Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B
55. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ríkisstjórn V-Þýskalands samþykkir kröfiir Pólverja um landamærasamning:
Kohl kanslari játar að
sér hafi orðið á mistök
Helmut Kohl kanslari Vest-
ur-Þýskalands var á kosn-
ingafundi í Magdeburg í
Austur-Þýskalandi í gær
með bandalagi hægri
flokka. Þar sagði hann m.a.
að ekki væri stefiit að
„Fjórða ríkinu“ með sam-
einingu Þýskalands. Þjóð-
verjar vildu ennfremur að
Pólveijar gætu búið við
örugg landamæri.
Bonn, Varsjá, Moskvu, Washington. Reuter.
HELMUT Kohl kanslari Vestur-Þýskalands lét undan á ríkisstjórnar-
fundi í gær í dcilunni ura vesturlandamæri Póllands. Samkomulag
náðist um að koma verulega til móts við Pólverja sem vilja að gerður
verði samningur um landamærin áður en Þýskaland sameinast. I álykt-
un sem lögð verður fyrir vestur-þýska þingið á morgun, fimmtudag,
er ekki minnst á stríðsskaðabætur. Kohl sagði fyrir helgi að hann vildi
ekki gera samning við Pólverja um vesturlandamæri þeirra nema þeir
afsöluðu sér tilkalli til stríðsskaðabóta á hendur Þjóðverjum. Zbigniew
Augustynowicz, blaðafulltrúi pólsku stjórnarinnar, sagði í gær að sam-
þykkt Bonnstjórnarinnar væri óneitanlega í samræmi við óskir Pól-
verja. „En hún er samt ekki fylliiega það sem Tadeusz Mazowiecki
forsætisráðherra lagði tii. Við munum fylgjast grannt með þróun máls-
ins.“ Á fúndi með fréttamönnum í gær sagði Kohl: „Allir aðilar máls-
ins gerðu mistök, þar á meðal ég.“ Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi
sagðist í gær fagna því að Kohl hefði „leiðrétt" afstöðu sína. Hann
sagði jafnframt að það væri útilokað fyrir Sovétmenn að sætta sig við
að sameinað Þýskaland yrði í Atlantshafsbandalaginu (NATO).
Deilan um landamæri Póllands var
farin að spilla stjórnarsamstarfinu í
Bonn og var boðað til neyðarfundar
í gærmorgun til að freista þess að
ná sáttum. Var Kohl sakaður um að
varpa skugga á sameiningu þjóðar-
innar og vekja að óþörfu grunsemdir
um að Þjóðverjar ágselduut gamlar
iendur sínar sem afhentar voru Pói-
veijum eftir stríð. Á rúmlega þriggja
tíma fundi náðist samkomulag sem
er túlkað svo að frjálsir demókratar
undir forystu Hans-Dietrichs Gensc-
hers utanríkisráðherra hafi knúið
Kohl til að láta undan. Ríkisstjórnin
ákvað að leggja ályktun fyrir þýska
þingið þar sem segir: „Leysa ber
ágreining um landamærin með
samningi milli ríkisstjórna Póllands
og sameinaðs Þýskalands þar sem
sátt þjóðanna er innsigluð." Þar er
einnig hvatt til þess að þing beggja
þýsku ríkjanna árétti yfirlýsinguna
eftir fijálsar kosningar í Á-Þýska-
landi 18. mars nk.
Wojciech Jaruzelski, forseti Pól-
lands, segir í viðtali við þýska dag-
blaðið Die Welt, sem tekið var í
gær, að sovéski herinn eigi ekki að
fara frá Póllandi á meðan hernaðar-
leg staða sameinaðs Þýskalands sé
óljós. Kristilegir demókratar undir
forystu Kohls vilja að sameinað
Þýskaland verði í NATO. Oskar La-
fontaine, sem nú þykir líklegasta
kanslaraefni jafnaðarmanna í V-
Þýskalandi, sagði hins vegar um
helgina að slíkt kæmi ekki til greina.
Tilkynnt hefur verið í Washington
að fyrstu viðræður fjórveldanna svo-
kölluðu, Sovétríkjanna, Banda-
ríkjanna, Bretlands og Frakklands,
við þýsku ríkin tvö um sameiningu
hefjist í næstu viku.
Hans Modrow, forsætisráðherra
A-Þýskalands, átti í gær viðræður
við Gorbatsjov í Moskvu. í viðtali við
austur-þýska sjónvarpið sagði Qor-
batsjov að hann fagnaði því að Kohl
hefði breytt afstöðu sinni til pólsku
landamæranna. „Það er ekki mikil
stjórnviska að fara klaufalega og af
lítilli nærgætni með svo mikilvægt
og örlagaríkt mál,“ sagði Gorbatsjov.
Reuter
Kommúnistar berjast innbyrðis í Afganistan:
ByIt ingíiililimui gegn stjóm
Najibullahs kæfð í fæðingu
Islamabad, Moskvu, Kabúl. Reuter.
