Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 14

Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990 Aðdragandinn • Norræn hlutleysishefð og vopn- ' leysi þjóðarinnar. • Hugsanleg hefnd Þjóðverja ef þeir kæmust á snoðir um sam- drátt milli íslendinga og Breta. • Lega landsins, sem héldi landinu utan við átakasvæði. Bretar höfðu einnig þrjár ástæð- ur til að skima í norður að sögn Tómasar, sem vitnar í Donald F. Bittner: • Þeir óttuðust að Þjóðveijar næðu fótfestu á íslandi. Þaðan gætu þýskar flugvélar og kaf- bátar gert enn meiri usla á Atl- antshafi. Átökin í Noregi sann- færðu Breta um að Þjóðveijar mundu ekki láta þar staðar numið. (Erfið aðstaða Þjóðveija til að ráðast á ísland kom ekki í ljós fyrr en síðar.) • Bretar þurftu griðastaði og birgðastöðvar fyrir flota sinn á Norður-Atlantshafi. Flugað- staða á íslandi mundi einnig koma í góðar þarfir, eins og í ljós kom þegar orrustan um Atlantshaf náði hámarki. • ísland var að verða mikilvægur hlekkur í hafnbannslínu Breta, sem loka átti fyrir siglingaleiðir milli Evrópu og Skandinavíu þegar Þjóðveijar höfðu fengið hernaðar- og skipaaðstöðu í Noregi. Hafnbannslína Breta lá frá Norður-Skotlandi, um Hjalt- land og Færeyjar til íslands og frá Vestfjörðum til Grænlands. Viðbúnaður aukinn Áhyggjur Breta af öryggi íslands jukust vegna ófara þeirra í Noregi. Þeir höfðu upplýsingar um rúmlega 210 Þjóðveija á landinu, þar af tæplega 170 í Reykjavík. Dr. Gerlaeh var til alls líklegur og auð- velt var að smygla vopnum til lands- ins. Samkvæmt fréttum frá Noregi höfðu dulbúnar sveitir Þjóðveija komið þangað á fölskum forsendum fyrir innrásina og ráðizt til atlögu um leið og hún hófst. Svo gat virzt að áhöfnin á Bahia Blanca ætti að gegna svipuðu hlutverki á Islandi. Utgöngubann hafði fijótlega ver- ið sett á þýzku skipbrotsmennina eftir 21 á kvöldin vegna grunsemda í þeirra garð. Fyrstu tvær vikumar eftir innrásina í Noreg var vopnað lögreglulið við öllu búið allan sólar- hringinn í risi lögreglustöðvarinnar. Bretar þóttust vita að 70 manna lögreglulið á íslandi — eina vamar- lið landsins — mætti sín lítils gegn þjálfuðu undirróðursliði Þjóðveija, en þegar þeir sögðu íslenzkum stjórnvöldum frá áhyggjum sínum var þeim tjáð að engin hætta væri á ferðum og Tómas Þór Tómasson segir: „Ekkert hefur komið fram síðar, sem stutt hefur þá kenningu, að skipbrotsmennirnir hafi siglt undir fölsku flaggi.“ Agnar Kofoed-Hansen hafði tek- ið við starfi lögreglustjóra á þrett- ándanum. Agnar var 24 ára og hafði fengið flugliðsforingjamennt- un í Danmörku. Hermann Jónasson hafði sent hann til Þýzkalands árið áður til að kynna sér lögreglumál og „eftirgrennslanakerfí“. Agnar reyndi að koma á heraga í lögregl- unni og kenndi lögreglumönnum meðferð skotvopna á Laugarvatni. Þar var kjarni lögreglunnar að æf- ingum þegar brezka hemámsliðið kom. Daginn eftir hemám Danmerkur heyrðist aftur í leynistöð í Reykjavík í fyrsta skipti síðan í desember. Landssíminn miðaði stöðina út og niðurstaðan var sú að sendibúnað- urinn væri í þýzku ræðismanns- skrifstofunni. Ákveðið var að gera aðför að Gerlach að næturlagi og vörður var settur við bústaðinn í Túngötu til að koma í veg fyrir að stöðin yrði fjarlægð. Agnar lög- reglustjóri valdi fimm lögreglumenn Brezkur herflokkur á göngu framhjá lögreglustöðinni 10. maí 1940. Svavar Hjaltested/Heimsstyöaldarárin á íslandi 1939-1945 Walter B. Lane/Heimsstyijaldarárin á íslandi 1939-1945 Hermann Jónasson Heimsstyijaldarárin á íslandi 1939-1945 Önnur tveggja sendistöðva Gerlachs. sér til fulltingis og láta átti til skar- ar skríða aðfaranótt 19. apríl. Daginn áður bar Hermann Jónas- son forsætisráðherra málið undir ríkisstjórnina, en fékk ekki einróma stuðning. Því var ákveðið að Agnar lögreglustjóri gengi á fund dr. Gerlachs, segði honum að vitað væri um leynistöðina og krefðist þess að hann hætti öllum sending- um. Þetta gerði Agnar tveimur dögum síðar og stöðin þagnaði. Hernámið ákveðið Rúmt ár var síðan íslendingar höfðu orðið varir við áhuga Þjóð- veija á landinu og í apríi 1940 urðu þeir varir við að athygli Breta beind- ist að íslandi. „Um ísland hef ég það að segja á þessari stundu að enginn Þjóðveiji verður látinn kom- ast upp með að stíga þar fæti,“ sagði Winston Churchill í þingum- ræðum 11. apríl. íslenzk blöð skýrðu frá ræðu Churchills, sem þá var enn fiotamálaráðherra. „Allir sáu hveiju fram fór í