Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 90 kr. eintakið. Samvmnuhreyfing á krossgötum Samvinnuhreyfingin á í vök að veijast. í Reykjavík hefur Kaupfélag Reykjavíkur og ná- grennis, sem er fjölmennasta kaup- félag landsins, lagt niður allan rekstur og verslanir þess og Mikli- garður hf. sameinaðar í hlutafélag. Undanfarin ár hafa verið KRON, öðrum kaupfélögum og Sambandi íslenskra samvinnufélaga, erfið. I gær var greint frá því hér í Morg- unblaðinu, að Sambandið hefði tapað verulegum fjármunum á síðasta ári til viðbótar við töp fyrri ára. Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri KRON, lýsti því yfir í viðtali við viðskiptablað Morgunblaðsins, að breytingarnar í Reykjavík gætu orðið fyrirmynd að breytingum hjá öðrum kaupfélögum. „Við hér telj- um ... að hlutafélagaformið bjóði upp á mjög marga kosti umfram samvinnufélagsformið, — að það sé orðið á ýmsan hátt miklu hag- stæðara rekstrarform," sagði Þröstur Ólafsson: „Hafí samvinnu- félagsformið einhvem tíma verið hagstæðara, þá er það löngu liðin tíð. Samvinnufélög eiga mjög erfítt með að taka þátt í mjög harðri samkeppni, sem krefst mikils fjár- magns, þar sem þau hafa enga möguleika á að skírskota til eig- enda um fjármagn, ef illa gengur eða þegar takast þarf á við ný verkefni." KRON hefur stigið skrefíð til fulls og forvitnilegt verður að fylgj- ast með hvort önnur kaupfélög og Sambandið feta í þau fótspor. „Það kæmi mér ekki á óvart þó Sam- bandið reyni að stokka upp spilin svipað og við erum að gera,“ sagði Þröstur Ólafsson í áðurnefndu við- tali. Erlendur Einarsson, fyrrver- andi forstjóri Sambandsins, ritar grein í Morgunblaðið síðastliðinn fimmtudag þar sem hann bendir á, að nú sé Reykjavík eina höfuð- borg Norðurlandanna þar sem kaupfélag rekur ekki verslunar- starfsemi og segir: „Mér fannst þetta alvarlegt skipbrot í sam- vinnuhreyfíngunni, og lái mér hver sem vill.“ Erlendur Einarsson benti á, að andúðin á hlutafélagsforminu eigi sér langan aldur í samvinnuhreyf- ingunni, „kannski lengur fyrir þá sök að samvinnuhreyfíngin hefur verið sein að átta sig á þjóðfélags- breytingunum". Það hefur lengi verið öllum ljóst sem vildu sjá, að samvinnuhreyf- ingin getur ekki starfað áfram með óbreyttum hætti. Forystumönnum hennar hefur ekki tekist að laga fyrirtæki sín að breyttum aðstæð- um eins og Erlendur bendir á. Þeir tímar eru liðnir, þegar eigin- fjármyndun fyrirtækja átti sér ekki síst stað með verðbólgugróða. Samvinnuhreyfíngin verður eins og önnur fyrirtæki að leita nýrra leiða. Hlutafélagsformið þarf auðvitað ekki að henta öllum fyrir- tækjum og hugmyndir Erlends Einarssonar um að samvinnufélög- um verði heimilt að gefa út sérstök samvinnuhlutabréf eru leið sem gæti gert þeim kleift að afla eigin fjár. Þessi hugmynd er ekki fast- mótuð, en gera má ráð fyrir, að þessi bréf yrðu skráð á hlutabréfa- markaði og gengju kaupum og sölum eins og venjuleg hlutabréf. Forsenda þess, að þetta geti tekist er að sparifjáreigendur og aðrir sem vilja ávaxta fé sitt í atvinnulíf- inu hafí trú og beri traust til við- komandi fyrirtækis. Afkoma Sam- bandsins er langt frá því