Morgunblaðið - 11.02.1990, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990
C 17
hugsa til byggingar síldarverk-
smiðju á Djúpuvík við Húnaflóa.
Garðar ræðst þangað til starfa og
er falið að byggja stóra og full-
komna síldarverksmiðju, enda var
hann búinn að afla sér góðrar
menntunar á því sviði, þó að hann
væri enn ungur.
Miklar síldargöngur voru í Húna-
flóa á þessum árum. Var því hafist
handa við byggingu verksmiðjunn-
ar og ekkert til sparað. Garðar
stjómaði þvi verki og var haft á
orði hve allt hafí gengið vel og
skipulega fyrir sig. Enda reis verk-
smiðjan á skömmum tíma og stóð-
ust allar áætlanir vel. Hafði Garðar
sannað kunnáttu sína með bygg-
ingu hennar.
Eftir fáein ár urðu breytingar
sem ekki varð við ráðið. Síldin ijar-
lægðist miðin í Húnaflóa og þar í
grennd og fór þá að halla undan
fæti Djúpavíkurverksmiðjunnar.
Nokkru seinna fór útgerðarfé-
lagið Kveldúlfur að hyggja að
byggingu nýrrar síldarverksmiðju
sem reisa átti austar við síldarmið-
in, enda var nú svo komið að vegna
fjarlægðar frá veiðisvæðunum átti
Djúpuvíkurverksmiðjan mjög erfitt
um hráefnisöflun.
Kveldúlfsmenn leituðu nú til
Garðars Þorsteinssonar sem tók
málaleitunum vel og hófst handa
um byggingu nýrrar verksmiðju
sem rísa skyldi á Hjalteyri við Eyja-
fjörð. Mikill áhugi var fyrir því að
byggingunni miðaði fljótt og vel.
Til þess að allur undirbúningur
yrði sem traustastur, tókst Garðar
ferð á hendur til Noregs. Hafði
hann því veg og vanda af þessu
verkefni frá fyrstu tíð. Það kom
enn á daginn að hann var vandan-
um vaxinn.
Hjalteyrarverksmiðjan reis á
mettíma og rekstur hennar gekk
vel í alla staði. Hinn ungi hönnuður
hennar gat því litið ánægður yfir
farinn veg. Hann hafði þegar byggt
tvær fullkomnar síldarverksmiðjur,
svo að sýnt var að eigendur þeirra
höfðu fengið rétta manninn til
starfa. En það fór hér eins og
stendur líka í sálminum sem minnst
var á í upphafr.
„Allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
. það flestallt er horfið í gleyraskunnar sjá.“
Nú fór eins og oft vill verða.
Síldin er hverfull fiskur og þótt
staðsetning síldarverksmiðjunnar
væri vel hugsuð í byijun, breyttist
þetta þegar fram liðu stundir. Var
því farið að hugsa um kaup á verk-
smiðjuskipi, sem hægt væri að
færa til eftir aðstæðum á hveijum
tíma. Niðurstaðan varð sú að keypt
var til landsins stórt verksmiðju-
skip, Hæringur. Heimahöfn þess
varð Reykjavík. Hversu mikinn
þátt Garðar átti í kaupum á þessu
skipi er mér ekki kunnugt, en hann
varð verksmiðjustjóri á skipinu um
nokkurn tíma og er ekki annað
vitað en að þessi framkvæmd hafi
tekist vel.
Eftir að Garðar hafði lokið jneð
sæmd verkefnum sínum í síldariðn-
aðinum starfaði hann með föður
sínum, Þorsteini, um nokkurt skeið
að útgerð hans sem útgerðarstjóri.
Undirritaður átti þess kost á árun-
um kringum 1930 að vera á síld-
veiðum með Þorsteini Eyfirðingi á
aflaskipinu bv. Fróða í tvö sumur.
Garðar var einnig með föður sínum
á þessum tíma. Ég hrósa happi
yfir því að hafa fengið þetta tæki-
færi .til að kynnast þeim feðgum,
því að svo einstakur atgervismaður
var Þorsteinn föðurbróðir minn, að
fáa átti hann sína líka og komst
ég að því við kynni mín af þeim
feðgum, að margt var sameiginlegt
með þeim.