STJÓRN kommúnista í Afganistan virðist að mestu hafa tekist að
bijóta á bak aftur byltingartilraun sem gerð var í gær. Skömmu eftir
hádegi að staðartíma gerðu flugvélar loftárásir á höll Najibullahs for-
seta í höfúðborginni Kabúl og skýrt var frá hörðum bardögum víða í
borginni. Leiðtogi uppreisnarmanna var Shahnawas Tanai varnarmála-
ráðherra og tókst honum að flýja frá borginni.
TASS-fréttastofan sovéska gefur
í skyn að Tanai hafi verið í sam-
bandi við einn af leiðtogum mujah-
Neytendasamtök EB:
Eldvarnir gistihúsa
víða ófiillnægjandi
Brussel. Frá Kristófer M. Krislinssyni,
SAMTÖK neytenda innan Evr-
ópubandalagsins (EB) hafa
síðastliðin 12 ár gert reglulega
kannanir á cldvörnum og neyð-
arútgöngum á hótelum í aðild-
arríkjum bandalagsins. í nýlegri
könnun kemur fram, að langt
er frá því að hótel uppfylli reglu-
gerðir EB um þessi efúi.
Af 11 hótelum í Amsterdam sem
neytendasamtökin skoðuðu reynd-
fréttaritara Morgunblaðsins.
ust tíu uppfylla reglugerð EB. í
sams konar könnun á Benidorm á
Spáni fannst ekkert hótel sem upp-
fyllti kröfurnar og af 11 hótelum
í Aþenu reyndist einungis eitt hafa
fullnægjandi eldvarnir. Á Korfu og
Torremolinos voru skoðuð 22 hótel
sem uppfylltu ekki lágmarkskröfur
bandalagsins. í fjórum hótelum á
Spáni og Grikklandi áttu gestir
engrar undankomu auðið ef til elds-
voða kæmi.
edin-skæruliða, Gulbuddin Hekm-
atyar. Hekmatyar skipaði liðsmönn-
um sínum að aðstoða byltingar-
menn en gekkst ekki við því að
Tanai ynni beinlínis með skærulið-
um.
Yfírstjóm hers Najibullah sendi
frá sér yfirlýsingu í Kabúl-útvarp-
inu þar sem allir þátttakendur í
„þessu svikasamsæri" voru hvattir
til að gefast upp. „Ef þið gefið
ykkur eins fljótt og mögulegt er á
vald nálægustu hersveit munuð þið
halda jafnt lífi sem eignum.“ Ut-
. göngubann hefur verið fyrirskipað
í Kabúl að næturlagi.
TASS-fréttastofan sagði í gær-
kvöldi að enn væri barist í Kabúl
þrátt fyrir staðhæfingar Naji-
bullahs um að tekist hefði að bæla
uppreisnina niður. „Bardagarnir eu
sérstaklega harðir við varnarmála-
ráðuneytið og þar eru notuð þung
vopn. Fylking skriðdreka og fót-
göngulið sást á leið til ráðuneytis-
ins,“ sagði í
skeytum frétta-
stofunnar. Full-
trúar Sameinuðu
þjóðanna í Kabúl
sögðu að enn
heyrðust stijálir
skothvellir. Her-
yfirvöld létu út-
varpa hvatning-
Nigibullah um yj hermanna
um að handsama Tanai sem hefur
verið tengdur Khalq-hópnum, öðr-
um tveggja helstu hópa í stjórnar-
flokki kommúnista. Khalq er talinn
hafa innan sinna raða helstu
harðlínumennina en í hinni klíkunni,
Parcham, eru menn sagðir hollari
stjórnvöldum í Moskvu.
Stjórnmálaskýrendur segja að
deilur milli hópanna í afganska
stjórnarflokknum hafi færst mjög
í aukana eftir að Sovétmenn drógu
heri sína á brott. Sagt er að Khalq
njóti mikils stuðnings í flugher
landsins. Khalq hefur lýst andstöðu
við friðarumleitanir Najibullahs sem
gert hefur skæruliðum mörg tilboð
um vopnahlé og tekist að ná samn-
ingum við suma foringja þeirra um
óformleg vopnahlé. Sovétmenn hafa
haldið áfram að senda Kabúlstjórn-
inni vopn af öllu tagi eftir brott-
flutning heijanna á síðasta ári.
Sovéska þingið:
Einkaeign
samþykkt
Moskvu. Reuter.
ÆÐSTA ráð Sovétríkjanna hefur
samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta ný lög sem heimila í
reynd einstaklingum að eiga fyrir-
tæki þótt það sé ekki sagt beinum
orðum í lögunum. Þetta er talið
stórt skref í þá átt að einkaeign
verði almennt viðurkennd í
landinu.
Gert er að fyrir að „borgarar"
(forðast er að nota hugtakið einstakl-
ingar) megi eiga verksmiðjur en
stranglega er bannað að arðræna
verkamenn. „Með þessu er lagður
grundvöllur að valddreifingunni sem
fylgir einkaeign," sagði einn af leið-
togum róttækra umbótasinna, Alexej
Jablokov.
Sjá einnig frétt á bls. 20.