Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 31 Grein og myndir: Kristinn Benediktsson ur á firði með fullfermi af loðnu sem fékkst út af Stafnnesinu. Undan- farna daga hafði verið lögð aðal- áhersla á að ná sem mestu í fryst- ingu og höfðu Háberg GK og Sunnuberg GK skipst á að koma með slatta til Grindavíkur þar sem loðnunni var landað á vörubíla og ekið í öll frystihús á Suðurnesjum og allt til Reykjavíkur. „Þetta er harður slagur. Japanir eru svo duttlungafullir. Einn vill vinna loðnu sem annar eftirlitsmað- ur vill ekki sjá. Sumir sjá átu þar sem aðrir sjá enga í sömu loðnu svo það er erfitt að gera þeim til hæf- is. Við höfum ekki heyrt hvernig nýtingin er hjá okkur en hún má ekki fara niður fyrir 20%,“ segir Sveinn. Eftir tvö köst á torfu sem Sveinn fann skammt frá aðaltorfunni er báturinn orðinn vel siginn og senni- lega vantar aðeins 50 tonn til að fylla. Fyrra kastið reyndist um 350 tonn og það seinna um 250 tonn en alls getur hann borið 650 tonn. „Nú á að fylla því búið er að loka á frystinguna," segir Sveinn og sigl- um við annað hvort til Vopnaijarðar eða Raufarhafnar með aflann í bræðslu til að verksmiðjan í Grindavík geti unnið upp áður en byrjað verður að taka á móti til hrognafrystingar. Nú hafa Sunnuberg GK og ísleif- ur VE bæst í hópinn og er allur flotinn að snúast á smábletti. Sann- arlega þröng á þingi. Nú á að kasta aftur og freista þess að fá lítið kast til að fylla. Torfan stendur á 28 föðmum. „Lago,“ æpir karlinn og Snorri öskrar skipunina út um gluggann. Kastháfurinn fer ekki aftur af. Strákarnir baksa við að lyfta honum út fyrir lunninguna og koma honum fyrir borð. Karlinn blótar ferlega í brúnni. Nótin rennur loks aftur af. Dýr- mætt andartak er farið forgörðum svo kastið misheppnast. Sveinn er þó að vona að torfan sé enn undir og kastið lukkist. Snorri fylgist með sökkmælinum. „Hvernig sekkur?“ spyr Sveinn. „Sekkur hægt,“ svarar Snorri. „Uss, Uss,“ segir þá Sveinn og hallar sér út um brúargluggann og kallar fram á að slaka vírnum. „Heyrðu, nú er eitthvað að koma undir alveg upp við bát,“ segir Sveinn við einn skipstjórann í tal- stöðinni. „Hún er að synda inn hjá þér,“ svarar hinn. ísleifur VE rennir sér fyrir aftan okkur og kastar. „Helvíti, við getum ekki treyst þessu. Þetta er gras,“ segir Sveinn við Snorra. „Við hljótum að fá 50 tonn þó við látum rétt sökkva," segir Sveinn. „Ég held að það sé einhver punktur inni í nótinni," bætir hann við. Sunnubergið GK er að dæla 300 tonnum skammt frá okkur. Bátarn- ir eru margir orðnir vel signir. Víkurbergið GK hringsólar nú um flotann og segir Reynir skipstjóri að besta lóðningin sé á milli Há- bergs GK og ísleifs VE. Nu er snurpað en nótin reynist tóm. Sveinn krossbölvar og segir Snorra að gera klárt fyrir enn eitt kast. „Það eru ekki alltaf jólin,“ segir hann. Guðmundur VE náði ekki heldur að fylla. „Víkingur-IIilmir," er nú kallað í talstöðina. „Hvar eru skipin að fiska í dag,“ kallar skipstjórinn á Víkingi. „Það er nú misjafnt fiskiríið," er svarað, „en flotinn er hér út af Reykjanesi. Þú ferð ekki framhjá honum án þess að verða hans var.“ Loðnuslagurinn heldur áfram. Hábergið GK fyllti sig í næsta kasti og gaf Guðmundi VE það sem eftir var í nótinni, um eitt hundrað tonn, og nægði það til að fylla hjá honum. Þeir þökkuðu pent fyrir sig og þar með kvöddu bæði skipin flotann og settu á fulla ferð austur á land. - Kr.Ben. - -------------------------------------- Jóhann H.Ellerts- son - Mhmíngarorð Fæddur 4. júlí 1960 Dáinn 22. janúar 1990 Elskulegur bróðir okkar, Jóhann Halldór Ellertsson, lést í Washing- ton DC 22. janúar 1990, aðeins 29 ára að aldri, eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. A stuttum lífsferli okkar systkina í föðurhúsum er okkur ljúft að minnast hans, sérstaklega vegna blíðu hans og hins sérstaka