Morgunblaðið - 06.02.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR 1990
17
hafi slíka yfirburði á þessu sviði að
óhætt sé að taka undir tilboð Sovét-
manna um afvopnun og muni það
aðeins leiða til þess að yfirburðir
Atlantshafsbandalagsins verði fest-
ir í sessi. Mikil er gjafmildi Sovét-
leiðtogans að mati formanns Al-
þýðuflokksins!
En er málið svo einfalt?
Því er til að svara að á vegum
ríkja Atlantshafsbandalagsins hafa
tillögur Sovétmanna verið vegnar
og léttvægar fundnar. Tilgangur
Sovétmanna er ekki sá, eins og Jón
Baldvin virðist halda, að festa yfir-
burði Atlantshafsbandalagsins í
sessi heldur hið gagnstæða.
Marmkiðið er að festa þá gífurlegu
uppbyggingu Norðurflota Sovét-
manna í sessi, sem átt hefur sér
stað á undanförnum árum, en einn-
ig að þrengja að sjóveldunum og
gera þeim erfíðara um vik að rækja
það hlutverk, að tryggja á öllum
tímum öryggi siglingaleiðarinnar
yfir Atlantshaf.
Afstaða Sjálfstæðisflokksins
Afstaða Sjálfstæðisflokksins til
afvopnunar á höfunum er skýr og
í samræmi við markaða stefnu ríkja
Atlantshafsbandalagsins. Sjálf-
stæðisflokkurinn leggur áherslu á
stöðugleika og öryggi sem höfuð-
markmið í viðræðum austurs og
vesturs um takmörkun vígbúnaðar.
Afvopnun getur verið eitt af þeim
tækjum sem tryggja árangur í því
efni, en eins og samræmda stefnan
ber með sér verður að vega og
meta afvopnun með hliðsjón af rétt-
mætum varnarhagsmunum. Sjálf-
stæðismenn vilja afvopnunarvið-
ræður sem miða að því að tryggja
öryggi í skjóli minnsta mögulega
vígbúnaðar. Þeir binda við það von-
ir að með því komist afvopnun á
höfunum á dagskrá.
Otímabærar og vanhugsaðar
hugmyndir í þá veru geta á hinn
bóginn raskað stöðugleika og dreg-
ið úr líkum þess að raunhæfur
árangur náist í viðræðum um af-
vopnunarmál.
Jon Baldvin Hannibalsson varpar
í grein sinni fram þeirri spurningu
fyris hvaða Sjálfstæðisflokk Hreinn
Loftsson tali þegar hann ritar grein-
ar um utanríkismál. Þeirri spurn-
ingu vil ég að endingu svara. Hreinn
Loftsson talar fyrir hönd þess Sjálf-
stæðisflokks sem telur brýnt að
komið verði í veg fyrir að utanríkis-
ráðherra íslands hafi öryggismál
landsins að leiksoppi í pólitískum
hráskinnaleik íslenskra sósíalista.
Höfundur er formaður
utanríkisnefhdar
Sjálfstæðisflokksins.
Breiðuvíkurhreppur:
Slæmt tíðar-
far á þorra
Laugarbrekku.
RÖSKUN hefúr orðið á skólahaldi
barna vegna slæms tíðarfars það
sem af er þorra en hann heilsaði
með norðanstormi og sjö stiga
frosti. Vegir hafa lokast hér á
köflum í ótíðinni og hafa vegfar-
endur lent í vandræðum.
Hér hafa verið þrálátir stormar og
hríðarveður frá þorrabyrjun. Skóla-
börn héðan úr sveitinni, sem eru í
Lýsuhólsskóla í Staðarsveit, hafa
ekki komist í skólann nema þijá
daga síðan í þorrabyijun vegna ill-
viðris en börnin eru venjulega flutt
til og frá skóla daglega.
Bíll, sem fór með fóðurbæti frá
Borgarnesi út í Breiðuvík, fímmtu-
daginn 25. janúar, hreppti vonsku-
veður á leiðinni, norðanrok og hríðar-
byl. I Axlarhólum festist hann í
skafli og minnstu munaði að hann
færi út af veginum en hann var kom-
inn út- á blákantinn. Bændur frá
Syðri- og Ytri-Knarrartungu fóru til
hjálpar á jeppa og dráttarvél og gátu
aðstoðað bílstjórann að laga bílinn á
veginum. Bílstjórinn varð að skilja
bílinn eftir og fór hann að Syðri-
Knarrartungu og gisti þar.
- Finnbogi
HEFURÞU GLEYMT
AÐVINNAl
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLANS?
Það er fátt ergilegra en að missa af góðum vinningi í Happdrætti Háskólans
fyrir það eitt að hafa gleymt að endurnýja! Nú gefst VISA- og EURO-korthöfum
kostur á að endurnýja happdrættismiða sína með boðgreiðslum. Þannig sparast
bæði tími og áhyggjur og þá gleymist ekki að vinna!
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
vænJegast til vinnings
VINNINGASKRÁ FYRIR ÁRIÐ1990:
9 vinn. á kr. 5.000.000, 108 vinn. á kr. 2.000.000,
324 vinn. á kr. 250.000, 1.953 vinn. á kr. 75.000,
13.797 vinn. á kr. 25.000, 118.575 vinn. á kr. 12.000,
234 aukavinn. á kr. 50.000.
Samtals 135.000 vinn. á kr. 2.268.000.000.
X'.„.
ARGUS/SiA