Morgunblaðið - 06.05.1990, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990
Icelandic Freezing Plants í Bretlandi:
Verð á verksmiðjuvöru
46% hærra en í fyrra
ICELANDIC Freezing Plants, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í Bretlandi, seldi verksmiðjuvöru fyrir 5,541 milljónir
punda eða um um 554 milljónir króna fyrstu fjóra mánuði þessa árs,
eða 46% hærra heildarverð en á sama tíma í fyrra, að sögn Ingólfs
Skúlasonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. IFPL seldi flök fyrir
4,909 milljónir punda eða um um 491 milljónir króna fyrstu Ijóra
mánuðina í ár, eða 9% hærra heildarverð en á sama tíma í fyrra.
Ingólfur Skúlason sagði að verk-
smiðjuframleiðsla IFPL hefði ver-
ið aðalvandamálið í rekstri fyrirtæk-
isins síðastliðin ár. „Við höfum veitt
geysilegu fjármagni og orku í að ná
upp vöruþróunarmálum og nýjum
viðskiptavinum á síðustu tveimur
árum og það er að skila sér afskap-
lega vel núna,“ sagði Ingólfur.
„Vöruþróunarstarfið skilar sér hins
vegar miklu seinna en menn gerðu
ráð fyrir í upphafi og margir íslensk-
ir framleiðendur, sem hafa verið að
reyna að koma sinni vöru inn á
markaði erlendis, hafa lent í því
sama,“ sagði Ingólfur.
Hann sagði að salan á verksmiðju-
vörunni dreifðist á mjög stóran hóp
viðskiptavina og salan hefði aukist
frá mánuði til mánaðar. „í síðasta
mánuði pökkuðum við og sendum
út 690 tonn af vöru, sem er það
mesta sem framleitt hefur verið í
einum mánuði frá upphafí fyrirtæk-
isins."
Verðhækkanir á steypu frá 1984:
Hækkunin 289% en ekki 396%
- segir Halldór Jónsson forstjóri.
HALLDÓR Jónsson forstjóri Steypustöðvarinnar hf. segir að það sé
rangt hjá verðlagsráði að verð á steypu hafí hækkað' um 396% frá
því verðlagning á steypu var gefin firjáls árið 1984, og hið rétta sé
að verðið hafi hækkað um tæp 289% á tímabilinu fyrir utan áhrif
aukinnar skattheimtu ríkissjóðs.
etta kemur fram í greinargerð
sem Halldór hefur sent Verð-
lagsstofnun og óskað var eftir vegna
6% hækkunar á steypu 1. apríl
síðastliðinn í kjölfar 6% hækkunar á
sementi. Halldór bendir einnig á að
um síðustu áramót hafi verið tekinn
upp virðisaukaskattur á steypu,
bæði efni og akstur, en áður hafi
akstur með steypu verið söluskatts-
frjáls, og söluskattshluti í steypu
verið 10,4%. Þá hafi 9% vörugjald
verið Iagt á steypu 1. janúar 1989,
og með sama söluskattshlutfalli og
var í gildi á síðasta ári ætti verð á
steypu því að vera 8.515 kr. rúm-
metrinn til neytandans í stað 9.921
kr., og hækkun steypu frá 1984 því
287,6%. Hann bendir á að á þessu
tímabili hafi byggingarvísitala 3,4
faldast og meðaltal hækkunar bygg-
ingarvísitölu og sements 2,8 faldast,
og steypa því fylgt meðaltali al-
mennra verðbreytinga og verði á
sementi.
Halldór segir að 6% hækkun á
steypu 1. apríl hafi skilað steypu-
stöðvunum 3% til þess að vega upp
á móti 9,75% kostnaðarhækkunum
að meðaltali, sem orðið hafi á tíma-
bilinu frá 1. september 1989, þegar
verð á steypu hækkaði síðast, og
því sé einsýnt að steypa þurfi að
hækka aftur fljótlega. Hann bendir
á að á þessu tímabili hafi vísitala
byggingarkostnaðar hækkað um
13,5%, díeselolía um 1,37%, laun
bílstjóra um 6,4% og gengi v-þýsks
marks um 16,05%.