lundar- fars, ávallt jákvæður, greiðvikinn og hjálpsamur. Hið jákvæða hugarfar hans verð- ur okkur ávallt að leiðarljósi í lífi okkar og minning okkar um hann mun lifa í huga okkar. Við unnum honum svo mjög og þess vegna er söknuðurinn svo mikill en við vitum að hann er í góðum höndum Al- mættisins og að leiðarlokum biðjum við honum Guðs blessunar. Guðjón, Hulda, Elli og Leifur. Kallið er komið, komin er nú stundin. (V. Briem) Elskulegur mágur minn, Jóhann Halldór Ellertsson, lést 22. janúar 1990 í Bandaríkjunum, tæplega þrítugur. Hver hefði trúað að hann yrði næstur? Ungur maður, sem horfði fram á veginn með bjartar vonir í farteskinu, hrifinn á brott. Það sem einmitt einkenndi Jóhann heitinn var bjartsýni, lífsgleði og sú gáfa að fá aðra til að hrífast með. Elsku Jan, Þórhildur, Erlingur og systkini. Missir ykkar er mikill og sorgin stór en mihningin um góðan dreng mun varða lífsleið ykkar alla. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Kata Hinn 22. janúar sl. barst okkur sú harmafregn frá Bandaríkjunum að sonur góðvina okkar hjóna, Jó- hann Halldór Ellertsson, hefði látist þá um nóttina. Fregnin kom þó ekki alveg á óvart, þar sem Jóhann hafði verið lagður inn á sjúkrahús í byijun jan- úar mjög sjúkur. Þrátt fyrir það er erfítt að trúa og sætta sig við að 29 ára gamall maður skuli hrifsaður í burtu í blóma lífsins „en þeir sem guðirnir elska, deyja ungir“. Jóhann fæddist 4. júlí 1960 í Washington DC í Bandaríkjunum, sonur þeirra heiðurshjóna Þórhildar Guðjónsdóttur Ellertsson og Erlings Ellertssonar, sem fjölmargir íslend- ingar munu þekkja, enda fræg fyr- ir gestrisni og höfðingsskap og heimili þeirra í Woodbridge oft kall- að hótél ísland á meðal kunningj- anna. Jóhann var næst yngstur fimm systkina og ólst því upp í stórum og glaðværum hópi og oft hefur líklega ýmislegt gengið á, en þá greip mamma bara inniskóinn sinn og allt datt í dúna logn. Öll voru þau systkinin alin upp við það að ganga úr rúmi ef marga gesti bar að garði og þótti þeim það jafn sjálf- sagður hlutur og borða matinn sinn. Jóhann var einstaklega glaðvær og hláturmildur piltur og hvers manns hugljúfi er honum kynntist. Jóhann bar mjög sterkar taugar til íslands enda hafði hann oft komið til íslands og var tvö sumur í sveit í Þykkvabæ 3 í Landbroti. Sýnir það best hug Jóhanns til þeirrar dvalar að ein hinsta ósk hans var þegar hann vissi að hveiju stefndi að ösku hans yrði dreift yfir Land- brot. 10. maí 1986 kvæntist Jóhann eftirlifandi konu sinni, Jan A. De- Bruhl. Hún kom tvisvar sinnum með Jóhanni til íslands og tel ég mér óhætt að fullyrða að hún hafi hrifið alla ættingja og vini Jóhanns með framkomu sinni og glæsileik. Hún hafði mikinn hug á að koma oftar til íslands og höfðu þau hjón- in ákveðið að koma 30. mars nk. og fest kaup á farseðlum. Mennirn- ir ákveða en guð ræður. Ég vil að lokum biðja guð að styrkja ykkur, Jan mín, Þórhildur, Erlingur og systkini í þessari miklu sorg en vona þó að .minningin um þennan góða dreng megi vera hugg- un harmi gegn. Eg, kona mín og börn, sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur yfir hafið. Blessuð veri minning Jóhanns Halldórs. Ólafur Thordersen Jóhann Halldór Ellertsson fædd- ist í Washington DC í Bandaríkjun- um hátíðardaginn 4. júlí 1960 og lést í Washington DC 22. janúar 1990. Var hann næstyngstur 5 systkina, sonur hjónanna Þórhildar Guðjónsdóttur og Erlings Ellerts- sonar. Foreldrar Þórhildar voru hjónin Hulda Petersen, fædd í Keflavík og eiginmaður hennar var Guðjón M. Guðjónsson, rakara- meistari þar. Foreldrar Erlings voru hjónin Guðleif Sveinsdóttir og Ell- ert Helgason, sonur Helga Arna- sonar sem kenndur var við Safna- húsið í Reykjavík. Þórhildur og Erlingur fluttust búferlum til Bandaríkjanna árið 1956 ásamt 2 börnum sínum, Guð- jóni og Huldu, sem bæði fæddust á