Morgunblaðið - 11.02.1990, Síða 30

Morgunblaðið - 11.02.1990, Síða 30
30 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 -i ÆSKUMYNDIN ... ER AF FIGDÍSI GRÍMSDÓTTUR RITHÖFUNDI Hún las bókstaflega allt Hún heitir Vigdís og er \jón. Vigdís fæddist í Reykjavík 15. ágúst 1953, dóttir hjónanna Grims M. heitins Helgasonar forstöðumanns handritastofhunar Landsbókasafiisins og Hólmfríðar Sigurðardóttur kennara. Vigdís er tveggja barna móðir, barnsfaðir hennar og fyrrum eiginmaður er Filip W. Franksson myndlistarmaður. Bækur Vigdísar hafa vak- ið mikla athygli, nú síðast skáldsagan Ég heiti ísbjörg - ég er Ijón sem kom út fyrir jólin. Vigdís er kennari að mennt og hefiir lokið BA í íslensku. Auk ritstarfa kennir hún við Flensborgarskóla í Haíharfirði. ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Ráðherrafundur NATO íReykjavík Vigdís ólst upp í Kleppsholtinu. Hún bjó fyrst í blokk við Kleppsveg til 10 ára aldurs, en síðan á Kambsvegi út unglingsárin. Hún er elst sjö systkina. Eins og títt er í stórum systkinahóp þurfti hún því oft að hjálpa til og gæta þeirra yngri. Bamapössunin gekk ágætlega, en hún átti það til að stríða svolítið. Klukkutíma rúntur með krakkana í strætó var hins vegar ágætis aðferð til að láta tímann líða og komast hjá árekstr- um. „Stundum gleymdi hún sér og ferðimar urðu lengri en ella. En það var allt í lagi, við treystum henni fullkomlega," segir Anna Þrúður systir hennar, sem er þrem- ur árum yngri. Trygglyndi varð snemma sterkur þáttur í fari Dísu, en það var hún gjarnan kölluð af fjölskyldufólki og leikfélögum. Móðir hennar minnist atviks frá því Vigdís var 10 ára. Fjölskyldan bjó ekki við sterkan fjárhag en Dísa fékk peninga til að kaupa jólagjafir. „Þetta var ekki stór upphæð, en mín kom heim með jólagjafir handa öllum systkin- um sínum, sem þá vom fimm. Það voru ekki miklir peningar til, en henni lærðist snemma að gera mikið úr litlu.“ Grími föður Vigdísar var annt um að börnin lærðu að meta góðar bækur og listir. Hann hélt við þeim gamla sið að halda kvöldvöku á heimilinu. Á þessum sérstöku kvöldvökum vom sagðar sögur, farið í spurningakeppni og alls konar leiki. Þetta gerði Grímur bæði til þess að ná þessari stóru fjölskyldu saman, svo og til þess að vekja áhuga barnanna á öðru en veraldlegum hlutum. Ekki veitti af, því nú var sjónvarpið komið til sögunnar. Auk þessa las hann mikið fyrir börnin. Snemma kom í ljós að Vigdís var mjög hneigð til bóka og þurfti faðir hennar því ekki að hafa miklar áhyggjur hvað það snerti. Hún las bókstaflega allt. Hún hafði frásagnargáfu, sagði börnum sögur. Ásta Björk Svein- björnsdóttir æskuvinkona hennar af Kleppsveginum man vel eftir sögustundunum: „Hún sagði mér eitt sinn sögu af Gilitmtt. Ég bjó þá á efstu hæðinni en hún á þeirri neðstu. Vigdís sagði mér að Gili- trutt gæti auðveldlega stækkað. Ég gæti því alveg verið jafnhrædd og hún, Gilitrutt næði jafnt í efstu glugga sem þá neðstu." Frásögnin gat orðið skelfilega sannfærandi. Anna Þrúður minnist þess er þær systur vom eitt sinn einar heima, Dísa sagði sögu af manni. Lýsingin var það sterk að sú stutta sá karlinn ljóslifandi fyrir sér í stofunni og fylltist ofboðslegri hræðslu. „Þá hætti hún þessu í dálítinn tíma. En þetta vom skemmtilegar sögur, spennandi og svolítið dulrænar," segir Anna Þrúður. Hún segir reyndar að Dísa hafi líka átt það til að vera hrað- lygin og stríðin, ekki síst þegar hún var í ham. Mánudaginn 24. júní 1968 hófst í Reykjavík ráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins. Fundinn sátu utanríkisráðherr- ar 11 aðildarríkja bandalagsins, en þeir fjórir ráðherrar sem ekki gátu sótt fundinn sjálfir sendu fulltrúa í sinn stað. Helstu við- fangsefni fundarins voru, samkvæmt frá- sögn Morgunblaðsins af þessum viðburði, framtíðarhlutverk banda- lagsins og „Þýskalandsvandamálin“ svonefndu. Fundurinn var settur með mikilli viðhöfn í Háskólabíói og fluttu þar ávörp drt Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Willy Brandt, utanríkisráðherra