í sambandi við byggingu síldar-
verksmiðjanna hafði Garðar kynnst
vel kaupum á vélum og verkfærum
víða frá. Stofnsetti hann nú með
Pétri 0. Johnson fyrirtækið G. Þor-
steinsson & Johnson hf., sem hefði
aðallega með höndum kaup á vélum
og verkfærum og hafði umboð fyr-
ir mörg þekkt fyrirtæki erlendis.
Garðar Þorsteinsson hefur verið
athafnasamur alla tíð. Hann náði
fljótt góðum árangri í námi og
starfi, kunni skil á að nota lærdóm
sinn til nytsamra verka og fann
fljótt sjálfan sig eins og hér hefur
lítillega verið rakið, stóð að bygg-
ingu tveggja síldarverksmiðja, sem
skiluðu þjóðarbúinu miklum hagn-
aði. Þetta hefur verið mikil gæfa
Garðars enda hefur hann mjög
fastmótaða skapgerð. Nú á efri
árum kemur það m.a. fram í því
að hann stundar mikið útivist með
löngum gönguferðum og að vetrin-
um skíðaferðum.
Garðar er tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Þórunn Sigurðardóttir frá
Fiskilæk í Borgarfirði. Þau eignuð-
ust fjögur börn: Bergljótu, sem
starfar í Landsbókasafni íslands;
Geir flugstjóra; Gerði, sem er ör-
yrki, og Arnþór prófessor. Seinni
konan er Jóhanna Ólafsdóttir frá
ísafirði, dóttir Ólafs Kárasonar.
Þeirra börn eru Þórir tæknifræð-
ingur, Ólafur húsgagnasmiður og
Þorsteinn verslunarmaður.
Með þessum línum vil ég senda
Garðari frænda mínum innilegar
árnaðaróskir frá okkur í fjölskyld-
unni og óska honum velfarnaðar á
síðasta skeiði ævi sinnar.
Aðalsteinn Jóhannsson
tæknifr.
ENSKA - SUMARFRÍ - TÓMSTUNDIR
Lærið ensku á einum vinsælasta sumardvalarstað á
suðurströnd Englands, Eastbourne. Allt viðurkenndir
skólar. Hægt er að velja um:
- Ensku og skoðunarferðir og íþróttir
- Ensku og golf
- Ensku og badminton
- Ensku og tennis
- Ensku og siglingu á ánni Thames
- Ensku fyrir kennara
- Ensku fyrir fólk á efri árum
og einnig ýmis konar námskeið.
Upplýsingar gefur Edda Hannesdóttir, fulltrúi I.S.A.S.
á íslandi, í síma 672701 milli kl. 13 og 15.
Fulltrúi frá I.S.A.S. er á staðnum til aðstoðar
hvenær sem er.
mmm®
NISSAN PATHFINDER
Aflstýri, stillanleg stýrishæð og veltistýri
Hraðastilling (Cruise Control) I
Geysiöflug 3.0 V6 vél með
beinni innspýtingu
Rafstýrðir speglar
Útvarp með kasettutæki
Rafdrifnar rúður I
■
Besta
fóanleg
innrétting
Opnanlegir hliðargluggar
Samlæsing í
hurðum
Sóllúga
Koparlitað
gler
Opnanlegur aftur-
hleri og afturgluggi
Rafhitari og I
rúðuþurrkaé I
afturglugga
"stw I
dekk,
3lxl0,5 |
Rl5 I
Utanóliggjandi
varadekk
Alfelgur
Diskabremsur að
aftan og framan
70%
tregðulæsing
í afturdrifi
Fjögurra þrepa, full-
komin, tölvustýrð
sjólfskipting
Sjólfvirkar driflokur
Hótt og lágt drif
Mýkt fjöðrunar
stillanleg með takka
við ökumannssæti
NISSAN PATHFINDER
meó öllum þessum
lúxusbúnaói kostar
aöeins kr. 2.178.000,- stgr.
BILASYNING LAUGARDAG OG
SUNNUDAG KL. 14 - 17
Inguar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000