að vera með þeim hætti, að almenningur eða önnur fyrirtæki séu líkleg til að leggja fjármuni í kaup á sam- vinnuhlutabréfum. Þær skipulags- breytingar, sem átt hafa sér stað innan Sambandsins hafa ekki skil- að þeim árangri, sem að var stefnt og það vekur upp spurningar um hvort forráðamenn þess ráða við þau verkefni, sem þeir hafa tekið að sér. Það er nauðsynlegt, að forystu- menn samvinnuhreyfíngarinnar geri opinskátt grein fyrir stöðunni, því það eru of margir einstaklingar og fjölskyldur sem eiga allt sitt undir því að samvinnufyrirtækin haldi áfram starfsemi. Það er ekki keppikefli fyrir neinn, að sam- vinnuhreyfíngin leggi upp laupana. Alveg eins og það er íslendingum nauðsynlegt að gera atvinnulífið sem fjölbreytilegast er það best, að eignarform fyrirtækja sé með sem margbreytilegustum hætti þar sem allir sitja við sama borð, ólíkt því sem var á haftaárunum. Nauðvörn ví verður ekki mælt á móti, að margt láglaunafólk býr við kröpp kjör, svo kröpp að erfitt er að skilja hvernig það hefur í sig og á. Síðustu kjarasamningar voru nauðvöm þeirra sem búa við lök- ust kjör. Eyjólfur Konráð Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í grein hér í blaðinu í gær, að samningarnir hafi þótt illskárri en allsherjaratvinnuleysi og „þjóð- argjaldþrot". Eyjólfur Konráð Jónsson segir einnig: „Alþingi samþykkti ein- róma stjómarfrumvarp um minni háttar tilhliðrun í ríkiskassanum vegna kjarasamninganna. Þetta var þó hvorki fugl né fiskur. En „efni“ ríkisins voru ekki meiri en þessi. Þó er það á degi hveijum að sölsa til sín aukið fjármálavald á kostnað einstaklinga og atvinnu- vega. Það er þess vegna ekki ríkis- stjóminni að þakka, ef kjarasamn- ingamir halda. Þó ber að vona það, því að líklega er þetta skásta nauðvörnin meðan við búum við óbreytta skattastjórn, ofstjórn og óstjórn." Heilbrigðisþj ónustan - hún keinur þér við eftirLáruM. Ragnarsdóttur Ríkisstjórnin fyrirhugar nú stærri niðurskurð á framlögum til heilbrigð- ismála en dæmi eru til í lengri tíma. Enn einu sinni er skorið niður án þess að skilgreint sé vel hvers konar þjónustu eigi að minnka og í hvaða mæli. Það er löngu orðið tímabært að stjórnmálamenn axli ábyrgð í þeim efnum og láti í ljósi skýra stefnu sína í heilbrigðismálum. Því miður vill umræða um heil- brigðismál fara fyrir ofan garð og neðan hjá almenningi þar sem rekst- ur þjónustunnar er flókinn. Einfalda yfírsýn yfir veitta þjónustu og kostn- að vegna hennar vantar til þess að hinn almenni borgari geti mótað af- stöðu sína. Þar sem kostnaður kemur að litlu leyti við buddu almennings hefur áhugi fólks á almennum um- ræðum um þessi mál verið heldur takmarkaður. Niðurskurður og hagræðing Innan Sjálfstæðisflokksins starfar málefnanefnd um heilbrigðis- og tryggingamál. Nefndin hefur m.a. það starf að gera tillögur til lands- fundar um stefnu flokksins í heij- brigðis- og tryggingamálum. Að und- anfömu hefur nefndin rætt sérstak- lega hvernig megi hagræða í heil- brigðisþjónustunni án þess að stöð- ugt þurfi að koma til niðurskurðar. Niðurskurður hvetur nefnilega ekki endilega til hagræðingar. Iðulega er gripið til einfaldra