Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990
c
Endurgreiðsla
viróisaukaskatts
til íbúóarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
■ inna manna á byggingarstað var
undanþegin söluskatti en er nú virðisaukaskatts-
skyld. Ákveðið hefur verið að endurgreiða virðis-
aukaskatt af vinnu manna sem unnin er á bygging-
arstað íbúðarhúsnæðis, sbr. reglugerð nr. 641/198&.
Endurgreiðslan nær í fyrsta lagi til vinnu
manna við nýbyggingu íbúðarhúsnæðis. í öðru lagi
er vsk. af vinnu við endurbætur á íbúðarhúsnæði
endurgreiddur ef heildarkostnaður (þ.e. bæði efni og
vinna) er a.m.k. 7% af fasteignamati íbúðarhúsnæð-
is eins og það er í upphafi þess árs þegar endurbætur
eiga sér stað. Ef endurbætur ná yfir fleiri en eitt
almanaksár er miðað við 7% af meðalfasteignamats-
verði viðkomandi ára.
Endurgreiðslan nær ekki til virðisaukaskatts af
t.d. vinnu stjórnenda vinnuvéla eða af hvers konar
sérfræðiþjónustu. Endurgreiðslan nær ekki heldur til
t.d. byggingarorlofshúsa.
Ef vélar eru settar upp á byggingarstað til
aðvinnslu á vöru eða efni sem að jafnaði er unnið á
verkstæði eða í verksmiðju er virðisaukaskattur af
þeirri vinnu ekki endurgreiddur.
Hverjir fá endurgreiðslu?
b
■ eir sem byggja á eigin kostnað íbúðar-
húsnæði til sölu eða til eigin nota á eigin lóð eða leigu-
lóð fá endurgreiðslu.
Hvert á að sækja um
endurgreiðslu?
^ídurgreiðslubeiðni ersend skattstjóra
í því umdæmi þar sem umsækjandi á lögheimili.
Endurgreiðsla fæst því aðeins að umsækjandi geti
lagt fram umbeðin gögn t.d. reikninga vegna keyptrar
vinnu.
Hvenær er hægt að sækja
um endurgreiðslu?
^Jppgjörstímabil vegna nýbyggingar er
tveir mánuðir, jan. og feb., mars og apríl, o.s.frv.
Skýrsla skal berast skattstjóra fyrir 15. dag næsta
mánaðar eftir lok uppgjörstímabils og fer endur-
greiðsla þáfram innan 20 daga.
Uppgjörstímabil vegna endurbóta er aldrei
styttra en almanaksár. Skýrsla skal berast skattstjóra
15. janúar árið eftir að endurbætur voru gerðar.
Upplýsingasími RSK
vegna virðisaukaskatts er
91-624422
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI