Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 4

Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 4
4 € MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRIL 1990 Vidtirkeiming fyrir góðan bún- að fískiskipa á Vestflörðum lsafírði. MAGNUS Jóhanncsson siglingamálastjóri var á Isafirði fyrir skömmu til þess að veita viðurkenningu forsvarsmönnum sjómanna og útvegs- manna í því skráningarumdæmi á íslandi þar sem fiskiskip voru að jafnaði i bestu lagi á síðasta ári. Þá kynnti hann jafnframt útkomu fimmta sérrits stofnunarinnar um öryggismál, en þar er fjallað um eld um borð í skipum. Þetta er fjórða árið sem Siglinga- málastofnun veitir viðurkenningu fyrir góðan útbúnað fiskiskipa, en miðað er við útkomu úr skyndiskoð- unum sem framkvæmdar eru af starfsmönnum stofnunarinnar fyrir- varalaust í öllum höfnum landsins. Á síðasta ári voru 113 fiskiskip skoðuð á landinu og af 920 atriðum sem skoðuð voru, reyndust 722 í lagi eða 78,4%. Algengustu athugasemdir við öryggisatriði voru varðandi loftinn- tök og lokun þeirra, brunaviðvörun- arkerfi, björgunarnet, neyðarlýsingu og útrennsli af þilfari. Við athugun kom í ljós að best búnu skipin voru að jafnaði með einkennisstafina ÍS en þar voru 84,4% atriða sem skoðuð voru í lagi. Siglingamálastjóri sagði á fundi með fréttamönnum að öryggisbúnað- ur skipa færi batnandi með hveiju ári, en sífellt væri þörf á eftirliti og umræðu um þessi mál. Hann sagði að nú væri verið að skoða sjálfvirkan sleppibúnað björgunarbáta, en í ljós hefði komið að hann virkaði ekki alltaf sem skyldi. Nú vissu menn að ýmislegt annað en sjálf losunin úr sætinu gæti haft áhrif á hvort gúmm- íbjörgunarbátur kæmi upp þegar skip sekkur, en ijármagn skorti nú til áframhaldandi rannsókna. Á með- an beðið væri niðurstöðu eru ekki gerðar kröfur til nýrra skipa að þau hafi sjálfvirkan sleppibúnað um borð. Með s'iglingamálastjóra sátu fund- inn Siguijón^ Hallgrímsson umdæ- misstjóri á ísafirði og Páll Guð- jnundsson deildarstjóri eftirlitsdeild- ar. Kom fram í máli þeirra að ennþá vantaði nokkuð á að fullnægt væri ákvæðum um slysavamaæfingar um borð í skipum lengri en 24 metra en samkvæmt reglugerð bæri að halda slíkar æfingar á þriggja mánaða fresti. Þeir vildu jafnframt benda á að þótt þeim bæri ef til vill að stöðva Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Frá afhendingu viðurkenninga Siglingamálastofiiunar vegna góðs búnaðar í fiskiskipum á norðanverðum Vestfjörðum. Rannsóknarlögreglu- menn á námsstefim Stykkishólmi. NÁMSSTEFNA rannsóknarlögreglumanna var haldin liér í Stykkis- hólmi dagana 31. mars og 1. apríl sl., ein hin fyrsta sem haldin er utan Reykjavíkur. Fjölmenntu félagar á ráðstefhuna. Undirbúningur hennar allur var í þriggja manna nefnd sem skipuðu þeir Eiríkur Helgason, Sumarliði Guðbjörnsson og Gunnleifur Kjartansson. Náms- stefhuna styrktu íslandsbanki og Sjóvá-Almennar. Formaður stjómar, Hannes Thor- arensen, setti námsstefnuna oggerði grein fyrir tilgangi hennar. Þá voru fluttir fyrirlestrar af þeim Hallvarði Einvarðssyni, ríkissaksóknara, Kristjáni Þorbergssyni, lögmanni, Arinbirni Sigurgeirssyni, forstöðu- manni rannsóknardeildar Sjóvá- Almennra, og Bjama Bogasyni, kennara við Lögregluskóla ríkisins. Á eftir hveiju erindi voru umræð- ur og fyrirspurnir. Fréttaritari fylgd- ist nokkuð með námsstefnunni og varð fróðari á eftir um gang lög- reglumála og hversu mikil bylting hefir orðið í þessu kerfi frá því hann var áður um 20 ára skeið starfsmað- ur sýslumanna bæði austan og vest- an og breytingar á lögunum sem enn hafa verið endurskoðuð og ganga senn í gildi og ekki hefir kerfið ein- faldast. Fréttaritari átti stutt spjall við Eirík Helgason sem var í farar- broddi