úrræða, svo sem lokana sjúkrahúsa, en það segir ekk- ert til um hvort rekstur sé hag- kvæmur. Tryggingahugtakið og sjúkrasamlög Rétt er að vekja athygli á lands- fundarsamþykkt Sjálfstæðisflokks- ins um heilbrigðismál frá í haust en hún er í samræmi við grundvallar- sjónarmið flokksins. Þar er lögð áhersla á nauðsyn breytinga í rekstri heilbrigðisþjónustu þar sem farnar verði leiðir sem ekki byggjast á mið- stýringu fjárveitingavaldsiijj. Grund- völlur slíkra breytinga er endurvakn- ing tryggingahugtaksins. Þannig verður almenningur meðvitaður um hvaða fjármunir fari til heilbrigðis- mála og um réttindi sín til þjón- ustunnar. Landsfundurinn samþykkti því að kanna hvort ekki væri rétt að reka heilbrigðisþjónustuna fyrir trygg- ingafé einstaklinga, sem með greiðsl- um sínum öðlist síðan rétt á þjón- ustu þegar á þarf að halda. Fyrir- komulagið má hugsa þannig að allir landsmenn eigi aðild að sjúkratrygg- ingum og iðgjaldið verði tekjutengt. Réttur allra tryggingataka til þjón- ustu yrði þó hinn sami. Síðan segir orðrétt í landsfundar- samþykktinni: „I stað þess að leggja sjúkrasam- lög niður í sinni núverandi mynd hefði átt að sameina þau í stærri einingar og ætla þeim nýtt hlutverk í því skyni að vera grunneining tryggingakerfisins og tryggja þannig nauðsynlega valddreifíngu í heil- brigðisþjónustunni. Landsfundur harmar það að öll heilbrigðisþjónusta færist til ríkisins samkvæmt sér- stakri löggjöf og telur að heilsu- gæsla eigi að vera verkefni sveitarfé- laga og verði þeim fengnir tekju- stofnar í því augnamiði. Sérstaklega skal bent á sérstöðu höfuðborgar- svæðisins í þessu efni. Nauðsynlegt er að endurskoða þessa löggjöf nú þegar.“ Við núverandi kjördæmaskipan er hætta á að fíármögnun ríkisvaldsins á heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa Reykjavíkur fái ekki nauðsynlegan hljómgrunn. í því sambandi má t.d. benda á, að þingmenn Reykjavíkur eru hlutfallslega fáir. Því er nauðsyn- legt að stjóm sjúkrasamlags Reykjavíkurborgar beri ábyrgð á rekstri heilsugæslu í borginni. Önnur sjúkrasamlög gætu t.d. verið bundin við kjördæmi og borið samsvarandi ábyrgð gagnvart íbúum þeirra. Þar yrðu fjármunir og stjórn- un þjónustunnar í höndum íbúa dreif- býlisins en ekki miðstýrð af ráða- mönnum í Reykjavík. Sérstaða þéttbýlisins Áherslu verður að leggja á sér- stöðu íbúa Reykjavíkur. Þeir búa í lítilli fjarlægð frá mismunandi val- kostum heilbrigðisþjónustunnar hvort heldur almennri heilsugæslu, sérfræðiþjónustu eða sjúkrahúsum. Því eru allt aðrar forsendur fyrir þjónustumynstri þar heldur en í dreifbýli. Oþarft er að takmarka val- frelsi Reykvíkinga til þessarar þjón- ustu að því er virðist eingöngu til að gæta samræmis við heilbrigðis- þjónustu dreifbýlisins. Lára M. Ragnarsdóttir „í samræmi við framan- greint er því nauðsyn- legt að hafa fleiri en einn rekstraraðila.