Morgunblaðið - 20.01.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990
21
Borís Jeltsín:
■ SAO PAULO - Brasilískur
dómstóll hefur í reynd lokað tveim-
ur stærstu tinnámum heims vegna
náttúruverndarsjónarmiða. Dóm-
stóllinn úrskurðaði að loka bæri
þeirri stærstu, Bom Futuro, í að
minnsta kosti þrjá mánuði eða þar
til reistar hafa verið þrjár stíflur,
sem uppfylla skilyrði er sett hafa
verið til að stemma stigu við meng-
un fljóts í nágrenninu. í síðustu
viku úrskurðaði dómstóllinn að loka
bæri veg, sem notaður hefur verið
til að flytja tin frá annarri verk-
smiðju í bænum Pitinga. Brasilíu-
menn er mestu tinframleiðendur
heims, í fyrra framleiddu þeir
29.545 tonn af málminum.
■ LOS ANGELES - Sovéskir
útvarpshlustendur geta hlustað á
bandaríska tónlist, svo sem djasslög
Louis Armstrongs og dægurlög
Billys Joels frá 2. febrúar. West-
wood One, fyrirtæki í Los Angeles
sem dreifir útvarpsefni, hyggst
framleiða þrjá útvarpsþætti sem
fluttir verða í sovésku útvarpi í að
minnsta kosti ár, samkvæmt samn-
ingi við sovéska ríkisútvarpið
Gosteleradio. Skotið verður inn
auglýsingum í þáttunum.
Gorbatsjov hefiir al-
gjörlega mistekist
FERÐAMALARAÐSTEFNA 1990
Ferðamálaráðstefna Ferðamálaráðs íslands
verður haldin á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum
dagana 16. og 17. febrúar n.k.
Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar.
Þátttaka tilkynnist til Sigurborgar Kr.
Hannesdóttur, hótelstjóra, Hótel Valaskjálf,
sími (97) 11500, fyrir 10. febrúar.
Feróamálaráóislands
■ TÓKÍÓ - Skrifstofa japanska
forsætisráðherrans sendi í síðustu
viku frá sér árlega skýrslu sína um
ástand mála hjá ungu kynslóðinni
og segir þar að hraðvaxandi efnaleg
gæði séu farin að spilla ungmennum
landsins. Varað er við því að unga
fólkið skorti aga og það beri ekki
virðingu fyrir viðurkenndum gildum
og hefðum þjóðfélagsins. Sagt er
að hagsældin, sem Japanar hafa
öðlast frá stríðslokum, geti haft í
för með sér „andfélagslega og af-
brigðilega“ hegðun.
■ BRUSSEL - Belgískur læknir
tók rangan fót af 76 ára manni
vegna misskilnings, að því er fram
kom við réttarhöld á þriðjudag.
Hafði yfirlæknir beðið hann að taka
„kaldari“ fótinn af gamla mannin-
um og byggðust mistökin á því.
Komið hefur á daginn að kaldari
fótur sjúklingsins, þ.e. sá sem taka
átti af, hafði volgnað þegar ígerð
í honum minnkaði óvænt rétt fyrir
aðgerðina. Ruglaði það aðstoðar-
lækninn í ríminu og tók hann því
heilbrigða fótinn af. Dómstóll í
bænum Brugge dæmdi yfirlækninn
1 þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi en aðstoðarlæknirinn var
sýknaður af öllum sakaratriðum.
Það er af sjúklingnum að segja að
hann varð góður af fótarmeininu,
þ.e. sýkingin hvarf, en hann lést
nokkrum mánuðum síðar af öðrum
orsökum.
■ BONN - Tékkóslóvakía verður
fyrsta Austur-Evrópuríkið sem
sækir um aðild að Efnahags- og
framfarastofnuninni (OECD), að
því er helsti talsmaður stofnunar-
innar, Jean-Claude Paye, sagði á
fimmtudag. Pólverjar og Ungverjar
hafa óskað eftir að fá áheyrnarfull-
trúa á fundum stofnunarinnar, að
sögn talsmannsins. Paye var í Bonn
til að undirbúa ráðherrafund OECD
í París í maí, en þar verður rætt
um breytta efnahagsstefnu Aust-
ur-Evrópuríkja.
Haag. Reuter.
SOVÉSKI stjórnmálamaðurinn Borís Jeltsín segir, að Míkhaíl Gorb-
atsjov forseti hafi engu fengið áorkað með umbótastefhu sinni og
spáir blóðugri byltingu í Sovétríkjunum verði ekki komið þar á rót-
tækum breytingum. Kemur þetta fram í viðtali við hollenska dag-
blaðið Elsevier.
Jeltsín sagði, að „perestrojkan“
hefði misheppnast vegna þess, að
Gorbatsjov hefði ekki þorað að
ganga nógu langt í endurskipulagn-
ingu efnahagslífsins, ekki þorað að
gefa einkaframtakinu nógu lausan
tauminn. Þá sagði hann, að gera
yrði grundvallarbreytingar á sam-
skiptum lýðveldanna til að koma í
veg fyrir byltingu.
Jeltsín sagði, að Vesturlanda-
menn fengju glýju í augun þegar
minnst væri á Gorbatsjov, sem þó
hefði ekki tekist að bæta lífskjör
sovésks almennings hið minnsta.
„Gorbatsjov hefur komið ýmsu í
verk utan landamæranna en heima-
fyrir liggur ekkert eftir hann. Við
erum búin að fá nóg af honum og
það á bráðum við um ykkur líka,“
sagði Jeltsín.
Borís Jeltsín sagði, að nauðsyn-
legt væri að nema burt úr stjórnar-
skránni ákvæði um forystuhlutverk
kommúnistaflokksins og kvaðst
hann ætla að gera það að baráttu-
máli sínu á 28. flokksþinginu, sem
haldið verður í lok þessa mánaðar.
FRUMSÝNING
helgina 20. til 21. jan. kl. 13-17
Okkur er mikil ánægja að geta nú loks frum-
sýnt einn markverðasta fólksbíl síðari tíma.
OPEL VECTRA er tímamótabifreið, þar sem
Opel verksmiájumar hafa stigið stórkostlegt
skref í tæknilegri hönnun bifreiða.
OPEL VECTRA hefur hlotið fjölda viður-
kenninga fyrir frábæra útlitshönnun, rými,
aksturseiginleika og tækninýjungar.
OPEL VECTRA er afgerandi leiðtogi í bíla-
hönnun.
Kynning á
ROYAL CROWN" COL A
BILVANGUR s/F
HÖFÐABAKKA 9 I24 R6YKJAVÍK SÍMI 687300
OFEL
Innbyggð
hátækni