Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 c Endurgreiðsla viróisaukaskatts til íbúóarbyggjenda Hvað er endurgreitt? ■ inna manna á byggingarstað var undanþegin söluskatti en er nú virðisaukaskatts- skyld. Ákveðið hefur verið að endurgreiða virðis- aukaskatt af vinnu manna sem unnin er á bygging- arstað íbúðarhúsnæðis, sbr. reglugerð nr. 641/198&. Endurgreiðslan nær í fyrsta lagi til vinnu manna við nýbyggingu íbúðarhúsnæðis. í öðru lagi er vsk. af vinnu við endurbætur á íbúðarhúsnæði endurgreiddur ef heildarkostnaður (þ.e. bæði efni og vinna) er a.m.k. 7% af fasteignamati íbúðarhúsnæð- is eins og það er í upphafi þess árs þegar endurbætur eiga sér stað. Ef endurbætur ná yfir fleiri en eitt almanaksár er miðað við 7% af meðalfasteignamats- verði viðkomandi ára. Endurgreiðslan nær ekki til virðisaukaskatts af t.d. vinnu stjórnenda vinnuvéla eða af hvers konar sérfræðiþjónustu. Endurgreiðslan nær ekki heldur til t.d. byggingarorlofshúsa. Ef vélar eru settar upp á byggingarstað til aðvinnslu á vöru eða efni sem að jafnaði er unnið á verkstæði eða í verksmiðju er virðisaukaskattur af þeirri vinnu ekki endurgreiddur. Hverjir fá endurgreiðslu? b ■ eir sem byggja á eigin kostnað íbúðar- húsnæði til sölu eða til eigin nota á eigin lóð eða leigu- lóð fá endurgreiðslu. Hvert á að sækja um endurgreiðslu? ^ídurgreiðslubeiðni ersend skattstjóra í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili. Endurgreiðsla fæst því aðeins að umsækjandi geti lagt fram umbeðin gögn t.d. reikninga vegna keyptrar vinnu. Hvenær er hægt að sækja um endurgreiðslu? ^Jppgjörstímabil vegna nýbyggingar er tveir mánuðir, jan. og feb., mars og apríl, o.s.frv. Skýrsla skal berast skattstjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils og fer endur- greiðsla þáfram innan 20 daga. Uppgjörstímabil vegna endurbóta er aldrei styttra en almanaksár. Skýrsla skal berast skattstjóra 15. janúar árið eftir að endurbætur voru gerðar. Upplýsingasími RSK vegna virðisaukaskatts er 91-624422 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.