“ Sjúkrahúsin — sameining? Til að halda uppi gæðum og ár- vekni í rekstri sjúkrahúsa er nauð- synlegt að sjúkrahús landsins séu ekki öll undir rekstrarlegri miðstýr- ingu ríkisvaldsins heldur sé rekstrar- aðilum dreift sem kostur er. Sam- keppni er holl heilbrígðisþjónustu ekki síður en á öðrum sviðum sam- félagsins, þar sem hún veitir aðhald. Sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík hefur verið í brennidepli umræðna um hagræðingu í sjúkra- húsrekstri. Hafa menn þá meðal annars horft til árangurs af samein- ingu sjúkrahúsa erlendis og lagt hann að jöfnu við væntanlegan árangur sambærilegra aðgerða hér- lendis. Slíkar ályktanir eru að ýmsu leyti mjög varasamar. Staðreyndin er sú að þar sem sjúkrahús hafa verið sameinuð með góðum árangri hefur nánast ávallt verið fyrir hendi hörð samkeppni við önnur nálæg sjúkrahús. Samkeppni og þar með aðhaldi yrði því ekki til að dreifa í Reykjavík við sameiningu stærstu sjúkrahúsa þar. Að sjálfsögðu er rétt að auka enn samvinnu sjúkrahú- sanna á ákveðinni, dýrri og sér- hæfðri þjónustu, en halda jafnframt uppi samkeppni á öðrum og almenn- ari sviðum. Samkeppni erein aðalfor- senda nauðsynlegrar framþróunar í rekstri og ekki síst í þjónustugæðum. í samræmi við framangreint er því nauðsynlegt að hafa fleiri en einn rekstraraðila. Eðlilegt er, að Reykjavíkurborg gæti hagsmuna Reykvíkinga og stýri sjálf starfsemi Borgarspítalans til mótvægis við rekstur Ríkisspítala. Sveigjanleiki og valddreifing í fyrirrúmi Heilbrigðisþjónustan á að vera rekin með sveigjanleika, gæði og hagkvæmni fyrir augum og aðhaldi skal m.a. beitt með hæfílegri sam- keppni. Þannig næst bestur árangur að markmiðinu „Heilbrigði fyrir alla árið 2000“. Enn skal vitnað í landsfundarsam- þykkt Sjálfstæðisflokksins: „Reksturinn sjálfur gæti verið á ýmissa höndum og umfram allt þarf að koma til valddreifing. Sú stefna að fela ríkinu allan rekstur hefur alls staðar leitt til ófarnaðar og þjóð- ir jafnt austan tjalds sem vestan eru að hverfa frá þeim hugmyndum. It- rekaður er stuðningur við fijáls fé- lagasamtök og við að kostir einka- reksturs á sem flestum sviðum verði nýttir til fulls. Mótmælt er skerðingu þjónustunnar og þeirri auknu mið- stýringu sem núverandi valdhafar standa fyrir.“ Stefna Sjálfstæðisflokksins í heil- brigðis- og tryggingamálum er því í augljósri andstöðu við þá miðstýring- arstefnu sem núverandi stjórnar- flokkar reka. Úr hvaða buddu? Kostnaður við heilbrigðisþjón- ustuna eina árið 1988 er nam 21,6 milljörðum króna, en það eru 8,4% af vergri þjóðarframleiðslu. Þessi kostnaður kemur úr buddum lands- manna þótt ekki sé hann borgaður á staðnum nema að hluta til hjá sér- fræðingum, en nýlega auknar skattaálögur vegna hækkunar á hlut sjúklinga í greiðslum til sérfræðinga hafa ekki farið fram hjá neinum. Landsmenn eiga kröfu á að hafa meiri áhrif á tilurð kostnaðar við heilbrigðisþjónustu en núverandi stefna stjórnvalda gengur í þveröf- uga átt. Nauðsynlegt er að hver og einn haldi árvekni sinni gagnvart stjórn- valdsaðgerðum í heilbrigðismálum og láti ekki misvitrar ákvarðanir dynja yfir sig, því þær hafa áhrif, ekki bara á budduna, heldur á líf og heilsu okkar allra. Höfundur er hagfræðingur og formaður heilbrigðis- og trygginganefndar Sjálfstæðistlokksins. _________MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 Landsskipulag og aðalskipulag eftir Birgi Isleif Gunnarsson