Morgunblaðið - 20.01.1990, Page 44
FLÓRÍDAi®
einmitt núna
Ópera mánaðarins
HOLLENDINGURINN
FUUGANDI
Kl. 16:30
P ÚTVARPIÐ RÁS 10
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Stolið Úr
bílum við
bamaheimili
'LÖGREGLU hefur undanfarna
daga borist nokkrar kærur
vegna þess að stolið hefur verið
verðmætum úr ólæstum bílum.
Margir þjófnaðanna hafa verið
framdir fyrir utan barnaheimili,
þar sem algengt mun að foreldr-
ar skilji bíla sína eftir ólæsta og
jafiivel í gangi meðan þeir hlaupa
inn með börn sín. Virðist svo sem
einhverjir sitji þá um að komast
inn í bílana.
í fyrradag barst lögreglunni
kæra vegna þess að stolið hefði
verið skjalatösku úr bíl við barna-
heimilið Nóaborg við Stangarholt
og fleiri kærur hafa borist vegna
v. svipaðra þjófnaða. Algengast er að
stolið sé veskjum og töskum en
einnig hvers konar öðrum verðmæt-
um. Nýlega var farsíma stolið úr
bíl sem eigandi hafði skilið eftir
ólæstan í skamma stund.
Skipverji á Dranga-
vík ST slasast:
Urgur í skip-
"verjum vegna
öryggismála
Rækjutogarinn Drangavík kom •
inn til Siglufjarðar á fimmtudags-
morgun með skipverja sem hafði
handlegsbrotnað í vinnuslysi. Að
sög^n Hafþórs Rósmundssonar for-
manns Verkalýðsfélagsins Vöku á
Siglufirði er þetta er þriðja slysið
á rúmu ári sem talið er að rekja
megi til þess að grandaraspil er
ekki um borð í skipinu. Hafþór
segir að við aðalskoðun í byrjun
síðasta árs hafí verið gerð athuga-
semd um þetta atriði í bækur
' skipsins. Högni Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Drangavíkur stað-
festi við Morgunblaðið að skip-
veijar hefðu rætt við sig vegna
slyssins en sagði engan ágreining
vera milli útgerðar og skipverja.
Drangavík var enn á Siglufirði í
gærkvöldi. Að sögn Hafþórs Rós-
mundssonar höfðu nokkrir skipveija
á orði að fara ekki út eða segja upp
fengjust ekki svör um hvenær
grandaraspili, sem varð skyldubún-
aður með reglugerð 1988, verði
komið fyrir í skipinu.
Skipveijinn sem slasaðist var að
vinna við stjórntæki skutrennuloka
þegar slaki kom á togkeðjuna við
það að hlerinn, sem hífður var inn
á aðalspili, kipptist til. Grandaraspil
eykur stöðugleika toghlera. Maður-
inn var fluttur með flugvél til
Reykjavíkur þar sem hann gekkst
undir aðgerð á sjúkrahúsi.
Yfirdráttur
ríkisins 7,9
milljarðar
KRÖFUR Seðlabanka á ríkissjóð
og ríkisstofiianir námu tæpum
7,9 milljörðum króna í árslok.
Höfðu kröfúrnar þá lækkað um
milljarð á árinu.
Eiríkur Guðnason aðstoðarseðla-
bankastjóri sagði við Morgunblaðið
að þessi upphæð væri samkvæmt
bráðabirgðayfirliti en von væri á
ítarlegra peningamálayfirliti frá
Seðlabankanum síðar í mánuðinum.
Morgunblaðið/RAX
Gólfíð byrjað að snúast
HITAVEITA Reykjavíkur ætlar að veija 296 milljónum króna til byggingar útsýnishússins Perlunnar í
Öskjuhlíð á þessu ári. Framkvæmdir ganga vel og nú er búið að koma fyrir gólfi veitingahússins í húsinu,
en það mun snúast í einn hring á hverri klukkustund. Hefur þessi búnaður þegar verið reyndur. Bráðlega
verður byijað að innrétta veitingastaðinn en hann á að verða hinn glæsilegasti. Stefnt er að því að opna
Perluna á næsta ári.
• •
Okuleyfissviptingar;
Yngstu öku-
mennirnir
aka hraðast
ÁRIÐ 1989 voru 123 ökumenn
sviptir ökuréttindum fyrir of
hraðan akstur og 17 ára öku-
menn voru þeirra fjölmennastir,
eða 24 menn. Stærsti hluti þeirra
sem sviptur var ökuréttindum
fyrir of hraðan akstur var á aldr-
inum 17-20 ára, eða 66 manns.
