Morgunblaðið - 20.01.1990, Side 20

Morgunblaðið - 20.01.1990, Side 20
20 MÖRbÓNB’LAÐIÐ'LA'öGARÐAÖOR 20! JWNÚAR 1990' Mongólía; fjöldafimdir bannaðir Austur-Berlín, Peking. Reuter. YFIRVOLD í Mongólíu hafa bannað útisamkomur sem haldnar eru án sérstakrar heimildar. Kom þetta fram í samtali Renters-fréttastof- unnar við íbúa í Ulan Bator, höfuðborg Mongólíu. Austur-þýska fréttastofan ADN segir að í undirbúningi sé að gera umbætur á kosningalögum Iandsins. ættuðum frá Vestur- og Austur- Evrópu. Opinber nefnd, sem falið var að endurskoða kosningalögin, hefur skilað tillögum um að fleiri en einn frambjóðandi verði um hvert þingsæti. Gert er ráð fyrir þeirri breytingu á núgildandi fyrirkomu- lagi að frambjóðendur utan flokks- ins geti boðið sig fram til þings landsins. Tékkóslóvakía: Calfa kveður kommúnista Prag. Reuter. MARIAN Calfa, forsætisráðherra Tékkóslóvakíu, sagði sig úr tékkn- eska kommúnistaflokknum á fimmtudag. Borgarsljóri Washington handtekinn, grunaður um fíkniefiiamisferli: Reuter Starfsmaður bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, leiðir Marion Barry, borgarstjóra Washington, að heimili hans skömmu eftir að Barry hafði verið handtekinn á hóteli í miðborginni grunaður um fikniefnamisferli. Fimm þúsund manns mótmæltu kommúnistastjórn í Mongólíu um síðustu helgi og annar mótmæla- fundur hafði verið boðaður nú um helgina. Lýðræðisfylking Mongólíu var stofnuð í desember og krefst hún fjölflokkakerfis í landinu. Fé- lagarnir eru f lestir menntamenn og fjölmiðlafólk. Óvíst er hvort reynt verður að halda fundinn á sunnu- dag, þrátt fyrir bannið. Leiðtogi landsins, Zhambyn Bad- miinkh, hefur boðað varfærnislegar umbætur í anda Míkhafls Gor- batsjovs Sovétleiðtoga en Mongólía hefur lengi verið dyggur bandamað- ur Sovétríkjanna. Stjómvöld hafa þó varað við umbótahugmyndum Danmörk: Ríkisfyr- irtæki seld Kaupmannahöfn. Reuter. DANSKA stjórnin kynnti í gær áform um að einkavæða þrjú ríkisfyrirtæki til að minnka útgjöld ríkisins. Henning Dyremose fjár- málaráðherra sagði að tvö fyr- irtækjanna yrðu seld, líftrygg- ingafélag og bifreiðaeftirlit ríkisins, og fjórðungur Kas- trup-flugvallar. Aætlað er að líftryggingafé- lagið verði selt á milljarð dan- skra króna, 9,3 milljarða ísl., og fjórðungur flugvallarins á 1,5 milljarða d. kr., 14 millj- arða ísl. Ráðherrann kvaðst ekki geta gefið upplýsingar um sölu bifreiðaeftirlitsins. Hefur margoft verið sak- aður um eiturlyfj aneyslu - sagði á miðvikudag að vel miðaði í baráttunni gegn fíkniefnasölum Washington. Reuter. MARION Barry, borgarstjóri Washington, höfuðborgar Banda- ríkjanna, var handtekinn seint á flmmtudagskvöld að staðartíma, grunaður um fíkniefhamisferli. Marion Barry, sem hefúr verið borg- arsfjóri undanfarin 11 ár hefúr þráfaldlega verið sakaður um eitur- lyfjaneyslu. Hann hefúr jafnan lýst sig saklausan og fúllyrt að hann hafi verið látinn gjalda hörundslitar síns en Barry er blökku- maður. Sljórnmálaskýrendur vestra telja fúllsýnt að sfjórnmála- ferli Barrys sé lokið og að vera kunni að blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson bjóði sig fram til borgarstjóra sem aftur kynni að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 1992. Talsmenn bandarísku alríkislög- reglunnar, FBI, vörðust allra frétta af málinu og vildu t.a.m. ekki láta uppi hvort borgarstjórinn væri grunaður um sölu, neyslu eða kaup eiturlyfja. Svo virðist sem