Nor- egi,“ segir Tómas Þór Tómasson. „Eins og Bretar hræddust margir að Þjóðveijar myndu ekki láta stað- ar numið heldur yrði ísland þeirra næsta takmark. Útlitið var vissu- lega uggvænlegt. Ekki þarf annað en að líta yfir síður blaðanna frá í apríl til að skynja óvissuna sem við blasti. Þjóðveijar virtust ósigrandi og hlutlausar frændþjóðir máttu sín lítils gegn hernaðarmætti þeirra og yfirgangi." í lok mánaðarins (28. apríl) fyrir- skipaði Churchill gerð áætlunar um að koma upp bækistöðvum fyrir flugvélar og herskip á íslandi. Hafa átti samráð við íslenzk stjómvöld, en íslendingar voru ófúsir til sam- vinnu sem fyrr og Bretar ákváðu að grípa til sinna ráða. í London skiptust menn í tvo hópa um hvernig ná skyldi hernað- araðstöðu á íslandi að sögn Tómas- ar Þórs, sem vitnar í Bittner. Full- trúar utanríkis- og fjármálaráðu- neytisins vildu að áfram yrði reynt að fara samningaleiðina. Hernáms- liðið skyldi að minnsta kosti bíða undan ströndum landsins meðan reynt yrði að ná samningum og fá íslendinga til samstarfs með loforð- um um viðskiptaívilnanir. Flota- málaráðuneyti Churchills vildi hins vegar að Bretar hernæmu ísland án nokkurs samráðs við íslendinga. Vilji brezka flotamálaráðuneytis- ins varð ofan á, en nokkur atriði úr tillögum hins valdahópsins í Lon- don voru tekin til greina. Á ríkis- stjórnarfundi 6. maí tilkynnti Churchill að ákveðið hefði verið að hertaka ísland án þess að gera íslenzkum stjórnvöldum viðvart, en sendiherra mundi fara með hernámsliðinu til að skýra aðgerðir Breta og fá íslendinga til að sætta sig við hernámið. Þremur dögum áður hafði sveit úr brezka landgönguliðinu, Royal Marines, verið skipað að fara til „óþekkts ákvörðunarstaðar". Hern- aðaraðgerðin var kölluð „Gaffall" - Operation Fork - og yfirmaður hennar var Robert Sturges ofursti, sem síðar tók Madagaskar her- skildi. Landgöngusveitin var skipuð 775 óbreyttum liðsmönnum og 40 yfirmönnum og þrátt fyrir þá leynd, sem hvíldi yfir aðgerðinni, vissu þeir allir hvert þeir áttu að fara áður en þeir sigldu frá Skotlandi 8. maí. Reynslulaust lið Undirbúningi herleiðangursins var áfátt. Landgöngusveitir brezka flotans eru einvalalið, en reynslu- laust lið var sent til íslands. Hernámsliðið var í lélegri þjálfun og vopn þess gömul og úrelt. Nokkrir nýliðar prófuðu vopn sín í fyrsta skipti á leiðinni. Hernámslið- ið átti uppdrátt af íslandi, en varð að fá fylgdarmann til að rissa upp kort af Reykjavík eftir minni. Sama dag og Bretar hernámu ísland, 10. maí 1940, réðust Þjóð- veijar inn í Holland og Belgíu, sem voru hlutlaus smáríki eins og Nor- egur og Danmörk. Brezkt hernám íslands féll í skuggann og Bretar þurftu ekki að hafa áhyggjur af almenningsálitinu eins og þeir höfðu óttazt. Sama dag varð Winst- on Churchill forsætisráðherra Bret- lands. Bretar og Frakkar komu Hol- lendingum og Belgum til hjálpar, en Þjóðveijar króuðu liðsafla þeirra af við Ermarsundsbæinn Dunkerq- ue og æddu inn í Frakkland. Á síðustu stundu var rúmlega 300.000 hermönnum Bandamanna bjargað á skipum og bátum frá Dunkirk (26. maí til 3. júní), en hergögn voru skilin eftir. París féll 14. júní og Frakkar gáfust upp átta dögum síðar. Þjóð- veijar hófu loftárásir á brezkar borgir, en orrustunni um Bretland lauk með sigri Breta um haustið og Þjóðveijar urðu að fresta innrás- aráætluninni Seelöwe (Sæljón). Churchill lagði fast að Banda- ríkjamönnum að fara í stríðið með Bretum. Eitt stærsta skref í þá átt var stigið þegar Bandaríkjamenn tóku við hervernd Islands 1941, nokkrum mánuðum áður en Japan- ar réðust á Pearl Harbor. Á íslandi leið gamli tíminn undir lok og þjóðin stökk hikandi inn í framtíðina. ■ Helztu heimildir: Þór Whitehead, Island í síðari heimsstyij- öld: Ófríður í aðsigi. Almenna bókafélagið 1982. Stríð fyrír ströndum. AB 1985. Tómas Þór Tómasson, Heimsstyrjatdarárin á íslandi 1939-1945. Fyrra bindi. Bókaút- gáfan Örn og Örlygur 1983. Aðalheimild. Myndir. Donald F. Bittner, The Lion and the White Falcon. Britain and Iceland in the World War II Era. Archon Books. Hamden, Connecticut, 1983. Viðtal við Bittner er annars staðar í blaðinu. Gunnar M. Magnúss, Virkið I norðri. I: Hernám íslands. Helgi Hauksson sá um útgáfuna. Bókaútgáfan Virkið, 3. útgáfa 1984. Tilvitnun notuð í fyrirsögn. Myndir. Endurminningar Sveins Björnssonar; Minn- ingar Agnars Kofoed-Hansens.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.