í framhaldi af umræðum á Al- þingi um frumvarp félagsmálaráð- herra til nýrra skipulags- og bygg- ingarlaga ritaði ég grein hér í Mbl. þar sem rakin var sú þróun sem orðið hefur á Norðurlöndum. Þar eru menn að hverfa frá ströng- um afskiptum ríkisvaldsins af skipulagsmálum og færa valdið alfarið yfir til sveitarfélaganna. í tveimur greinum til viðbótar hér í blaðinu verður efni hins nýja frum- varps rakið og í þessari gi’ein verð- ur einkum fjallað um þann þátt sem fjallar um landsskipulag og meðferð aðalskipulags. Landsskipulag í frumvarpinu er það nýmæli að nú er gert ráð fyrir að ríkið hafi með höndum svokallað lands- skipulag. Skilgreining á því fyrir- bæri er hins vegar mjög óljós í frumvarpinu, en þó er ljóst að það getur snert næstum alla þætti þjóðlífsins. Taldar eru upp í frum- varpsgrein tíu ríkisstofnanir sem Skipulags- og byggingarstofnun ríkisins á að hafa samstarf við um gerð þessa landsskipulags. Enginn vafi er á því að hér skarast verk- efni ríkisstofnana. Með þessum ákvæðum er rennt stoðum undir umfangsmikla starfsemi á vegum ríkisins sem kallar á fjölda nýrra starfsmanna. Ég fullyrði að það hefur ekkert háð okkur íslending- um hingað til að hafa ekki haft lögbundið landsskipulag. Meðferð aðalskipulags Samkvæmt frumvarpinu á með- ferð aðalskipulags að vera í stórum dráttum sem hér segir: Áður en gerð eða endurskoðun aðalskipu- lags er hafín, ber sveitarstjórn að semja greinargerð um helstu for- sendur og markmið sem að er stefnt með skipulagsgerðinni. Þetta er nýmæli. Greinargerðin skal kynnt íbúum sveitarfélagsins svo og Skipulagsstjórn ríkisins. Ábendingum og athugasemdum skal skila innan ákveðins frests sem ekki má vera skemmri en þijár vikur. Sveitarstjórn tekur síðan afstöðu til framkominna athuga- semda og semur umsögn og kynn- ir hana íbúum sveitarfélags. Að Birgir ísleifur Gunnarsson „Ég hef hins vegar miklar efasemdir um þessa greinargerð og allt umstangið í kring- um hana áður en hefja má gerð aðalskipulags. Margföld reynsla sýnir að hugmyndir um skipulag þurfa að vera orðnar nokkuð ákveðn- ar áður en áhugi al- mennings vaknar.“ þessu loknu má hefja gerð eða endurskoðun aðalskipulags. Aðalskipulagstillögur skal síðan kynna á opnum fundi og þá tekur sveitarstjóm hana til fyrri um- ræðu. Eftir þá umræðu skal sveit- arstjóm senda Skipulagsstjórn ríkisins tillöguna til umfjöllunar með beiðni um heimild til að aug- lýsa hana. Ef Skipulagsstjórn ríkis- ins hefur engar athugasemdir skal tillagan auglýst óbreytt. Ef hún hefur athugasemdir skal reyna að ná samkomulagi, en ef það tekst ekki innan fjögurra vikna er sveit- arstjórn engu að síður heimilt að auglýsa tillöguna en geta skal at- hugasemda Skipulagsstjórnar ríkisins í auglýsingunni. Ráðherra hefur úrskurðarvaldið Að þeirri meðferð lokinni tekur sveitarstjórn tillöguna til síðari umræðu þar sem m.a. er tekin afstaða til framkominna athuga- semda. Að því loknu skal Skipu- lagsstjórn ríkisins fjalla um niður- stöður sveitarstjórnar og gera til- lögur til ráðherra um staðfestingu eða synjun. Það er svo ráðherra sem sker úr um það hvort stað- festa skuli eða synja