Morgunblaðið - 06.05.1990, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990
T Tl ATer sunnudagur 6. maí, 126. dagur ársins 1990.
1 UAlj3. sd. eftir páska. Árdegisflóð í Reykjavík kl.
4.19 og síðdegisflóð kl. 16.47. Sólarupprás í Reykjavík kl.
4.44 og sólarlag kl. 22.07. Myrkur kl. 23.25. Sólin er í hádeg-
isstað í Reykjavík kl. 13.24. Tunglið í suðri kl. 23.18. (Alman-
ak Háskóla Islands).
Gjör skref mín örugg með fyrirheiti þínu og lát ekkert
ranglæti drottna yfir mér. (Sálm. 119,133.)
ÁRNAÐ HEILLA
A A ára afmæli. Á morgun,
í/U mánudaginn 7. maí, er
níræð frú Anna Loftsdóttir,
Vegamótum á Seltjarnarnesi.
Hún tekur á móti gestum á
heimili sonar síns og tengda-
dóttur, Sæbraut 5 þar í bæn-
um, milli kl. 16 og 19 á af-
mælisdaginn.
dór Benediktsson, bifreiða-
stjóri frá Hellissandi, Gaut-
landi 19 hér í Rvík. Kona
hans e'r frú Ólöf Jóhannsdótt-
ir. Þau eru stödd erlendis um
þessar mundir.
HA ára afmæli. í dag, 6.
I i/ þ.m., er sjötugur Jón
Kr. Jónsson, Tjarnargötu 9
í Sandgerði. Þar er hann út-
gerðarstjóri Miðness hf. Kona
hans er Magnea Dóra. Eru
þau nú stödd vestur í Banda-
ríkjunum á heimili systir
Magneu Dóru, frú Ingu M.
Freeberg, 7918 Roble place,
Carlsbad, California 92009.
ára afinæli. Á morgun,
övl 7. maí, er sextug
Sigríður Sóley Sigurjóns-
dóttir frá Steinavöllum í
Fljótum, Eyjabakka 15 hér
í Rvík. Hún ætlar að taka á
móti gestum á heimiii sínu í
dag, sunnudag, kl. 15-20.
SKIPIN_______________
RE YK JA VÍKURHÖFN:
í gær kom Ljósafoss af
ströndinni. Þá fór ísnes.
Grundarfoss var væntanleg-
ur að utan og Selfoss lagði
af stað til útlanda. í dag enj
væntanlegir inn af veiðum
togararnir Ásbjörn og Vigri.
Nú um helgina koma tvö olíu-
skip, annað kom í gær Zhan
Griva, og hitt er væntanlegt
í dag Vingavaag.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: Urriðafoss fer í
kvöld til útlanda og togarinn
Hjalteyrin er væntanlegur í
dag.
KROSSGATAN
■
9
13
nr
S-mz
■:
122 23 24
WUmZ ■■KT
LÁRÉTT: - 1 Evrópubúar,
5 kalt, 8 gamla, 9 sæti, 11
endalok, 14 ýlfur, 15 magran,
16 ritfang, 17 vætla, 19 ró,
21 bára, 22 hjálpa, 25 for,
26 rándýr, 27 sefi.
LÓÐRÉTT: 2 blaut, 3
kraftur, 4 gunguna, 5 rösk-
leiki, 6 of lítið, 7 þreyta, 9
bresta, 10 vita lítið, 12 slær
létt högg, 13 ranglaði, 18
gjálfur, 20 greinir, 21 tií, 23
gyltu, 24 ógrynni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 svart, 5 agnar, 8 orður, 9 fróði, 11 nálar,
14 lóa, 15 lykil, 16 rúðan, 17 ana, 19 senn, 21 krói, 22
dýrunum, 25 iði, 26 úði, 27 sin.
LÓÐRETT: - 2 vor, 3 roð, 4 trilla, 5 aumara, 6 grá, 7
aka, 9 fylgsni, 10 óskundi, 12 liðorms, 13 runninn, 18 nauð,
20 ný, 21 ku, 23 rú, 24 Ni._ .
Siöasti aðalfundur Samvinnubankans haldinn í gær. Landsbankinn hefur
nú yfirtekið rekstur hans. Guðjón B. Ólafsson formaður bankaráðs:
Ekki útför heldur brúðkaup
Guöjón B. Ólafs-
son formáður bankaráðs Samvinnubankans sagði í ræðu
sinni á aðalfundinum, aö ástæöulaust væri fyrír menn að
drúpa höfðl og vera sorgmæddir; hér væri ekki aö fara fram
jaröarför, heldur brúökaup. j , |
TG-MUAlJ^
Nei, Sverrir minn. Þú átt að kyssa brúðina, ekki heimanmundinn ...
