Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 C 21 Raunsæi o g andstæður List og hönnun Bragi Ásgeirsson Það fer ekki á milli mála, að New York er mikil borg og að þar séu andstæðurnar meiri og áþreifanlegri en í öðrum borgum. Maður sér svo margrt þar, sem manni dreymir ekki að sjá annars staðar, eins og t.d. töturbúið fólk ráfandi um eða stein- sofandi á gangstéttum glæsihverf- anna og enginn stuggar við þeim. Víða annars staðar væru slíkir fjar- lægðir með hraði og yllu jafnvel meiri háttar uppnámi! Það er því engin furða, þótt slíkt mannlífssvið sé freistandi viðfangsefni .til ljós- myndunar og hrein gullnáma fyrir þá, sem leggja stund á fagið sjálft. Þannig er það og með Braga Þ. Jósefsson, sem nýfluttur er til lands- ins eftir nám í ljósmyndum í heims- borginni, jafnframt því sem hann vann um skeið að námi loknu sem lausamaður við ýmsar ljósmynda- stofur í Bandaríkjunum. Bragi sýnir um þessar mundir allnokkrar svart-hvítar ljósmyndir í eystri gangi Kjarvalsstaða, og er myndefnið allt sótt til heimsborgar- innar, enda nefnist hún New York/New York, og er á um ákveðna skírskotun að ræða. Og vissulega getur að líta miklar andstæður í þessum myndum svo og furðuleg sjónarhom, en þó fínnst mér það einhvem veginn koma fram í þessum myndum, að Bragi lagði megináherslu á auglýsingaljósmynd- un en ekki t.d. listræna ljósmyndun. Á þessu tvennu er mikill munur, sem Bragi Þ. Jósefsson ekki verður bættur upp með tilfall- andi valgeirum. Mér þykir þetta og koma fram í hinum ýmsu myndum á sýningunni og þá helst í því, að svo er sem myndirnar séu teknar með víðara samhengi til hliðsjónar, en ekki sem algjört núið. Frávik frá þessu eru nokkrar myndir svo sem Central Park (1989) og þijár mynd- ir frá East Village einnig teknar á síðasta ári svo og Fjármálahverfið frá 1986. í öllum þessum myndum eru listræn tök með rikri skírskotun til raunsæisins allt um kring og í algjörleika sínum. Einföld hnitmiðuð og afdráttarlaus myndbygging er og veigur þeirra. Maður óskar sér einhvem veginn miklu fleiri mynda í sama flokki. Auðvitað em miklu fleiri vel tekn- ar myndir á sýningunni, en þær skera sig að engu úr því, sem maður hefur séð áður í myndum annarra ljósmyndara frá New York á umliðn- um ámm. Sennilega eru og myndirn- ar of smáar á þessum hráa og opna stað og koma þannig ekki eins vel til skila og í innilegra umhverfi. Stærri myndir og á skilrúmum fara hins vegar vel svo sem hin stórkost- lega sýning á verkum Jousuf Harsh á sl. ári, sem mér er í ljósu minni. Tæknilega hliðin ,á myndunum sýnist mér góð, en sumar em þó kannski full harðar og eintóna, sem kann að vera fýlgifískur sérmennt- unar gerandans. Sem fmmraun gefur þó sýningin viss fyrirheit. Ég þakka innilega öllum þeim mörgu, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og hlý- hug á 90 ára afmœli mínu 4. febrúar. Veri gleÖi og gœfa ykkar leiÖarljós. Sigrún Guðbjörnsdóttir, Hrafnistu, DAS, Reykjavik. TILBOÐ OSKAST í MMC L300 Mini Bus4 W/D árgerð '87 (ekinn 47 þús. km.), AMC Jeep CJ-7 Renegade árgerð ’84, ásamt öðrum bifreiðum, erverða sýndará Grensásvegi 9, þriðjudaginn 13. febrúar kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00. Sala varnarliðseigna. BÆNDABÓKHALD! Sérhannað forrit fyrir bændur, sem sér um úrvinnslu á m.a. vsk-, skatt-, landbúnaðar-, fyrningaskýrslum, launa- og skuldabréfavinnslu. Ritvinnsla o.fl. Verð 29.880 m/vsk. Kemur út 20. febrúar. Hugbúnadargerðin, sími 91-79743. fVeitingasala - húsdýragarður Leitum að aðila með eigin aðstöðu til að reka veitinga- sölu í húsdýragarðinum í Laugardal frá 15. maí1990. Margskonar rekstrarfyrirkomulag kemur til greina. Umsóknum skal skilað inn fyrir kl. 16.00 föstudaginn 23. febrúar 1990 til garðyrkjudeildar borgarverkfræð- ings, Skúlatúni 2. Nánari upplýsingar eru veittar á sama stað í síma 18000. ORÐSEJMDIIMG UM LEIÐRÉTTINGU Á VERÐBÓTUM Á SKYLDUSPARNAÐI Umboðsmenn og aðstandendur einstaklinga, sem búsettir eru erlendis eða sem íátist hafa og söfnuðu skyldusparnaði á árunum 1957 til l.júlí 1989,eru hér með hvattir til að kanna í upplýsingasímum stofnunarinnar hvort greiðslur vegna leiðréttinga á verðbótum liggi þar fyrir. Allar leiðréttingar til þeirra, sem áttu skráð heimilisfang hér á landi 1. desember 1989 s.l. hafa verið sendar út. Eftir standa töluvert af leiðréttingar- greiðslum til fólks, sem skráð er erlendis og sem látið er. í desember s.l. ákvað Húsnæðisstofnun ríkisins að greiða út leiðréttingar varðandi verðbætur á skyldusparnað. Hér var einungis um að ræða verðbætur sem reiknast áttu af verðbótum. Leiðréttingarnar vörðuðu tímabilið l.júní 1957 til 1. júlí 1980 og náðu aðeins til hluta þeirra sem áttu skyldusparnað umrætt tímabil. Upplýsingasímar eru 696946 og 696947 kl. 10-12 virka daga. A HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900 SMÍÐUM EFTIR MÁLI • SENDUM BÆKLINGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.