Morgunblaðið - 06.05.1990, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 06.05.1990, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAI 1990 1 Aðdragandinn vöruskortur gerði vart við sig mundu íslendingar „eiga líf sitt og afkomu undir Bandaríkjaviðskipt- um og Bandaríkin gátu orðið aðal- markaðsland íslendinga". A heimssýningunni í _New York sumarið 1939 kynntu íslendingar land sitt og útflutningsafurðir. Á sérstökum Islandsdegi virtist for- maður íslenzku sýningarnefndar- innar, Thor Thors, óbeinlínis hvetja Bandaríkjamenn til að veija ísland gegn þýzkum nazistum. Gerlach kemur í Reykjavík tók ákafur nazisti við starfi ræðismanns Þjóðverja 1. maí 1939 og skipun hans virtist sýna að ísland væri „innan sjón- máls ráðamanna Þýzkalands“. Nýi ræðismaðurinn var dr. Walter Gerlach, sem var höfuðsmaður í öryggissveitum SS og skráður í einkastarfslið Heinrichs Himmlers. Annars var hann sérfræðingur í meinafræði og á skrá um helztu lækna Þýskalands. Að sögn Þórs Whiteheads ber erindisbréf Gerlachs með sér „að Þjóðveijar hafi stefnt að því að draga ísland yfir á sitt áhrifa- svæði“. Nazistastjómin hafi ekki lengur látið sér lynda að hamla á móti engilsaxneskum áhrifum: „Hún ætlaði nú að ná drottnunar- valdi yfir íslendingum og hafa af- not af landinu hernaðarlega og efnahagslega.“ Gerlach var falið að: • stuðla að þvi að íslendingar héldu tengslum sínum við meg- inlandið, þ.e. Danmörku, og þar með væntanlegt áhrifasvæði Þjóðveija, • efla viðskipti landanna og auka þannig stjómmálaítök Þjóð- veija, • reka áróður meðal Islendinga og Þjóðveija búsettra á íslandi með þetta sama markmið fyrir augum. Til þess að vega upp á móti heim- sókn Emden og flugstöðvarkröfum Þjóðveija sendu Bretar herskipið Vindictive til íslands. Það kom til Reykjavíkur 17. maí. Með í förinni var starfsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins, Berkeley Gage, sem átti að kanna afstöðu Islendinga til Breta og Þjóðveija og afla upplýs- inga um starfsemi Þjóðverja hér- lendis og meta árangur hennar. I skýrslu um ferðina kvaðst Gage telja að þorri þjóðarinnar væri á bandi Breta og að Þjóðveijar hefðu „ekki haft erindi sem erfiði á ís- landi" þrátt fyrir mikinn bægsla- gang. Þegar leitað var umsagnar brezka herforingjaráðsins komst það að þeirri niðurstöðu að ísland væri Bretlandi „hvorki mikils virði sem útflutningsmarkaður né inn- flytjandi matvæla til Bretlandsv en hefði nokkurt hernaðargildi“. Stríðið var nú alveg á næsta leiti. í júlí gaf íslenzka ríkisstjórnin út lög „um aðgang herskipa og herloftfara erlendra ríkja, er eiga í ófriði, að íslenzku forráðasvæði". Síðan gerði stjórnin ráðstafanir til að tryggja nægar vörubirgðir í landinu, m.a. með skipun útflutn- ingsnefndar. Hlutleysið brotið Þegar heimsstyijöldin hófst með árás Þjóðveija á Pólland 1. septem- ber var gefín út konungleg tilskipun um að farið yrði eftir ákvæðum hlutleysissyfírlýsingarinnar frá 1918. Kapp var lagt á það í byijun ófriðarins að tryggja að hlutleysi íslands væri virt. Dagana 18.