í fyrra voru 19 ökumenn átján
ára gamlir sviptir ökuréttindum
fyrir of hraðan akstur, 13 ökumenn
nítján ára gamlir og 10 ökumenn
sem náð höfðu tvítugsaldri.
Ökuleyfissviptingum fyrir of
hraðan akstur 1989 fækkaði frá
fyrra ári um níu. Þá voru alls 132
ökumenn sviptir ökuréttindum, þar
af 70 ökumenn á aldrinum 17-20
ára. j
Stöð 2: "
Trygginga.-
miðstöðin í
hóp hluthafa
Tryggingamiðstöðin hf. hefur
bæst í hóp hluthafa Stöðvar 2 sem
aðili að sameignarfélaginu Fjöl-
miðlun sf.
Hluthafafundur í Islenska sjón-
varpsfélaginu hf., sem rekur Stöð
2, hefst á Hótel Holt í dag kl. 10
og verður þar kosin ný stjórn félags-
ins í samræmi við breytta eignarað-
ild. Að sögn Jóhanns J. Olafssonar,
eins nýrra hluthafa í Stöð 2, hefur
ekki verið gengið endanlega frá því
hveijir skipa stjórnina, en þrír full-
trúar koma frá Fjölmiðlun sf., sem
á 250 milljóna króna hlut, einn frá
Eignarhaldsfélagi Verslunarbank-
ans, sem á hundrað milljónir, og
væntanlega einn frá fyrri aðaleig-
endum, sem hafa skrifað sig fyrir
150 milljónum.
Jóhann J. Ólafsson er einn fjög-
urra aðila sem skrifuðu sig fyrst
fyrir 150 milljóna króna hlut í Stöð
2 og stofnuðu síðan um hann Fjöl-
miðlun sf. Fjórmenningarnir skrif-
uðu sig á miðvikudag fyrir 100 millj-
ónum króna í viðbót sem mun vænt-
anlega skiptast á milli félaga í Fjöl-
miðlun.
Sölutölur ÁTVR:
Áfengisneysla íslendinga
jókst um 23% á síðasta ári
Sjö milljón lítrar seldust af bjór-Samdráttur í sölu vindlinga þrír af hundraði
ÁFENGISNEYSLA hér á landi jókst á síðasta ári um 23% miðað
við árið 1988 samkvæmt sölutölum ÁTVR. Er þá miðað við hrein-
an vínanda. Sala á léttum og sterkum vínum dróst saman. Hins
vegar seldust 6.947.000 lítrar af áfengum bjór, en bjórsala hófst
1. mars á síðasta ári. Einnig varð samdráttur í sölu á tóbaki á
síðasta ári. Heildarsala Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins nam
á síðasta ári 6464 milljónum króna.
Reiknað út frá sölutölum ÁTVR
fæst sú niðurstaða að hver fslend-
ingur 15 ára og eldri hafi neytt
5,51 lítra af hreinum vínanda á
síðasta ári, þar af 36,6 lítra af
áfengum bjór, 6,1 lítra af léttu
víni, sem er samdráttur upp á
24,39% frá fyrra ári, og 7,3 lítra
af sterku víni (yfir 22%), sem er
samdráttur upp á 19,87%.
Árið 1988 nam neysla á hrein-
um vínanda 4,48 lítrum á mann
og jókst neyslan á síðasta ári því
um 23%.
Alls seldust 1.383.000 lítrar af
sterkum vínum og 1.169.000 lítrar
af léttum vínum á síðasta ári.
Mestur samdráttur varð í sölu
léttra vína en heildarsöluaukning-
una má rekja til sölu á áfengum
bjór sem hófst 1. mars á síðasta
ári.
Alls seldust 3.483.000 vindling-
ar á síðasta ári og dróst vindlinga-
salan saman um 3%.
Þá varð rúmlega 4% samdráttur
í sölu vindla en alls seldust 13
milljónir vindla hjá ÁTVR á síðasta
ári.
16 tonn seldust af reyktóbaki
sem er samdráttur upp á 5,8%.
11,5 tonn seldust af neftóbaki og
dróst salan saman um 5% frá fyrra
ári.