Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 3
Hjjvrssu sjAlítttyfciMulxki, llufftftm.fciotöw; ke)i'l fttptcíilii iil Akurcvf ar.óörrt lc^ «ði» bfiítóV. mcil Vlb/VUl'RíXARI) C.\. lunkrtom Flcui /il4flJ!4Via»VMMUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 FLUGLEIDIR OFAROGOFARS’ NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • MARS 1990 „Hótel Loftleiðir góðan dag... og góða nótt“ Hótel Loftleiðir geta sannar- lega boðið gestum góðan dag og góða nótt eftir fyrsta áfanga í endurbyggingu hótelsins. Lónið, nýr og glæsilegur matsalur á fyrstu hæð, endurbætt ráðstefnu- þjónusta og síðast en ekki síst algjör endurnýjun hótelherbergja gera Hótel Loftleiðir óviðjafnanlegan dvalar- og vinnustað fyrir þá sem eiga erindum að sinna í höfuð- borginni. Þegar að því kom að endurnýja hótelið vissum við að ekki þýddi neina hálfvelgju. Við hreinsuðum því út allar innréttingar, baðtæki, flísar, teppi og gluggatjöld og innréttuðum síðan allt frá grunni eftir kröfum sem gerðar eru til nútímahótela. Á Hótel Loftleiðum eru 218 herbergi. Hluti þeirra hafði þegar verið endur- nýjaður. í janúar og febrúar endurbyggðum við svo 150 herbergi á innan við tveimur mánuðum. Við bjóðum öllum gestum góðan dag ... og góða nótt á endurnýjuðu Hótel Loftleiðum. Vor í París Flugleiðir ljúka upp borgar- hliðum Parísar þegar flug hefst þangað í apríl. Nú gefst öllum tækifæri til að láta drauminn um rómantíska vordaga á Signubökk- um rætast. Flugleiðir bjóða flug og bíl, eða flug og hótel á hagstæðu pakkaverði. Fyrsta mánuðinn verður flogið þangað tvisvar í viku um Frankfurt, á miðvikudögum og sunnudögum, en 5 sinnum í viku beint í júní, júlí og ágúst. Með beinu flugi færa Flugleiðir Champs Elysées breiðgötuna, Louvre safnið, Notre Dame kirkjuna, Rive gauche eða vinstri Signubakka, Eiffelturninn, Pigalle næturlífshverfið, Moulin Rouge næturklúbbinn og hundruð veitingastaða, safna, leikhúsa og götukaffihúsa heim í hlað. Hótelgisting í París er ódýr, maturinn óviðjafanlegur og tískuverslanir á hverju strái. Þetta þarf ekki mikillar umhugsunar við. Allir eiga Parísarferð inni hjá sjálfum sér vegna þess að París er alveg einstök. Bon voyage! fyrirtækja og banka og sér um að taka þar út rétta upphæð. Hann getur að auki gefið upplýsingar um leiðakerfi Flugleiða. Flugfinnur er miðasali og vinnur ekki í tengslum við bókunarkerfi Flugleiða. Farþegar bóka því eftir sem áður miða hjá farskrá innanlandsflugs. Þegar frammi sækir er gert ráð fyrir að Flugfinnur taki að sér sölu miða til fleiri staða og þá er heldur ekki útilokað að hann eignist bræður á einhverjum viðkomu- stöðum Flugleiða úti á landi. Flugleiðir bjóða Samvinnuferðir- Landsýn, Úrval-Útsýn, Ferðaskrifstofuna Sögu og Ferðaskrifstofu Reykjavíkur velkomnar um borð Farþegar á leið til Akureyrar, sem hafa greiðslukort og bankakort tengd tékkareikningi, geta nú átt viðskipti við nýjasta liðsmann Flugleiða á Reykja- víkurflugvelli, greiðslukorta- sjálfsalann Flugfinn. Flugfinni er ætlað að stytta biðraðir sem verða stundum við farmiðasölu á vellinum. Greiðslu- og bankakortshafar geta þá skundað