-19. september sat Sveinn Bjömsson fund forsætis- og utanríkisráðherra Norðurlanda í Kaupmannahöfn, þar sem því var lýst yflr að ríkin mundu gæta ítrasta hlutleysis í samræmi við fyrri yflrlýsingar. í lok mánaðarins nauðlenti brezk sjóflugvél á Raufarhöfn og þar með var hlutleysi landsins rofíð í fyrsta sinn í stríðinu. Flugvélin var kyrr- sett og yfirmaður áhafnarinnar, L.K. Barnes, hét því að viðlögðum drengskap að reyna ekki að flýja. Agnar Kofoed-Hansen, flugmála- fulltrúi ríkisstjómarinnar, fór norð- ur til Raufarhafnar að sækja flug- vélina og áhöfnina og var vopnaður hríðskotariffli, en þegar hann svaf laumaðist Bames burtu á flugbátn- um. Bames var framseldur að kröfu íslendinga, en flugvélinni var ekki skilað. Um veturinn var hann í stofuvarðhaldi á Bessastöðum ásamt konu sinni og samdi skýrslu um lendingarstaði fyrir flugvélar. Alvarlegra hiutleysisbrot varð uppskátt um miðjan október. Starfsmenn loftskeytastöðvarinnar í Reykjavík komust á snoðir um morse-sendingar á dulmáli frá ókunnri sendistöð og sendingartím- inn virtist standa í sambandi við veðurfregnir útvarpsins. Böndin bárust að dr. Gerlach í bústað hans við Túngötu. Um líkt leyti kvörtuðu Bretar yfir því að Þjóðveijar fengju fréttir um veður og skipaferðir frá íslandi, en í desember hættu leyni- sendingarnar í bili. Á þessum fyrstu mánuðum stríðsins reyndu Isiendingar að fá Breta til að rýmka viðskipti land- anna. Bretar afléttu hömlum á inn- flutningi á físki, en fengust ekki til að lækka 10% toll eða fella hann niður. Viðræður við Breta íslenzk sendinefnd undir forsæti Sveins Björnssonar ræddi við Breta í London frá því í október. Á það var lögð áherzla að íslendingar héldu fast við hlutleysi sitt og vildu eðlileg viðskipti við alla stríðsaðila, þótt flestir landsmenn væm hlynnt- ir Bretum. Bretar vildu stöðva Þýzkalandsviðskipti íslendinga og m.a. hafa eftirlit með útflutningi þeirra til Norðurlanda til að koma í veg fyrir óbein viðskipti við Þjóð- veija. Islendingar óttuðust að þeir mundu kalla yfír sig hefnd Þjóð- veija og veikja hlutleysið ef þeir hættu viðskiptum við þá’og semdu við Breta. Þess vegna hétu brezk stjórnvöld því á laun í janúar 1940 að veita Islendingum aðstoð eða vemd ef þeir yrðu látnir gjalda Þýzkir kafbátar I Reykjavíkur höfn íjúlí 1939. samninga við Breta. Boðinu var hafnað á þeirri forsendu að íslend- ingar vildu aðeins sitja við sama borð og aðrar hlutlausar þjóðir. Formlegur samningur mundi úti- loka viðskipti við Þjóðveija og kom ekki til greina. Óformleg samvinna við Breta var hins vegar tekin upp og nefnd skipuð til að stuðla að auknum viðskiptum. Þýzki sendiherrann í Kaup- mannahöfn, v. Rente-Fink, spurði Svein Björnsson þegar hann kom aftur frá London hvort íslendingar hefðu ekki áhuga á svipuðum við- ræðum við Þjóðveija. Sveinn sagði að íslendingar vildu áframhaldandi viðskipti við þá, en Þjóðveijar yrðu að útvega flutningaskip, því að ís- lendingar vildu ekki ijúfa hafnbann Breta á Þýzkaland. Þar með var málið úr sögunni. Þýzkir skipbrotsmenn Frá því í nóvember hafði brezka leyniþjónustan óljósar fréttir því að Þjóðveijar hefðu uppi áform um að hemema Danmörku. Bretar sáu strax að gerðist það gætu þeir tek- ið ísland og Færeyjar. Þetta kom fram í viðtölum Sveins Björnssonar við brezka ráðamenn í desember og hann sendi ríkisstjórninni skýrslu um málið. Fréttin í i bladetí n í Reykjavík dvöldust þýzkir skip- brotsmenn fyrstu mánuði ársins 1940 og þeir þóttu grunsamlegir. Þeir voru af þýzka vöruflutninga- skipinu Bahia Blanca, sem sendi út neyðarkall þegar það var í ís út af Vestfjörðum 10. janúar, þar sem leki hefði komið að því. íslenzkur togari bjargaði 62 mönnum af skip- inu og sigldi með þá til Reykjavík- ur, þar sem þeir fengu gistingu á þremur stöðum. Skipbrotsmennirnir af Bahia Bianca. vigfús Sigurgeirsson/virkið í norðri Ljósm. Skafti Guðjónsson/Virkið í norðri Þýzka beitiskipið Emden (5.400 smálestir) á ytri höfn Reykjavík- ur 8. ágúst 1938. Sjóliðar af Emden ganga niður Bankastræti. Skafti Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.