Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 Munurinn milli rikra og f átækra er sífellt aó breikka „ÉG ER ekki mikill heimsborgari. Ég hef reynt að búa úti á ítaliu, en það hefúr ekki gengið upp. Þá bjuggum við um tveggja ára skeið í Kanada og erum tiltölulega nýkomin þaðan. Ég hlýt að vera svona mikill íslendingur í mér,“ segir Theódóra Ragnarsdóttir húsmóðir. Eiginmaður Theódóru er af ítölsku bergi brotinn, Robert Sþano, og börn þeirra eru þrjú, Róbert 17 ára, Ásdís 16 ára og Giovanna á þriðja ári. Fjölskyldan er kaþólsk. Theódóra segist hafa tekið ka- þólska trú í desember sl. eftir miklar vangaveltur „Ég var sjálf í Landakotsskóla í æsku og hef alltaf haft mjög góðar minningar það- an. Mér finnst trúin skipta miklu máli í lífínu — hún hefúr öll svörin.“ Við hjónin kynntumst í Glaumbæ. Hann kom hingað upphaflega -til að sjá sig um og hafði jafnvel hug á því að vinna hér um hríð. Ég held hann hafi verið búinn að vera hér í viku þegar við fyrst kynnt- umst,“ segir Theódóra. Fjölskyldan býr sem stendur í leiguíbúð í Skaftahlíðinni, en hefur nýlega fest kaup á íbúð í Grafar vogi sem verð- ur afhent í sumar. Lengst af hefur íjölskyidufaðirinn stundað verslun- arrekstur, fyrst sem verslunareig- andi á Laugaveginum, síðar fór hann út í heildverslun með skart- gripi. Róbert er frá Napolí á Italíu. Fjölskyldan hefur dyalið mikið þar í landi og eru börnin jafnvíg á ítölsku og íslensku. Enska og franska eru þeim heldur ekki fram- andi, en á meðan á Kanadadvölinni stóð, gengu þau í franskan skóla annað árið og enskan skóla hitt árið. Róbert yngri segist vera á öðru ári í Verslunarskóla íslands enda hafi hann mikinn hug á að fara út í einhvers konar „bisness" seinna meir, hann vonist jafnvel til að geta unnlð eitthvað með föður sínum. Róbert er í landsliðinu í keilu og segir það vissulega mikið áhugamál hjá sér. Þá ættu karl- mennirnir á heimilinu sér eitt sam- eiginlegt áhugamál, þeir feðgar væru forfallnir knattspyrnuáhuga- menn. Laugardagssíðdegin væru því hálfgerðar helgistundir á heimil- inu, en þá ræður knattspyma ríkjum hiá Bjama Fel. í sjónvarp- inu. Ásdís hóf nám í Menntaskólan- um í Hamrahlíð síðasta haust og hún segist alls óráðin í því hvað hún vilji vera þegar hún „verður stór“. — Hvernig er verkaskiptingunni á heimilinu háttað? „Þessi þarna er latastur,“ segir húsmóðirín og bendir á son sinn sem Iyftir ekki hendi til að mótmæla. „Foreldrar minir eru frábærir kokk- ar enda er matseld þeirra. líf og yndi,“ segir sonurinn. „ítalskur matur er hér oftast á borðum. Eig- inmaðurinn er mjög duglegur við að elda og vaska upp, en óneitan- lega lenda heimilisstörfin mest á þeirri manneskju sem er heima allan daginn,“ segir Theódóra. Morgunblaðið/Sverrir Róbert Spano ásamt eiginkonu sinni Theódóru Ragnarsdóttur og börnunum þremur, Róbert, Ásdísi og Giovönnu. Vekjaraklukkan á heimilinu læt- ur í sér heyra upp úr klukkan sjö á morgnana. Að afloknum morgun- verðinum halda unglingamir af stað í skólann, húsmóðirin sýslar heima við með yngstu heimasætuna, en dagurinn hjá húsbóndanum hefst ekki fyrr en hann hefur farið í Vesturbæjarsundlaugina, en laug- amar hafa verið fastur punktur í tilvemnni hjá honum í yfir 20 ár. — Hvað með framtíðina? Róbert yngri: „Það er nú spurn- ingin. Ég held að ég eigi ekki eftir að setjast að á íslandi. Ætli maður ljúki ekki við stúdentsprófið og fari svo út, annaðhvort tij Ítalíu eða annars Evrópulands. Ég hef ekki jafnmikinn áhuga á Bandaríkjun- um.“ Ásdís: „Mig hefur alltaf langað til að búa annars staðar en á ís- landi. Hugsunarhátturinn er allt annar úti. Fólk er ekkert að pæla svona mikið í tískunni þar. Það klæðir sig fyrst og fremst þægilega og frjálslega. Auðvitað reynir mað- ur að vera þokkalegur til fara, en. ef maður er ekki „akkúrat" í nýj- ustu litunum, þá er maður bara púkalegur héma.“ Theódóra: „Sjáðu til. Þau eru öll hérna af því að ég er svo ákveðin í að vera hér. Við vorum mjög ánægð í Kanada, en vegna veikinda sem ég átti við að stríða, komum við aftur heim til íslands. Annars hefðum við trúlega verið þar áfram og haft það mjög gott. Fólk þarf að vinna svo mikið hérna á Islandi. ítalski verkamaður- inn hefur það margfalt betra en sá íslenski. Hér þurfa menn að vinna hálfan sólarhringinn til að hafa í sig og á. Sá ítalski getur séð fyrir sinni fjölskyldu með átta tíma vinnu án þess að konan þurfí út á vinnu- markaðinn. ítalskt verkafólk : fær kaup í „fjórtán mánuði á ári“ í stað tólf auk þess sem öll læknisþjón- usta er veitt verkafólki að kostnað- arlausu. Aðrir þjóðfélagsþegnar taka þátt í sínum lækniskostnaði með hliðsjón af tekjum viðkomandi. Mér finnst þetta sniðugt fyrirkomu- lag. Mismunurinn á milli ríkra og fátækra er sífellt að breikka á ís- landi.