námsstefnunnar. Hann sagði: „Það fer ekki milli mála að það þarf meiri menntun og fræðslu fyrir starfslið rannsóknarlögreglunnar. Því þó menn gangi í gegnum Lög- regluskóla ríkisins þarf alltaf meiri fræðslu og endurnýjun. Þjóðfélagið tekur breytingum ár frá ári, um- gengnishættir breytast og ný mál sem ekki hafa verið hjá okkur áður, koma fram. Það er vandasamt starf að vera rannsóknarlögreglumaður í dag og má það almennt segja um alia lögreglu og hvernig á að bregð- ast við í ýmsum tilfellum." - Telur þú að þessi námsstefna hafi borið árangur? „Tvímælalaust, þetta er eins og upplyfting og endurnýjun. Hér kom- um við alls staðar að og berum sam- an bækur okkar og er það ekki lítils virði. Við teljum, að í gegnum félags- samtök okkar hafi náðst verulegur árangur sem ég vona að skili sér í starfi okkar í framtíðinni. Við finn- um það best eftir þessa námsstefnu að við erum heldur á eftir og þá er bara að sækja í sig veðrið og gera enn betur. Lögreglan er alltaf undir smásjá. Það skulum við athuga.“ Fleiri voru á sama máli og það eitt að eiga svona samverustund utan við höfuðborgarsvæðið er mik- ill styrkur. „Við höfum verið hér í Hólminum ásamt konum okkar þessa tvo daga og viljum ekki láta hjá líða að geta þess hversu hótelið hér hefir á allan hátt staðið sig vel í öllu sem til þess hefir verið leitað til með og starfs- fólkið verið okkur mikil stoð. Það er enginn vandi að mæla með slíkum stað,“ sagði Eiríkur að lokum. - Ámi skip ef haffærni þess væri ekki í lagi samkvæmt reglugerðum væri ábyrgðin í hendi skipstjóra og út- gerðarmanns og oft væri ekki látið vita af breytingum á skipum sem áhrif hefðu á sjóhæfni. Sérritið „Eldur um borð“ hefur nú verið sent öllum útgerðarmönnum landsins eins og gert var með fyrri ritin, en að sögn síglingamálastjóra virtist svo vera í sumum tilfellum að ritin kæmust ekki um borð í bátana og væri það miður. - Úlfar Morgunblaðið/Árni Bjarni Bogason í ræðustól á námsstefiiu rannsóknarlögreglumanna í Stykkishólmi. Minnisblað lesenda MORGUNBLAÐIÐ veitir les- endum sínum að venju upplýs- ingar um heilsugæslu, sérleyfis- ferðir, strætisvagna og aðra þjónustu um bænadaga og páska. Slysadeild Slysadeild og sjúkravakt Borg- arspítalans er opin allan sólar- hringinn. Sími þar er 696600. Læknisþjónusta Helgarvakt lækna er frá klukk- an 17 á miðvikudegi fyrir páska til klukkan 8.00 á þriðjudags- morgni eftir páska. Símanúmer vaktarinnar er 21230. Veittar eru upplýsingar um læknavakt og lyfjabúðir í síma 18888, sem er símsvari Læknafé- lags Reykjavíkur. Tannlæknavakt Á skírdag, föstudaginn langa og laugardaginn fyrir páska verð- ur tannlæknastofa Sigurgísla Ingimarssonar, Garðatorgi 3, Garðabæ, opin frá klukkan 10 til 12. Síminn þar er 656588. Á páskadag verður tannlæknastofa Hannesar Ríkharðssonar, Ármúla 26, sími 685865, opin frá klukkan 10 til 12, og á annan í páskum verður tannlæknastofa Jónásar B. Birgissonar, Laugavegi 126, sfmi 21210, opin frá klukkan 10 til 12. Upplýsingar um neyðarvakt Tannlæknafélagsins eru veittar hjá Læknafélagi Reykjavíkur í síma 18888. Slökkvilið Slökkviliðið í Reykjavík hefur símann 11100, slökkviliðið í Hafn- arfirði 51100 og slökkviliðið á Akureyri 22222. Lögregla Lögreglan í Pteykjavík hefur símann 10200, en neyðarsími hennar er 11166 og upplýsinga- sími 11110. Lögreglan á Akureyri er í síma 23222, í Kópavogi 41200 og Hafnarfirði 51166. Sjúkrabifreiðir í Reykjavík er hægt að leita aðstoðar sjúkrabifreiða í síma 11100, í Hafnarfirði 51100 og Akureyri 22222. Lyfiavarsla Á skírdag er Borgarapótek opið til klukkan 9.00 að morgni föstu- dagsins Ianga. Á föstudaginn langa, páskadag og annan í pásk- um verður Holtsapótek opið allan sólarhringinn, en á laugardaginn