tillögu sveit- arstjórnar um aðalskipulag. Spurningar vakna Þegar öll þessi málsmeðferð er athuguð hljóta ýmsar spurningar að vakna. Rétt er að taka fram að ég tel mjög nauðsynlegt að um skipulag sé gott samstarf við al- menning, þannig að fólk geti haft áhrif á mótun síns umhverfis. Málsmeðferð í kringum það má þó ekki verða of flókin og fráhrind- andi. Ég hef hins vegar miklar efa- semdir um þessa greinargerð og allt umstangið í kringum hana áður en hefja má gerð aðalskipu- lags. Margföld reynsla sýnir að hugmyndir um skipulag þurfa að vera orðnar nokkuð ákveðnar áður en áhugi almennings vaknar. Hvers vegna í ósköpunum þarf Skipulagsstjórn ríkisins að vera með þessi afskipti á nánast öllum stigum? Hún á að fjalla um grein- argerðina, hún á síðan að fjalla um skipulagstillögu áður en hún er auglýst til kynningar fyrir al- menning og þarf að heimila auglýs- ingu. Síðan á Skipulagsstjórn ríkis- ins að fjalla um tillöguna eftir að sveitarstjóm hefur rætt hana í annað sinn og að lokum er það svo ríkið (ráðherra) sem hefur lokaorð- ið um það hvort aðalskipulag- stillaga sveitarfélags er samþykkt eða ekki. Já, Stóri bróðir lætur ekki að sér hæða. Ákvæðin um meðferð aðalskipulags í þessu frumvarpi eru alltof smásmuguleg. I síðustu grein um þetta frum- varp verður fjallað um meðferð á deiliskipulagi og Skipulags- og byggingarstofnun ríkisins. Höfundur er einn af alþingismönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavikurkjördæmi. Landssamband smábátaeigenda: Veiðiheimildum út- lendinga mótmælt STJÓRN Landssambands smábátaeigenda mótmælir þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að heimila erlendum þjóðum að veiða á sjötta þúsund tonn í þorskígildum og 6-7 þúsund tonn af öðrum botnfiski í íslenskri lögsögu í ár. Þessi afli samsvari þeim afla, sem unninn sé á ári á Borgarfirði eystra, Bakkafirði og í Grímsey en þessir staðir byggi lífsafkomu sína eingöngu á sjávar- útvegi. Stjórn LS leggur til að þessar veiðiheimildir verði aftur- kallaðar og til vara að þær verði ekki endurnýjaðar á meðan aflahámark er sett á þær tegundir, sem hér teljast til þorskígilda. í fréttatilkynningu frá stjórn Landssambands smábátaeigenda segir, meðal annars: „Það er með ólíkindum að á sama tíma og allir íslenskir útgerðarmenn og sjó- menn í kvótákerfí verða að sætta sig við 10% aflaminnkun eru veiði- heimildir útlendinga látnar óskertar. Þetta er gert þrátt fyrir að sjávarútvegsráðherra hafi lýst því yfir að veiðiheimildir erlendra þjóða komi ekki til greina í samn- ingaviðræðum íslands við ríki Evrópubandalagsins. Stjórn LS lítur svo á að þarna sé um dulbún- ar veiðiheimildir til Evrópubanda- lagsríkja að ræða, þar sem veiði- heimildir þeirra í færeyskri lög- sögu á síðastliðnu ári námu 44.620 tonnum af ýmsum fiskteg- undum, þar af voru 15.250 tonn af botnfíski." Sjóhæfiii og notkun smábáta Réttiarmsboglína dæmigerðs 10 brl báts við mismunandi veiðiskap við brottfor af miðum með 5 tonna afla í lest. eftirMagnús Jóhannesson Undanfarin ár hefur sjósókn á bátum undir 10 brúttórúmlestum (bri) að stærð vaxið verulega enda mikil fjölgun orðið á bátum í