“ Einar Guðjohnsen Morgunblaðið/Þorkell Bergljót Líndal. Peningarnir okkar fara í ferdalög „FERÐALÖGIN EIGA hug okkar allan. Það faraallir okkar pen- ingar í ferðalög enda sérðu að íbúðin er í niðurníðslu og bíllinn er enginn til á heimilinu. Þetta er spurning um að velja og hafna,“ segir Einar Guðjohnsen og kona hans, Bergljót Lindal, tekur undir það. „Eg kunni reyndar ekkert að ferðast áður en ég kynntist Einari þó mig hafi svo sem langað til að gera víðreist. Það var svo einu sinni að við starfsfélagarnir ákváðum að fara í Þórsmörk. Það var ein- mitt þá sem ég sá Einar í fyrsta sinn.“ au Einar og Bergljót segjast hafa byijað að búa saman árið 1972, en ekki gifl sig fyrr en fimm árum síðar hjá borgardómara. „Þetta er annað hjónaband okkar beggja og frá fyrri hjónaböndum eiga þau tvo syni hvort, sem nú eru allir upp- komnir. Ég var fráskilin og Berg- ljót var ekkja. Síðan höfum við ver- ið á faraldsfæti um víða veröld. Þannig er að ég er í alþjóðlegum félagsskap, sem heitir því frumlega nafni Skál-klúbburinn þó hann hafi reyndar ekkert með drykkju að gera. Meðlimir eru frammámenn í ferðamálum og halda þeir með sér alþjóðaþing árlega. í fímmtán ár höfum við sótt þessi þing og gerum alltaf þriggja til fjögurra vikna reis- ur úr þessum ráðstefnum. í tengsl- um við þennan félagsskap höfum við komið til Suður-Afríku, Singap- ore, Ástralíu, Filippseyja, Suður- Ameríku, Argentínu og víða um Evrópu. Síðasta haust fórum við til Vancouver í Kanada og næsta þing er ráðgert í Colombo á Sri Lanka,“ segir Einar. Bergljót, sem er 55 ára Reyk- víkingur, er hjúkrunarforstjóri Heilsuverndarstöðvar Reykj avíkur. Einar, aftur á móti, er orðinn lög- legt gamalmenni, enda 67 ára og kominn á styrkinn, eins og hann orðar það. Hann er þó ekki sestur í helgan stein því nú situr hann heima í vinnuherberginu sínu á daginn og skrifar gönguleiðabækur um ísland fyrir ferðamenn á vegum Almenna bókafélagsins. Hann hef- ur greinilega ekki fært sér tölvu- tæknina í nyt því á skrifborðinu situr lítil, nett ritvél af eldri gerð- inni. „Þá má ekki gleyma húsmóð- urhlutverki bóndans, en hann stend- ur sig með prýði í því enda heima allan daginn á meðan ég vinn úti. Ég hef ekki komið niður í þvotta- hús í marga mánuði og hann sér líka um matarinnkaupin. Hér áður fyrr þurfti ég að skrifa niður það sem vantaði, en nú verslar hann samkvæmt eigin innkaupalistum. Og hann er líka fyrirmyndarkokk- ur, en lítið fyrir fínheit og kokkabækur. Hann hefur þetta bara í sér og hans uppáhaldsréttur er ofnbakaður fiskur a la Einar,“ segír Bergljót. „Ég hafði aldrei el- dað. Fyrir aðeins um þremur árum fór ég að prófa mig áfram og það kom á daginn að ég gat miklu meira en ég hélt að ég gæti,“ segir húsbóndinn. Lengst af hefur Einar starfað að ferðamálum. Hann segir að áhuga- málið hafí orðið að atvinnu. Hann var framkvæmdastjóri Ferðafélags íslands í tólf ár og árið 1975 stofn- aði hann Útivist. En hvernig finnst honum að vera íslendingur eftir öll ferðalögin? „Mér líður prýðilega. Hitt er ann- að mál að hér má margt laga og mikið af þessum vandræðum okkar sem endurtekin eru ár eftir ár eru öll heimatilbúin. Alþingi bregst. Vinnudeilur og verkföll skaða alla, ekki síst þjóðarbúið í heild. Það á ekki að fara í stríð. Verkfall er ekkert nema stríð. Menn geta bara leitað sér að annarri vinnu ef þeir eru ekki ánægðir með sitt hlut- skipti.“ Bergljót: „Þetta er nú ekki alveg svona einfalt, Einar minn. Það er náttúrulega óskaplega auðvelt að gagnrýna, sitjandi yfir kaffibolla heima í stofu. Ég skil ekki af hveiju við erum ekki á þingi hafandi lausn- ir á öllum málum. Mér fínnst mikið agaleysi í þjóðfélaginu. Það er til dæmis ekki nógu röggsöm stjórn víða í hinum opinbera geira. Hins- vegar finnst mér forréttindi að búa á Islandi. Það er alltaf jafngóð til- finning að koma heim eftir ferðalag til útlanda. Römm er sú taug, eins og þar stendur. Það er stórkostlegt að hér sé vel séð fyrir frumþörfum mannsins svo sem heilbrigðis- og menntamálum og það eitt gerir ís- land að velferðarríki. Skattpíningin er ógurleg á móti. Ég er sannfærð um að í hinu opinbera kerfi má margt reka betur en nú er gert.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.