Morgunblaðið - 07.03.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ 1990
Er íslenskt dýra-
líf á heljarþröm?
eftir Óhií' Jónsson
Tilefni þessa pistils er dæmalaus
grein sem birtist í Velvakanda 9.
febrúar sl. rituð af Magnúsi H.
Skarphéðinssyni.
Þar vitnar Magnús í frétt Morg-
unblaðsins frá 3. febrúar sl. sem
segir frá búraref er veiddist í dýra-
boga.
Útlistar Magnús þar fyrir lesend-
um Morgunblaðsins hve stoltur
veiðimaðurinn sé af þessum veiði-
skap sínum og einnig hve langan
tíma það taki að myrða dýr úr
hungri í gildum þessum o.fl., o.fl.
Skulu hér rituð nokkur orð til
að upplýsa Magnús og aðra þá sem
ekki vita, um eðli þessara veiða og
af hveiju þær eru því miður,nauð-
synlegar.
Undirritaður á því heldur ekki
að venjast að vera talinn stoltur af
óhæfuverkum, haldinn kvalalosta
eða flokkaður undir nýtt hugtak,
„veiðimannaskríll", og sér sig því
knúinn til að leiðrétta rangfærslur
Magnúsar.
Til að byija með er skýrt frá
því að veiðar þessar fari fram með
tenntum lásboga. Lásbogi er allt
annað verkfæri, sem haldið er á og
skotið úr örvum í mark.
Á dýrabogum eru alls engir
gaddar. Það eru sléttir armar sem
klemmast saman og halda þannig
minknum.
Það heyrir til algerra undantekn-
inga að refir séu veiddir á þennan
hátt. Þeir einfaldlega fara ekki í
vatn ótilneyddir, eins og hér gerðist
þó, og einmitt þess vegna var at-
búrður þessi sérstakur.
I grein Magnúsar kemur fram
að dýrin séu glorsoltin í náttúrunni
þ.e.a.s. minkar og refir.
Þetta er ekki rétt, einfaldlega
vegna þess að stofnstærð þessara
dýra er haldið niðri með veiðum og
því færri munnar sem viðkvæmt
vistkerfi Islands þarf að metta.
Þetta jafnvægi væri fijótt að rask-
ast ef veiðum yrði hætt.
Fram kemur í fyrrnefndum skrif-
um að venjulegast sé dýrið fast
dögum og vikum saman eða þar
til það deyr yfirleitt hungurdauða.
Ekki veit ég hvaðan greinarhöf-
undur hefur þessar upplýsingar en
ætla að kynna honum hvernig þetta
gengur fyrir sig þar sem ég þekki
til.
Dýrabogar eru vanalega lagðir í
vatn og þannig festir að minkurinn
komist ekki úr vatninu. Hann
drukknar því fljótlega en lifir ekki
sólarhringa og vikur. Svo var einn-
ig með bláref þann sem blaðaskrif
þessi hófust út af, hann var stein-
dauður daginn eftir.
Af þessu má Ijóst vera að minkur-
inn kvelst ekki daga og vikur en
auðvitað er ekki mannúðlegt að
drekkja honum heldur, en hann
deyr þó fljótlega og sennilega áður
en dofinn fer úr fætinum.
Vángaveltur um það hvort ekki
sé bara hægt að skjóta þessi dýr
ef þarf þá að veiða þau á annað
borð skal svarað með eftirfarandi:
Fyrir nokkrum tugum ára fyrir-
fannst ekki minkur í íslensku dýra-
ríki. Það hlýtur því að hafa verið
fyrir slysni að minkur slapp af
loðdýrabúum og eru það því mistök
mannsins að minkur er nú villtur
og kominn um allt land.
Til að byija með lét hann sér
nægja að veiða fisk sem hann náði
til og var hann gjarn á að raða
veiðinni á bakkann. Einnig bar fljót-
lega á þessari söfnunargleði í
æðarvörpum þar sem egg og ungar
fundust í hrúgum undir bökkum,
æðarræktendum til skeifingar.
Nú síðari ár hefur minkurinn
leitað æ meira til heiða þar sem
endur og mófuglar eru á sumrin
en ijúpa á vetrum. Lítur út fyrir
að framboð á fiskmeti í ám og
vötnum fullnægi ekki lengur matar-
þörf hans og því leiti hann í annað.
Einmitt þetta atriði gerir málið snú-
ið.
Það er hvergi hægt að ganga að
honum vísum. Það er alveg út í
hött að ætla sér að setjast einhvers
staðar á hól og bíða þess að minkur
birtist.