íslandi. Jóhann ólst upp í föðurhúsum í Woodbridge í Virginíufylki sem er byggðarlag í úthverfi Washington DC og var hann aðeins 29 ára gam- all er kallið kom. Naut hann ástúð- ar á heimili sínu ásamt systkinum sínum. Var hann skírður þessum íslensku nöfnum sínum í höfuð tveggja frænda sinna, Jóhanns Pet- ersen og séra Halldórs Johnson, en hann var prestur íslendinga í Vest- urheimi. Kom hann til íslands árið 1949 og fórst með mb. Helga á Faxaskeri við Vestmannaeyjar í janúar 1951. Þrátt fyrir ijarlægð heimsálfanna kynntist ég Jóhanni mjög vel bæði sem barni, unglingi og fullorðnum manni. Það sem mér er minnisstæð- ast um þennan unga mann var hans jákvæða hugarfar, sífellt glað- lyndi og óhemju mikil greiðvikni. Minnist ég ekki nokkum tímann að hafa séð Jóhann nema með bros á vör. Erlingur, faðir Jóhanns, hóf snemma atvinnurekstur í sambandi við viðhald fasteigna og hafði oft marga menn í vinnu sem og út- heimti vissan bílakost. Kom fljót- lega í ljós áhugi Jóhanns og sérstök lagni við viðgerðir á hinum mjög svo flóknu farartækjum, og má ör- ugglega segja að Erlingur hafi ekki þurft að kosta miklum fjármunum í bifreiðaviðhald eftir að Jóhann kom þar við. Að loknu gagnfræða- námi í Woodbridge Senior High School 1979 hóf Jóhann nám við Nashville Diesel College, í hinni frægu borg Nashville, Tennessee og útskrifaðist þaðan 1980. Þó svo að bifvélavirkjun ætti allan hug Jóhanns um tíma sneri hann sér að þeirri atvinnugrein sem hann hafði lært hjá föður sínum, húsa- málun og viðhald fasteigna og rak sitt eigið fyrirtæki í þeirri grein til dauðadags. Jóhann kom oft með foreldrum sínum til „fóstuijarðarinnar“ en svo var Island í hans huga þátt fyrir hans bandaríska ríkisfangs. Undir- rituðum er ljúft að minnast þess og bera ábyrgð á því að koma hon- um í sveit á íslandi og dvaldist hann tvisvar sinnum á heimili hjón- anna Helgu og Jóns Skúlasonar í Þykkvabæ III í Landbroti í Vestur- Skaftafellssýslu. Var þetta mik^ lífsreynsla fyrir ungan pilt sem fæddur var og uppalinn í framandi landi með litla íslenskukunnáttu i byrjun. Var mér sagt að hann hefði farið létt með viðræður við heima- fólk þótt enginn mælti þar á enska tungu. Þegar Jóhann var kominn á spítala og búið var að tjá honum um hinn banvæna sjúkdóm er hann hafði, sagði hann mér að hann væri staðráðinn að heimsækja fóst- uijörðina að vori og spurði hvort ég væri ekki reiðubúinn að lána honum farkost til þess að heim- sækja vini sína í Þykkvabæ III. Var þetta síðasta samtal okkar í lífi hans. Jóhann kvæntist eftirlifandi konu- sinni Jan DeBruhl, listakonu, 10. maí 1986. Komu þau tvisvar til ís- lands og veit ég að Jan hreifst mjög af hinni íslensku náttúrufegu.rð sem hún hefur málað. Tóku þau mikinn og virkan þátt í félagsstarfi íslend- ingafélagsins í Washington DC, þar sem Jan er í stjórn. Jafnframt hef- ur Jan teiknað hið íslenska skjaldar- merki samtvinnað með ameríska fánanum sem er verðugt tákn sam- vinnu íslendinga og Bandaríkja- manna í samfélagi þeirra þar. *. Að leiðarlokum vil ég og fjöl- skylda mín þakka Jóhanni sam- fylgdina og biðja honum Guðs bless- unar um leið og við vottum ekkju hans, foreldrum, tengdaforeldrum og systkinum okkar dýpstu samúð. Júlíus P. Guðjónsson Hinsta kveðja til ástkærs sonar Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þirín náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) Mamma og pabbi. Ingibjörg Krístjáns- dóttir - Minning Fædd 28. júní 1898 Dáin 26. febrú.ar 1990 Þegar minnst skal látins sam- ferðamanns, sem verið hefur hluti af lífshlaupi manns langa hríð, verð- ur stundum orða vant. Ingibjörg Kristjánsdóttir er látin, aldin að árum og södd lífdaga. Hún fæddist að Hvalskeri í Patreksfjarðarhreppi árið 1898 þann 28. júní, næstyngst fimm barna hjónanna Kristjáns Bjömsson- ar og Bergljótar Sigurðardóttur. Kristjáni, föður