Morgunblaðið - 11.02.1990, Side 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990
DANFOSS
VEIT HVAÐ ÞU VILT!
Mikil útbreiðsla DANFOSS ofnhitastilla a
fslandi sýnir að þeir eru i senn nákvæmir og
öruggir.
Æ fleiri gera nú sömu kröfur til baðblöndun-
artækja og velja hitastilltan búnað frá
DANFOSS.
Með DANFOSS næst kjörhiti á heimilinu
Þú stillir á þægilegasta hitann í hverju her-
bergi og DANFOSS varðveitir hann nákvæm-
lega.
Og í baðinu ertu alltaf öruggur með rétta
hitann á rennandi vatni, ekki sfst fyrir litla fólkið
þitt.
Aukin uellíðan, lœgrí orkukostnaður.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
ATTÞU
HLUTABRÉF í
SKAGSTRENDINGIHF
Fyrir hverjar 1.000 krónur
að nafnverði staðgreiðum við
3.020 krónur
HMARK
Hl.in AllRl I AMARKADURINN 111
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 7, Reykjavik, Sími: 68 15 30.
HMARK-afgreiösla, Skólavöröustig 12,
Reykjavík, Sími: 2 16 77.
Garðar Þorsteins-
son - Aftnæliskveðja
í alkunnum áramótasálmi eru
þessar hendingar:
„En hvers er að minnast og hvað er það þá,
sem helzt skal í minningu geyma?"
Um síðustu aldamót var erfitt
árferði í landinu öllu og hafði svo
verið undanfarna áratugi. Síðustu
áratugi fyrri aldar var óvenju köld
veðrátta, þó að þetta væri nokkuð
misjafnt eftir landshlutum. Vest-
firðir urðu t.d. ekki eins illa úti
eins og norðlensku sveitimar, en
þaðan urðu miklir fólksflutningar
til Ameríku. Allmargir tóku sig t.d.
upp úr Svarfaðardal og fóru í aðra
landshluta. Þaðan fluttu þrír bræð-
ur til Bolungarvíkur skömmu eftir
aldamótin, því að þeim mun ekki
hafa litizt á þá möguleika, sem
fyrir hendi voru þar nyrðra. Bræð-
urnir hétu Jóhann, Jón og Þor-
steinn, synir Jóns Þorvaldssonar
bónda á Hofi. Vestra var þeim
gefið nafnið Eyfirðingar fljótt eftir
komu sína þangað, og festist nafn-
ið við þá og kom í stað föður-
nafns. Þeir staðfestu ráð sitt fljót-
lega eftir komu sina í hin nýju
heimkynni. Voru konur þeirra frá
byggðarlögum þar vestra. Allir
urðu bræðurnir bátsformenn og
hafði Jóhann, elsti bróðirinn, byrjað
formennsku í Eyjafírði áður en
hann kom til Bolungarvíkur og
hélt hann formennsku áfram eftir
það í mörg ár með góðum árangri.
Bræðurnir urðu fljótt aflasælir
skipstjórnarmenn.
Þorsteinn J. Eyfirðingur kvænt-
ist Þórlaugu Benediktsdóttur, ætt-
aðri frá Skálávík. Þau hjónin eign-
uðust tvö börn, Garðar og Sóley.
Garðar verður áttræður á morgun,
12. febrúar.
Eins og fyrr segir var árferði
erfítt í byijun aldar og enn er frem-
ur lítið farið að rofa til árið 1920,
þegar Garðar fór í barnaskóla á
Isafirði. Eftir það stóð hugur hans
til frekara náms og fór hann því
til Akureyrar og lauk prófí í gagn-
fræðaskólanum þar. Síðan byijar
hann nám í Kennaraskólanum í
Reykjavík og lýkur þaðan stúdents-
prófi í stærðfræðideild árið 1920.
Eftir það heldur hann til náms í
fiskiðnfræði í Kanada og lýkur þar
prófi eftir þijú ár.
Enn er kreppa í hámarki þegar
Garðar kemur heim en hann hafði
valið sér nám í fræðigrein sem
mjög var lífvænleg, enda var faðir
hans á þessum árum orðinn einn
aflasælasti skipstjóri landsins. Fór
mikið orð af Þorsteini Eyfírðingi.
Er talið að enginn hafi áður fískað
jafn mikið á línu í Faxaflóa og
Þorsteinn, og er ekki að vita nema
það aflamet standi enn þó að langt
sé um liðið.
Garðar byijar nú starf í fræði-
grein sinni hjá fiskveiðahlutafélag-
inu Alliance, sem var þá farið að
Beint flug í sólina.
Vikulegar ferðir í allt sumar.
Bókabu tímanlega!