Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 C 31 Fréttamenn þyrpast að Willy Brandt við komu hans til landsins. Fremstur í fiokki (með hattinn) er Björn Jóhannsson, þáverandi fréttastjóri Morgunblaðsins og núverandi fulltrúi ritstjóra hér á blaðinu. Willy Brandt, utanríkisráð- herra Vestur- Þýskalands, flyt- ur ávarp við setningu ráð- herrafundar NATO í Há- skólabíói. Við hlið hans situr Bjarni heitinn Benediktsson, þáverandi for- sætisráðherra, og við hlið hans er Manlio Brosio, framkvæmda- stjóri NATO á þeim tíma. Sf MTALID... ER VIÐ SAMDANIEL GLAD, STARFSMANN FÍLADELFÍUSAFNAÐARINS Orð lífsins til uppömmar, huggunar og hjálpar 21111 Skrifstofa Fíladelfíusafnaðar- ins, góðan dag. — Góðan dag, Andrés heiti ég Magnússon, blaðamaður Morgun- blaðsins. Komdu sæll, Sam Daníel hérna megin, get ég aðstoðað? — Vonandi, mig langaði til að forvitnast um símsvarann Orð lífsins. Getur þú upplýst mig um hann? Jú, það ætti að vera hægt. Að vísu hef ég ekki verið starfandi hér nema níu ár þannig að ég þekki nú ekki fyllilega til sögu símsvar- ans, en ég gæti trúað að hann hefði verið hér í 20-25 ár. En það er sumsé hægt að hringja í síma 10000 og hlýða á vers úr Biblí- unni, sem skipt er um daglega. — Hvernig eru versin valin? Það er nú misjafnt eftir því hver sér um það, en yfirleitt er það frek- ar valið, sem er til uppörvunar, huggunar og hjálpar. Á trúarhátið- um eru hins vegar valin vers, sem eiga frekar við þann og þann dag- inn. Það er yfirleitt einhver starfs- maðurinn hér, sem annast þetta starf, sjálfur sá ég um þetta í nokk- ur ár, en upp á síðkastið hefur Garðar Loftsson verið í þessu. — Verður ykkur aldrei á að end- urtaka sömu versin? hringt í símsvarann? Já það eru a.m.k. 100 símtöl á- sólarhring og meira um helgar. Frá því klukkan 11 í morgun hafa 47 hringt og frá því þú hringdir hafa þrír hringt inn. — Og hvaða fólk er það, sem hringir inn? Eins og málum er háttað er náttúrulega ómögulegt að vita það fyrir víst, en það hefur fólk hringt á skrifstofuna til þess að þakka okkur fyrir og segir þá gjaman að Orð lífsins hafi veitt sér styrk þegar á reyndi, t.d. vegna tíma- bundinna erfiðleika, sjúkdóma eða jafnvel vegna þess að það hafi leg- ið andvaka. Þetta fólk er afskap- lega þakklátt. — Er þetta þá fólk úr söfnuðin- um? Nei, ég held að það séu fæstir úr söfnuðinum. Það vita margir af þessu, þó svo þeir hringi kannski ekki daglega. Við eram með gott símanúmer, sem við höfum verið með í mörg ár og svo er númerið til að mynda auglýst í Dagbók Morgunblaðsins. — En þetta fólk, sem hringir inn, kemur það með uppástungur um vers? Það kemur fyrir að fólk óski eftir því að uppáhaldsvers þess sé lesið inn á símsvarann, en það er Tja, Biblían hef- nú samt frekar ur nú margar iwn L sjaldgæft. blaðsíður að geyma g — Hevrðu, ég og þaðan af fleiri 'T'Ær þakka þér kærlega vers, en það era 1 fyrir spjallið, en vafalaust vers, sem 1 segðu mér eitt njóta meiri vin- 1 ‘ fvrst; hvað hafa sælda en önnur. 1 .jiiiiiy. v #f í .ÆkvmlHM margir hringt inn í Þau verða samt 1 allt í'rá því ég ekki verri þó þau EpP A| hringdi til þín? séu endurtekin, AtKfm bað hafa þrír enda líða þá ein- if bæst við frá þvi hveijir mánuðir á áð:in- sex > allt. milli. Annars er ■/fJP' — Það var og. mest valið úr Nýja ifjm. t '1 1 [r þiö þá bara að testamentinu og lÆflr /éjp3Lf&‘'. :«£«■ heilsa. Sálmunum. IðHfí' Já, veríu sæll. — Er mikið „Með lögum skul lund byggja" — og íþróttir stunda. Reyk- víkingar lofa gjarnan sundið, þessa heilbrigðu íþrótt sem endurnærir sál og líkama. En er það heilbrigt að brjóta lögin — eða öllu heldur drckkja þeim í lögleysu; ólöglegu vatni? Þetta hélst Reykvíkingum uppi í 52 ár. Drukknun hefur orðið mörgum íslendingum að aldurtila. í vá og háska kunnu íslendingar oft ekki sundtökin. Því var það baráttumál margra mætra manna og kvenna að sundlaugar yrðu byggðar og landsmenn lærðu þessa þörfu íþrótt. Árið 1927 bar Jónas Jónsson frá Hriflu fram tillögu á Alþingi þess efnis að það legði fram 50 þúsund krónur til sundhallarbyggingar í Reykjavík. Ætlaðist