Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 1
UMDEILT/ / MORÐMAL I SVISS LIKIÐ í FRYSTIKISTUNIMI TZ AYDAR VALDI 6 EITT VERK - TV/ER SÝNINGAR Menning/ 24 SUNNUDAGUR SUNNUDA.GUR 11. FEBRUAR 1990 jHgyigmiftlafrifr BLAÐ eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur SKAFTAHLÍÐ 8 er að sjá ósköp venjulegt fjölbýlis- hús, byggt seint á sjötta áratugnum. Hús, sem við tökum ekkert sérstaklega eftir þar sem það stendur ásamt svipuðum húsum í Hlíðunum. I húsinu býr ósköp venju- legt fólk - fólk, sem á kannski ekk- ert annað sameiginlegt en það að hafa einhverra hluta vegna flutt í þetta ákveðna hús í Reykjavík. Sumir hafa búið þarna í áraraðir, aðrir svo til nýbúnir að kaupa og hafa unnið myrkranna á milli hin síðustu ár fyrir afborgunum og vöxtum. Áhugamálin eru af ýmsum toga og sömuleiðis störf þessa fólks. Það hittist í stiga- ganginum og rabbar saman. íbúarnir eru sammála um að gott sé að búa í húsinu og að fólk búi þar í sátt og samlyndi, börnin viti meira að segja að bannað sé að leika sér á ganginum. Haldnar eru útigrillveislur á sumrin og það hefur komið fyrir að hússtjórnin hefur farið „út á lífið“ á laugardagskvöldi. Ibúarnir telja það vera stóran kost að vera svona miðsvæðis í borginni. Matvörubúðin, skólinn og dagheimilið skammt undan og strætisvagnarnir sömuleiðis í alfaraleið. Umferðarhljóð frá Miklubrautinni óma föluvert í híbýlum manna í Skaftahlíð 8. Öllu hvimleiðara sé þó þegar tillitsleysi ökuþóranna birtist í Skaftahlíðinni sjálfri. „Við þekkjumst öll, en erum samt ekkert inni á gafli hvert hjá öðru. Það er enginn áhugi fyrir því hjá neinu okkar. Samt sem áður hefur það vissulega komið fyrir að boðið sé upp á kaffisopa," segir einn íbúi hússins. Fólkið í blokkinni er úr hinum ýmsu geirum þjóðfélagsins, bæði ungt og gamalt. I húsinu er kennari, sjómaður, heildsali, fyrrum framkvæmdastjóri og eftirlaunamaður, hjúkrunarforstjóri, sjúkraliði, fulltrúi, ekkja, leikfimikennari og nemar að ógleymdum húsmæðr- unum, sem kjósa að ala manninn heima hjá börnunum. Við fórum í heimsókn í blokkina, þáðum kaffi og spjölluðum við íbúana um lífið og tilveruna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.