sínum, mundi Inga ekki eftir nema sem sjúklingi, en hann dó á besta aldri. Bergljót, móð- ir hennar, hlaut því að stýra búi þeirra sem hún og gerði af hinum mesta skörungsskap. Þegar Bergljót brá brúi fluttist hún með börnum sínum til Reykjavíkur, þeim Valde- mar, Sigríði, Marteini og Ingu, eins og hún jafnan var kölluð, en Magnús soour hennar hafði þá þegar hafið búskap vestra. Valdemar dó ungur en Bergljót bjó með börnum sínum þremur langa hríð en þegar Marteinn kvæntist bjuggu þær mæðgur sam- an. Hjá þeim mæðgum ólst upp ein af dætrum Magnúsar, Hlín, sem gift- ist Sveini Jónssyni, skrifstofumanni, ættuðum úr Onundarfirði. Dætrum Hlínar og Sveins og síðar börnum þeirra, reyndist Inga alltaf sem besta amma. Þær systur, Sigríður og Inga, giftust ekki en bjuggu saman meðan báðar lifðu en Sigríður lést árið 1967. Inga vann öll algeng störf, var þátt- takandi í síldarævintýrinu mikla á Siglufirði, vann lengi hjá Sláturfélagi Suðurlands og við fiskverkun. Ég kynntist Ingu fyrst árið 1962 þegar við Bergljót, elsta dóttir Hlínar og Sveins, gengum í hjúskap. Oft dvaldi hún langdvölum á heimili okk- ar í Borgarfirði og síðar á ísafirði. Hún var afar hreinskiptin kona og mátti margt af henni læra. Bernsku- minningar sona okkar allra tengjast mjög þessari konu. Alltaf varð hún að vera að gefa, aldrei söfnuðust henni svo fjármunir að hún verði þeim ekki til þess að gleðja aðra. Hún skuldaði aldrei neinum neitt og ég held að hún hafi aldrei tekið neitt lán. Mér opnaði hún innsýn í það líf sem lifað var í byijun þessarar ald- ar. Lengst af var Inga heilsuhraust, og vann meðan hún hafði þrek tii, en að vinnudegi loknum settist hún að á Dalbraut 27, þar til hún var orðin svo sjúk að hún var flutt að Skjóli, þar sem hún andaðist 26. febr- úar sl. eftir miklar þrautir. Á báðum þessum stöðum naut hún hinnar bestu aðhlynningar sem vert er að þakka hér. Hin langa þrautarganga er nú lið- in, eftir lifir minningin um kær- leiksríka konu, heiðvirða og dreng- lundaða. Þá minningu blessum við sem eftir stöndum á ströndinni hérna megin. Kjartan Sigurjónsson Ekkert mannshjarta er svo sterkt að eitt sinn hætti það ekki að slá, engin vegferð svo löng að sá dagur renni ekki upp að henni ljúki. Hún Inga vinkona mín hóf göngu sína hér í heimi vestur í Patreksfirði í lok síðustu aldar og þar sleit hún fyrstu skónum sínum. Þaðan átti hún margar sínar fegurstu minningar en jafnframt þær sárustu. Þá sögu þekki ég ekki nema af örstuttum frásögnum hennar um þessa tíma, oftast skotið inn í annað rabb og vangaveltur um tilveruna. Leið Ingu lá ungrar ti! höfuð- borgarinnar, þar sem hún ól aldur sinn lengst af síðan. Erfiðisvinnan varð hlutskipti hennar í þessum stað. Árum saman flakaði hún og bein- skar fisk til útflutnings og lagði þannig með verkum sínum grunn að því vellauðuga samfélagi sem við búum í núna, án þess að bera mikið úr býtum sjálf. Því að veraldlegur auður safnaðist Ingu aldrei og iðu- lega var hún á hrakhólum með hús- næði. Efnaleg fátækt Ingu var að miklu leyti naumum launakjörum daglaunakonunnar að kenna, en hitt hygg ég þó ekki síður hafa verið ástæðuna að Inga var ósínk á aur- ana við þá sem henni voru kærir, og gjafir hennar oft stórtækari en efnin hefðu leyft eigingjarnari huga. Því að hjartað hennar Ingu sló fyrir aðra, einkum þó Hlín frænd- konu hennar Magnúsdóttur og af- komendur hennar. Þeim gaf hún ást sína og umhyggju eftir fremsta megni. Nú er þetta hjarta hætt að slá og Inga hefur stigið sín hinstu spor meðal okkar. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti í garð Ingu fyrir ómetanleg kynni og vin- áttu. Áldrei man ég eftir því að ég bæri svo upp við hana erindi að hún yrði ekki við því. Hafí forsjónin heila þökk fyrir að láta leiðir okkar sker- Trausti Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.