þessum stærðarfiokki sl. fimm ár. Margir hinna nýju báta eru í raun nokkuð stærri en eldri bátar af sömu rúm- lesta stærð vegna byggingarlags, þar sem nýttir hafa verið til fulls möguleikar gildandi mælinga- reglna. Fjölgun þessara báta hefur meðal annars haft í för með sér aukna sókn á þeim þann tíma árs- ins sem veður, sjólag og aðrar ytri aðstæður eru hvað erfiðastar. Frá öryggislegu sjónarmiði er þessi þró- un varasöm og kallar því á auknar varúðarráðstafanir. Þó hinir nýju bátar séu byggðir samkvæmt ýtrustu kröfum um styrkleika, sjóhæfni og öryggis- búnað verður ekki fram hjá því litið að þetta eru lítil skip sem hafa ekki sömu möguleika til að veijast áföllum og stærri skip. Það er því ennþá mikilvægara að stjórnendur þeirra geri sér sem besta grein fyr- ir eiginleikum bátanna við hina ýmsu notkun þeirra við erfiðustu skilyrði. Skipstjórnarréttindi á minni skip Stjórnvöld hafa með lögum und- irstrikað mikilvægi þess að skip- stjórnarmenn á öllum skipum stærri en 6 m. að lengd (ca. 1,5-2,0 brl) hafi á grundvelli starfsreynslu á sjó hlotið fræðslu í þeim atriðum sem varða öryggi skipa og hafa sjó- mannaskólarnir og aðrir þar til bærir aðilar veitt þá fræðslu sem krafíst er. Því miður hefur sá mis- skilningur verið all útbreiddur með- al sjómanna að ekki væri krafíst skipstjórnarréttinda á báta minni en 12 brl á stærð og hver sem er gæti í raun keypt sér-bát og hafið sjóróðra. Þessi misskilningur mun stafa fyrst og fremst af því að ekki er skylda að lögskrá áhöfn á þessa báta. Engu að síður hafa fjölmarg- ir eigendur minni báta lokið skip- stjórnarnámskeiðum á liðnum árum og er það vel þó enn séu margir starfandi á minni bátum án tilskil- inna réttinda. Stöðugleiki Það er afar skiljanlegt að menn sem hafa fjárfest í bátum sem og öðrum atvinnutækjum vilji nýta sem best þau tækifæri sem gefast til að afla tekna upp í þann kostnað sem lagt hefur verið í, en auðvitað verður að kappkosta að notkun Magnús Jóhannesson „Samhliða aukinni sókn á smábátum yfir erfið- asta árstímann hefur þess gætt nokkuð að menn hafi tekið upp fjölbreyttari veiðiskap á þessum bátum.“ bátanna taki sem mest mið af að- stæðum þannig að öryggi þeirra sé tryggt eftir megni. Einn mikilvægasti öryggisþáttur hvers skips er stöðugleiki þess. Stöðugleikinn er breytanlegur því auk þess, að vera bundinn ákveðn- um eiginleikum skipsins er hann háður meðferð þess svo sem hvern- ig skipinu er beitt í vondum veðrum frágangi afla, veiðarfæra o.fl. Ljóst er að á minni fískiskipum er frá- gangur afla og veiðarfæra enn mik- ilvægara atriði vegna stöðugleika en fyrir stærri skip. Við smíði minni báta er yfirleitt eingöngu reiknaður út stöðugleiki fyrir þann veiðiskap sem báturinn er í upphafi ætlaður fyrir og bygg- ist samþykkt stöðugleikagagna fyr- ir bátinn á þeim upplýsingum. Mik- ilvægt er því að allar breytingar sem gerðar eru á upphaflegum forsend- um og varða stöðugleika skipsins séu gerðar í samráði við Siglinga- málastofnun. Samhliða aukinni sókn á smábát- um yfír erfiðasta árstímann hefur þess gætt nokkuð að menn hafi tekið upp fjölbreyttari veiðiskap á þessum bátum en slíkar