Ólafúr Jónsson
„Enn á ný er vá fyrir
dyrum í íslensku dýra-
ríki, nefnilega búraref-
urinn sjálfiir, og aftur
er það maðurinn sem
veldur.“
Byssa er einungis notuð þegar
læða finnst með hvolpa sína, enda
minkurinn þá bundinn við einn stað
þ.e. grenið. Í Kelduhverfi einu
veiddust 30 minkar veturinn ’88-’89
en þrátt fýrir það voru unnin 9
greni með samtals 33 hvolpum
vorið ’89. Hvernig hefði ástandið
orðið ef ekki hefði verið stunduð
bogaveiði um veturinn?
Meðfram lækjum og smátjömum
þar sem áður mátti sjá óðinshana,
urtönd, stokkönd, toppönd, straum-
önd o.fl. tegundir sést nú varla
stakur fugl lengur, en þar kemur
fleira til en bara minkurinn. Aukinn
Ijöldi ránfugla og þó einkum fjölgun
fálka er líka ástæða þessa bagalega
ástands.
Alfriðun fálkans hefur haft þau
áhrif að honum hefur ekki verið
haldið niðri eins og áður var gert.
Furðu og gremju vekur sú árátta
einstakra fuglaskoðara að hafa
bara áhuga á einni tegund fugla,
og vilja fjölda hennar sem mestan
án tillits til þess hvaða áhrif það
hafi á aðrar tegundir. Náttúruvernd
af þessu tagi vinnur á móti upphaf-
legum markmiðum rétt eins og
skrif Magnúsar koma til með að
gera.
Fálki leitar nú í auknum mæli
til veiða á sundfuglum svo sem
gulönd, æðarkollu, hávellu, og hús-
önd en sumar þessar tegundir eiga
í vandræðum með ' að koma upp
ungum sínum á Mývatni og eru
taldar í útrýmingarhættu hér á
landi. Fjöldi hrafna og máfa bætir
ekki ástandið og nægir kannski að
minna á fréttir af salmonellusmiti
nú nýlega til að fólk átti sig á því
hvert stefnir.
Enn á ný er vá fyrir dyrum í
íslensku dýraríki, nefnilega búra-
refurinn sjálfur, og aftur er það
maðurinn sem veldur. Búrarefur er
nefnilega þeim eiginleika gæddur
að geta tímgast við íslenska villi-
refnum og er sú blöndun nú þegar
hafin sumstaðar á landinu. Já, leitt
er nú til þess að hugsa ef eftir
nokkra áratugi verður ekki neitt
til sem heitir íslenskur villirefur
aðeins blendingar og bastarðar. ís-
lenski refurinn er hluti af íslenskri
sögu og arfleifð þjóðarinnar. Hann
ber að varðveita ómengaðan jafn-
framt því sem fjölda hans er haldið
innan skynsamlegra marka. Enginn
veit hvaða hegðunarmynstur blend-
ingar þessir myndu taka upp þegar
fram liðu stundir en þó er ljóst að
Yfírlýsing frá Flugfax hf:
Flugfax fái sjálft að af-
greiða sínar fraktflugvélar
Vegna blaðaskrifa um afgreiðslugjöld og lendingar
Afgreiðslugjöld Flugleiða
Fram hefur komið að Federal
Express hafi beðið um aukna þjón-
ustu hjá Flugleiðum og látið er að
því liggja að Fedex hafi yfir engu
að kvarta varðandi afgreiðslugjöld
fraktflugvéla á vegum Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli.
Flying Tigers/Federal Express
hafa formlega kvartað undan hárri
gjaldtöku Flugleiða við utanríkis-
ráðuneytið þann 6. júlí 1989 ásamt
ítrekuðum mótmælum Flugfax hf.
fyrir þeirra hönd um þessi atriði.
Forráðamenn Flugfax hf. fengu
skriflegt umboð til samninga fyrir
hönd Flying Tigers í desember 1988
og er núverandi samningur byggður
á þeim samningaviðræðum. Flying
Tigers og Flugfax hf. fyrir þeirra
hönd óskuðu þá sérstaklega eftir
„pro rata“ (hlutfallslegri) gjaldtöku
en þeirri ósk var alfarið hafnað.
Það var því eðlilegt að Flugfax hf.
með samþykki Flying Tigers reyndi
að ná þessari mikilvægu leiðrétt-
ingu fram.
