Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 GRIPINN GLOÐVOLGUR MFÁIR hafa átt eins greiða leið upp á stjörnuhimininn og Terence Trent D’Arby, en fyrsta breiðskífa hans, The Hardline According to ... seldist í um sjö milljón eintökum. Arby hefur þó komist að því að gæfan er fallvölt því önnur plata hans, Neither Fish nor Flesh hefur selst vægast sagt illa. Um áramótin hafði platan selst í um 60.000 eintökum í Bretlandi og ekki gengið mikið betur í Bandaríkjun- um. Herma fregnir að í plötu- búðum víða um heim sé kaupendum boði að kaupa plötuna með skilarétti líki þeim hún ekki. verki. Hann stráir um sig öllum hilgsanlegum rokk- töffarstælum og reytir af sér klassíska gítarfrasa um leið. Langi Seli og Skug- gamir sýndu á tónleikunum í Kjallaranum að þeir eru enn ein fremsta ballsveit landsins, sem getur náð upp stuði hvar sem er hve- nær sem er. Munar þar mikið um Sela. Sykurmolar kveðja í VIKUNNI leggja Syk- urmolarnir land undir fót og halda í mikla tónleika- ferð um Bandaríkin endi- löng, en þaðan fer sveitin til Japans, Ástralíu og fleiri landa. Heimkoma er svo fyrirhuguð um mitt sumar og þá hyggj- ast sveitarmeðlimir taka sér leyfi fram eftir ári. AXEL „Seli“ gítarleikari og söngvari á tónleikum Langa Sela og Skugg- anna í Kjallara Keisarans 26.janúar. Seli er andlit Langa Sela og Skugg- anna og stendur sig einkar vel í því hlut- Sveitin hélt einskonar kveðjutónleika í Kjall- ara Keisarans í byijun mánaðarins. Þeir tónleikar þóttu takast hið besta, enda sýndi sveitin a sér allar sínar bestu hliðar og vel það. Eins og áður sagði voru þetta síðustu tónleikar Sykurmolanna hér á landi í bili, en heyrst hefur að til standi að fá sveitina til að spila á Listahátíð í Reykjavík í byijun júní. DÆGURTONUST /Hvad tekurlangan tíma adgeragódapl'ötuf Fjöllistakomn Kate Bush TÓNLISTARMENN eru misduglegir við að koma frá sér plötum. Sumir senda frá sér eina til tvær plötur (og jafiivel fleiri) á ári, en aðrir eru mörg ár að setja saman plötu. Tíminn sem fer í plötugerðina (og féð • sem eytt er) ræður þó sjaldnast úrslitum um gæði tónlistarinnar. Gott dæmi um tímasóun er The Seeds of Love með Tears for Fears, sem var á þriðja ár í smíðum, en aftur á móti er plata Kate Bush, The Sensual World, dæmi um plötu þar sem tíminn, fjög- ur ár, var vel nýttur. Kate Bush fæddist í Kent í lok júlí 1958. Hún ólst upp við hljóðfæraslátt og söng og lærði á fiðlu og píanó. 16 ára gerði hún samning við stór- fyrirtækíð EMI fyrir tilstilli Davids Gilmores,: gítarleik- eftir Ama ara Pink Matthíasson Floyd. 1978 kom fyrsta breiðskíf- an, The Kick Inside, út. Sú plata seldist í milljónum ein- taka og Kate fór í sfna fyrstu tónleikaferð ári síðar til að fylgja eftir plötunni. Sviðsmynd tónleikanna var íburðarmikil, enda hefur Kate á valdi sínu leiklist og látbragðsleik, ekki síður en tónlistina og svo mikið í þá lagt, að hún fékk yfir af tónleikahaldi f þessari fyrstu ferð sinni og hefur ekki get- að hugsað sér að fara í aðra ferð. Önnur platan, Lion- heart, kom út 1980 fyrir þrýsting frá EMI, en Kate vildi meiri tfma. Sama ár kynntist hún Peter Gabriel, sem fékk hana til að syngja með sér á lag á þriðju sóló- skífu hans. Þau kynni höfðu mikii áhrif á tónlist hennar, sem mátti gjörla heyra á Kate Bush Vex með hverri plötu. plötunni The Dreaming, sem Kate sendi frá sér 1982. Helstu áhrifin voru þó líklega þau að hann kynnti fyrir henni tækni sem gaf henni kost á að semja allt og útsetja á eigin spýtur. Þegar hún var komin á bragðjð var næsta skrefið að koma sér upp eigin hljóð- veri á heimili hennar í Kent. Það gaf henni iistrænt frelsi og um leið svigrúm til að reyna hvaðeina sem henni datt í hug. Næsta plata á eftir The Dreaming, The Hounds of Love, var nánast eingöngu tekin upp í því hljóðveri og tónlistin var en nokkru sinni; á köflum klippiverk, þar sem ægði saman tærum popplaglínum, þjóðlagatón- list og hálfklassískum hljóð- gerflatónaklösum. Þrátt fyrir það