beint á fund hans þar, stungið í hann kortum sínum og slegið inn leyninúmer greiðslukorts eða bankakorts. Flugfinnur er tengdur beint við tölvur greiðslukorta- Þessar ferðaskrifstofur treysta Flugleiðum fyrir farþegum sínum á leið í frí til Palma, Malaga, Benidorm, Algarve og Rimini. Við erum auðvitað upp með okkur og ákveðin í að bjóða farþegum fyrirtaksþjónustu. Við vitum nefnilega að notaleg flugferð út og ánægjuleg heimferð, með traustu íslensku flugfélagi, íslenskum flugfreyjum og íslenskum flugmönnum, gerir gott frí miklu betra. Þess vegna bjóðum við tugum þúsunda farþega Samvinnuferða Landsýnar, Urvals-Útsýnar, Sögu og Ferðaskrifstofu Reykjavíkur velkomna um borð í nýju Boeing 737-400 flugvélarnar á leið í fríið í ár. Farþegar í leiguflugi og áætlunar- flugi Flugleiða geta haft samband við félagið eða ferðaskrifstofurnar og fengið sendan heim Saga Boutiqe sölubæklinginn þar sem er yfirlit yfir vöruúrval og verð um borð í Flugleiðavélunum. Tölvustýrð símaþjónusta þetta ekkert mál og jafnvel dálítið þægilegt að fá að fjarstýra Flugleiðatölvunni með því að styðja á takkana heima. Tölvan er sett á símann til að flýta svörun. 690 200 er númer sem margir vilja komast í samband við. Flugleiðir fluttu yfir 260 þúsund farþega í innanlandsflugi í fyrra. Þeir þurfa allir að ná sambandi við innanlandsdeildina bg langflestir hér í Reykjavík. 690 200 ... hringir ... „Flugleiðir innanlandsflug. Góðan dag ...“ „Bíddu nú við. Það var 1 fyrir bókanir og 2 fyrir upplýsingar ... ekkert mál“. 690 200 ami hringir „Fiugleiðir innanlandsflug. Góðan dag. Þetta er sjálvirk símsvörun“ ... segir þægileg kvenmannsrödd. „Já, góðan dag“ svarar maður j" tölvunni ósjálfrátt og pínulítið * óöruggur með sig. Hún heldur ótrauð áfram og bendir á að hafi sá sem hringdi tónvalssíma, sem er víst bara takkasími, skuli hann styðja á töluna 1 fyrir bókanir eða 2 fyrir upplýsingar. „Ég er bara með gamaldags skífu", segir maður óðamála þegar tölvan dregur andann. Hún hefur svar á reiðum höndum og gefur þeim, sem bregðast ekki við áskorun um að ýta á 1 eða 2, samband við skiptiborð. Þetta er dálítið skrítin tilfinning svona fyrst. Eftir tvö til þrjú skipti er Lúxussigling á lygilegu verði Auðvitað er ljúft að láta sig dreyma, en hafi þig dreymt um skemmtisiglingu á lúxusskipi og heimsókn til höfuðborga Svíþjóðar og Finnlands í vor er kominn tími til að vakna og láta drauminn rætast. Fyrir 27.300 krónur fljúgum við með þig til Stokkhólms þar sem þú ferð um borð í eitt af glæsiskipum Viking Line skipafélagsins á leið til Helsinki. Um borð er allt sem hugurinn gimist á skemmtisiglingu, næturklúbbur, 5 veitingastaðir, spilavíti, fríhöfn og sundiaug. Vilji menn blanda saman vinnu og skemmtun er hægt að bóka ráðstefnu- og fundarsali af öllum stærðum. í Helsinki er gist eina nót á góðu hóteli og síðan haldið til Stokkhólms með Viking Line. Auðvitað er hægt að halda áfram ai láta sig dreyma, en svona tækifæri ti að breyta draumi í vemleika bjóðast ekki á hverjum degi. JtÉwdÚvm1 FLUGfi R N N : m FARMIÐASALI SNJALLI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.