Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990 43 HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Mistök á mistök ofan Enn einu sinni kastaði íslenska liðiðfrá sérsigri Alfreð Gíslason, sem hér skorar gegn Pólverjum í gær, var markahæstur ís- lendinga í leiknumT „Við, þessir eldri í liðinu, reynum að klára þetta með sóma og vinna Aust- ur-Þjóðverja,“ sagði Alfreð í gærkvöldi. Logi Bergmann Eiðsson skrifarfrá Bratislava ÞAÐ voru niðurlútir íslendingar sem gengu af velli eftir tap fyrir Pólverjum í íþróttahöllinni í Bratislava í gær. Loks var útlit fyrir að liðið væri að ná sér á strik og í upphafi síðari hálfleiks hafði það fjögurra marka forskot. En það sama gerðist og í leiknum gegn Júgóslövum, mistök á mistök ofan, og eftir hræðilegan síðari hálfleik urðu íslendingar að játa sig sigraða 24:26 og að öllum líkindum að taka að nýju sæti í B-keppninni. Þegar staðan var 15:11 og skammt liðið af síðari hálfleik, virtist íslenska liðið hafa leikinn í hendi sér. En þá kom svartur kafli þar semekkert gekk upp hjá íslendingum en Pólveijar röðuðu inn ódýrum mörk- um, sjö í röð. Eftir það áttu íslendingar á brattann að sækja. Þeir n áðu þó að minnka muninn í eitt mark en heppnin var ekki með þeim á lokamínútunum og Pólverjar tryggðu sér sigurinn. Andleysi Islenska liðið var þreytulegt í þessum leik og er komið var í síðari hálfleik gekk allt á afturfótunum. Islendingar máttu reyndar þakka fyrir að hafa forystu í leikhléi því vörn og markvarsla voru með allra slakasta lagi í fyrri hálfleik. Þegar 23 mínútur voru liðnar af fyrri hálf- leiknum náði markvörður íslands að veija fýrsta skotið. í síðari hálf- leik skánaði markvarslan en liðið gerði þó fleiri mistök. Kristján Ara- son og Sigurður Gunnarsson léku langt undir getu, voru ragir og lítt sannfærandi og Alfreð Gíslason gerði mörg mistök. Ljósu punktam- ir voru Guðmundur Guðmundsson sem gerði fjögur mörk og fiskaði sex vítaköst og Bjarki Sigurðsson. Þá varði Einar þokkalega í lokin en sóknarleikur liðsins var andlaus og kraftlítill. Mistök Það er auðvelt að vera vitur eft- ir á en sú spurning hlýtur að vakna hvort ekki hefði verið rétt að gefa Sigurði Sveinssyni tækifæri. Að hafa hann við hlið Kristjáns í sókn- inni gaf góða raun gegn Sovét- mönnum og því skrýtið að hann skyldi ekki fá tækifæri þegar svo illa gekk. Þá er undarlegt að Einar skuli ekki hafa farið fyrr inná og pirrandi að sjá hve íslensku leik- mennimir voru seinir í vörninni gegn snöggum Pólveijum. Ennervon Islendingar eiga enn möguleika á að halda sér í A-keppni og Olympíuleikunum í Barcelona en þeir möguleikar em hverfandi. Það er þó alls ekki rétt að afskrifa íslenska liðið og bara hægt að vona að það nái sér á strik gegn Austur- Þjóðverjum á morgun. ■ BJARKI Sigurðsson var kjör- inn besti maður íslenska liðsins gegn Pólverjum en Thomas Lebi- edzinski þótti bestur í liði Pól- lands. ■ MARGIR þjálfarar fylgjast með leikjunum í heimsmeistarkeppninni og myndbandsupptökur, sérstak- lega úr leikjum Sovétmanna, þykja hin mesta gersemi. Til þess að sjá sem best hvernig Sovétmenn haga vöm sinni hafa nokkir þjálfarar fengið að hafa myndavélar uppi í rjáfri, í mikilli grind sem þar er, og taka myndir beint niður á varn- irnar. Morgunblaðið/Júlíus Gífurieg vonbrigði „ÞETTA voru gífurleg vonbrigði og ég get ekki sagt svona rétt eftir leik hvað gerðist. Það bara hrundi allt hjá okkur og við spiluðum illa. Það er allt sem ég veit,“ sagði Kristján Arason eftir leikinn gegn Pólveijum. „Sóknin var slök og án baráttu ISLAND - PÓLLAND 25 : 27 Nafn Skot Mörk Varin Yfireöa framhjé i stöng Fengin vfti