn-
ingum vegna reksturs heilsulindar-
innar. 35 manns a.m.k. munu
starfa við Kjarnalund.
„Við höfum einnig bent á það
að sveitarstjórnir við Eyjafjörð hafa
lýst sig reiðubúnar til að greiða 500
milljónir króna vegna hafnarmann-
virkja ef til þess kæmi að hér verði
byggt álver. Ef samsvarandi tala
miðað við ársverk væri lögð fram
til byggingar Kjarnalundar yrði um
að ræða 40 milljón króna framlag
sem yrði til þess að starfsemin
kæmist í gang,“ sagði Vilhjálmur.
Blindbylur í Eyjafirði:
Snjóvarnargarður gerður til varnar
miklum sjógangi og gijóti í Olafsfirði
Lögregla á Dalvík aðstoðaði ökumann í Olafsfjarðarmúla
ÞAÐ er svartabylur og _sést ekki út úr augum,“ sagði Jón Kon-
ráðsson lögreglumaður í Ólafsfirði í samtali við Morgunblaðið síðdeg-
is í gær, en leiðindaveður gekk yfir Norðurland í gær. Flestir vegir
voru ófærir og fólki ráðið að leggjast ekki í ferðalög, þá féll skóla-
hald að einhverju leyti niður vegna veðursins og flugi var aflýst.
Hætt var við mokstur á nokkrum leiðum vegna óveðurs.
Snjóflóð féll í Ólafsfjarðarmúla
um miðnætti í fyrrinótt og maður
sem þá var á leið til Ólafsfjarðar
þurfti að snúa við til Dalvíkur. Lög-
reglan á Dalvík fór til móts við
manninn og komst hann klakklaust
til baka. Múlinn var hins vegar ófær
í allan gærdag.
„Snjórinn var mjög blautur og
auk þess mikill bylur þannig að
Tónleikar Passíukórs
Passlukórinn á Akureyri heldur tónleika i Akureyrarkirkju á
sunnudaginn, 21. janúar kl. 17.
Á efnisskránni eru verk eftir
Antonio Vivaldi fyrir einsöngvara,
kór og hljómsveit. Hljómsveit
skipuð félögum úr Kammersveit
Akureyrar leikur með og Björn
Steinar Sólbergsson leikur á org-
el. Einsöngvarar á tónleikunum
verða Margrét Bóasdóttir, sópran,
Liza Lillicrap, sópran, Þuríður
Baldursdóttir, alt, Michael Jón
Clarce, tenór.
Passíukórinn hefur starfað
óslitið frá haustinu 1972 og hefur
lengst af einbeitt sér að flutningi
tónverka með hljómsveit og ein-
söngvurum. Kórinn hefur um ára-
bil f lutt kirkjuleg verk, bæði þekkt
og óþekkt. Stefnt er að því að
næsta verkefni kórsins verði að
taka þátt í konsertuppfærslu á
söngleiknum My Fair Lady með
Kammersveit Akureyrar og fleiri
kórum.
eflaust hefur fallið snjóflóð í hveiju
gili í Múlanum. Seinnipartinn í gær
fór að frysta og hér er mikill skaf-
renningur þannig að ekki sér út úr
augurn," sagði Jón Konráðsson lög-
reglumaður í Ólafsfirði. Jón sagði
að skóla hefði ekki verið aflýst í
bænum, en foreldrum væri í sjálfs-
vald sett hvort þeir sendu börnin í
skólann.
Þijú snjómoksturstæki voru á
fullri ferð um götur bæjarins í
gær, enda mikil umferð seinni part
dagsins, að sögn Jóns. Mikill sjór
gekk upp að fiskhúsum við höfnina
og barst grjót upp að húsunum,
þannig að gripið var til þess ráðs
að gera varnargarða úr snjó fyrir
framan húsin.