alríkis- lögreglan hafi fylgst vandlega með ferðum hans að undanfömu. Ónefndir heimildarmenn Reut- ers-fréttastofunnar sögðu að Mari- on Barry hefði verið handtekinn á sjöundu hæð Vista International hótelsins en í hverfi þar nærri stunda bæði eiturlyfjasalar og vændisonur iðju sína. Óstaðfestar fréttir hermdu að kókaín hefðu fundist í vösum hans er hann var handtekinn og aðrir heimildar- menn sögðu að starfsmenn alríkis- lögreglunnar hefðu myndband í fórum sínum er sýndi borgarstjó- rann reykja eiturlyfið hættulega, „krakk“. Marion Barry, sem er 53 ára, var þekktur málsvari blökkumanna er hann var kjörinn borgarstjóri Washington árið 1979. Á undanf- ömum tíu árum hefur hann marg- ■ OTTAWA - Stephen Reistetter, sem f lutti til Kanada frá Tékkósló- vakíu árið 1948, hefur verið ákærð- ur fyrir að hafa rænt 3.000 gyðing- um í heimsstyijöldinni síðari og flutt þá óviljuga frá Tékkóslóvakíu, en ekki er vitað hvert. Þetta er í þriðja sinn sem innflytjandi er ákærður í Kanada fyrir stríðsglæpi. ■ SEATTLE - Boeing-fyrirtækið hefur skýrt frá því að 1.700 starfs- mönnum fyrirtækisins verði sagt upp störfum I næstu viku og 5.000 fyrir árslok. Alls störfuðu um 164.600 manns hjá fyrirtækinu í fyrra. Helsta ástæðan fyrir upp- sögnunum er sú að líkur eru á að útgjöld til vamarmála minnki veru- lega á árinu.-- sinnis verið bendlaður við fíkni- efnaneyslu og eitursala en áreiðan- legar sannanir hafa aldrei verið lagðar fram. Barry hefur á hinn bóginn lýst yfir því að andstæðing- ar hans í röðum hvítra hafi staðið fyrir skipulegri rógsherferð á hendur honum. Almenningur í Washington var sem þmmu lostinn er frétt þessi barst og borgarstjórnarfulltrúar kváðust líta tíðindin mjög alvarleg- um augum. Skálmöld hefur ríkt í borginni á undanförnum tveimur áram. Á síðasta ári vora 438 morð framin í Washington og um 40 manns hafa verið myrtir það sem af er þessu ári. Barry lýsti yfir því á blaðamannafundi á miðvikudag að borgaryfirvöld væra að ná yfir- höndinni í baráttunni við fíkniefna- salana og glæpalýðinn sem hreiðr- að hefur um sig í höfuðborg Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur sem frétta- menn Reuters ræddu við í gær voru á einu máli um að stjórn- málaferli Barrys væri lokið reynd- ist það rétt vera að hann hefði neytt eiturlyfja eða keypt slík efni. Líkurnar á því að blökkumannale- iðtoginn Jesse Jackson, sem raunar hefur verið náinn samstarfsmaður Barrys, byði sig fram til embættis borgarstjóra hefðu aukist en Jack- son flutti á síðasta ári frá Chicago til Washington og vitað er að hann hefur hug á embættinu. Næði Jackson kjöri hefði það aftur áhrif innan Demókrataflokksins með til- liti til försetakosninganna árið 1992. Jackson, sem hefur tvívegis gefið kost á sér í forkosningunum flokksins, yrði þá ekki í framboði og kynnu nýir menn þá að leiða hugann að hinu háa embætti Bandaríkjaforseta. Staða Jacksons og möguleikar hans í forsetakosn- ingum síðar yrði á hinn bóginn traustari næði hann árangri í bar- áttunni við glæpahyskið í Was- hington. Calfa er þriðji ráðherra tékknesku stjórnarinnar sem segir skiiið við kommúnistaflokkinn frá áramótum. Eru því aðeins sjö af 21 ráðherra stjómarinnar í flokknum. Valtr Komarek, fyrsti varaforsæt- isráðherra og efnahagsmálaráð- herra, sagði skilið við kommúnista- flokkinn í byijun síðustu viku og Vladimir Dlouhy, yfirmaður ríkisá- ætlananefndarinnar, yfirgaf flokk- ínn í lok desember. Úrsögn