Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRUAR 1990
ISLAND
ENGINI
BRÁÐRIHÆTTU
— segirÆvar Petersen fugla- og dýrafrœbingur
Á HÁTÍÐARSTUNDUM heiðra
Islendingar fjallkonuna, minnast
hennar óspjölluðu náttúru og
þess dýralífs sem hún elur í
skauti sínu. Er þetta veruleiki
eða einungis mælgi? Eru ein-
hverjar íslenskar lífverur í út-
rýmingarhættu?
var Petersen fugla- og dýra-
fræðingur segir að í augna-
blikinu virðist engin íslensk dýra-
tegund vera í bráðri útrýmingar-
hættu. Hitt væri svo annað mál að
tegundir gætu horfið af íslandi
þótt þær lifðu áfram annars staðar.
T.d. væru nú bara 2-3 pör af haf-
tyrðli i Grímsey en þessi fugl var
mun algengari á íslandi í byijun
aldarinnar. Trúlega réðu þessu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ævar Petersen fugla- og dýra-
fræðingur.
áhrif hlýnandi loftslags. Hið sama
gilti um þórshanann; samkvæmt
athugun árið 1987 væru nú einung-
is um 50 pör á landinu.
Mýrar þorna
— En hefur einhver fuglategund
horfið vegna beinna aðgerða
mannsins síðustu áratugina?
„Keldusvínið virðist ekki verpa
lengur á landinu. Það var umhverf-
isslys. Kjörlendi fuglsins er mýrar
og þær hafa verið þurrkaðar ótæpi-
lega síðustu áratugina. Og svo slapp
minkurinn laus. Þau keldusvín sem
sjást hér á landi eru líklega flæking-
ar að utan.“
— En eru einhveijir ránfuglar í
hættu, t.d. fálkar?
„Fálkastofninn er í virkilega
góðu ástandi, mörg hundruð pör á
landinu."
— Örninn?
„Honum fjölgar hægt en jafnt.
Nú eru þtjátíu og fimm pör á
landinu en stofninn fór niður í 10
pör þegar verst lét. Fyrir einni öld
voruum 100-200 pörumalltland."
— Eru 10 pör ekki fulllítið til
að byggja upp stofn? Er ekki hætt
við erfðaúrkynjun þegar svo er
komið? ,
„Stofninn hefur sennilega verið
40-50 fuglar þegar ungar og ópar-
aðir einstaklingar eru meðtaldir.
Erfðafræðilega virðist stofninn í
lagi sem sést á því að varpárangur
er oftast um 70% sem verður að
teljast mjög gott.“
Keldusvín, rallus aguatic-
us, verpir ekki lengur á
Islandi.
Dyggðaljós?
— Erum við íslendingar eitthvað
meðvitaðri en aðrar þjóðir um dýra-
og náttúruvernd?
„Við erum náttúrulega í beinna
sambandi við veiðimannaþjóðfélag-
ið og vitum að kjöt verður ekki til
í frystihólfinu en það veldur mér
verulegum áhyggjum að fá börn
fara nú í sveit og verulegur hluti
þjóðarinnar býr á mölinni og þekkir
ekki annað.
Það er hægt að nefna dæmi um
skilning og ábyrgðartilfinningu
landsmanna, t.d. þegar Þjórsát-verin
voru friðuð. Það hefði verið voða-
legt slys ef við hefðum eyðilagt
heimkynni sjö tíundu hluta heiða-
gæsastofnsins.“
— En hinar öfgarnar að „jafn-
vægi náttúrunnar" raskist og ein-
hverjar dýrategundum fjölgi um of,
t.d. selum? Er ekki talið að þeir éti
frá okkur 60 þúsund tonn af þorski?
„Það er ekki sannað að við
„græðum" svo og svo mikið af
þorski með því að drepa þetta og
þetta marga seli. Ein athugun á
útsel í Faxaflóa benti t.d. til að
þeir éti aðallega sandsíli sem íslend-
ingar hafa ekki nýtt sér hingað til.
Satt best að segja kvíði ég þeim
degi þegar við förum að veiða
sandsíli. Það gæti haft slæmar af-
leiðingar fyrir kríuna, rituna og
lundann og fleiri sjófugla sem lifa
á sílunum ef við kynnum okkur
ekki hóf við veiðarnar."
Sjampó, næringar,
hárlökk, gel, Iroða, blásturs-
vökvar, permanent bætiefni
NýttfráKMS
Curi Actlvator fyrlr permanent-
hár og iiðaft, Skerpir Hðí, gefur
góða lyftingu og fallegan gljáa.
Clirti Dan flösusjampó.
Fæst á hárgreiðslu og rakarastofum.
Fáið upplýsingar hjá fagmönnum!
HEILDVERSLUN
Kaldasel 2, s. 670999.
VJterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiöill!
SJÚKRANUDDSTOFA tí/LKE tíUBERT
Túngötu 3, 101 Reykjavík, sími 13680
Hef opnað aftur eftir breytingar.
Tímapantanir í síma 13680.
Hilke Hubert,
lögg. sjúkranuddari, félagi í
Vinsamlegast hafið samband við okkur og fáið nánari upplýsingar.
S4S
FERDASKRIFSTOFA ÍSLANDS
Skógarhlíð 18 • 101 Reykjavík • Sími: 91-25855 ■ Telex — 2049 ■ Telefax: 91-625895
Ferðaskrifstofa íslands
og
gefa nú boðið hagstæð fargjöld til fjölda áfangastaða um allan heim
með millilendingu í Kaupmannahöfn. Hér eru nokkur sýnishorn
til glöggvunar:
Brussel..
Frankfurí
Genf
Hamborg ..
Lissabon ..
Milano ....
Moskva ...
Mönchen ..
París.......
Zurich......
34.970,-
28.210,-
39.690,-
25.870,-
46.740,-
47.600,-
47.600,-
31.560,-
29.290,-
39.690,-
Tel Aviv .
Bangkok'
Tokyo ...
Peking ..
Rio.....
New York
Chicago .
Seattle ..
Los Angeles
60.110,-
77.630,-
91.220,-
91.220,-
91.220,-
51.510,-
51.510,-
54.870,-
63.570,-