Sævar Ingason lögreglumaður á
Dalvík sagði að lögregla og félagar
úr Hjálparsveit skáta á Dalvík hefðu
aðstoðað við að koma skólabömum
heim úr skóla um hádegi, en að
öðru leyti hefði verið rólegt hjá lög-
reglu. Umferð gekk óhappalaust
fyrir sig í bænum og götur voru
færar, þá var jeppafæri upp í Svarf-
aðardal.
„Þetta hefur verið rólegt þrátt
fyrir blindbyl og slæmt færi víða
um bæinn," sagði Gunnar Rand-
versson varðstjóri lögreglunnar á
Akureyri. Eitthvað var um að leitað
væri aðstoðar lögreglu vegna
ófærðar. Allar aðalleiðir voru sæmi-
lega færar í bænum og gekk um-
ferðin vel að sögn Gunnars.
Mokstri og aðstoð við umferð var
hætt á leiðinni milli Akureyrar og
Reykjavíkur og var sú leið talin
ófær í gær samkvæmt upplýsingum
vegaeftirlits. Ófært var til Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar, en mokað
var til Dalvíkur frá Akureyri, en
talið að færð gæti spillst. Þá var
mokað til Grenivíkur og um Víkur-
skarð austur um, en þar var mokstri
hætt sem og aðstoð við umferð
vegna óveðurs.
Flugfélag Norðurlands:
Aætlunarflug
jókst iuu 3,5%
AUKNING í áætlunarflugi Flug-
félags Norðurlands síðasta ár
nam 3,5% og er útlit fyrir að
hagnaður hafi orðið af rekstrin-
um. Félagið flytur að jafnaði um
20 þúsund farþega á ári á áætlun-
arleiðum sínum og um 700 tonij
af pósti og fragt,.
Sigurður Aðaisteinsson fram-
kvæmdastjóri FN sagði að ekki
væri búið að gera árið upp, en allt
benti til nokkurs hagnaðar. Sigurð-
ur sagði að vel liti út með verkefni
á Grænlandi á þessu ári og m.a.
yrði f logið með kanadíska aðila sem
þar hafa leitað að gulli í nokkur
ár. Hann kvaðst bjartsýnn á að inn-
anlandsflug yrði með svipuðum
hætt-i og verið hefur.
Flugfélagi Norðurlands var út-
hlutað þremur nýjum áætlunarleið-
um, frá Akureyri til Keflavíkur,
Stykkishólms og Vestmannaeyja.
Sigurður sagði álitlegustu leiðiijfe.
vera milli Akureyrar og Keflavíkur,
en engin aðstaða væri fyrir innan-
landsflug í Leifsstöð, það mál væri
verið að athuga.
Flugfélögum er nú gert að greiða
virðisaukaskatt á eldsneyti og sagði
Sigurður að það myndi leiða til um
3% hækkunar á fargjaldi. „Við erum
í ákaflega harðri samkeppni við
bílinn og rúturnar og í kjölfar þess
að virðisaukaskattur var tekinn upp
versnar okkar staða til muna,“
sagði Sigurður.
„Ég er afar óhress með afskipti
ríkisins af samgöngumálum, oft er
okkur ætlað að fljúga við óviðun-
andi aðstæður og nægir að nefna
ófullkomna flugvelli í því sambandi
og svo eru öll gjöld og skattar af
starfseminni skrúfaðir upp úr öllu
valdi. Og jafnframt gerðar til okkar
allt að því óraunhæfar kröfur um
þjónustu."
Fóstrur
Dagvistardeild Akureyrarbæjar auglýsir eftir fóstrum
og forstöðumönnum til starfa við dagvistirnar Árholt,
sem er leikskóli, og Pálmholt, sem er dagheimili.
Aðstoðum við útvegun húsnæðis á Akureyri.
Allar nánari upplýsingar veita hverfisfóstrur í símum
96-24600 og 96-24620 alla virka daga milli kl. 10.00
og 12.00.
Dagvistardeild Akureyrarbæjar.