þeirra hafði engin áhrif á setu þeirra í stjórninni. George Bush forseti í eitt ár Washington. Reuter. EITT ár er í dag, laugardag, liðið frá því George Bush tók við emb- ætti Bandaríkjaforseta. Kannanir sýna að hann nýtur stuðnings mikils meirihluta þjóðar- innar. Vinsældir hans jafnast á við það fylgi sem Ronald Reagan, for- veri hans, naut þegar best lét. Fréttaskýrendur í Bandaríkjunum segja Bush hafa allt annan stíl í embætti en Reagan. Honum hefur verið líkt við Lyndon B. Johnson, Richard Nixon og jafnvel Jimmy Carter. Eins og Johnson er Bush alþýðlegur og fullur orku. En hann getur sýnt tennumar þegar að hon- um er vegið eins og viðskiptin við Manuel Noriega, sýna. Morðið á Georgí Markov 1978: Ekkja andófshöfund- arins krefst réttlætis London. Daily Telegraph. BRESKFÆDD ekkja rithöfúndarins Georgís Markovs, sem var afar vinsæll á sjöunda áratugnum í Búlgaríu en flúði land 1969, kom fyrir skömmu til London eftir sex daga dvöl í landinu. Þar hugðist hún koma því til leiðar að morðið á útlægum eiginmanni hennar í London fyrir 12 árum yrði tekið til rannsóknar og æra hans endur- reist. Það hefúr nú verið gert. Almennt er talið að Todor Zhívkov, fyrrum leiðtogi landsins, hafi sjálfúr fyrirskipað morðið á rithöfúnd- inum. Markov hafði samið leikrit þar sem stjómvöld vora harðíega gagn- rýnd. Honum tókst að flýja land 1969 eftir að hafa fengið viðvörun um yfirvofandi handtöku, og fékk vinnu hjá BBC í Bretlandi. Einnig skrifaði hann persónulegar frétta- skýringar og pistla um kommún- istaríkin fyrir útvarpsstöðina Radio Liberty í Miinchen. Markov var oft óvæginn í gagn- rýni sinni á Zhívkov, stundum beinlínis baneitraður er hann rakti í sundur spillingarvef leiðtogans sem m.a. átti 30 bústaði víðs vegar um landið. Árið 1978 beið Markov eftir strætisvagni í London þegar hann fann allt í einu fyrir sársauka í mjöðminni. Hann leit við og sá mann beygja sig til að taka upp regnhlíf sem lá á götunni. Skurð- læknar fjarlægðu örsmáan brodd úr mjöðm Markovs og sérfræðingar komust að raun um að á honum var lífshættulegt eitur, ricin. Fjór- um dögum síðar lést rithöfundurinn eftir miklar þjáningar. Zhívkov hugsanlega sakfelldur Ólíklegt er að morðingi Markovs finnist, hann slapp undan lögreglu og gæti jafnvel verið dauður. Hins vegar er mögulegt að Zhívkov verði sakfelldur fyrir að fyrirskipa morð- ið. Skömmu eftir að Zhívkov var steypt ákvað ekkja Markovs, Anna- bel Dilke, skyndilega að fara til Sofíu. Fyrst í stað þorði hún ekki að ræða við yfirvöld, þetta var þrátt fyrir allt ríkið sem hafði látið drepa eiginmanninn. En þá barst það út að rithöfundasamband Búlgaríu hefði endurreist æra Markovs sem hafði verið fordæmdur fyrir „svik- in“ í tvo áratugi og rit hans bönn- uð. Jafnframt var sagt að yfirvöld hefðu ákveðið að láta rannsaka morðið á honum. Fréttamenn kom- Georgí Markov. ust að því að Annabel var í borg- inni og útvarp og sjónvarp áttu viðtöi við hana. Hún var heiðurs- gestur við miðdegisverð hjá rithöf- undasambandinu. Hún fylgdist hrærð með er „lifandi andi Markovs" var hylltur og henni var afhent helgimynd, íkon, af heilög- um Georg og drekanum. „Ég fór til Búlgaríu til að fá menn til að gangast við glæpnum, fá þá til að biðjast afsökunar," segir Annabel Dilke. „Þetta var aðeins vonarglæta en nú gerist allt svo hratt að ég er farin að trúa því að sannleikurinn komi í ljós.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.