Eftirfarandi atriði skulu hér ná-
kvæmlega rakin:
1. í desember 1988, Samningur
um afgreiðslugjöld:
Flugfax hf. fyrir hönd Flying
Tigers samdi um afgreiðslugjöld
B-747-vöruflutningavéla. Samkom-
ulag varð um gjaldtöku vegna vöru-
afgreiðslu, sértaklega „pro rata“-
gjaldtöku. Á þessum tíma var gjald-
skrá Flugleiða fyrir B-747 um USD
1.900,- að viðbættu 50% álagi
þegar um vöruflug var að ræða
eða um USD 2.850,-. Samkvæmt
gjaldskrá er miðað við afgreiðslu á
heilum vélum, þ.e.a.s. efra og neðra
dekk eða neðra dekk og farþegaaf-
greiðslu. Samþykkt var að sinni að
greiða USD 2.514,- fyrir vöruaf-
greiðslu neðra dekks, þ.e.a.s. um
25 tonn afgreidd út og um 25 tonn
afgreidd inn í vélamar. Samningur
var ekki stðafestur af hálfu Flying
Tigers þar sem aðilar vildu frekari
viðræður síðar.
2. í apríl 1989. Beiðni Flug-
leiða um gjaldskrárbreytingar
og hækkun afgreiðslugjalda.
Flugleiðir óskuðu eftir breyting-
um á gjaldskrá sem átti að byggj-
ast á samræmingu við LATA-staðla
ásamt því að millilendingargjöld
hækkuðu lítillega. Óskað var eftir
að gjaldtaka fyrir leiguflug og áætl-
unarflug verði með samkomulagi
milli aðila og eiginleg gjaldskrá
felld niður. Miða átti við gagn-
kvæmni, að SAS borgi sama gjald
hér og Flugleiðir borga SAS í
Skandinavíu fyrir sömu þjónustu
og sama myndi gilda fyrir t.d.
Lufthansa. Ofangreind beiðni var
samþykkt af utanríkisráðuneytinu
að tillögu umsagnaraðila, flugval
larstjórans á Keflavíkurflugvelli.
Hvorki umsagnaraðila né utanríkis-
ráðuneyti var gerð grein fyrir
umtalsverðum hækkunum á af-
greiðslu fraktflugvéla. Flugleiðir
sem afgreiðsluaðili og flugrekstra-
raðili gátu nýtt sér gagnkvæmni
gjaldtöku og öðrum mismunað, t.d.
Amarflugi, sem ekki gátu nýtt
gagnkvæmni í samningum við t.d.
Lufthansa í Hamborg. Sem dæmi
um hækkun afgreiðslugjalda B-747
þá var gjaldið skv. gjaldskrá USD
2.850,- hækkað í USD 6.250,- auk
USD 35,- per tonn umfram 35 tonn
eða samtals USD 12.025 fyrir fulla
vél sem er yfir 300% hækkun frá
fyrri gjaldskrá.
3. í júní og júlí 1989. Beiðni
Flugfax um afgreiðslu efra dekks
B-747 og gjaldtaka vegna þess.
Vegna beiðni hrossaútflytjenda
um flutning á takmörkuðum fjölda
hrossa til Evrópu á samkeppnis-
hæfu verði og óska innflytjenda á
flutningi til landsins á vörum sem
ekki var unnt að afgreiða af neðra
dekki B-747 sökum stærðar og
vegna hugsanlegs flutnings á laxi
frá Færeyjum til Japans í gegnum
Keflavíkurflugvöll óskuðu Flug-
fax/Flying Tigers eftir afgreiðslu á
efra dekki B-747. Þar sem Flugleið-
ir áttu ekki tæki til að afgreiða
efra dekk og ekki tókst að fá fram
hvenær unnt væri að fá slíka af-
greiðslu var leitað til utanríkisráðu-
neytisins og fóru fulltrúar Federal
Express/Flying Tigers og Flugfax
á fund þess þann 6. júlí 1989. Þar
var kvartað undan gjaldtöku Flug-
leiða, neitun þeirra á að ræða „pro
rata“gjaldtöku, vöntun á efra dekks
lyftara og ósk um afgreiðslu Flug-
fax á fraktvélum á eigin vegum.
Að beiðni ráðuneytisins aflaði Flug-
fax gagna um gjaldtöku á sambæri-
legri fraktvélaafgreiðslu erlendis.
Með samanburði á gjaldtöku hér
og erlendis kemur í Ijós eftirfarandi:
Eins og að ofan greinir eru gjöld
Flugleiða miðað við þá flugvelli,
sem notaðir eru mest af Flugleiðum
þegar eingöngu er um vöruflug að
ræða, miklu hærri. Á öllum þessum
flugvöllum er unnt að semja um
svokallað „pro rata“-kerfi, sem leið-
ir til miklu meiri lækkunar á verði,
auk þess sem hægt er að semja um
Federal Express
20-45% afslátt.
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Flugleiðir keyptu efra dekks
lyftara sem kom í nóvember 1989
og var strax notaður við lestun efra
dekks á Airbus 310-flugvélum
Martinairs svo og við afgreiðslu á
B-747 frá Federal Express í desem-
ber 1989.