verður Laugavegsapótek opið frá klukkan 9.00 til klukkan 22.00. Bilanir Bilanir í hitaveitu, vatnsveitu og gatnakerfi tilkynnist til Véla- miðstöðvar Reykjavíkur í síma 27311. Þar verður vakt allan sól- arhringinn frá skírdegi til annars í páskum. Símabilanir er hægt að tilkynna í síma 05 frá klukkan 8.00 til 24.00 alla daga. Raf- magnsveita Reykjavíkur er með bilanavakt allan sólarhringinn í síma 686230. í neyðartiifellum fara viðgerðir fram eins fljótt og auðið er. Guðsþjónustur Tilkynningar um guðsþjónustur eru á bls. 20-C og 21-C. Skrá yfir fermingarbörn er á bls. 24-C og 25-C. Dagskrár útvarps- og sj ónvarpsstöð va Dagskrár útvarps- og sjón- varpsstöðvanna, ásamt efnisúr- dráttum nokkurra dagskrárliða eru á bls. 1-B til 8-B. Afgreiðslutími verslana og söluturna Leyfilegt er að hafa verslanir opnar frá klukkan 9.00 til 16.00 laugardag fyrir páska, en að öðru leyti verða þær lokaðar um pásk- ana. Söluturnar mega vera opnir á skírdag, laugardag fyrir páska og annan í páskum til klukkan 23.30, en verða að venju lokaðir á föstudaginn langa ogpáskadag. Afgreiðslutími bensínstöðva Á skírdag og annan í páskum verða bensínstöðvar opnar frá klukkan 12.00 til 16.30, en álaug- ardag fyrir páska frá klukkan 7.30 til 20.00. Þær verða hins vegar lokaðar á föstudaginn langa og páskadag. Bifreiðastjórum er einnig bent á sjálfsala sem eru á bensínstöðv- um víðs vegar um borgina og á landsbyggðinni. Strætisvagnar Reykjavíkur Á skírdag verður ekið eins og á sunnudögum, föstudaginn langa hefst akstur um klukkan 13.00, og verður ekið samkvæmt sunnu- dagstímatöflu. Á laugardaginn fyrir páska hefst akstur á venju- legum tíma, og er þa ekið eftir laugardagstímatöflu. Á páskadag hefst akstur um klukkan 13.00 og er ekið samkvæmt sunnu- dagstímatöflu, og á annan í pásk- um verður ekið eins og á sunnu- dögum. Strætisvagnar Kópavogs Á skírdag verður ekið eins og venjulega á sunnudögum, en á föstudaginn langa hefst akstur um klukkan 14 og eftir það verð- ur ekið eins og á sunnudögum. Laugardaginn fyrir páska verður ekið eins og á venjulegum laugar- degi, á páskadag verður ekið eins og á föstudaginn langa, og á ann- an í páskum verður ekið eins og á sunnudögum. Mosfellsleið Á skírdag og annan í páskum verður ekið samkvæmt sunnu- dagsáætlun. Á laugardaginn fyrir páska verður ekið samkvæmt venjulegri laugardagsáætlun, en engar ferðir verða á föstudaginn langa og páskadag. Langferðabifreiðir Gera má ráð fyrir því að um þessa páska ferðist um 5000 manns með sérleyfisbifreiðum. Á skírdag verður ekið á öllum leiðum samkvæmt áætlun, en á föstudag- inn langa og páskadag eru engar ferðir á lengri leiðum, en ekið á styttri leiðum samkvæmt stórhá- tíðaráætlun. Á annan í páskum er ekið samkvæmt sunnudags- áætlun á flestum sérleyfum og aukaferðum gjarnan bætt við. Allar nánari upplýsingar um akst- ur sérleyfisbifreiða um páskana veitir BSÍ í síma 91-22300. Vegaeftirlit Símsvari Vegaeftirlitsins veitir upplýsingar um færð á helstu vegum í símum 91-21001 og 91-21002. Vegaeftirlitið verður einnig með vakt frá klukkan 8.00 til 12.00 á skírdag, laugardag fyrir páska og annan páskadag. Tilkynningaþjónusta fyrir ferðamenn Ferðamenn geta hringt í síma 91-686068 allan sólarhringinn og látið vita um ferða- ogtímaáætlun sína, þannig að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir komi þeir ekki fram á réttum tíma. Eru ferðamenn hvattir til að notfæra sér þessa þjónustu, hvort heldur sem um er að ræða stuttar eða langar ferðir. Þjónusta þessi er rekin af Landssambandi hjálpar- sveita skáta og Landssambandi flugbjörgunarsveita í samvinnu við vaktfyrirtækið Securitas, ferðafólki að kostnaðarlausu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.