seldist The Hounds of Love betur en nokkur plata Kate fram að því og meðal annars kom hún lag- inu Running up that Hill inn á flesta vinsældalista. Síðan liðu fjögur ár, þar til The Sensual World kom út fyrir stuttu. Á The Sensual World þræðir Kate einstigið sem hún markaði á The Hounds of Love, en þó með breyttum áherslum. I stað verka á borð við hlið tvö á The Ho- unds of Love, sem var nán- ast samfellt verk, Ninth Wave, hefur hún snúið aftur að því að segja margar smá- sögur á plötunni, eina eða fleiri í hveiju lagi. Þjóðlegu áhrifin eru á sínum stað og nú er það Bulgarka tríóið sem syngur með henni í nokkrum lögum, aukinheld- ur sem sá gamli Alan Stiv- ell leikur á keltahörpu og bróðir Kate, Paddy, leikur á ýmis hljóðfæri. Fleiri þjóð- legir tónlistarmenn koma við sögu og merkilegt jafn- vægi er á milli nútímatækn- innar og þjóðlegra áhrifa. Það má merkja á mörgum laganna að þau eru byggð upp á hljóðgervlum og síðan bætir Kate við þjóðlegum dráttum til að draga upp þá ævintýramynd sem hún hefur í huga. Þegar tónlistarmaður eyðir óvenju löngum tíma í plötugerð, er það oft vegna þess að innblásturinn er horfínn eða í þann mund að hverfa, en Kate Bush vex með hverri plötu. MPaddy McAIoon og fé- lagar í Prefab Sproutem í hljóðveri og vinna að nýrri breiðskífu sem koma á út með vorinu. Vinnuheiti skífunnar er Jordan — The Comeback og sem stendur bendir allt til þess að útkom- an verði tvöföld skífa. MMESTA rokksveit heims (að eigin sögn), Rolling Stones leggur nú drög að tónleikahaldi í Bretlandi, eftir að hafa aflað sér um tíu milljarða króna í Banda- ríkjunum. Ekki hefur enn verið ákveðð hvernig að tón- leikunum verði staðið, en nýjustu fregnir herma að sveitin hyggjist halda átta tónleika á Wembley í sumar o g slá þannig við Michael Jackson, en hann hélt þar sjö tónleika 1988. All kom- ast um 72.000 manns inn á Wembleytónleika, þannig að nærfellt 600.000 manns eiga kost á að sjá herleg- heitin. Næst á dagskrá er hinsvegar Japansferð, þar sem ætlunin er að leika fyr- irum 500.000 manns. PLATA VIKUIMNAR Plata vikunnar er Funky Reggae Crew með ýmsum flytjend- um. Það gat ekki farið öðruvísi en að reggí og hip-hop ætti eftir að mætast og renna saman. Sá tónlistarblendingur er kallaður raggamuffín. Funky Reggae Party stendur á mótum reggae og hip-hoppsins og sitt- hvað á henni er framúr- skarandi vel gert. Ra- stafari reggae hip-hop. Blúsgræðarinn SÍÐUSTU poppár hafa fjölmargir gamlir popparar „snúið aftur“ eftir að hafa horfið úr sviðsljósinu í nokk- ur ár. Yfirleitt er um að ræða tónlistarmenn sem voru upp á sitt besta á sjöunda eða áttunda áratugnum. Sumir eru þó eldri og um þessar mundir siglir upp bandaríska breiðskífúlistann plata með tónlistarmanni sem sló fyrst í gegn 1948. Platan heitir The Healer (græðarinn) og tónlist- armaðurinn er John Lee Hooker. Kannski finnst sum- um Hooker, sem alla tíð hef- ur verið talinn blússöngvari, eigi lítið erindi inn á síðu sem lögð er undir dægurtónlist, en The Healer hefur ratað í fleiri hendur en blúshunda og herma umboðsmenn hér- lendir að platan seljist ekki síður hér á landi en ytra. Hooker er með sér til að- stoðar margar rokkstjömur, ekki síður en blústónlistar- menn og nægir þar að nefna Carlos Santana, George Thoroughgood, Los Lobos, Bonnie Raitt og Robert Cray, en hann var einmitt fyrsti blússöngvarinn í seinni tíð til að ná fjöldavinsældum. Á plötuna vantar Van Morri- son, sem varð til þess að The Healer varð til, enda ákafur aðdáandi Hookers í áratugi. Hooker, sem verður sjö- tugur í haust, er þegar farinn að leggja drög að næstu plötu og þá hyggst hann fá til liðs við sig til viðbótar við þá, sem gerðu með honum Healer, Van Morrison, Stevie Ray Vaughan og Pete Tow- nsend, en Hooker söng stórt hlutverk í söngleiknum The Iron Man, sem Townsend sendi frá sér fyrir stuttu. Vinirnir John Lee Hooker og Van Morrison skála fyrir The Healer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.