Morgunblaðið - 20.01.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.01.1990, Blaðsíða 35
MORGliIN'BkAÐIÐ LAUGAR;PAGUR|20.| JANÚAR 19,90 fclk í fréttum FESTA OG STÖÐUGLEIKI Kommúnisminn ekki dauður í Bandaríkjunum Líkt og menn hafa vafalítið orðið varir við í fréttum þykir nú fullsýnt að alþýða manna í Austur- Evrópu haf i hafnað hugmyndafræði kommúnismans. Raunar fullyrða margir að kommúnisminn hafi ávallt og ævinlega verið gjaldþrota en nú sé hann dauður og upprisa hans útilokuð. Menn kunna að hafa ýmsar skoðanir á þessu en formað- ur bandaríska kommúnistaflokks- ins, Gus Hall, er ekki í neinum vafa um að fréttir frá Austur-Evrópu séu að mestu tilbúningur málaliða auð- valdsins í blaðamannastétt og að kenningar þeirra Marx, Engels og Vladímírs Leníns séu enn í fullu gildi. Gus Hall, sem er 79 ára gamall, hefur verið formaður bandaríska kommúnistaflokksins í rúma þijá áratugi. Á skrifstofu hans í New York er að finna myndir af Lenín og styttur af Marx og Engels. Stoltastur er hann þó af mynd af sér við hlið Míkhaíls S. Gorbatsjov, leiðtoga sovéskra kommúnista, sem hangir á vegg rétt hjá þrekhjólinu þannig að Gus getur virt hana fyrir sér á meðan hann stundar líkamsræktina. Gus man ekki nákvæmlega hve- nær hann tók við embætti leiðtoga bandarískra kommúnista. „Það hlýtur aða hafa verið tveimur eða þremur árum eftir að mér var sleppt úr fangelsi. Mér hefur verið sagt að enginn leiðtogi kommúnista hafi ríkt lengur en ég,“ segir hann en félagar í flokknum eru um 20.000. Flokkurinn hefur löngum Reuter Gus Hall, leiðtogi bandaríska kommúnistaflokksins. átt erfitt uppdráttar. Stefna Sovét- stjórninarinnar, einkum á árum áður, var síst til þess fallin að auka vinsældir kommúnista i Banda- ríkjunum, efnahagur manna þar hefur almennt farið batnandi auk þess sem bandaríska alríkislögregl- an, FBI, hefur fylgst með félögum í flokknum. Gus Hall hefur hins vegar ekki áhyggjur af framtíð kommúnis- mans. Hann kveðst hafa barist fyrir málstaðinn alla sína ævi og minnir á að hann hafi eytt átta árum ævi sinnar á bak við lás og slá en hann var fangelsaður fyrir að boða byltingu gegn stjómvöldum í Bandaríkjunum. Þá fullyrðingu að kommúnisminn sé dauður nefnir Gus „stóru iygina". „Ríkisstjórn George Bush boðar að kommúnisminn og sósíal- isminn sé endanlega liðinn undir lok. Það er vegna þess að enginn leggur lengur trúnað á að Sovétrík- in séu keisaradæmi hin illa,“ segir Gus en Ronald Reagan fyrrum Bandaríkjaforseti lýsti Sovétríkjun- um þannig í ræðu er hann flutti árið 1982. Gus Hall telur að mót- mæli alþýðu manna í ríkjum Aust- ur-Evrópu sem leiddu til þess að kommúnistar þar hrökkluðust frá völdum séu aðeins tímabundin fyrir- brigði. Leiðtogar flokkanna hafi að vísu glatað trúnaði öreigastéttar- innar en það þýði ekki að sósíalism- inn hafi glatað gildi sínu. Breyting- amar í Austur-Evrópu muni á endanum verða sósíalismanum til framdráttar. Flokkur Gus Halls hefur oftlega verið gagnrýndur fyrir að vera hallur undir kenningar ráðamanna í Moskvu. Gus segir þessa gagnrýni ósanngjama. Flokkurinn hafi marg- sinnis gagnrýnt valdhafa í Austur- Evrópu og rifjar upp er honum lenti einu sinni saman við Nicolae Ceausescu, sem rúmenskir hermenn tóku af lífi á jóladag. Ceausescu reiddist svo heiftarlega að Gus var ekki leystur út með gjöfum þeim sem Rúmeníustjórn hugðist færa honum. „Ceausescu var ekki leið- togi kommúnista. Hann leit á sjálf- an sig sem konung“. Gus Hall er ekki fyllilega sáttur við uppgjör Sovétmanna við stalín- ismann. „Hversu oft geta menn grafið bein Jósefs gamla upp. Menn ættu að líta í eigin barm,“ segir hann og kveðst telja að í Sovétríkj- unum hafi menn tilhneigingu til að kenna Stalín um allt það sem miður hafi farið í 70 ára sögu kommúnis- mans þar eystra. Gus segist hins vegar styðja Míkhaíl Gorbatsjov. Hann telur að umbótastefna Sovét- leiðtogans hafi verið óumflýjanleg, sögulegt lögmál líkt og hrun kapít- alismans á Vesturlöndum. Gus hef- ur engin áform uppi um að láta af embætti flokksleiðtoga. „Við lifum á áhugaverðum tímum, einkum þeir sem aðhyllast kommúnisma.“ Hann er sannfærður um að einn góðan veðurdag muni kommúnistar kom- ast til valda í Bandaríkjunum en telur hæpið að hann lifi þann merk- isatburð í mannkynssögunni. „Ég er sennilega orðinn of gamall til þess að verða vitni að því“. COSPER --Ég vil breyta um nafii, fá sama nafii og maðurinn sem týndi þessu VISA-korti. M HETJUR Fágætt j aftitefli Ymislegt fer öðru vísi en ætlað er í fyrstu og sannarlega er ekki reiknað með þeim endalokum á nautaati sem hér má sjá og ólíklegt að mattadorarnir hafi knúsað hjörtu blóðheitra ungmeyja á öllum aldri á áhorfendasvæðunum með frammistöðu sinni. Sigurvilji virðist vera af skornum skammti og fregnir herma að þessu ati hafi Iyktað með jafntef li sem mun fátítt vera, því yf irleitt bíður tuddi lægri hlut, en í stöku tilvikum nær hann hins vegar krók á móti bragði og ýmist drepur andstæðinga sína ellegar limlestir þá með hornum sínum, klaufum og heljar- * þunga. ■BHHniM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.