Morgunblaðið/Sverrir
Brúarsmíði gengur vel
Á Arnameshæð hefur í vetur verið unnið við brúargerð og hafa fram-
kvæmdir gengið að óskum. Að sögn Rögnvaldar Jónssonar umdæmis-
verkfræðings í Reykjanesumdæmi, stefnir brúarverktakinn að verklok-
um í júlí í stað október eins og gert var ráð fyrir. Búið er að sprengja
fyrir vegarstæði í sjálfri hæðinni og er verið að slá upp mótum fyrir
brúnni. Erfiðlega gekk í vetur að undirbyggja vegarstæði að brúnni
vegna langvarandi frosts í jörðu og hefur jarðvinna á vegum Vegagerð-
arinnar dregist af þeim sökum. Aætlaður kostnaður við verkið er um
320 milljónir króna og verður verkið allt unnið á þessu ári.
Alþingi:
UmhverjBs-
málafhimvarp-
ið samþykkt
FRUMVARP um yfirstjóm um-
hverfismála var samþykkt sem
lög frá Alþingi í gær, laugar-
dag, og á hádegi var stefiit að
því að Ijúka þingstörlum í gær-
kvöldi.
Frumvarp um yfirstjórn um-
hverfismála var samþykkt í
efri deild í gærmorgun með þeim
breytingum að Geislavarnir ríkis-
ins og ýmsir þættir hollustuvernd-
ar og heilbrigðseftirlits falli ekki
undir umhverfisráðuneytið og
Skógrækt ríkisins og Landgræðsla
ríkisins starfi áfram sem sjálf-
stæðar stofnanir. Stefnt skuli að
endurskoðun laga varðandi þessa
þætti.
Á hádegi í gær var gert ráð
fyrir að þingstörfum lyki í gær-
kvöldi. Var þá meðal annars stefnt
að því að afgreiða frumvörp til
laga um raforkuver, stjóm fisk-
veiða og Hagræðingarsjóð sjávar-
útvegsins.
Innbrots- og
bensínþjófar
handteknir
LÖGREGLAN stóð mann að inn-
broti í söluturn á Vesturgötu á
sjöunda tímanum í gærmorgun.
IVt eðal rúmlega tuttúgu manna
sem gistu fangageymslur lögregl-
unnar voru fimm ungmenni sem
staðin voru að bensínþjófnaði úr
geymum bíla við Bifreiðar og land-
búnaðarvélar og Bílaleigu Akur-
eyrar.
10 ökumenn voru grunaðir um
ölvun við akstur aðfaranótt laug-
ardagsins.
Verð aldrei annað
en sjálfstæðismaður
- segir Albert Guðmundsson
„ÉG hafði búist við þessu nokk-
uð lengi og held að þeir hafi
gert alveg rétt. Þetta eru sjálf-
stæðismenn og eiga hvergi bet-
ur heima en í Sjálfstæðisflokkn-
um,“ sagði Albert Guðmundsson
þegar leitað var viðbragða hans
við því að þingmenn Fijálslynda
hægp^i flokksins, sonur hans Ingi
Bjöm og Hreggviður Jónsson,
hafa gengið til liðs við þingflokk
Sjálfstæðisflokksins.
Aðspurður kvaðst Albert telja
að gróið væri um heilt milli
sjálfs sín og Sjálfstæðisflokksins.
„Ég hef alltaf verið sjálfstæðis-
maður og verð aldrei neitt annað,
sama hvort ég starfa undir nafni
Borgaraflokksins, sem er liðin tíð,
eða eitthvað annað. Ég sé ekki að
það séu særindi milli mín og Sjálf-
stæðisflokksins eða annarra flokka
þótt ég hafi orðið fyrir miklum
vonbrigðum með Borgaraflokkinn
enda ekki fundið þar til samstöðu
með öðrum en þeim sem voru í
raun sjálfstæðismenn." Albert
kvaðst telja að bæði hann sjálfur
og forysta Sjálfstæðisflokksins
hefðu áttað sig á því að það hefði
verið óþarfa upphlaup sem olli því
að vinabönd hefðu slitnað um tíma.
Hann og þeir hefðu sæst fullum
sáttum.