breytingar geta haft neikvæð áhrif á stöðug- leika bátanna sem ekki er víst að menn geri sér alltaf fulla grein fyrir. Algengt er að margir minni bátar séu smíðaðir fyrst og fremst með handfæraveiðar í huga og stöðug- leiki bátsins miðaður við það. Ákveði eigandi báts hinsvegar að nota hann til neta-, línu-, tog- eða dragnótaveiða getur það haft veru- leg áhrif á stöðugleikann, áhrif sem gætu verið varasöm þegar sjólag og veðurskilyrði eru verst. Til þess að gefa nokkra hugmynd um þau áhrif sem hér er um að ræða hefur á mynd 1 verið dregin upp réttiarmsboglína (beinn mæli- kvarði á stöðugleika skipsins) dæmigerðs 10 brl þilfarsbáts við brottför af miðum með 5 tonna afla í lest og veiðarfæri á þilfari við mismunandi veiðiskap. Myndin sýnir réttiarm bátsins við mismun- andi hallahorn en réttiarmurinn sýnir í raun hæfni bátsins til þess að rétta sig við undan áföllum. Efri ferillinn sýnir réttiarm bátsins við handfæraveiðar en neðri ferill- inn réttiarm bátsins við línu-, neta-, tog- eða dragnótaveiðar. Það skal tekið fram að hvað netaveiðar snertir er miðað við óhagstæðustu skilyrðin, þ.e. sjóferð þegar net eru tekin upp úr sjó og höfð á þilfari. Sé myndin skoðuð nánar kemur í ljós að hámarks réttiarmur er um 38% lægri við línu-, neta-, tog- og dragnótaveiðarnar en handfæra- veiðar. Þetta samsvarar því að hæfni bátsins til að rétta sig við hafi minnkað um 38% við þessa breytingu á veiðiskap frá hand- færaveiðum sé miðað við umrædd skilyrði. Þess má geta að í þessu dæmi sem hér er sýnt er lágmarks- kröfum reglna um stöðugleika full- nægt þegar þessi bátur stundar handfæraveiðar en hinsvegar er stöðugleiki undir lágmarkskröfum fyrir aðrar veiðar og þau hleðslu- skilyrði sem hér eru tekin með. Það skal áréttað að mynd þessi er ekki á neinn hátt algild fyrir báta af þessari stærð því sérhver bátur hefur sín stöðugleikaeinkenni en myndinni er fyrst og fremst ætlað að sýna hvaða áhrif mismunandi veiðar geta haft á stöðugleika minni báta. Myndin sýnir hinsvegar nauð- syn þess að skipstjórnarmenn og eigendur minni báta gefi því ræki- lega gaum hver áhrif það kann að hafa á stöðugleika báts þegar breytt er um veiðiskap. Lokaorð Siglingamálastofnun ríkisins vill því hvetja alla stjórnendur smábáta til þess að gefa þessum málum gaum og viljurn við benda á frekari fræðslu um stöðugleika skipa í sér- stökum bæklingi sem stofnunin gaf út haustið 1988 og dreift var í öll íslensk skip. Þennan bækling er hægt að fá í sumum bókaverslunum og á skrifstofum stofnunarinnar í öllum landshlutum. Það skal einnig áréttað að Siglingamálastofnun mun hér eftir sem hingað til reyna að aðstoða eigendur miiini báta við að meta stöðugleika þeirra, sé eftir því leitað, en jafnframt viljum við minna á þá lagaskyldu sem hvílir á eigendum skipa og verkstæðum að leita samþykkis stofnunarinnar um sérhveija breytingu sem gerð er á skipum og getur varðað öryggi þeirra, þar með talinn stöðugleika. Jafnframt ber að hvetja þá sjómenn er stunda veiðar á smábátum án tilskilinna réttinda að afla þeirra sem fyrst. Höfundur er siglingamálastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.