Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 19
C 19
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990
N or ðurlandaráðsþing
í Háskólabíói:
Breskir ritsljór-
ar í hár saman
NÝLEGA lauk meiðyrðamáli, þar sem tvö bresk blöð komu við sögu,
með því að dæmt var að Andrew Neill, ritstjóri Sunday Times,
skyldi fá greidd 1.000 pund í skaðabætur, en útgáfuiyrirtæki blaðs-
ins, Times Newspapers, 60 pens.
Neill höfðaði málið vegna þess
að Peregrine Worsthorne, fyrr-
verandi ritstjóri Sunday Telegraph,
hafði haldið því fram í blaði sínu
að Neill hefði komið óorði á blað
FOLK
í fjölmiÖlum
sitt með ijögurra mánaða ástarsam-
bandi við Pamellu Bordes, kunna
indverska fegurðadís, sem starfaði
um tíma í neðri deild breska þings-
ins og átti vingott við nokkra valda-
mikla menn. Eftir að þau slitu sam-
bandinu kom í ijós að hún stundaði
símavændi. Neill er fertugur og
ókvæntur.
Báðir ritstjórarnir telja sig hafa
unnið málið. Kostnaðurinn við
málaferlin er talinn hafa numið
200.000 pundum.
Andrew Neill
Bretland:
99% sátu við skjáinn
SAMKVÆMT nýlegri skoðanakönnun í Bretlandi höfðu 11% farið í
bió á síðustu fjórum vikum, 7% i leikhús og 7% á tónleika. Aðeins 1
af hundraði hafði skellt sér í óperuna og 2% á jass- eða blúskon-
serta. Átta af hundraði höfðu farið á málverkasýningar eða i söfii
og svipaður fjöldi hafði skoðað herragarða og aðrar sögulegar bygg-
ingar.
Hins vegar höfðu 99% horft á
sjónvarp, 95% höfðu heimsótt
vini og kunningja eða boðið þeim
til sín, 88% höfðu hlustað á útvarp,
73% á hljómplötur eða snældur, 60%
lesið bækur, 46% lagað til í garðin-
um, 43% lagfært eitthvað í íbúðinni
og 27% fengist við handavinnu, svo
sem saumaskap.
Fjórði hver aðspurðra hafði farið
í bókasöfn. Af þeim sem fengu
bækur lánaðar voru 81% af eldri
kynslóðinni. Yngra fólkið fór til að
leita að upplýsingum í uppflettirit-
um, nota ljósritunarvélar og lesa
fyrir skólann.
Röskur helmingur bregður sér
út fyrir bæinn í frístundum, út í
skóg eða á aðra snotra staði, og
vill bætta þjónustu á slíkum „unaðs-
reitum“ — fieiri bílastæði,
göngustíga og sæti, betri hreinlæt-
isaðstöðu, fleiri sorptunnur, bætta
þjónustu við fatlaða, upplýsinga-
miðstöðvar o.sv.frv.
Um250
fréttamenn
væntanlegir
Um 250 fréttamenn eru væntan-
legir hingað til lands vegna Norð-
urlandaráðsþings sem haldið verð-
ur í Háskólabiói dagana 27. febrú-
ar til 3. mars næstkomandi. Alls
er reiknað með um 750 erlendum
gestum vegna þingsins. Þar af
verða þingfulltrúar 87, auk 60-80
ráðherra. Fréttamenn verða því
um 100 fleiri en sfjórnmálamenn-
irnir sem sitja þingið.
Að sögn Snjólaugar Ólafsdóttur
skrifstofustjóra íslandsdeildar
Norðurlandaráðs verður aðstaða fyr-
ir blaðamenn í nýrri byggingu Há-
skólabíós. Þar verður rekin símaþjón-
usta með 6 telefaxtækjum og a.m.k.
12 simum. Ennfremur er gert ráð
fyrir að fréttamenn geti sent efni
beint frá eigin tölvum. í þingsalnum,
stóra bíósalnum, verður einnig sér-
stök aðstaða fyrir fjölmiðla. Auk
þess verður sjónvörpum komið fyrir
í miðstöð fréttamanna, þar sem fylgj-
ast má með beinum sendingum úr
þingsal.
Ríkisútvarpið og Sjónvarpið að-
stoða erlendar sjónvarps- og útvarps-
stöðvar vegna sendinga frá landinu.
Ævintýraferð fyrir minna verð
FLUGLEIDIR
Sfmi 69 03 OO
ffl/SAS
Laugavegi 3, sfmi 62 22 11
Flugfar til Thallands kostar litlu meira en til
evrópskra sólarlanda. Á móti kemur að
verðlag í Thailandi er svo lágt að í heildina
er ódýrara að ferðast til Thailands en
annarra sólarlanda.
Upplifun í Thailandsferð verður
hins vegar ekki jafnað við
venjulega sólarlandaferð.
f Thailandi kynnist þú framandi
menningu, fjölskrúðugu mannlífi,
stórkostlegu landslagi og glæsilegri
baðströndum en finnast annars staðar.
Er ekki kominn tími til að breyta til?
17 daga ferð til Bangkok og Pattaya kostar
aðeins kr. 94.072* fyrir manninn
í tvíbýli. Innifalið er m.a. flug,
gisting á fyrsta flokks hótelum og
morgunverður. Allt að 50%
afsláttur fyrir börn undir 12 ára.
Bæklingur um Thailand liggur
frammi á öllum ferðaskrifstofum.
Þar færðu allar nánari upplýsingar um
Thailandsferðir.
*Verð miðast við gengi og fargjöid 1S. Janúar 1990
HULDA
■ HULDA Styrmisdóttir hefur
verið ráðin til
fréttastofu
Stöðvar 2, en
hún hefur áður
starfað þar í
afleysingum.
Fyrstístað
fyllirHulda
skarð Þóris
Guðmundsson-
ar, sem fengið
hefur ársleyfi frá störfum.
■ BJÖRGEVA Erlendsdóttir
hefur verið
ráðin blaða-
maður á Press-
una. Björg Eva
kemur frá Nor-
egi, þar sem
hún starfaði
um nokkurt
skeið eftir nám
í biaðamanna-
skólanum í
Ósló. Hún var m.a. blaðamaður á
fréttablaðinu Klassekampen, sem
hefurtöluverða útbreiðslu meðal
vinstrimanna í Noregi. Þá var hún
einnig ritstjórnarfulltrúi á sérblaði
um heilbrigðismál.
■ ÞÓR Jónsson nemi við Blaða-
mannaskólann
í Stokkhólmi
verður við störf
á fréttastofu
Stöðvar 2
næstu ijóra
mánuði. Starf-
ið er hluti af
námi hans við
skólann. Áður
en Þór hóf nám
í Stokkhólmi var hann blaðamaður
á Tímanum.
BJÖRG EVA
ÞÓR