„Ef ég fer einhvem tímann aft-
ur í pólitík verður það ekki annars
staðar en á vettvangi Sjálfstæðis-
Alberf Guðmundsson, sendi-
herra íslands í París.
flokksins. En í augnablikinu er ég
ekki í pólitík, hvorki landsmálum
né sveitarstjómarmálum. Ég er að
reyna að vera sæmilegur sendi-
herra. Þá verður maður að vera
hlutlaus gagnvart öllum og starfa
að stefnumálum þeirra manna sem
þjóðin hefur valið til forystu,"
sagði Albert Guðmundsson, sendi-
herra íslands í París.
Fisksalan í Hull og Grimsby:
Verðmunur milli út-
flyljenda allt að 50%
Markmið Aflamiðlunar er að hámarka mögulegt verð
og takmarka útflutning á fiski til frekari vinnslu erlendis
ALLT að 50% verðmunur hefúr reynzt á þeim fiski, sem seldur
hefúr verið héðan úr gámum á uppboðsmörkuðunum í Hull og
Grimsby. Síðan Aflamiðlun tók til starfa, hefur verið haldið saman
upplýsingum um verð á seldum fiski eftir bátum, en stefna stjórn-
ar hennar er meðal annars sú, að taka mið af gæðum við úthlutun
útflutningsleyfa. Verðmunur ræðst að miklu leyti af gæðum, stærð
fisksins og seldu magni.
Sigurbjörn Svavarsson, formað-
ur stjómar Aflamiðlunar, segir
að frá því Aflamiðlunin hefði tekið
til starfa, hafi umsóknir um út-
flutning á þorski og ýsu í gámum
verið í kring um 2.000 tonn, en
heimilaður hefði verið útflutningur
á innan við
1.000 tonnum
vikulega að
meðaltali. Til
þessa hefðu
innlendir kaup-
endur ekki nýtt
sér möguleika til fiskkaupa í gegn
um Aflamiðlun og taldi hann
mögulega skýringu á því, að í
mörgum tilfellum væri það vinnsl-
an sjálf, sem sækti um útflutn-
ingsleyfi og fengjust þau ekki,
verkaði umsækjandi fiskinn ein-
faldlega sjálfur. Sigurbjöm sagði
markmið stjórnarinnar það, að
leyfilegur útflutningur miðaðist
við, að meðalverð yrði hverju sinni
ekki lægra en 1,10 pund á kíló.
Það væri gert til að hámarka
mögulegan hagnað af þessum út-
flutningi og jafnframt væri reynt
að miða leyfi;
legt magn við
það, að fiskur-
inn færi ekki til
frekari vinnslu
ytra. Meðal
annars af þeim
sökum hefði að minnsta kosti ekki
enn verið heimilaður útflutningur
á ferskum físki til Danmerkur, þar
sem vitað væri að þar færi hann
beint í vinnslu. Til að halda sem
hæstu verði, væri einnig tekið mið
af því við úthlutun, hver gæði
fisksins hjá umsækjendum væm,
en við athugun Aflamiðlunarinnar
á verði físksins ytra eftir bátum
hefði komið í Ijós allt að 50% verð-
munur á fiski, sem seldur var sama
daginn. Hann sagði, að hlutverk
Aflamiðlunar væri kannski vanda-
samara en ella vegna þess að frá
áramótum væri verð á þorski og
ýsu um 40% hærra en á sama tíma
í fyrra talið í sterlingspundum.
Því væri ásóknin mikil, en reynt
væri að stýra útflutningnum þann-
ig að drægi úr sölu þorsks en ýsan
ykist. Þá gat hann þess, að þær
tvær vikur, sem heimilaður hefði
verið útflutningur á flöttum fersk-
um fiski, hefðu 685 tonn farið
utan.
Aflamiðlun vinnur nú að því að
keyra saman upplýsingar um út-
hlutun útflutningsleyfa, útskipanir
á fiskigámum og sölu á mörkuðun-
um til að kanna hvort um mögu-
lega misnotkun á leyfum geti ver-
ið að ræða. Allar upplýsingar Afla-
miðlunar eru opinberar og er það
von stjórnar hennar, að fiskútflytj-
endur jafnt sem fiskkaupendur
nýti þær til stýringar á útflutningi
og fiskmiðlun innan lands.
BflKSVlÐ
eftirHjört Gíslason