FRÉTTIR/MANNAMÓT
SENDIHERRAR. í tilk. frá
utanríkisráðuneytinu í Lög-
birtingablaðinu segir að skip-
aðir hafi verið í utanríkisþjón-
ustuna tveir sendiherrar.
Annar þeirra, Hörður H.
Bjarnason, var skipaður hinn
1. mars, en skipun Róberts
T. Árnasonar sem sendi-
herra tekur gildi 1. júní nk.
FERÐAMÁLARÁÐ. Þá
augl. samgönguráðuneytið
lausa stöðu upplýsingafull-
trúa hjá Ferðamálaráði ís-
lands. Umsóknarfrestur um
það starf er til 11. maí. Segir
að starf fuiltrúans felist m.a.
í því að hafa umsjón með
umhverfismálum, svara fyrir-
spurnum erlendis frá og veita
almennar uppl. og ráðgjöf um
ferðamál. Umsóknarfrestur
er til 11. þ.m.
HÁTEIGSKIRKJA. Kaffi-
sala Kvenfélagsins verður í
dag í Sóknarsalnum við Skip-
holt frá kl. 14.30.
FÉL. Barnamál, sem er
áhugamannaféiag um
bijóstagjöf, vöxt og þroska
barna, heldur fræðslufund
annað kvöld í félagsheimilinu
í Kópavogi, Fannborg 2.
Fundarefni: Unglingurinn
og fjölskyldan. Fyrirlestur
sem Áskell Örn Kárason
sálfræðingur flytur.
Fræðslufundurinn er öilum
opinn. Kaffiveitingar.
LANGHOLTSKIRKJA. í
dag er kaffisöludagur Kven-
félags kirkjunnar til styrktar
Minningarsjóði frú Ingi-
bjargar Þórðardóttur.
Hefst kaffisalan að lokinni
guðsþjónustu í kirkjunni.
SAMTÖK um sorg og
sorgarviðbrögð efna til
fræðslufundar í safnaðar-
heimili Laugarneskirkju nk.
þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Fjallað verður um:
„Sjálfsvíg". ’
KYENFÉL. Keflavíkur
heldur vorfund annað kvöld
kl. 20.30 í Kirkjulundi.
NÝ frímerki koma út á
morgun, Evrópumerkin,
sem eru tvö. Á aðalpósthúsinu
verður að vanda í umferð hinn
sérstaki dagstimpill í aðal-
pósthúsinu í Pósthússtræti.
NESKIRKJA. í dag verður
vorferð safnaðarins farin.
Lagt verður af stað frá kirkj-
unni kl. 12. Farið verður aust-
ur að Skarði í Landsveit.
Prestur safnaðar Neskirkju,
sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son, messar í Skarðskirkju.
Kór Neskirkju syngur.
ITC-deildin Ýr heldur fund,
sem er öllum opinn, annað
kvöld í félagsheimili Fél.
frímerkjasafnara í Síðumúla
17 kl. 20.30. Nánari uppl.
gefa Kristín s. 34159 eða
Pálína s. 27896.
SELJAKIRKJA. Barna- og
æskulýðsstarf á mánudag
með fundi í Æskulýðsfél. Sela
kl. 20.
LAUGARNESSÓKN. Kven-
fél. Laugarneskirkju heldur
fund annað kvöld í safnaðar-
heimili kirkjunnar kl. 20.
Veitingar verða bornar fram.
SELTJARNARNES-
KIRKJA. í kvöld kl. 20.30
verða kirkjutónleikar kirkju-
kórs Bolungarvíkur og safn-
aðarkórs Seltjamarneskirkju.
Einsöngvarar eru: Elísabet
F. Eiríksdóttir, Sigrún V.
Gestsdóttir og Anna Júl-
íana Sveinsdóttir. Kórstjóri
er Michael A. Jones. Kon-
sertmeistari og einleikari á
fiðlu er HlífSigurjónsdóttir.
SYSTRAFÉL. Víðistaða-
sóknar heldur árlegan hatta-
fund sinn annað kvöld í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Skemmtiatriði verða og efnt
til happdrættis. Gestir félags-
ins verða konur úr Kvenfél.
