Morgunblaðið - 06.05.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.05.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990 11 fjaðrafoki hér á landi en greinin í Manchester Guardian. Meðal ann- ars var óttazt að viðskiptunum við Þjóðverja og hlutleysinu væri stefnt í voða. Þýzka sendinefndin kom til Reykjavíkur 20. marz, tveimur dög- um áður en fréttin í Arbejderbladet birtist. Formaður nefndarinnar var Richard Walter, sem áður hafði komið við sögu íslenzkra flugmála. Ríkisstjórn Hermanns Jónasson- ar reyndi að hafna kröfum Þjóð- vetja án þess að styggja þá. Her- mann neitaði að samþykkja að Is- land yrði viðkomustaður Lufthansa á flugleiðinni yfir Atlantshaf og sagði að íslendingar ætluðu sjálfir að hefja flugrekstur. Þjóðveijar sögðu að yrði beiðninni hafnað gæti það komið niður á viðskiptum þjóðanna, en hótun þeirra hafði engin áhrif. Nokkrum dögum síðar endurtók sendiherra Þjóðveija í Kaupmannahöfn, Cecil von Rente- Fink, hótunina í samtali við Svein Bjömsson, en Sveinn sagði að ákvörðun íslenzku ríkisstjórnarinn- ar stæði óhögguð. Þýzkur hernaðaráhugi „Walter og förunautar hans höfðu farið erindisleysu, en íslend- ingar haldið sínum hlut,“ skrifar Þjóðveijar hefðu stöðvar fyrir kaf- báta og flugvélar á íslandi...“ Snemma í marz 1939 birti brezka blaðið Manchester Guardian grein, þar sem Þjóðveijar voru sakaðir um að smygla vopnum til íslands og reyna að ná landinu á sitt vald með undirróðurstarfsemi. í greininni sagði að íslendingar væru orðnir svo háðir Þjóðveijum í verzlun að Þjóðveijar hefðu fast tak á íslend- ingum. Heimildarmaður blaðsins reyndist vera Daninn Peter Rohde, sem var handgenginn íslenzkum sósíalistum og greinin vakti reiði meðal andstæðinga þeirra. í sama mánuði skýrði Sveinn Björnsson, sendiherra í Kaup- mannahöfn, íslenzku ríkisstjórninni frá því að hugsanlegt væri að Þjóð- veijar stunduðu njósnir hér á landi. Hann benti á að komizt hefði upp um þýzkan njósnahring í Danmörku og taldi ekki loku fyrir það skotið að hringurinn næði til íslands. Sveinn hafði kynnt sér málsgögnin og fundið möppu merkta Islandi, þótt fátt markvert kæmi þar fram. Þrýstingurinn eykst Um miðjan marz tilkynnti þýzki ræðismaðurinn í Reykjavík, Giinter Timmermann, að nefnd frá Luft- hansa væri á leiðinni til að semja þýzku sendinefndarinnar. Sjálfsagt væri að ræða við nefndarmenn eins og „aðra fúlltrúa frá vinveittum þjóðum“ og ríkisstjórnin hefði leið- rétt þann misskilning að Lufthansa mætti hefja flug hingað. Ekki kæmi til mála að kalla á herskipaflota annarra ríkja, þegar vinaþjóð sendi hingað eftirlitsskip í kurteisisheim- sókn. Einar ályktaði samt að Emden væri sent hingað til að knýja fram kröfur Lufthansa og sendi mál- gagni danskra kommúnista, Ar- bejderbladet, frétt þess efnis. Frétt- in birtist víða og olli jafnvel meira Forsiða Morgunblaðsins hernámsdaginn fyrir 50 árum. um flugréttindi. Þjóðveijar hefðu ákveðið að hefja reglubundið póst- flug til íslands og erindi nefndarinn- ar væri að undirbúa það. Um líkt leyti tilkynntu Þjóðvetjar að Emden kæmi aftur í heimsókn. Af þessu tilefni bar Einar 01- geirsson fram fyrirspurnir á Alþingi og vildi m.a. fá að vita hvort ríkis- stjórnin hefði gert ráðstafanir til þess að brezk eða bandarísk her- skip yrðu hér sömu dagana og Emden lægi í höfn. Hermann Jónasson forsætisráð- herra svaraði því til að ekkert sam- band væri á milli komu Emdens og Þór Whitehead, „í einhveiju mikil- vægasta máli, er risið