4. Júlí/október 1989. Samn-
ingaviðræður Flugfax og Flug-
leiða um afgreiðslugjöld.
Á þessu tímabili eru haldnir, all-
margir fundir með félögunum, flest-
ir fyrir milligöngu utanríkisráðu-
neytisins sem lagði á það mikla
áherslu að réttmæt lausn fyndist.
Aðilar nálguðust hvað varðar gjald-
töku á heilum fraktvélum en Flug-
leiðir stóðu enn sem áður óhaggan-
legar hvað varðaði „pro rata“-gjald-
töku. Þá var tilboð um gjöld mis-
munandi eftir því í hvaða átt flug-
vélarnar voru að fara, þ.e.a.s ef
flogið var á leiðum sem Flugleiðir
fljúga var gjaldið hærra en á þeim
leiðum sem þeir fljúga ekki á, sbr.
til Japans. Enn og
aftur er afgreiðslu-
aðilinn Flugleiðir að
styðja við flug-
rekstraraðilann
Flugleiðir. Flugfax
lagði mikla áherslu
á að ná fram „pro
rata“-gjaldtöku þar
sem ljóst var að
DC-10-vélar kæmu í
stað B-747 véla Fedex og því yrði
eldsneytistaka í Keflavík ekki eins
nauðsynleg og áður og yrði því að
minnka kostnað við lendingu í
Keflavík til að sama hagkvæmni
næðist. Enn var ítrekuð ósk Flugfax
um að taka að sér afgreiðslu véla
á vegum þess, svo Flugleiðir þyrftu
ekki að styrkja útgerðarmenn og
Flugvöllur Lestun Grunn- Sam-
gjald tals
B-747 ÍUSD
Ostende, 10 pl.=35 tonn 1.333 1.244 2.577
Billund, full vél inn/út 1.595 1.595
Shannon, full vél inn/út 3.681 3.681
Keflavík, 35 tonn inn/út 6.250 6.250
* Allt verð miðast við gengi 12.10. 1989.
laxabændur eins og þeir hafa gefið
í skyn að þeir séu að gera.
Fram hefur komið með feitletruð-
um fyrirsögnum að Fedex biðji um
frekari þjónustu og jafnframt að
aldrei hafi verið kvartað yfir gjöld-
um. Þetta er einkennandi fyrir
málflutning Flugleiða í þessu máli
að rugla sanian beiðni um áhafnar-
kost og afgreiðslugjöldum á frakt-
flutningavélum eins og virðist.
Fram koma villandi tölur um milli-
lendingargjöld sem enginn ágrein-
ingur hefur ríkt um og afgreiðslu-
gjöldin sem þeir forðast að ræða.
Leiðrétta verður einnig ýmis
atriði í málflutningi Flugleiða hvað
varðar flutninga Federal Express
þar sem talsmenn Flugleiða halda
því fram að lendingum hafi verið
hætt vegna lítilla farmflutninga
Fedex.
Nýjar vélategundir Fedex, DC-10
í stað B-747 á pólar-leiðinni, hafa
minna rúmmál en B-747 og ná því
í mörgum tilfellum ekki hámarks-
þyngd þótt þær séu fullar af vörum.
Því er síður þörf að taka eldsneyti
í þessum tilfellum en heildarkostn-
aður við lendingar kemur auðvitað
inn í útreikninga um hagkvæmni
þess að taka eldsneyti eða vörur.
Þá halda Flugleiðir fram að flutn-
ingamagn hafi dregist saman hjá
Flugfax. Staðreynd er að flutninga-
magn jókst í desember og var per
flug einna hæst yfir árið 1989 og
sama lá einnig fyrir um fyrstu flug
eftir áramót.
Að lokum hafa Flugfax/Federal
Express barist með útflytjendum í
u.þ.b. ár fyrir því að unnt sé að ná
fótfestu á þessum mikilvæga mark-
aði, Japansmarkaði, sem verður
annar stærsti markaður fyrir fisk-
eldi íslendinga í framtíðinni, hvort
sem Flugleiðir reyna að leggja stein
í götu þess eður ei.
Beiðni Flugfax til stjórnvalda er:
a) Flugfax fái að afgreiða sínar
fraktflugvélar.
b) Ef það fæst ekki, að þá verði
tekið upp „pro rata“-kerfí á af-
greiðslugjöldum með sama verði og
er á þeim fraktflugvöllum sem
Flugleiðir skipta aðallega við, þ.e.
a.s. í Billund eða Ostende.
F.h. Flugfax hf.,
Guðmundur Þór Þormóðsson
framkvæmdastj óri