Bústaðakirkju.
FÉLAGSSTARF aldraðra í
Kópavogi. Basar og kaffisala
fyrir gesti og gangandi verður
nk. miðvikudag, 9. þ.m., kl.
15-18 í félagsheimili bæjarins
Fannborg 2. Þar verður tekið
á móti basarmunum á þriðju-
daginn kemur kl. 10-15.
KVENFÉL. Heimaey heldur
aðalfund sinn á þriðjudaginn
kemur kl. 20.30 í veitingahús-
inu Holiday Inn. Módelsam-
tökin halda tískusýningu.
Kaffiveitingar.
HAGBAKKI heitir hlutafé-
lag sem tilk. er um í Lögbirt-
ingi og er það á Siglufirði.
Tilgangur þess er útgerð
dýpkunarskipa m.m. Stofn-
endur eru einstaklingar þar í
bænum. Er hlutafé félagsins
kr. 100.000. Stjórnarformað-
ur er Álfhildur R. Halldórs-
dóttir. Framkvæmdastjóri er
Valbjörn Steingrímsson.
FÆREYINGAKAFFI. Arleg
kaffisala í færeyska sjó-
mannaheimilinu í Brautar-
holti 29 er í dag kl. 15 og
22.30. Allur ágóði af kaffisöl-
unni fer til þess að fullgera
sjómannaheimilið. Er þetta
árlegur skerfur færeyskra
kvenna til heimilisins, en þær
starfa í fær. félagsskapnum
Sjómannskvinnuhringnum.
LÍF og land. í dag halda
þessi samtök aðalfund sinn á
Loftinu í Lækjarbrekku kl.
17. Að loknum aðalfundar-
störfum flytur Hreinn Hjart-
arson veðurfræðingur er-
indi um súrt regn.
BREIÐFIRÐINGAFÉL.
Dagur aldraðra Breiðfirðinga
er í dag, 6. maí, í Breiðfirð-
ingabúð. Skemmtidagskráin
hefst kl. 15.30 og kaffiveit-
ingar á eftir.
KIRKJUÞING. Kjörstjórn
við kosningu til kirkjuþings
tilk. í Lögbirtingablaðinu að
kjörskráin hafi verið lögð
fram. Er hún til sýnis í Bisk-
upsstofu við Suðurgötu og í
dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu fram til 9. maí,
þ.e.a.s. til miðvikudags.
Kosning til kirkjuþings fer
fram í þessum mánuði og
þeim næsta. í kjörstjórninni
eiga sæti Þorsteinn Geirs-
son, Guðmundur Þorsteins-
son og Ragnhildur Bene-
diktsdóttir. Kærufrestur er
til 10. maí, segir í tilk.
ORÐABÓKIIU
Að geraí blóðið sitt
Oft kemur fyrir, að menn
misskilja ýmis orðasambönd
eða orðtök og á stundum á
þann veg, að úr verður allt
annað en þeir vildu segja.
Fyrir nokkrum árum skrif-
aði ég t.d. hjá mér orðalag,
sem kom fram í útvarps-
þætti, þar sem rætt var um
kvikmyndagerð. M.a. var
talað um ákveðna kvikmynd
og kostnað við hana, sem
yrði að greiða, eins og sagt
var, „áður en hún fer að
gera í bólið sitt, ef svo má
að orði komast“. Hér var
auðheyranlega verið að
vanda orðavalið, en því mið-
ur brást það herfilega. Hér
átti vitaskuld að segja: að
gera í blóðið sitt, enda var
átt við það, að myndin skil-
aði hagnaði. Frummerking
þessa orðasambands er um
sláturfé, sem gefur nógan
mör, svo að búa megi blóð-
mör úr öllu blóðinu. En
síðan fær það merkinguna
að gefa nægjar tekjur til
þess að bera uppi útgjöld.
Ætla ég, að þessi afleidda
merking sé enn allalgeng í
málinu. Hins vegar merkir
það að gera í bólið sitt allt
annað, eins og flestir munu
kannast við, þ.e.a.s. að
verða eitthvað á, gera ein-
hver mistök. Hann gerði
laglega í bólið sitt. Ból mun
hér merkja sama og rúm,
sbr. bæli, og þá er næsta
augljóst, hver er frummerk-
ing orðasambandsins. Hér
var því óheppilega að orði
komizt. — JAJ