Morgunblaðið - 21.02.1990, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1990
SIMI 18936
LAUGAVEGI 94
STRÍÐSÓGNIR
MICHAEL J. FOX OG SEAN PENN
í NÝJUSTU MYND BRIANS DePALMA
★ ★★ P.Á.DV. ★★★★ AI.MBL.
FYRIRLIÐI FÁMENNS HÓPS BA NDARÍSKRA HER-
MANNA TEKDR TIL SINNA RÁÐA ÞEGAR FÉLAGI
HANS ER DREPINN AF SKÆRULIÐUM VÍETKONG.
LEIKSTÓRI ER BRIAN DePALMA.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.05. — Bönnuð innan 16 ára.
MAGNÚS
Sýndkl.7.10.
7. sýningarmánuður.
SKOLLALEIKUR
Sýnd kl. 5,9og11.
FRUMSÝNIR:
BOÐBERIDAUÐANS
HÖRKU SAKAMÁLAMYND, ÞAR SEM BLAÐA-
MAÐUR, SEM ER AÐ KYNNA SÉR HROÐALEG
MORÐ Á MORMÓNAFJÖLSKYLDU, VERÐUR OF
ÞEFVÍS OG NEYÐIST TIL AÐ TAKA MÁLIÐ AL-
FARIÐ f SÍNAR HENDUR.
Leikstjóri: J. Lee Thompson.
Aðalhlutverk: Charles Bronson, Trish Van Devere,
Laurence Luckinbill, Daniel Benzau.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. — Bönnuð innan 16 ára.
INNAN
FJÖLSKYLDUNNAR
Sýnd kl. 5 og 7.
SVARTREGN
il I i wh ii
+ * ★ AI. Mhl.
Sýndkl. 9,11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
HEIMKOMAN
★ ★★ SV. Mbl.
Sýnd kl. 9 og 11.
PELLE SIGURVEGARI
★ ★★★ SV. MBL. — ★ ★ ★ ★ SV.MBL.
Sýnd í nokkra daga vegna fjölda áskoranna.
Sýnd kl. 5.
HÁSKÓLABIÓ HEFUR Nl) TEKIÐ í NOTKUN TVO
NÝ)A SALI, SEM ERU EINIR GLÆSILEGUSTU BÍÓSAL-
IR LANDSINS, MEÐ FULLKOMNASTA BÚNAÐl.
TRÖLLVAXH) FORELDRALÍKI
John Candy I hlutverki Buck frænda; Væmni frænka
ekki flarri.
Þrenning í hasarnum
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Buck frændi („Uncle
Buck“). Sýnd í Laugarás-
blói. Leikstjóri: John Hug-
hes. Aðalhlutverk: John
Candy.
Kjarninn í gelgjumyndum
John Hughes er alltaf sá
sami; fullorðnir og ungling-
ar búa hvorir á sinni pláne-
tunni heima hjá sér. Gamla
settið hefur engan skilning
á hormónatengdum þörfum
unglingsins og unglingurinn
lítur alltaf á foreldra sína
með sama skilningi og ef-
naúrgang. Eitthvað mjög
einfalt og í tilfelli Hughes-
verksmiðjunnar, eitthvað
sem hægt er að nota aftur
og aftur með saklausri gam-
ansemi í bland við síaukna
væmni.
I nýjustu mynd Hughes,
Buck frænda, leikur sá gildi
John Candy foreldralíki
bama bróður síns þegar
gamla settið verður að
bregða sér af bæ og það er
ekki að spyrja að því, ungl-
ingurinn á heimilinu leggur
þegar fæð á þetta nýja, risa-
vaxna foreldri í eldhúsinu.
Hughes þarf ekki einu
sinni að skýra það út nú
orðið hvers vegna ungling-
urinn á heimilinu er að
springa úr fýlu enda er yfir-
borðsmennskan slík að
mann varðar hvort sem er
ekki um það. Miklu
skemmtilegra að njóta hins
tröllvaxna Candys sem tekst
þó að halda athygli manns
og er orðinn einn af uppá-
haidsleikurum Hughes.
Mesta fyndnin er fengin
frá Candy í hlutverki Buck
frænda og hans verulega
subbulega stíl og ábyrgðar-
leysi í þversögn við væntan-
legt uppalandahlutverk og
Hughes gerir talsvert úr því
í þyijun en svo koðnar það
niður einhvers staðar í
myndinni og allir fá gull-
hjarta og faðmlög áður en
lýkur og Væmni frænka
veður út um allt.
Hughes hefur gert góða
hluti í mörgum myndum
unglingageirans en nú virð-
ist hann bara gera margar
myndir.
Boðberi dauðans („Mess-
enger of Death“). Sýnd í
Háskólabíói. Leikstjóri: J.
Lee Thompson. Aðalhlut-
verk: Charles Bronson.
Áfram heldur B-hasar
þrenningin Charles Bron-
son, J. Lee Thompson og
Cannon-grúppan að gera
niðursuðuvörur fyrir bíóin
sem þau geta gripið til á
milli stórréttanna og aldrei
breytist innihaldið.
