Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 15
C 15
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990
HELDUR ALVEG NÝR BÍLL:
SUZUKI SWIFT 1990
ATTÞU
HLUTABRÉF í
SJÓVÁ-ALMENNUM
tryggingum hf
Fyrir hverjar 1.000 krónur
að nafnverði staðgreiðum við
5.000 krónur
HMARK
HI.UTAIIKI I AMAKK \DliKINN III!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 7, Reykjavík, Sími: 68 15 30.
HMARK-afgreiösla, Skólavöröustig 12,
Reykjavik, Sími:2 16 77.
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
Sigurlaug Sigurjóns-
dóttir - Kveðjuorð
hafði mikla ánægju af ferðalögum
og hvatti sína til nýrra vetka. Gagn-
vart mér komu þessir eiginleikar
vel í ljós er ég bjó hjá ömmu í
Vestmannaeyjum um tíma sumarið
1970 og á menntaskólaárum mínum
í Reykjavík.
Eftir Vestmannaeyjagosið 1973
flutti amma til Reykjavíkur. Þetta
var mikill hvalreki fyrir okkur sem
bjuggum á fastalandinu. Við höfð-
um ekki átt þess kost að heim-
sækja ömmu svo oft eða hún okkur
á meðan hún bjó í Vestmannaeyj-
um. Ránargatan og síðan Hátún 8
urðu einn af þessum föstu viðkomu-
stöðum okkar í Reykjavík. Heimili
ömmu í Reykjavík varð eins konar
upplýsingamiðstöð. Ömmu var svo
í mun að geta fylgst með því sem
á daga barnabarnanna dreif. Hjá
ömmu fékk maður því nýjustu frétt-
ir af öðrum fjölskyldumeðlimum,
sem maður hafði kannski ekki séð
lengi. Það var alltaf mikil gleði,
hlýja og kærleikur þegar maður
heimsótti ömmu. Maður fann vel
hve velkominn maður var, alltaf
heitt kaffi og eitthvað heimabakað
á boðstólum. Þetta þrátt fyrir van-
heilsu sína, en þetta veitti henni
mikla lífsfyllingu.
Mánudaginn 22. janúar átti ég
þess kost að heimsækja ömmu
ásamt móður minni á Landakots-
spítala. Hún átti að gangast undir
gallsteinaaðgerð tveimur dögum
síðar. Það ánægjulega við þessa
heimsókn var að þarna mætti ég
mjög lífsglaðri konu, sem gerði að
gamni sínu og var ánægð. Hún var
úthvíld og virtist vel undirbúin und-
ir þá göngu sem framundan var.
Nú er hún öll og megi minning
hennar lifa vel og lengi.
Hróðmar Bjarnason
Fædd 24. júlí 1915
Dáin 25. janúar 1990
Ég vil með þessum fáu línum
minnast ömmu minnar Sigurlaugar
Siguijónsdóttur. Hún fæddist á
Seyðisfirði 24. júlí 1915. Hún var
elst sex systkina, þar af voru þrír
hálfbræður. Við 18 ára aldur flutt-
ist hún til Vestmannaeyja til föður
síns sem þá var þangað fluttur. í
Vestmannaeyjum kynntist hún
fljótlega verðandi eiginmanni
sínum, Jóni Magnússyni frá Sól-
vangi í Vestmannaeyjum. Þau hjón
eignuðust fimm börn á tæpum 7
árum.
Fullyrða má að amma fékk að
lifa tímana tvenna. Sem elsta barn
tók hún snemma virkan þátt í heim-
ilishaldi fjölskyldu sinnar og vann
síðan við þau störf er til féllu í
byggðarlaginu. Fyrir fátæka al-
þýðustúlku voru möguleikar til
menntunar ekki miklir á þessum
tíma. Hún lærði þó snemma hand-
mennt og varð mikil handverks-
kona. Amma var atorkukona,
hörkudugleg og vissi vel hvað þurfti
til að framfleyta sér og sínum. Árið
1961 féll Jón afi minn frá eftir stutt
veikindi. Það sýnir best kraft henn-
ar og áræðni að hún sótti fiskmats-
námskeið og fékk ennfremur rétt-
indi sem verkstjóri í frystihúsi. Því
miður varð hinn nýi starfsferill
hennar ekki langur. Hún fékk úr-
Suzuki Swift 1990 er ekki bara ný árgerð heldur
alveg nýr bíll á flestum sviðum. 1990 árgerðin
hefur öflugri vél, sjálfstæða fjöðrun, er stærri og
rúmbetri og útlit Suzuki Swift er alveg nýtt af
nálinni að utan sem innan - hefur aldrei verið
glæsilegra. Og Suzuki
Swift er til í ýmsum
gerðum, 5 gíra eða
sjálfskiptur, 3 dyra eða 5
dyra. Farþegarými er
sérstaklega þægilegt, haganlega og smekklega
búið, farangursrými ótrúlega mikið og jafnframt
aðgengilegt. Hefurðu gaman af hraðskreiðum,
öflugum og liprum bílum? Þá áttu sannarlega
mikið erindi á frumsýninguna, því sportbíllinn
Suzuki Swift GTI 1990 hefur allan búnað sem
krafist er af fyrsta flokks sportbíl og þar er
geysilega öflug vél ekki undanskilin. f stuttu máli:
Suzuki Swift GTI 1990 er óskabíll allra sport-
aksturskappa.
SUZUKIBÍLAR HF.
HÚSI FRAMTÍÐAR, FAXAFENI 10, SÍMI 685100
kölkunarsjúkdóm fáeinum árum
eftir fráfall afa, sem dró verulega
úr afkastagetu hennar. Þó vann hún
utan heimilis á meðan heilsan leyfði.
Hún varð alltaf að hafa eitthvað
að sýsla við. Þetta kom einna skýr-
ast fram í öllum þeim peysum, vettl-
ingum og húfum sem hún pijónaði
á okkur Ijölskyldu sína.
Lífshlaup ömmu mótaði hana á
margan hátt. Viljinn að ljúka sínu
verki var mikill. Það fannst ákveð-
inn kraftur og stefnufesta í fari
hennar, en einnig hlýja. Hún var
einnig mjög opin fyrir nýjungum,
$ SUZUKI
-.......
Sjálfstœð fjöðrun Suzuki
Swift 1990 eykur öryggi
farþeganna og gerir
aksturinn þœgilegri.
Stórglasilegt útlit,
haganleg hönnun og
ótal nýjungar gera
Suzuki Swift 1990 nasstum
ómótstœðilegan.
Suzuki Swift 1990
Verð frá 626 þúsund
Frumsýning laugardag 10—17
og sunnudag 13—17
í Framtíð, Faxafeni 10.