Morgunblaðið - 20.01.1990, Page 16

Morgunblaðið - 20.01.1990, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990 ííteööur á moruun ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna- samkoma kl. 11 árdegis. Guðs- þjónusta kl. 14. Organleikari Jón Mýrdal. Fyrirbænastund miðviku- dag kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Munið kirkjubílinn. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Daníel Jón- asson. Kaffisala kirkjukórsins að guðsþjónustu lokinni. Bænaguðs- þjónusta þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11, Guðrún Ebba Ól- afsdóttir, sr. Pálmi Matthíasson. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Þorvaldur Björnsson. Sr. Pálmi Matthíasson. DIGRANESPRESTAKALL: Barna- samkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Laugardag, í dag: Barnasamkoma kl. 10.30. Sr. Jak- ob Ágúst Hjálmarsson. Messa kl. 11 sunnudag. Sr. Hjalti Guð- mundsson. Samkirkjuleg guðs- þjónusta kl. 14. Hafliði Kristinsson forstöðumaður Hvítasunnusafn- aðarins prédikar. Ritningalestur annast: Ingibjörg Jónsdóttir frá Hjálpræðishernum, Jóna Bjarna- dóttir frá Aðventkirkjunni og sr. Jakob Rolland frá kaþólsku kirkj- unni. Dómkirkjuprestarnir þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn Hunger Friðriksson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 14. Sr. Árelíus Níelsson pré- dikar og þjónar fyrir altari. Félag fyrrverandi sóknarpresta. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Ragnheiður Sverrisdóttir. Guðs- þjónusta kl. 14. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Organ- isti Guðný M. Magnúsdóttir. Mið- vikudag kl. 20: Guðsþjónusta með léttum söng sem Þorvaldur Hall- dórsson stjórnar. Sóknarprestar. GRAFARVOGSPRESTAKALL. Messuheimilið Félagsmiðstöðinni Fjörgyn við Foldaskóla. Barna- messa kl. 11, Sunnudagspóstur- söngvar. Aðstoðarfólk: Guðrún, Valgerður og Hjörtur. Skólabíll fer frá Hamrahverfi kl. 10.45. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Fermingar- börn og foreldrar þeirra hvött til þátttöku. Kirkjukór Grafarvogs- sóknar syngur. Organisti Sigríður Jónsdóttir. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Eldri börnin uppi í kirkjunni, yngri börnin niðri. Messa með altarisgöngu kl. 14. Organisti Árni Arinbjarnarson. Helgistund með öldruðum mið- vikudag kl. 11. Biblíulestur og bænastund laugardag kl. 10. Prestarnir. HALLGRÍMSKIRKJA: í dag, laug- ardag: Samvera fermingarbarna kl. 10. Sunnudag: Messa og barnasamkoma kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kvöldmessa kl. 17. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þeir sem vilja bílfar hringi í Hall- grímskirkju í síma 10745 eða 621475. Þriðjudag 16. jan.: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Guðspjall dagsins: Matt. 8.: Jesús gekk ofan af fjallinu. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa kl. 10. Sr. Arngrímur Jónsson. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer um Hlíðarnar fyrir og eftir barnaguðsþjónustuna. Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveins- son. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prestarnir. HJALLAPRESTAKALL: Messu- salur Hjallasóknar í Digranes- skóla. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristján Einar Þorvarðar- son. KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Kór Kársnesskólans syngur. Stjórnandi Þórunn Björnsdóttir. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Óskastund barn- anna kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Þórhallur Heimisson. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Barnastarf á sama tíma. Fermingarbörn aðstoða. Foreldrar og forráðamenn ferm- ingarbarna hvattir til að koma. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að guðsþjónustunni lokinni. Helgi- stund þriðjudagskvöld kl. 22. Kyrrðarstund í hádeginu fimmtu- dag. Orgelleikur, fyrirbænir, altar- isganga. Sóknarprestur. NESKIRKJA: í dag, laugardag: Samverustund aldraðra kl. 15 í safnaðarheimili kirkjunnar. Sunnudag 21. jan.: Barnasam- koma kl. 11. Umsjón Sigríður Óla- dóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Mu- nið kirkjubílinn. Orgel- og kór- stjórn Reynir Jónasson. Miðviku- dag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson, SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Messa kl. 14. Organ- isti Kjartan Sigurjónsson. Sóknar- prestur. SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Org- anisti Gyða Halldórsdóttir. Prest- ur sr. Solveig Lára Guðmunds- dóttir. Barnastarf á sama tíma. Umsjón Adda Steina, Sigríður og Hannes. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 14. Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Barna- messa kl. 11. Hreyfisöngvar, sög- ur, föndur, léttar veitingar. Hver á afmæli? Biblíusögur og bænir. Safnaðarprestur. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lág- messa kl. 8. Stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág- messa kl. 14. Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18 nema á laugar- dögum, þá kl. 14. Á laugardögum er ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há- messa kl. 11. Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 14. Hjálpræðissam- koma kl. 20. Foringjarnir stjórna og tala. Samkirkjuleg guðsþjón- usta verður í Dómkirkjunni kl. 14. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fila- delfía: Útvarpsguðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar J. Gíslason. Almenn guðsþjónusta kl. 20. KFUM & KFUK: Samkoma kl. 20.30, Amtmannsstíg 2B. Sönn og rétt guðsdýrkun (Róm 12). Vitnisburðir; Guðrún J. Sigurðar- dóttir, Sveinbjörg Arnmundsdótt- ir og Helgi Elíasson. Ræðumaður sr. Kjartan Jónsson. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Sr. Birgir Ásgeirsson. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Þröstur Eiríksson. Sr. Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Hámessa kl. 10. VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjónusta í Hrafnistu kl. 11. Barnaguðs- þjónusta í Víðistaðakirkju kl. 11. Guðsþjónusta í Víðistaðakirkju kl. 14. Kór Víðistaðakirkju syngur. Organisti Kristín Jóhannesdóttir. Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Fermingarbörn aðstoða. Sr. Þór- hildur Olafsdóttir. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir. Sr. Einar Eyjólfs- son. KAPELLAN, St. Jósefsspítala: Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. INNRI-Njarðvíkurkirkja: Barna- starf kl. 11 í safnaðarheimilinu í umsjá Helgu Óskarsdóttur og Láru Guðmundsdóttur. Sóknar- prestur. YTRI-Njarðvíkurkirkja. Barna- starf kl. 11. Sóknarprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11 í umsjá Málfríðar Jóhannsdóttur og Ragnars Karls- sonar. Munið skólabílinn. Guðs- þjónusta kl. 14. Kór Keflavíkur- kirkju syngur. Organisti Örn Falkner. HVALSNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Börn verða borin til skírnar. Sr. Hjörtur Magni Jó- hannsson. ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta á Garðvangi, dvalarheimili aldr- aðra í Garði, kl. 14. Barn verður borið til skírnar. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. EYRARBAKKAKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 10.30. Sóknar- prestur. STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Sóknarprestur. KOTSTRANDARKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. HVERAGERÐISKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Kristínar Sigfúsdóttur. Sr. Tómas Guðmundsson. AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli yngstu barnanna í dag, laugar- dag, kl. 13 í safnaðarheimilinu. Barnaguðsþjónusta sunnudag kl. 11. Messa á dvalarheimilinu Höfða kl. 15.15. Organisti Einar Örn Einarsson. Mánudag: Fyrir- bænamessa kl. 18.30. Beðið fyrir sjúkum. Sr. Björn Jónsson. BORGARPRESTAKALL: Barna- guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 10. Messa í Borgarneskirkju kl. 11. Guðsþjónusta á dvalar- heimili aldraðra kl. 14. Messa í Borgarkirkju kl. 16. Sóknarprest- ur. Jóhann Jónsson, írá Ytrí-Múla - Miiuiing Fæddur 1. apríl 1905 Dáinn 14. janúar 1990 Þú ljúfi gjafarinn gæða, þú gætir vor fjær og nær, og stigann til himinhæða þú hveiju barni ljær. Þetta vers orti hinn mikli skáld- jöfur Matthías Jochumsson, og þeg- ar ég vissi að faðir minn var geng- inn yfir móðuna miklu, komu svipað- ar óskir fram í huga mér. Hann sem hafði verið mér svo góður og allt fyrir mig gert átti nú það skilið að gjafari himinhæða rétti honum sína hjálparhönd og það sem hann þyrfti með þarna megin móðunnar miklu. Jóhann Jónsson fæddist á Ytri- Múla á Barðaströnd 1. apríl 1905, en dó núna 14. janúar 1990 tæplega 85 ára gamall. Hann var einn hlekkurinn í hinni stóru bamakeðju þeirra heiðurs- hjónanna Guðbjargar Ólafsdóttur og Jóns Magnússonar, þeirra sæmdar- hjóna sem bjuggu á Ytri-Múla í ára- tuga raðir. .. Nú eru þau öll systkinin dáin og var hann síðastur þar á ferð, þótt ekki væri hann yngstur. Pabbi var yfirleitt heilsuhraustur maður. Oll voru þessi systkin vel látin, myndar- og dugnaðarfólk, sem ekki mátti vamm sitt vita í neinu, enda uppalin í guðrækni og góðum siðum hjá sínum traustu og trúverðugu foreldram. Það má nærri geta að oft hefur þurft að taka til hendinni á svona mannmörgu heimili og stjómsemin að vera í lagi svo allt færi vel. Við þessar aðstæður ólst pabbi minn upp, í faðmi hinna fögra hlíða Barðastrandar og útvarðarins í suðri, Snæfellsjökuls. Enda var hann mikill náttúruunnandi og heimakær. Kunni vel að meta allt sem fagurt var. Stolt hans var að víkja ekki af verðinum frá því sem honum hafði verið til trúað. Ég er viss um að það er sannleiks- gildi í orðunum að hver beri sín heimalandsmót. Þetta fagra um- hverfí sem hann ólst upp í hefur mótað hans hugarfar gagnvart allri hans umgengni og snyrtimennsku sem var svo fáguð og vönduð. Ungur fór hann til sjós og var á hinum ýmsu skipum, kom hann sér allstaðar vel með sínu góða skapi og léttu lund. Síðan sneri hann sér aftur að fegurð lands og fénaðar, fór í vinnumennsku að Haga á Barðaströnd og kynntist þar móður minni, Björgu Sæmundsdóttur, hinni ágætustu konu og móður, sem kom þar með mig á fyrstu æviáram mínum. Pabbi var mér strax svo elskuleg- ur og góður og þegar ég stækkaði taldi ég að enginn pabbi væri eins góður í öllum heiminum. Ég mun aldrei geta fullþakkað honum það, og hitt líka hvað hann var góður við okkur mömmu báðar. Pabbi og mamma giftu sig fljótlega eftir þeirra fyrstu kynni eða 1936 og fluttu þá að Ytri-Múla og hófu þar búskap ásamt Ólafí bróður pabba, hinum mætasta manni. Tóku þeir við búi af foreldrum sínum sem þá voru orðin háöldrað, gömlu hjónin urðu samt áfram á jörðinni. Mun þeim ekki hafa verið í kot vísað hjá þeim bræðrum og mömmu sem vildi öllum svo vel. Pabbi var mikill dýravinur og fór vel með aliar skepnur, svo að af bar. Snyrtimennskan var svo rík í fari hans að hvergi mátti sjá hlut þar sem hann átti ekki að vera og hvergi rusl eða ónýt áhöld. Nágrann- amir fullyrtu að Ytri-Múli bæri af í allri snyrtimennsku. Pabbi var mjög léttur í lund og stundum spaugsamur, þótt aldrei mætti neitt ganga úr hófí fram. Hann var leikfullur, og hafa sagt mér drengir sem voru hjá honum í sveit að hann hafi oft leikið við þá að loknu dagsverki. Ekki gátu þeir hugsað sér betri húsbónda. Hann var sérstaklega bamgóður