Boðberi dauðans er hátt
í tíunda myndin frá þrenn-
-ingunni á nokkrum árum og
hér eru bætiefnin útí ofsoð-
inn réttinn öll þau sömu og
áður; hryll.ilegur ofbeldis-
verknaður, í byijun skot-
bardagar með regluleg-u
millibili, bílaeltingaleikir,
B-leikur og handrit sem
mjög erfitt er að fá botn í
ef maður á annað borð kær-
ir sig um hann.
Þrenningin er búin að
gera svo margar myndir
saman að maður er löngu
hættur að brosa út í annað
heldur tekur maður þær orð-
ið eins og einhveiju sem
óbærilegt væri að sjá oftar
en einu sinni á ári.
Gleðitíðindin fyrir þá sem
gaman hafa af þessum
myndum á einhvern furðu-
legan hátt - þær bjóða auð-
vitað uppá ódýrustu gerð
af veruleikaflótta - eru þær
að Bronson er hættur að
eldast. Hann varð gamall
einhvemtímann um miðbik
áttunda áratugarins og hef-
ur ekkert breyst síðan. Þessi
stórstjarna sjöunda og átt-
unda áratugarins hefur
fundið sér framhaldslíf í
B-hasamum á níunda ára-
tugnum og þú getur gengið
að honum vísum þar hvenær
sem er.
I i( ■ < M
SfMI 11384 - SNORRABRAUT 37
anægju"
ELLE
■ ÞÝSKALAND ,
’ „Grínmynd j
ársins"
VOLKSBLATT BERLIN
BRETLAND
„Hlýjasta og
sniðugasta
grínmyndin
í fleiri ár"
SUNDAT TELEGRAM
ASTRALIA:
Meiriháttar
grínmynd"
SUNDAY HERALD
FRAKKLAND:
„Tveir tímar
af hreinni
FRUMSÝNIR GRÍNMYND ÁRSINS:
ÞEGAR HARRY HITTISALLY
★ ★★y2 SV. MBL. — ★ ★ ★1/2 SV.MBL. ■
„WHEN HARRY MET SAELY" ER TOPPGRlN- ■
MYND, SEM DÝRKUÐ ER UM ALLAN HEIM í ■
DAG, ENDA ER HÉR Á FERÐINNI MYND, SEM ■
SLEGIÐ HEFUR ÖLL AÐSÓKNARMET, M.A. VAR ■
HÚN f FYRSTA SÆTI1 LONDON í 5 VIKUR. ÞAU ■
BILLY CRYSTAL OG MEG RYAN SÝNA HÉR "
ÓTRÚLEGA GÓÐA TAKTA OG ERU í SANN- ■
KÖLLUÐU BANASTUÐI.
„WHEN HARRY MET SALLY"
GRÍNMYND ÁRSINS 1990! B
Aðalhlutverk: Billy Crystal, Meg Ryan, Carrie a
Fisher, Bruno Kirby. — Leikstjóri: Rob Reiner. n
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
BEKKJARFÉLAGIÐ
DEAD
POETS
SÖCIETY
★ ★★★ AI Mbl. - ★★★★ AI Mbl.
★ ★★y2 HK. DV. - ★★★y2 HK. DV.
Sýnd kl. 5,7.30 og10.
★ ★★ ★ L.A.DN.
Sýnd kl. 9og11.
★ ★★ P.A.DV.
Sýnd kl. 5 og 7.
Músíktilraunir
’90 í aprflmánuði
MÚSÍKTILRAUNIR ’90 verða í félagsmiðstöðinni
Tónabæ í apríl. Músíktilraunir eru orðinn árlegur við-
burður í tónlistarlífinu og eru nú haldnar í áttunda sinn.
í frétt frá Tónabæ kemur
fram að Músíktilraunir eru
hugsaðar sem tækifæri fyrir
unga tónlistarmenn til að
koma á framfæri frumsömdu
efni sínu. Þær eru opnar
hljómsveitum alls staðar að
af landinu.
Músíktilraunir verða á
fimmtudagskvöldum í apríl.
Fyrsta tilraunakvöldið verð-
ur 5. apríl, annað þann 19.
apríl og það þriðja 26. apríl.
Úrslitakvöldið verður síðan
föstudaginn 27. apríl. Á
hveiju tilraunakvöldi koma
fram 5-7 hljómsveitir sem
hver flytur fjögur frumsamin
lög. Áhorfendur gefa hljóm-
sveitunum stig fyrir hvert
lag. Tvær stigahæstu sveit-
irnar af hveiju tilraunakvöldi
keppa til úrslita. Á úrslita-
kvöldinu verður sigurvegar-
inn valinn af áhorfendum og
dómnefnd. Auk þátttöku-
hljóms.veitanna koma fjórar
þekktar hljómsveitir fram á
þessum kvöldum.
Skráning á Músíktilraunir
’90 er hafin í Tónabæ og
stendur til 1. apríl.