Vestur-Þýsklands, heiðursforseti Atlantshafsbandalagsins, og Manlio Brosio, framkvæmdastjóri NATO. Eins og við var að búast höfðu vinstri menn sig nokkuð í frammi á meðan á fundinum stóð, efndu til mótmælafunda og hrópuðu vígórð með til- heyrandi mótmæla- skiltum. Eins og sjá má á einni myndinni gat þar m.a. að líta full- yrðingar um að byltingarhetjan Che Guevara myndi lifa, en eins og kunnugt er hafði hann þá þegar verið skotinn einhvers staðar í frumskógum Bólivíu. Hinar mynd- irnar eru frá komu Willy Brandt til landsins og setningarathöfninni í Háskólabíói er þýski utanríkisráð- herrann flutti ávarp sitt. Andstæðingar NATO efndu til mótmælaaðgerða eins og við var að búast. STARFID INGI SVERRIR GUNNARSSON SÍMSMIÐUR BÓKIN Á NÁTTBORÐINU PLATAN Á FÓNINUM MYNDIN I TÆKINU Ingi Sverrir Gunnarsson Launin lág „Símsmiðir sjá um allar við- gerðir í sambandi við bilaðar iínur, heimasímtæki og einfaldari gerðir af símtækjum við skipti- borð í fyrirtækjum. Rafeindavir- kjarnir sjá svo aftur um flóknari gerðir skiptiborða auk þess sem þeir sjá um símstöðvarnar. Símsmiðirnir tengja allar línur frá símstöðvunum í svokallaða götuskápa eða tengihús. Þaðan eru línurnar tengdar inn í hús- skápa og þaðan upp í íbúðir eða inn á skrifstofur. Annar flokkur símsmiða sér síðan um að línu- væða allt innanhúss, setja upp tengla, símsvai-a eða koma upp tengigrind í fyrirtækjum," segir Ingi Sverrir Gunnarsson símsmið- ur hjá Pósti og sima. Póst- og símamálastofnunin sér um að mennta verðandi símsmiði og er sú menntun fólgin í námskeiðum. Ingi Sverrir segir að símsmiðir séu á vöktum allan sólarhringinn í bilanadeildinni, 05. Aftur á móti séu aðrir á níu tíma vöktum, fái átta tíma í dagvinnu og einn fastan yfirvinnutíma. Þá sé mikið um að símsmiðir vinni yfirvinnu á kvöldin og um helgar, þar sem nánast öll símavinna í fyrirtækjum þurfi að fara fram utan hefðbundins skrifstofutíma. Hann segir að laun símsmiða séu mjög lá og að byijendur nái ekki verka- mannataxtanum. „Starfið er samt ágætt. Mikil hreyfing er á mönnum og þeir eru á mismunandi stöðum dag frá degi þó verkið sé í rauninni það sama.“ PETTA SÖGDU ÞAU ÞÁ . . . Vaknið borgaifulltrúar eir, sem samþykkja það, gjöri svo vel að gefa merki. Takk fyrir. Þeir, sern eru á móti? 18 atkvæði er það ekki? Það voru einhveijir sem voru sofnaðir. Jæja, þá förum við hérna í lið nr. 05-002 ... Magnús L. Sveinson stjórnaði atkvæðagreiðslu um fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar 7. febrúar 1985. Eg keypti mér bók um daginn sem hefur að geyma samsafn af klassískum bókmenntum, „Engl- ish Short Stories“, eftir ýmsa kunna höfunda. Þeirra á meðal eru Char- les Dickens, James Joyce og fleiri svona klassískir höfundar. Annars vel ég mér mjög blandað lesefni, helst menningarlegar skáldsögur. * Eg á flestar Bítlaplöturnar. Ég hlusta mikið á Bítlana, Meat Loaf og hljómsveitina Nýdönsk. U2 finnst mér góð líka. Annars hlusta ég á alls konar tónlist. Vinkona mín og ég vorum að horfa síðast á hryllingsmynd- ina „Poltergeist". Við vorum ekkert hræddar, fannst hún frekar góð. Hún er að vísu bönnuð innan 16 ára, en það er ekkert mál að fá svona myndir á leigunum. Við horf- um samt ekki mikið á svona mynd- ir. Grínmyndirnar eru í meira uppá- haldi. Jóhann Ró- bertsson sagnfræði- nemi Halla Þor- steinsdótt ir nemi EbenezerÞ. Ásgeirsson nemi Sagnfræðibækumar eru helst teknar upp þessa dagana. í frístundum les ég þó alls kyns efni. Ég er í kiljuklúbbi og var síðast að Iesa „Söngur villiandar- innar“ eftir Einar Kárason. Hljómsveitin„Síðan skein sól“ er góð. Líka Nýdönsk og Todmo- bile. Ég kaupi sjaldan plötur, fæ alltaf einhverjar í jólagjöf. Síðast horfði ég á „Spellbinder". Þetta er spennu- og hryllings- mynd og hafði ég mjög gaman af henni. Það er misjafnt hvernig myndir ég horfi á. Heima erum við með BETA-tæki svo að við getum ekki tekið venjuleg myndbönd á leigu, ég fer hinsvegar stundum til vinar míns til að horfa á myndband. A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.