maður og þá var sama hver átti í hlut. Ég var svo oft búin að njóta þeirrar elsku hans að því verður ekki með orðum lýst. Mamma og pabbi eignuðust tvo syni á Ytri-Múla, Kristján og Sæ- mund, og eru þeir báðir kvæntir. Þeir minnast ekki síður en ég elsku föður síns og hinnar miklu glaðværð- ar sem honum fylgdi. Foreldrar mínir voru ákaflega samhent fólk og heimilisbragur á Ytri-Múla var frá þeim báðum kom- inn. Vona ég að góður Guð gefí að móður minni verði ekki ofraun að stíga yfir þennan þröskuld, að vera nú allt í einu orðin ein, búin að missa þennan glaðværa og góða mann. Pabbi var dugnaðarmaður, eftir- sóttur til allra verka, bæði til sjós og lands og traustur í hvívetna. Hann hafði sérstaklega gaman af kindum og er sagt að fáir hafí fóðrað skepnur sínar betur en hann. Þegar hann flutti til Patreksfjarð- ar árið 1961 hafði hann með sér nokkrar kindur, sem hann og bræð- ur mínir höfðu mjög gaman af. Hann kunni mjög vel við sig á Patreksfirði og eignaðist þar góða vini, sem sakna hans áreiðanlega. Gestrisni var foreldrum mínum í blóð borin og held ég að enginn hafí gengið svangur frá þeirra borð- um. Móðir mín, bræður og bömin mín, ásamt barnabörnum og barnabarna- bömum biðja fyrir ástarþakkir fyrir umhyggju og velvild þeim auðsýnda. Voru börnin sérlega hænd að afa sínum. Ég bið líka góðan Guð að launa honum alla þá ástúð og um- hyggju sem ég naut hjá honum. Það gleymast seint stundimar, þegar hann sat með mig, söng og sagði mér sögur og vermdi stundum kalda hönd eða strauk tár af vanga. Alltaf kemur það manni til að hugsa, þegar einhver hverfur af sjónarsviðinu og sár söknuður fyllir hugann. En eitt er það sem deyfir sárasta söknuðinn, minningin. Hún lifir lengi og verður ekki afmáð um þann mann sem hélt vöku sinni, gleymdi ekki starfi sínu, brást aldr- ei, var góður drengur. Ég veit að í vonarlandinu verður hann sami góði pabbinn og hann var hér og vegnar vel. Blessuð sé minning elsku pabba míns. Fríða Sá sem eftir lifír deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna... (Hannes Pétursson) Þannig mun verða með föðurbróð- ur minn og vin, Jóhann Jónsson, sem lést í Borgarspítalanum hinn 14. þ.m. eftir skamma legu. Hans mun verða sárt saknað af fjölmörgum vinum og vandamönnum. En minn- ingin um góðan dreng mun lifa áfram í hjörtum og minni þeirra er hans sakna. Jóhann Jónsson fæddist að Ytri- Múla á Barðaströnd 1. apríl 1905, sonur hjónanna Guðbjargar Ólafs- dóttur og Jóns Péturs Magnússonar sem þar bjuggu. Hann var einn af tíu bömum þeirra hjóna og sá síðasti af systkinunum sem kveður þennan heim. Jóhann kvæntist Björgu Sæ- mundsdóttur frá Litlu-Hlíð á Barða- strönd og hófu þau búskað á Ytri- Múla og bjuggu þar til ársins 1961 er þau fluttu til Patreksfjarðar. Hann hóf þá störf hjá Hraðfrysti- húsi Patreksfjarðar og starfaði þar til ársins 1982. Jóhann undi hag sínum vel á Patreksfirði, og eftir að hann lét af störfum hjá Hraðfrysti- húsinu stundaði hann mikið göngu- ferðir um plássið og heilsaði upp á gamla sveitunga og vini sem búsett- ir eru á Patreksfirði. Einnig stund- aði hann kartöflurækt og reykti bæði kjöt og fisk og mun ég seint gleyma hangikjötinu sem ég fékk hjá þeim hjónum er ég heimsótti þau á liðnu sumri. Mjög gestkvæmt hef- ur alltaf verið hjá þeim hjónum enda rausnarskapur og gestrisni þeirra slík að með eindæmum má telja. Jóhann var alla tíð mjög léttur og glaður í lund, söngelskur og ákaf- lega bamgóður. Að leiðarlokum vil ég þakka Jó- hanni frænda mínum fyrir allt það sem hann hefur verið mér og fjöl- skyldu minni í gegnum tíðina og ekki síst fyrir ferðina sem hann „lóðsaði" mig um landið. Kæra Björg, megi góður Guð veita þér og fjölskyldu þinni styrk í sorg- inni. Jónas

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.