Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 Gróðurátak vegna afmælis forseta íslands Y R K J A gamall draumurað rætast YRKJA nefhist afxnælisrit sem gefið verður úttil heiðurs forseta Islands, Vigdísi Finnbogadóttur, sem á sextíu ára afmæli þann 15. apríl næstkomandi. 56 skáld, rithöfúndar, Iista- og fræðimenn skrifa í ritið um hin margbreytilegustu efhi. Allir þeir sem að ritinu koma gefa vinnu sína. Öllum íslendingum verður gefinn kostur á að gerast áskrifendur ritsins og skrá sig um leið á heillaóskalista sem afhentur verður forsetanum með fyrsta eintaki Yrkju. Ágóði af sölu bókarinnar verður lagður í sjóð, sem að ósk forseta íslands verður færður íslenskri æsku og á að standa straum af kaupum á tijáplöntum handa öllum grunnskólabörnum í landinu vor hvert. Sjóðurinn mun bera sama nafh og afmælisritið og nefhast: Yrkja — sjóður æskunnar til ræktunar Iandsins. Frá athöfhinni í Listasafni íslands. Ljósmyndir/Jim Smart Yrkja var kynnt við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands í gær. Njörður P. Njarðvík lektor og einn ritstjóra afmælisritsins sagði að hugmynd þessi hefði vaknað í september síðastliðnum í hópi vina frú Vigdísar Finnbogadóttur, og votta henni þannig virðingu fyrir frammistöðu sína í forseta- embættinu, sem hefði vakið at- hygli víða um heim. Margir hefðu tekið höndum saman til að gera hugmyndina að veruleika. 56 skáld, rithöfundar og fræðimenn skrifa í ritið. Ákveðið var að sam- eiginlegt viðfangsefni alls efnisins skyldi vera „ræktun“ í víðasta skilningi þess orðs, í því ljósi að Vigdís Finnbogadóttir hefur verið óþreytandi að hvetja til upp- byggingar og ræktunar lands og lýðs. Jafnframt var ákveðið að bókin skyldi bera nafnið Yrkja, sem er fornt orð og merkir bæði sköpun og ræktun. Leitað var til bókaútgáfunnar Iðunnar um útgáfu á afmælisrit- inu. Heimir Pálsson deildarstjóri hjá Iðunn, og einn ritstjóra Yrkju, sagði frá því að ákveðið hefði verið að gefa öllum íslendingum kost á áð skrá sig á heillaóska- lista til forsetans og kaupa ritið jafnframt. Þá varð ljóst að af bókinni yrðu gefin út fleiri eintök en menn eiga að venjast hér, og um léið vaknaði spurningin, hvað ætti að gera við ágóðann. Heimir sagði að þetta hefði verið rætt við forseta íslands, og hennar hugmynd hefði verið að stofna til sjóðs sem stæði straum af kaup- um á tijáplöntum handa börnum til að gróðursetja. Ekki til að rækta nytjaskóg öðru fremur heldur til þess að hvetja upp- vaxandi og komandi kynslóðir til að hlúa að öllu lífí og efla virð- ingu þeirra fyrir umhverfi sínu. Heimir sagði að markið væri sett hátt. Aðstandendur Yrkju sæju fyrir sér sjóð sem væri svo öflugur að hann gæti staðið und- ir kaupum á hundruðum þúsunda Hulda Valtýsdóttir skrifar á heillaóskalista til frú Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands. Hjá henni standa Heimir Pálsson, Gunnar Stefánsson og Kristín Gunnarsdóttir. Nína Margrét Grímsdóttir leikur á tónleikum EPT A ÞRIÐJU pianótónleikarnir á vegum Evrópusambands pianókennara, EPTA, verða haldnir í Hafharborg í Hafnarfirði í kvöld og á Kjarv- alsstöðum mánudaginn 12. mars og hefjast þeir kl. 20.30 í bæði skipt- in. Einleikari að þessu sinni verður Nína Margrét Grímsdóttir, og leikur hún verk eftir J. S. Bach, Haydn, Jónas Tómasson, Debussy og Chopin. Nína Margrét Grimsdóttir er fædd f Reykjavík árið 1965, og stundaði hún tónlistarnám við Tón- menntaskólann og Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem aðalkennari hennar var Halldór Haraldsson. Þaðan lauk hún einleikaraprófi vo- rið 1985. Nína Margrét hlaut styrk frá breska sendiráðinu til framhalds- náms í London 1985-1988 þar sem kennarar hennar voru meðal ann- arra Peter Feuchtwanger og Bem- ard Oram, en hún hefur einnig no- tið tilsagnar Edith Picht-Axenfeld, Richard Langham Smith og Philip Jenkins. Vorið 1988 lauk hún ein- leikaraprófí, L.G.S.M., frá Guildhall School of Music and Drama, og síðastlið haust lauk hún M.A. prófi í tónlist frá City University of Lon- don og fjalla lokaritgerðir hennar um íslenska píanótónlist og mikil- vægi tónlistarkennslu í grunnskól- um. Nína Margrét hefur komið fram Nína Margrét Grímsdóttir á tónleikum bæði hérlendis og er- lendis, meðal annars í Purcell Room í London á síðasta ári, þar sem hún lék með Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara. Fæðingarheim- ilið opið áfram VEGNA fréttar um að hugsan- lega yrði stofnuð fæðingardeild við St. Jósepsspítala í Hafnar- íírði, vill Guðjón Guðnason lækn- ir Fæðingarheimilisins við Eiríksgötu taka firam að heimilið er ekki lokað og mun ekki Ioka. „Það er alrangt að Fæðingar- heimilinu verði lokað,“ sagði Guð- jón. „Enn síður verður dregið úr starfseminni en það hefur verið ruglingur í gangi í nokkra mánuði um að það standi til að loka heimil- inu. Borgarstjórn leigði út tvær hæðir í desember en málin standa þannig núna að þeir læknar, sem tóku hæðirnar á leigu, hafa fengið skurðstofuna til afnota á fyrstu hæð en sennilega fáum við eitthvað af rúmunum á annarri hæð. Nú er til dæmis allt fullt hjá okkur.“ Sagði Guðjón að auk þess hefði verið ákveðið að hafa heimilið opið í sumar en undanfarin ár hefur þurft að loka yfir sumarmánuðina vegan sumarleyfa. Leiðrétting Föstudaginn 2. marz birtist í Morgunblaðinu grein eftir Ragnhildi Eggertsdóttur. Upphaf greinarinnar féll niður í birtingu en það var svo- hljóðandi: „Fyrir nokkru var mikið fjallað um það í fjölmiðlum, að í gangi væru umræður milli minni- hlutaflokkanna í borgarstjórn um það, hvort minnihlutinn ætti að bjóða sameiginlega fram á móti Sjálfstæð- isflokki í borgarstjórnarkosningun- um í Reykjavík á komandi vori.“ Morgunblaðið biður höfund vel- virðingar á þessum mistökum við birtingu greinarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.