ÚUf i2mfn Knetti glntað Línusend. sem gefur mark Skot- nýtlng Einar Þorvaröarson 4/1 Guðmundur Hrafnkelsson 5 Þorgils óttar Mathiesen 6 4 2 1 1 2 67% Bjarki Sigurðsson 3 2 1 1 2 1 67% Guömundur Guömundsson 5 4 1 6 1 80% Geir Sveinsson 1 Sigurður Gunnarsson 2 1 1 2 1 Alfreö Gfslason 16/8 9/6 4/1 2/1 1 1 2 56% JúlíusJónasson 4/4 4/4 1 100% Sigurður Sveinsson Kristjón Arason 4 2 2 2 4 3 50% JakobSigurðsson b Getur ekki versnað - segir Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari „ÞETT A var virkilega slæmur leikur hjá okkur og það brást í raun allt. Markvarslan og vörnin voru með versta móti og sóknin vandræðaleg. Við eigum enn möguleika og ég held að þetta geti ekki versn- að,“ sagði Bogdan Kowalc- zyk, þjálfari íslenska lands- liðsins eftir leikinn gegn Pól- verjum. Pólveyjarnir náðu mjög góðum leik í síðari hálfleik og á sama tíma gekk ekkert upp hjá okkur. Það er í raun engin ein lausn á vanda liðsins en það hefur gífur- lega mikið að segja þegar lykil- menn ná sér ekki á strik og það er stærsta vandamál okkar hve óstöðugir þeir hafa verið,“ sagði Bogdan. Hann sagði að kannski hefði verið réttara að setja Einar Þor- varðarson fyrr inná en hann hefði átt von á að Guðmundur Hrafn- kelsson færi í gang. „Það hefði kannski getað breytt einhveiju. En það sem réði úrslitum var að við gerðum ótrúlega mörg mistök og í keppni sem þessari hefur ekkert lið ráð á því að gera mis- tök,“ sagði Bogdan. og þeir náðu öllum fráköstum. Vörnin var slöpp og það vantaði alla grimmd í hana og þá er ekki við góðu að búast. Þetta var stærsti möguleiki okkar og nú er hann far- inn. En við lítum á leik til sigurs gegn Austur-Þjóðveijum og þá er bara að vona að það dugi,“ sagði Kristján. Nýttum ekki færin „Ég veit ekki hvað gerðist. Við nýttum ekki færin og það réði líklega úrslitum," sagði Alfreð Gíslason. „Vörnin og markvarslan voru ekki nógu góð og sóknin léleg. Við, þessir eldri í liðinu, reynum að klára þetta með sóma og vinna Austur-Þjóðveija en þá þurfum við að bæta okkur verulega," sagði Alfreð. lila undirbúnir „Við komum til leiks illa undir- búnir og það er fljótt að segja til sín. Það afsakar þó kannski ekki þennan kafla í síðari hálfleik en þá er bara eins og það sem við erum að reyna að gera gangi ekki upp,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen, fyr- irliði landsliðsins. „Þetta var af- spyrnulélegt í síðari hálfleik og ég á bágt með að skilja af hveiju þetta fór svona,“ sagði Þorgils. „En það eru tveir leikir eftir og við höfum alls ekki gefist upp,“ sagði Þorgils. Sorglegt „Þetta var hryllilegt. Svo sorg- legt að það er varla hægt að lýsa því,“ sagði Bjarki Sigurðsson. „Þeir . nýttu sér misheppnuðu skotin okkar og unnu okkur á hraðaupphlaupum. Við vorum seinir aftur, þeir tóku áhættuna og það gekk upp,“ sagði Bjarki. Erum ekki í formi á réttum tíma „Það var ótrúlegt að við skyldum tapa þessu. Með fjögurra marka forystu og möguleika á að bæta við. Ég bara skil þetta ekki,“ sagði Einar Þorvarðarson eftir leikinn. „Ég held að það sé augljóst að við erum ekki í formi á réttum tíina og liðið nær alls ekki saman.' Kannski hefði mátt leika öðruvísi í síðari hálfleik en það er alltaf erfitt að segja hvernig það hefði farið,“ sagði Einar. „Leikimir hjá okkur hafa verið köflóttir og það er eitt- hvað meira en lítið að liðinu. Það er ekki eðlilegt að tapa tveimur leikjum svona,“ sagði Einar. Morgunblaðið/Júlfus Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði íslenska liðsins, skorar hér eitt af fjfir- um mörkum sínum í leiknum gegn Pólveijum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.