hann til að þetta yrði fyrri greiðsla af tveimur og að bæjarsjóður Reykjavíkur legði fram jafnháa upphæð. Jónas mun hafa rætt þessi mál við Knud Zimsen þárverandi borgarstjóra. Það sem ýtti undir Jónas var að Alþingi hafði samþykkt heimild til að gera sund að skyldunáms- grein í skólum og ennfremur áform og undirbúningur til að leiða heitt vatn til bæjarins úr Laugardalnum. Tillaga Jónasar var ekki samþykkt á þessu þingi en árið eftir var lagt fram stjórn- arfrumvarp að ríkissjóður leggði fram 100 þús. krónur móti jafn- háu framlagi bæjarsjóðs, Jónas Jónsson mælti fyrir frumvarpinu. Nýtni Það var til þess tekið að fram- sóknarmaður hefði forgöngu í þessu máli en einstaka Reykvíking hefur stundum þótt anda köldu til höfuðstaðarins úr þeirri áttinni. Frumvarpið mætti reyndar nokk- urri andstöðu sveitaþingmanna sem þótti Reykjavík gert heldur hátt undir höfði en aftur á móti þóttu þau rök Jónasar sterk: „Heitt vatn verði leitt til bæjarins á næsta ári, til hitunar á Landspítalanum og barnaskóla bæjarins (Austurbæjar- skólinn innsk. blm.) ... Felst þá til heitt vatn, sem hefir gengið í gegn- um þessi hús og hitað þau, en er orðið of kalt til að hita fleiri hús.“ Jónas benti á að Sundhöilinni væri ætlaður staður nokkru neðar og ekki langt frá bamaskólanum. „Er þangað örstutt leiðsla, og má því telja alveg kostnaðarlaust að leiða vatnið í sundhöllina. Þessi og fleiri rök urðu til þess að frumvarpið var samþykkt enda stendur í lögum nr. 32. frá 7. maí 1928: „Að Iteykjavíkurbær leggi sundhöll- inni til ókeypis heppilega lóð nærri hinum nýja barnaskóla bæjarins og heitt laugavatn, eftir að það hefir gengið gegnum hitaleiðslur þess skóla.“ Framkvæmdir við Sundhöll Reykjavíkur urðu tímafrekari en upphaflega var ráð fyrir gert og hugmyndir manna um útlit og hönnun byggingarinnar tóku um- talsverðum breytingum. En loks var Sundhöll Reykjavíkur vígð 23. mars 1937 og opnuð til almenning- snota daginn eftir. Aðgangseyrir fyrir fullorðna var 65 aurar. (Fram- reiknað eftir vísitölum mun sú upphæð vera um 127 krónur á núvirði. Lesendum er þó bent á, að verð- og launahlutföll voru FRÉTTALfÓS ÚR FORTÍD Synt og syndgað mót lögum Sundhöll Reykmvikur mjc. IJU------* Su.,,dllö1iin Vfgð 'sw*v »»£!“*» --ÆSSf—í. Heilsulind ítiálfa öld önnur í þá tíð.) í næstum fimmtíu og þrjú ár hafa Reykvíkingar synt og svamlað í Sundhöllinni. Fáfræði, sinnuleysi Hinn 3. maí I fyrra voru lögin frá 1928 um Sundhöll Reykjavíkur felld úr gildi. Blaðamaður Morgun- blaðsins afréð að kanna hvaða ástæður lægu þar að baki; hvort vatnsrennslið hefði e.t.v. breyst og því nauðsynlegt að breyta lögunum. Enginn kannast við þá galla á lögunum sem skýrt gætu niðurfell- ingu þeirra. Satt best að segja var flestum ókunnugt um tilvist þeirra, hvað þá niðurfellingu. En Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri upplýsti blaðamann um að vatnið í sunlaug- inni hefði aldrei komið frá bama- skólanum, á tímabili hefði reyndar verið notað afrennslisvatn frá Bergþórugötu og Grettisgötu en lengstum hefði laugarvatnið verið tekið beint inn. í stuttu máli sagt, allt fram til þriðja dags maímánað- ar í fyrra hafa Reykvíkingar og aðrir Sundhallargestir stungið sér í ólöglegt vatn. Páll Líndal lögfræðingur og fyrr- um skrifstofustjóri borgarstjóra var kunnugt um lögin frá 1928. Hann vakti nokkram sinnum at- hygli á fyrirmælum þeirra en við- brögðin vora — þangað til í fýrra — takmörkuð. Morgunblaðið hafði samband við Jón Múla Árnason fyrrum útvarps- þul og Benedikt Antonsson skrif- stofustjóra en báðir hafa verið tíðir gestir í Sundhöllinni frá upphafi. Þeim var ókunnugt um fyrrgreind lög, á hvorugum var að merkja að þeir sæu á eftir þeim stundum sem þeir hefðu varið í trássi við lögin. Benedikt lét þó í ljósi þá von að þessi yfirsjón yrði ekki færð á hans syndaregistur eða sakaskrá. Jón Múli skelfdist ekki er fulltrúi Morg- unblaðsins las honum boðskapinn frá 1928. „Sennilega hefur ósjálfr- áð eðlishvöt knúið mig til að fremja þennan glæp.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.