hafði, síðan ríki þeirra varð fullvalda." Seinna sagði Hermann Jónasson að stjórn- in hefði hafnað kröfu Þjóðveija m.a. vegna þess að ísland hefði verið á brezku hagsmunasvæði og reitt sig á vemd brezka flotans. Þegar Winston Churchill kom hing- að 1941 sagði hann Hermanni: „Þið voruð heppnir að leyfa ekki Þjóðveijum að fljúga hingað" — annars hefðu Bretar þurft að hrekja þá héðan hvað sem það kostaði. Um þetta leyti voru íslendingar farnir að leita hófanna hjá Pan American og búast mátti við að Bandaríkjamenn sneru sér að norð- urleiðinni. En á bak við flugstöðv- arkröfu Þjóðveija bjó ekki aðeins áhugi á norðurflugleiðinni heldur einnig hernaðaráhugi. Þeim var það kappsmál að ná hér hernaðarað- stöðu vegna yfirvofandi ófriðar við Breta og töldu sig standa vel að vígi. „Þjóðveijar virðast hafa talið, að þeir væru búnir að ná slíkum tökum á efnahag íslendinga, að þeir ættu alls kostar við þá,“ skrif- ar Þór Whitehead. „Valdahroki nas- ista var líka í hámarki eftir síðustu sigurvinninga Hitlers." Frá íslandi gátu flugbátar Luft- hansa njósnað um ferðir brezkra herskipa. Slíkt njósnaflug hefði komið sér vel fyrir þýzka hafn- bannsbijóta og kafbáta í árásarhug. Veðurfregnir héðan voru mikilvæg- ar stríðsveldum sunnar í álfu. „Hníga þess vegna öll rök að því að með flugsambandi við ísland hafi Þjóðveijar ætlað að gera hvort tveggja í senn: að afla veðurfrétta og stunda njósnir á Atlantshafi.“ Þetta voru þó aðeins skammtíma- markmið í sámræmi við tillögu Lufthansa um „lágmarksaðstöðu" að sögn Þórs Whiteheads. í upphaf- legri tillögu félagsins hafði verið gert ráð fyrir flughöfnum og flug- völlum, en á árunum 1938-1939 áleit Hitler að nokkur ár mundu líða þar til draga mundi til úrslita- átaka við Breta og hugmyndir hans miðuðust við það. Þar sem Hitler taldi að hann hefði nægan tíma fyrirskipaði hann alhliða uppbyggingu sjóhersins í stað þess að leggja áherzlu á smíði kafbáta, sem voru Bretum hættu- legastir í bráð. „Þjóðveijar voru að reisa við sjóveldi sitt, og þá hlutu þeir að fá augastað á íslandi,“ seg- ir Þór. „Sé „flugmálið" skoðað frá þessu sjónarhorni, mætti ætla að Þjóðveijar hafi einnig stefnt að því að reisa hér árásarstöð." Vestursókn í London þótti greinin í Man- chester Guardian vafasöm, en hún hafði þó þau áhrif að „þýzka hætt- an“ á íslandi var talin „raunveru- leg“. Bowering, ræðismaður í Reykjavík, taldi þýzku hættuna orð- um aukna, en skýrslur hans sann- færðu brezka ráðamenn um að Þjóðveijar væru „í stórsókn á ís- landi“. Þáttaskil urðu í viðhorfum brezka utanríkisráðuneytisins til íslands, en í svari við fyrirspurn í brezka þinginu 3. apríl sagði tals- maður Neville Chamberlains for- sætisráðherra aðeins að brezka stjórnin teldi samband sitt við ís- land ;,afar mikils virði“. Á Islandi var enn kreppa. íslend- ingar lögðu kapp á að auka útflutn- ing til Bretlands og rýmka við- skipti landanna til að afstýra „fjár- hagslegu hruni“. í aprílbyijun fór Sveinn Bjömsson til London, en honum tókst ekki að knýja fram ívilnanir og frest á skuldum, þótt íslendingar beittu í fyrsta skipti fyrir sig „þýzku hættunni". Vegna vandkvæða á viðskiptum við Bretland og styijaldarhættu í Evrópu jókst áhugi íslendinga á nánari samskiptum við Bandaríkin. „Vestursókn" var nýhafin og hún gat dregið úr efnahagslegum áhrif- um Þjóðveija, á sama hátt og auk- in viðskipti við Breta. Ef ófriður stöðvaði aðflutninga frá Evrópu og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.