Morgunblaðið - 12.04.1990, Page 1
JMtargttitlifofrfö
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
BLAÐ
SAMTAL VIÐ
Texli: Jóhanna Kristjónsdóttir
Ljósmyndir: Ragnar Axelsson
HUN seg'ir að sér þyki gaman
að eldast og minnist orða Sig-
urðar Nordal um að árin eftir
sextugt séu skemmtilegust svo
fremi heilbrigði og iífsgleði séu
með í för. Vigdís Finnbogadótt-
ir hefur gegnt forsetaembætt-
inu i tæp tíu ár og er fyrst
kvenna í heiminum til að vera
kjörin í lýðræðislegum kosning-
um til slíks embættis. Hún verð-
ur sextug á páskadag. Við
töluðum saman á skrifstofu
hennar í Stjórnarráðinu vegna
þessara timamóta. Ég spurði:
Hvernig heldurðu
að þú hafir ver-
ið sem lítil
stelpa?
„Ja. Mig
grunar að ég
hafi verið skelegg stelpa. í útliti
var ég grindhoruð, óttaleg beina-
sleggja og freknótt. Ég var sem
sagt ekki neitt fríðleiksbarn.
Kannski lét ég að mér kveða
vegna þess að ég varð að gefast
upp á því að vera falleg lítil Shir-
ley Temple - og fara inn á annað
ról. Fólkið mitt í Geldingaholti,
þar sem ég var í sveit, segir að
ég hafi alltaf tekið að mér að
hafa orð fyrir krökkunum. Strax
í bemsku fékk ég þennan mikla
leikhúsáhuga. Það var leikið í
stofunum heima og rennihurðirn-
ar á milli stofanna voru ágætis
tjald. Það var leikið oft, alltaf í
afmælum, frumsamið eða af fing-
rum fram, en flest eitthvað stælt
úr því sem við höfðum séð í Iðnó.
Foreldrar mínir voru skilningsrík-
ir á þetta og mamma lánaði kjól-
ana sína í sýningarnar. Ég átti
skemmtilegt bernskuheimili, föð-
urforeldrar bjuggu hjá okkur og
móðuramma mín kom alltaf í
sunnudagssteikina. Ég á svo
margar minningar frá því þegar
við sátum öll saman á sunnudög-
um og talað var og skeggrætt um
allt milli himins og jarðar. Á laug-
ardagskvöldum fengum við systk-
inin að vaka og hlusta á útvarps-
leikritin. Þetta voru góðar stund-
ir. Ég finn að ég hef verið ræktað
barn; foreldrum mínum fannst
H|
. ;
.
mM
■H